Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Qupperneq 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014
Svar Ég segi bæði já og nei. Hvað gera land-
eigendur við peningana? Fara þeir allir í að
bæta aðstöðuna? Það vantar nefnilega salerni
víða við þessa staði.
Ólöf Óskarsdóttir, 51 árs.
Svar Mér finnst að það ætti að vera innifalið
í leyfi þeirra sem standa fyrir ferðunum.
Gjaldið þarf hins vegar að vera hófstillt.
Skúli Gunnarsson, 89 ára.
„Mér finnst það fínt að setja gjald á þessa
staði. Það þarf hinsvegar að vera sanngjarnt
gjald en átroðningurinn er mikill á þessum
svæðum.“
Gísli Magnússon, 85 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR HVAÐ FINNST ÞÉR UM GJALDTÖKU Á FERÐAMANNASTÖÐUM?
Svar Þetta er fáránlegt gjald. Sem Íslend-
ingur myndi ég ekki mæta ef þetta verður
sett á þessa staði.
Marta Rut Pálsdóttir, 32 ára.
Morgunblaðið/Ómar
Ólafur Haukur Pét-
ursson notaði heita
pottinn við sumarbústað
fjölskyldunnar sem efni-
við í lokaverkefni úr verk-
fræði. 36
Í BLAÐINU
Vísitala kaupmáttar launa
2007 2014
119,5 115,5
-3%
Verð á lítra af nýmjólk
2007 2014
80 kr.
130 kr.
+63%
Heimild: Hagstofan (tölur fyrir jan/feb)
HVAÐ KOSTAR MJÓLKIN?
Morgunblaðið/RAX
GÍSLI EINARSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Forsíðumyndina
tók Þórður Arnar
Þórðarson.
Karen Ösp Friðriksdóttir var lögð í einelti vegna
veikinda sem komu upp þegar hún var í 7. bekk
grunnskóla. Kennarinn hennar á unglingastigi tók hins
vegar svo vel á málinu að þeg-
ar hún lauk 10. bekk voru
margir sem lögðu hana í einelti
orðnir góðir vinir hennar. Nú
heldur Karen Ösp fyrirlestra
um einelti í skólum. 12
Hugmyndin á bak við CISV-sumarbúðirnar er
að stuðla að friði í heiminum. Árlega fara 60-80 ís-
lensk börn í búðirnar og kynnast krökkum úr ólíkum
menningarheimum. Sum þeirra eiga foreldra sem
fóru sjálfir á sínum tíma. 16
Sagan af Oliver Twist eftir Charles Dickens er
í uppáhaldi hjá danska met-
söluhöfundinum Jussi Adler-
Olsen. Nýjasta bók hans,
Marco áhrifin, kom nýlega
út í íslenskri þýðingu og
fór beint á metsölulista. 58
Gísli Einarsson, ritstjóri Landans, gerði fjóra sjónvarpsþætti um Ladda en
annar þátturinn fer í loftið á RÚV laugardagskvöld. Gísli hlaut viðurkenn-
inguna „Brautryðjandinn 2014“ á ársfundi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
fyrir framúrskarandi atorku og hugvit á sviði verðmæta- og nýsköpunar.
Ertu í raun og veru sveitamaður eða
er þetta gervi?
Ég er ekki leikin persóna, nei. Ég er alveg jafnmikill sveita-
maður og ég lít út fyrir að vera og er bara stoltur af því. Ís-
lendingar eru allir sveitamenn í alþjóðlegu samhengi og
ættu ekki að reyna að fela það.
Hvernig er síðasta vísa sem þú samdir?
Ég er það smekkvís að ég gæti þess vandlega að gleyma
hratt og örugglega þeim vísum sem ég sem. Þær eru alltaf
vondar og sem betur fer fáar. En fyrst þú spyrð þá er þetta
síðasta vísan sem ég samdi:
Pilturinn fær plús í kladda,
pjakkurinn sá göfgar andann.
Ekki er slæmt að eiga Ladda
sem eykur fjör og kætir landann.
RÚV eða Ríkisútvarpið?
Já takk.
Hvernig stendur á því að þú heldur með
knattspyrnuliðinu Halifax Town?
Norðarlega í Englandi er borgin Halifax, á stærð við Reykjavík, ein
mesta textílborg Evrópu fyrr á öldum. Þar er knattspyrnuliðið Hali-
faxhreppur, eitt ömurlegasta knattspyrnulið Englands og það er liðið
mitt. Einfaldlega vegna þess að það má ekki skilja neitt útundan, ekki
einu sinni ömurleg knattspyrnulið. Halifaxhreppur var dæmdur niður
í áttundu deild fyrir nokkrum árum eftir gjaldþrot en nú er allt að ger-
ast. Liðið er komið í fimmtu deild og er sem stendur aðeins tveimur
stigum frá því að komast í umspil um sæti í þeirri fjórðu. Geri aðrir
betur.
Hversu gaman var að gera Ladda-þættina?
Það var alveg gaman. Ég vinn við á hverjum degi að taka viðtöl við
skemmtilegt og áhugavert fólk þannig að það var ekki nýtt. Það er
hins vegar ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að ræða við
stjörnur eins og Eirík Fjalar eða Elsu Lund. Að maður tali ekki um
Ladda sjálfan. Ég er búinn að hlæja að Ladda síðan ég fæddist þannig
að þetta var draumaverkefni. Bara að fá að hitta hann í eigin persónu
var stór stund fyrir mig.
Íslendingar
eru sveita-
menn