Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014 Hanna Birna Kristjánsdóttirinnanríkisráðherra skipaðiÓttar Proppé, þingmann Bjartrar framtíðar, formann þver- pólitísks þingmannahóps sem ætlað er að meta hvort og með hvaða hætti þörf sé á heildarendurskoðun á lög- gjöf um málefni innflytjenda, þar með talið hælisleitenda. Hópurinn var formlega skip- aður í síðustu viku eftir að óskað hafði verið eftir tilnefn- ingum frá öllum flokkum. Auk Ótt- ars skipa hópinn þau Birgitta Jóns- dóttir Pírötum, Lí- neik Anna Sævars- dóttir Framsóknarflokki, Unnur Brá Kon- ráðsdóttir Sjálf- stæðisflokki, Össur Skarphéðinsson Samfylkingu og Svandís Svavars- dóttir Vinstri grænum. „Hópurinn er að hefja störf. Við erum búin að halda tvo fundi og er- um bara á fullu við að fara yfir stöð- una og skoða þær tillögur sem liggja fyrir um úrbætur,“ segir Óttarr Proppé í samtali. Nú þegar liggur fyrir frumvarp innanríkisráðherra til breytinga á útlendingalögum þar sem meðal annars er tekið á hælis- málum. „Við leggjum sérstaka áherslu á hælisleitendamálin. Þar er mikill uppsafnaður vandi. Kerfið er þannig byggt upp að það hefur ekki náð að halda í við fjölgun umsókna þannig að mál hafa safnast upp. Stefnan er auðvitað sú að þróa kerfið þannig að það verði teygjanlegra og geti lagað sig að fjölda umsókna hverju sinni. Þetta er vel skipaður hópur og innan hans er fólk sem hefur mikla reynslu af þessum málum. Okkar vilji er að gera betur í þessum málaflokki og læra af þeim þjóðum sem standa sig best í þessum málum,“ segir Óttarr. Hugsunin er sú að þingmanna- hópurinn starfi áfram með ráðherra og til verði ráðgjafar í málaflokkn- um. Ekki hafa verið sett sérstök tímamörk á starf hópsins. Sérstök áhersla á mál hæl- isleitenda Óttarr Proppé Hanna Birna Kristjánsdóttir Málefni hælisleitenda eru efst á baugi hjá nýskipuðum þingmannahópi um heild- arendurskoðun laga um innflytjendur. Morgunblaðið/Heiddi A ldrei höfðu fleiri mál beðið úrlausnar hjá yfirvöldum í mál- efnum hælisleitenda og í lok árs 2012. Þá biðu 140 einstaklingar eftir úrlausn eða meðferð sinna mála. Á síðasta ári barst svo metfjöldi umsókna um hæli á Íslandi, eða 172 umsóknir. Endanlegar tölur yfir það hvernig staðan var í málefnum hælisleitenda í lok árs 2013 liggja ekki fyrir en ljóst er að mál sem biðu úrlausnar í lok síðasta árs eru mun fleiri en í lok árs 2012. Ekki liggur fyrir hversu margir fengu hæli eða dvalarleyfi á Íslandi á síðasta ári en alls hlutu 17 ein- staklingar alþjóðlega vernd hér á landi á árinu 2012. Með hugtakinu alþjóðleg vernd, sem hefur verið tekið upp í gögnum Rauða krossins, er átt við þá hæl- isleitendur sem annaðhvort er veitt dvalarleyfi eða veitt réttarstaða flóttamanns. Hið fyrrnefnda er al- gengara, þá ýmist á grundvelli mannúðarsjónarmiða og/eða vegna sérstakra tengsla við landið. Rauði krossinn hefur það hlut- verk í umboði Flóttamannastofn- unar Sameinuðu þjóðanna að gæta þess að hælisleitendur fái réttláta málsmeðferð og mannúðlega með- ferð hér á landi. „Stærsta vandamálið í þessum málaflokki er hvað biðtíminn er langur,“ segir Sólveig Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins. Hún segir að miðað við úttekt sem gerð hefur verið á aðstæðum hælisleitenda hér á landi sé það mat Flóttamannastofnunarinnar að al- mennt sé ástandið hér gott, þ.e. að ekkert sé í raun við aðbúnaðinn að athuga þótt hann sé látlaus. Hins vegar sé biðtíminn hið raunverulega vandamál í málefnum hælisleitenda hér á landi. Eins og sjá má á töflu hér að of- an hefur kerfið ekki náð að halda í við fjölgun umsókna um hæli. Þörfin fyrir heilbrigðis- þjónustu eykst Meðalafgreiðslutími umsókna um hæli hjá Útlendingastofnun var 229 dagar á árinu 2012 samkvæmt töl- um frá Rauða krossinum. Árið á var meðalafgreiðslutíminn 178 dagar. Það tók innanríkisráðuneytið að meðaltali 341 dag að úrskurða í kærumálum vegna hælismála á árinu 2012 en við 210 daga árið 2011. „Þegar biðtíminn er svona langur og málin safnast upp þá skiptir að- búnaðurinn ekki eins miklu máli. Þótt aðbúnaðurinn væri þannig að þú byggir á hótelsvítu þá er biðin alltaf mjög erfið. Óvissuþátturinn er það sem tekur öll völdin. Aðgengi að vinnu er lítið fyrir hælisleitendur og þeir hafa ekki nóg aðgengi að heilbrigðis- og sálfræðiþjónustu. Þetta eru allt þættir sem þörfin eykst fyrir því lengri sem málsmeð- ferðin er. Því lengri tíma sem hæl- isleitendur þurfa að bíða eftir úr- lausn því meiri áhrif hefur sú bið á líkamlega og andlega heilsu,“ segir Sólveig. Rauði krossinn vinnur félagslegt starf með hælisleitendum og skipu- leggur heimsóknir til þeirra og veit- ir ráðgjöf varðandi málsmeðferð. „Kerfið hefur einhvern veginn hlaðið utan á sig og máls- meðferð er óhemjulöng. Það virðist ekki nást að vinda ofan af því og þetta er orðið stærsta vandamálið í þessum málaflokki í dag,“ segir Sólveig. Hælisleitendur á Íslandi Fjöldi umsókna um hæli á Íslandi Dvalarleyfi eða hæli veitt* Fjöldi ákvarðana/úrskurða í hælismálum Fjöldi einstaklinga sem áttu hælismál til meðferðar í árslok 2008 2010 20122009 2011 2008 2010 20122009 2011 2013 180 160 140 120 100 80 60 40 20 0 76 35 51 76 117 172 Útlendingastofnun Innanríkisráðuneytið Útlendingastofnun Innanríkisráðuneytið 2008 2010 20122009 2011 2008 2010 20122009 2011 90 80 70 60 50 40 30 20 10 0 160 140 120 100 80 60 40 20 0 72 13 85 47 18 39 79 140 78 44 57 78 37 41 10 34 7 50 23 55 Heimild: Rauði krossinn og Innanríkisráðuneytið *Annars vegar geta yfirvöld veitt hælisleitendum dvalarleyfi af mannúðarástæðum og/eða sérstakra tengsla við landið og hins vegar viðurkennt stöðu hælisleitenda sem flóttamanna. 18 16 14 12 10 8 6 4 2 0 11 17 10 18 17 Samtals 26 21 9 17 22 46 33 54 86 9 Samtals Metfjöldi hælisumsókna hér á landi á síðasta ári Á SÍÐASTA ÁRI BÁRUST ÍSLENSKUM STJÓRNVÖLDUM 172 UMSÓKNIR UM HÆLI HÉR Á LANDI EÐA UM 47% FLEIRI EN ÁRIÐ Á UNDAN. ÞREFALT FLEIRI EINSTAKLINGAR ÁTTU HÆLISMÁL TIL MEÐFERÐAR Í LOK ÁRS 2012 EN Í LOK ÁRS 2008. MÁL SAFNAST UPP Í KERFINU, EKKI HEFUR TEKIST AÐ HALDA Í VIÐ FJÖLGUN UMSÓKNA. LANGUR BIÐTÍMI EFTIR ÚRLAUSN MÁLA HEFUR SLÆM ÁHRIF Á ANDLEGA OG LÍKAMLEGA HEILSU HÆLISLEITENDA OG ER ORÐINN STÆRSTA VANDAMÁLIÐ Í MÁLAFLOKKNUM AÐ SÖGN UPPLÝSINGAFULLTRÚA RAUÐA KROSSINS. * Á árinu 2012 sóttu um hæli átta börn sem komu tillandsins án fylgdar foreldra eða forráðamanna og er þaðmestur fjöldi fylgdarlausra barna til þessa.ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is Sá sem óskar eftir hæli er skilgreindur sem hælisleitandi þar til umsókn hans hefur fengið endanlega afgreiðslu hjá stjórnvöldum. Með um- sókn sinni um hæli er ein- staklingurinn að biðja stjórn- völd um viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður. Ólíkt svokölluðum kvóta- flóttamönnum sem stjórn- völd bjóða til Íslands þurfa hælisleitendur að ganga í gegnum málsmeðferð sem getur tekið allt frá nokkrum dögum upp í nokkra mánuði eða jafnvel nokkur ár áður en ákvörðun er tekin um hæl- isbeiðnina. Þetta kemur fram í upplýsingum á vef Rauða krossins um hælisleitendur. Í tíð Ögmundar Jónassonar sem innanríkisráðherra var lagt til að hugtakanotkun yrði breytt og í stað þess að tala um hæli og hælisleitendur yrðu hugtökin alþjóðleg vernd og umsækjandi um al- þjóðlega vernd notuð í op- inberum texta. Sama orðnotkun er í því frumvarpi sem Hanna Birna Kristjánsdóttir núverandi innan- ríkisráðherra hefur lagt fram um breyt- ingar á lögum um út- lendinga. HVAÐ ER HÆLISLEITANDI? Sólveig Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.