Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 9
16.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Auschwitz-æting-arnar, sex myndasería eftir Einar
Hákonarson, var á dög-
unum færð Háskólalista-
safninu í St. Louis í
Bandaríkjunum að gjöf.
Að gjöfinni stóðu banda-
rísk hjón, Lorraine og
Jordan Cherrick, en Ein-
ar gaf þeim seríuna fyrir
um áratug. Auschwitz-
ætingarnar eru abstrakt
fígúratífar og fjalla í
senn um ferðalag fang-
anna til Auschwitz og
sigur mannsandans.
Að sögn Jordans Cherricks er tilgangurinn með
því að gefa safninu verkin sá að sem allra flestir
fái að njóta þeirra. „Þetta er gjöf til mannkyns
sem verður vonandi til þess að þeir sem sjá þetta
stórkostlega listaverk gleymi ekki hryllingi Hel-
fararinnar og muni aldrei leyfa svo svívirðilegum
glæp að eiga sér stað aftur,“ segir hann.
Safnstjórinn, séra Terrence Dempsey, er í skýj-
unum með gjöfina. „Þetta er sannkölluð samvisku-
gjöf,“ segir hann. „Ætingarnar verða ekki bara að-
gengilegar háskólasamfélaginu heldur öllum
almenningi. Við erum Cherrick-hjónunum afar
þakklát fyrir þessa mikilvægu gjöf.“
Einar kynntist Cherrick-hjónunum, sem bæði
eru lögmenn í St. Louis, fyrir allmörgum árum
þegar þau keyptu af honum málverk. Góð kynni
tókust með þeim í kjölfarið og gaf Einar þeim síð-
ar Auschwitz-ætingarnar, ekki
síst vegna uppruna þeirra en
hjónin eru gyðingar.
Fjörutíu ára gömul verk
Auschwitz-ætingarnar eru tæp-
lega fjögurra áratuga gamlar en
Einar vann þær snemma á ferl-
inum eftir að hafa farið í
ógleymanlega heimsókn í útrým-
ingarbúðirnar alræmdu árið
1965. „Eftir að hafa lesið bókina
Nótt eftir Elie Wiesel, sem
fjallar um útrýmingarbúðir nas-
ista, vaknaði áhugi á því að
heimsækja Auschwitz og það
gerði ég ásamt hópi fólks sem var með mér í
myndlistarnámi í Svíþjóð á þessum tíma. Það var
mikið áfall að koma í búðirnar og fá staðfestingu á
því hvað manneskjan getur verið grimm. Í fram-
haldinu vann ég þessa seríu og það er mjög
ánægjulegt að hún sé nú komin á safn í Bandaríkj-
unum,“ segir Einar.
Einar og Cherrick-hjónin voru sammála um að
tileinka seríuna Fred S. Zeidman, fyrrverandi
stjórnarfomanni bandaríska Helfararráðsins, en
hann hefur helgað líf sitt baráttunni gegn misrétti
í þessum heimi.
Háskólalistasafnið í St. Louis (SLUMA) sérhæf-
ir sig í samtímalist og státar af verkum eftir Serge
Poliakoff, Richard Serra, Ernest Trova og marga
fleiri. Þá er mikið um trúarleg verk í safninu en
það var á sínum tíma stofnað af katólikkum.
orri@mbl.is
AUSCHWITZ-SERÍA EINARS HÁKONARSONAR KOMIN Á SAFN Í ST. LOUIS
Sigur mannsandans
yfir grimmdinni
Yfir múrinn, eitt verkanna í Auschwitz-seríunni, sem Einar Hákonarson gerði1966.
Einar Hákonarson myndlistarmaður.
Séra Terrence Dempsey, safnstjóri Háskólalistasafnsins í St. Louis, rabbíninn Randy
Fleisher og gefendur verkanna, hjónin og lögmennirnir Lorraine og Jordan Cherrick.
Morgunblaðið/RAX