Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Side 15
dreifa umræðunni. Þannig er ég þess fullviss að þjóðin sjái að hagsmunum hennar hefur ætíð verið best borgið sem sjálfstæð og full- valda þjóð í nánu samstarfi við aðrar þjóðir og yfirþjóðlegar stofnanir eins og ESB. Alltof oft misssum við frá okkur mikilvægustu málin eins og gerðist með breytingar á stjórnar- skránni, rammaáætlunina og aðlögun að Evr- ópusambandinu án þings og þjóðar vilja. Öll þessi atriði hafa liðið fyrir það að vera sett í rangan farveg í upphafi af fyrrverandi ríkis- stjórn í einhverskonar hugmyndafræðilegu stríði um Ísland.“ Popúlismi hjá Framsókn Hvernig finnst þér ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnarinnar hafa staðið sig? „Mér finnst ráðherrrar Sjálfstæðisflokksins standa sig mjög vel. Ef ég ætti að nefna ráð- herra sem hefur farið fram úr væntingum mínum myndi ég nefna Kristján Þór Júlíusson sem er með gríðarlega erfitt ráðuneyti en vinnur af öryggi og fagmennsku. Stundum minnir hann mig á Faxasker hér í Vest- mannaeyjum sem oft brýtur á og jafnvel yfir. Það haggast þó ekki og er tilbúið að veita skipbrotsmönnum skjól ef þörf er á. Bjarni Benediktsson hefur vaxið sem stjórnmála- maður, er landsföðurlegur og yfirvegaður. Klárlega öflugasti ráðherra þessarar ríkis- stjórnar og leiðtogi hennar. Hanna Birna er án efa einn sterkasti stjórnmálamaður þessa lands, sterkur ráðherra, heiðarleg og réttsýn. Það hef ég ítrekað séð í málefnum Vest- mannaeyja. Hún hefur hinsvegar liðið fyrir hálfkveðnar vísur fjölmiðla í kringum minn- isblaðslekann sem gefið hafa út skotleyfi á hana. Illugi og Ragnheiður Elín lofa góðu. Mér finnst ráðherrar Framsóknarflokksins tala af meira ábyrgðarleysi og glannaskap en ráðherrar Sjálfstæðisflokksins. Þar er minni kjölfesta og meiri popúlismi. Margir í þing- flokki framsóknarmanna eru enn að finna taktinn sem þingmenn. Það er svo rétt að halda því til haga að eftir að Evrópuumræða tók flugið er allt gert til að finna höggstað á þingmönnum og ráðherrum Framsóknar- flokksins. Sem dæmi má nefna Vigdísi Hauks- dóttur sem er talsmaður Framsóknarflokksins í mörgum málum. Það er setið um allt sem hún segir og snúið út úr. Í beinni útsendingu verða henni á mistök þar sem hún ræðir með- al annars um Möltu og þá eru þau ummæli blásin upp. Hún ræðir um virðingu Alþingis, sem er mjög réttmætt, og nefnir að áður fyrr hafi virðingin verið svo mikil að samskipti þingmanna og starfsmanna hafi verið með öðrum hætti en í dag. Þetta er gert að aðal- atriði í öðrum fjölmiðlum til þess eins að veikja málflutning hennar. Nú sjáum við þess- ar sömu trakteríngar gagnvart Gunnari Braga. Mér finnst það hvorki heiðarleg né málefnaleg leið að fara í manninn frekar en boltann.“ Hörundsár Sigmundur Ég geri ráð fyrir að þú hafir frekar viljað sjá Bjarna Benediktsson sem forsætisráðherra en Sigmynd Davíð. Hvernig finnst þér Sigmund- ur Davíð hafa staðið sig í embættinu? „Það er rétt, ég hefði gjarnan viljað sjá Bjarna Benediktsson sem forsætisráðherra. Hann býr yfir yfirvegun og næmi sem gefur málflutningi hans aukna vigt og fyrir vikið hefur hann orðið leiðtogi ríkisstjórnarinnar. Hann hefur axlað það hlutverk vel. Mér fannst Sigmundur Davíð standa sig vel í kosn- ingabaráttunni, hann stillti sér upp sem mál- svari þjóðarinnar og andstæðingum gekk illa að finna á honum höggstað. Eftir að hann varð forsætisráðherra hefur mér fundist hann gera margt vel en mér finnst hann of hör- undsár. Hann virðist vilja fá áfram þá mjúku meðferð sem hann fékk að hluta til í kosn- ingabaráttunni, en slíkt er ekki og á ekki að vera í boði fyrir forsætisráðherra. Ég held að hann eigi eftir að ná betri tökum á embætt- inu. Hann hefur sýn sem hann er reiðubúinn að fylgja eftir og ef hann nær flokki sínum á bak við sig held ég að honum verði allir vegir færir. Þessi ríkisstjórn á að geta unnið meira gagn en síðasta ríkisstjórn vegna þess að hún er samstæðari og með sterkari meirihluta. Ég hef trú á ríkisstjórninni en mér finnst hún mega sýna meiri kraft og ganga fastar fram. Þegar hægristjórn tekur við af mestu vinstri- stjórn seinni tíma þá vill maður sjá skýrt strik í sandinum. Ég hef þá trú að Framsókn- arflokkur og Sjálfstæðisflokkur eigi eftir að finna taktinn betur. Af nógu er að taka. Rík- isfjármál eru forgangsatriði og þar þarf að forgangsraða langt umfram það sem gert hef- ur verið. Stjórnarflokkarnir þurfa að vinna að tilslökunum í tollamálum, koma á skattalækk- unum og móta skýra peningastefnu án þess að utanríkismál í víðum skilningi séu að þvæl- ast þar fyrir. Atvinnulífið er að kalla eftir skýrri peningastefnu og það er von. Þjóðin er líka að kalla eftir því að geta farið út í búð og keypt sér oststykki án þess að greiða fyrir það stórfé. Ég held að þjóðin sé tilbúin að vinna mikið en hún vill líka sjá árangurinn á launaseðilinum frekar en í vexti hins opin- bera.“ Finnst þér að það eigi að fara fram þjóð- aratkvæðagreiðsla um áframhald aðildar- viðræðna við Evrópusambandið? „Ég verð var við það að að hinum almenna sjálfstæðismanni finnst eðlilega óþægilegt að flokkurinn sé orðinn ábyrgur fyrir framhaldi að þessum aðlögunarviðræðum við Evrópu- sambandið þegar ætíð hefur legið fyrir að flokkurinn er á móti aðild. Í því ljósi séð held ég að best sé að málið verði áfram í þeim óvirka farvegi sem Samfylking og Vinstri græn settu málið í. Mér finnst eins og þjóðin sé búin að gleyma því að það voru Samfylk- ingin og VG sem settu málið í formalín- krukku, til varanlegrar geymslu ef til vill, eft- ir að hafa í tvígang fellt tillögu um að leitað yrði til þjóðarinnar. Og ég minnist þess ekki að þá hafi verið fjölmenn mótmæli á Aust- urvelli. Krafa um að ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarfloks beiti sér fyrri atkvæða- greiðslu um ákvörðun VG og Samfylkingar um að stöðva ferilinn er vægast sagt furðuleg. Mín skoðun er sú að það ætti ekki að fara fram nein atkvæðagreiðsla um þetta mál fyrr en eftir næstu kosningar. Málið er stopp og við því ætti ekki að hreyfa fyrr en fyrir liggur skýr vilji bæði þings og þjóðar um vilja til að ganga í ESB. Hér á landi þurfa að verða til „Já“ og „Nei“ hreyfingar en illu heilli kom Samfylkingin málum þannig fyrir að urðu til „Nei“ og „Kíkja í pakkann hreyfingar“. Þann- ig fyndum við þessu máli farveg utan flokks- pólitíkur og það væri vel.“ * Mín skoðun er sú að það ætti ekki að fara framnein atkvæðagreiðsla um þetta mál fyrr en eftirnæstu kosningar. Málið er stopp og við því ætti ekki að hreyfa fyrr en fyrir liggur skýr vilji bæði þings og þjóðar um vilja til að ganga í ESB. 16.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Sófaborð margar gerðir og stærðir Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Model 2811 Sófi L207 D89 H75 Áklæði Ct.83 verð 299.000,- | Leður Ct.10 verð 398.000,- | Fæst einnig 2ja sæta og stóll. Drop 180x86 verð 169.000,- Marta (tvö borð og bakki) verð 184.000,- Samuel 105x70 verð 169.000,-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.