Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014
Fjölskyldan Hvað? Kveikjum eld – árleg barna- og unglingabókaráðstefna.Hvar og hvenær? Gerðubergi, laugardag kl. 10.30-13.30.
Nánar: Fjallað er um skemmtilegar leiðir til að kveikja áhuga barna
á lestri. Fjöldi fyrirlesara, meðal annars Yrsa Sigurðardóttir.
Fyrirlestur um barnabækur
O
kkur líst rosalega
vel á þetta. Það
er mikil til-
hlökkun en líka
pínu stress,“ seg-
ir hin 11 ára Katrín Anna
Karlsdóttir sem leggur land
undir fót í sumar ásamt Kötlu
Sigríði Gísladóttur á vegum
CISV-samtakanna. Þær stöllur
ætla að fara alla leið til Suður-
Kóreu þar sem þær munu dvelja
í mánuð ásamt tveimur 11 ára
strákum og fararstjóra.
Ævintýri sem verður þeim
ógleymanlegt og munu þær búa
að þessari lífsreynslu um alla
ævi. Það þekkja foreldrar þeirra,
Karl Pétur og Hildur, sem sjálf
fóru á vegum CISV-samtakanna
þegar þau voru 11 ára.
Hugmyndin snýst um frið
Hugmyndin að Alþjóðlegum sum-
arbúðum barna, sem í dag eru
þekktar sem CISV International,
var þróuð af dr. Doris Allen ár-
ið 1946 í kjölfar seinni heims-
styrjaldarinnar. „CISV er stofn-
að til að stuðla að friði í
heiminum. Að krakkar hittist
hvaðanæva úr heiminum, því
maður fer ekki í stríð við vini
sína,“ segir Hildur Ragnars sem
fór á vegum samtakanna þegar
hún var 11 ára. Í kjölfar ferðar
Hildar var skrifuð grein í ABC
sem Karl Pétur sá og fór
skömmu síðar. Stofnandinn dr.
Doris Allen var tilnefnd til Frið-
arverðlauna Nóbels árið 1979 en
Móðir Theresa hlaut verðlaunin
það árið. CISV á Íslandi rekur
sögu sína til ársins 1954 en Vil-
bergur Júlíusson, sem þá var
skólastjóri í Flataskóla í Garða-
bæ, tók starfið upp á sína arma
í kringum 1970 og átti veg og
vanda af því að stofna CISV á
Íslandi 1981. Í dag sendir CISV
á Íslandi 60-80 einstaklinga til
þátttöku í hinum ýmsu al-
þjóðlegu prógrömmum. Enn er
laust í nokkrar ferðir.
Breytir fólki fyrir lífstíð
„Þessi samtök eru algjörlega
laus við alla pólitík og sem
dæmi þegar ég fór 1981 voru
sovéskir strákar að spila fótbolta
við bandaríska stráka. Ári áður
höfðu Bandaríkjamenn ekki
mætt á Ólympíuleikana í
Moskvu. Þetta var alveg á há-
punkti kalda stríðsins en þessum
krökkum fannst ekkert nema
eðlilegt að leika saman,“ segir
Karl Pétur og segist enn búa að
þessari reynslu sinni í dag.
„Mörg íslensk börn hafa ekki
farið frá foreldrum sínum í
meira en eina viku og þarna
þarf að tala ensku í heilan mán-
uð, standa á eigin fótum og um-
gangast alþjóðlegt umhverfi.
Þetta breytir fólki fyrir lífstíð,“
segir hann og Hildur tekur í
sama streng. „Þetta er trúlega
erfiðara fyrir foreldrana en
börnin. Þarna fá þau að kynnast
krökkum frá öllum löndum sem
eru innan CISV og sjá heiminn
í nýju ljósi – hvað allt er í raun
og veru líkt þrátt fyrir fjarlægð-
ina á milli.“ Katrín og Katla
geta varla beðið eftir að stíga
um borð í flugvélina og halda á
vit ævintýranna. „Vinum okkar
finnst þetta spennandi og svolít-
ið kúl að við séum að fara,“
segir Katrín og Katla er álíka
spennt. „Við förum með íslenskt
nammi og kynnum það því einn
daginn á að kynna landið sitt.
Það verður gaman að smakka
nammi annars staðar frá.“
TVÆR 11 ÁRA STÚLKUR, KATLA OG KATRÍN, Á LEIÐ TIL SUÐUR-KÓREU Á VEGUM CISV Á ÍSLANDI
Ógleymanleg
lífsreynsla
Morgunblaðið/Þórður
CISV-SAMTÖKIN Á ÍSLANDI SENDA 60-80 BÖRN VÍÐSVEGAR
UM HEIMINN Í SUMARBÚÐIR. BÖRN ÞEIRRA KARLS PÉTURS
JÓNSSONAR, SEM FÓR 1981, OG HILDAR RAGNARS, SEM
FÓR 1980, FARA SAMAN TIL SUÐUR-KÓREU. KARL FÓR EFT-
IR AÐ HAFA SÉÐ GREIN SEM BYGGÐIST Á FERÐ HILDAR
SEM BIRTIST Í BARNABLAÐINU ABC FORÐUM DAGA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Karl Pétur Jónsson og Katrín Anna dóttir hans ásamt Hildi Ragnars og Kötlu Sigríði, dóttur hennar. Karl Pétur fór á veg-
um CISV eftir að hafa lesið grein í ABC sem kom í kjölfar ferðar Hildar.
„Heilræðin okkar eru mjög vinsæl
og í grunninn hafa þau verið nánast
óbreytt í tíu ár, með smálagfær-
ingum auðvitað. En grunnskilaboðin
eru alltaf þau sömu,“ segir Guðberg
K. Jónsson, verkefnastjóri hjá SAFT,
en á vefsíðu þeirra má finna 10 net-
heilræði. „Við erum þeirrar skoð-
unar að foreldrar þurfi að nálgast
netið eins og með umferðarreglur
og sundferðir. Við sleppum ekki
börnunum okkar lausum fyrr en
þau eru komin með góðan skilning
á því hvernig á að haga sér í umferð-
inni og eru orðin synd.
Okkar rannsóknir sýna að börn
byrja æ yngri á netinu og yfirleitt
byrja þau heima hjá sér með sam-
þykki foreldra. Þessi tíu heilræði
eru ágæt í þeim efnum,“ segir Guð-
berg.
Netið og samskiptamiðlar geta
verið kjörinn vettvangur fyrir börn
til að kynnast öðrum börnum og fá
alls konar fróðleik beint í æð en
hættur netsins leynast víða.
Heilræðin má sjá hér til hliðar en
á síðu SAFT er farið nánar í hvert
og eitt atriði.
BÖRN BYRJA Æ YNGRI AÐ NOTA NETIÐ
Góðar netvenjur
1 Uppgötvum netið með
börnunum okkar.
2 Gerum samkomulag við börnin
um netnotkun.
3 Hvetjum börnin til að
vera gætin þegar þau veita
persónulegar upplýsingar.
4 Ræðum um þá áhættu sem
fylgir því að hitta netvin.
5 Kennum börnunum að skoða efni
á netinu með gagnrýnum hætti.
6 Barnið kann að rekast á netefni
sem er ekki ætlað börnum.
7 Komum upplýsingum um ólög-
legt/skaðlegt efni til réttra aðila.
8 Hvetjum til góðra netsiða.
9 Kynnum okkur netmiðlanotkun
barnanna okkar.
10 Kennum börnunum að
nota netið á jákvæðan og
uppbyggilegan hátt.
10 netheilræði
SAFT
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16
RECAST - SVEFNSÓFI
Svefnflötur 140x200 cm - Vönduð springdýna
Litir: Blár / Grár - kr. 129.900
SVEFNSÓFAR
SEM BREYTAST Í RÚM Á AUGABRAGÐI
Ó