Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 20
Þ egar Íslendingar settust fyrst að í Al- bertafylki í Kanada fylgdu þeir Kyrra- hafslestinni og kynntu sér möguleg svæði til búsetu. Þannig settist skáldið Stephan G. Stephansson, einn þekktasti íslenski vesturfarinn, að skammt frá Medicine-á norður af Calgary, um 160 km fyrir sunnan Edmonton 1889. Þá var Edmonton þorp, sem byrjaði sem verslunarmiðstöð með skinn og fleira 1795, en 1905 var Edmonton gerð að höfuðborg Alberta og er nú fimmta fjölmennasta borg Kanada og sú nyrsta með yfir milljón íbúa. Auður og uppbygging Alberta er auðugasta fylki Kanada, þökk sé olí- unni, svarta gullinu. Fyrir bragðið er mikill vöxt- ur í fylkinu og þangað flytja margrir frá öðrum stöðum í Kanada, meðal annars nýfluttir Íslend- ingar til Kanada. Eins og allar milljónaborgir hefur Edmonton upp á allt að bjóða. Veðrið fer eftir árstíma. Þannig var 38 stiga frost í byrjun mánaðarins og vegna kælingarinnar var það á við 50 stiga frost. Um liðna helgi fór hitinn yfir frostmark og fram- undan er betri tíð í haga. En það er þarna eins og á landi ísa að fólki er ráðlagt að kynna sér veðurspána og klæða sig samkvæmt því. Svo virðist sem alltaf sé einhver hátíð í gangi í Edmonton og því ekki furða að borgin skuli vera kölluð hátíðaborg Kanada. Í fyrri viku var til dæmis Íslandsvika í borginni vegna fyrsta beina flugs Icelandair frá Íslandi til Edmonton og voru talsmenn ferðamála í Edmonton mjög ánægðir með hvernig til tókst. Edmonton er vel í sveit sett. Ekki aðeins er margt að sjá, skoða og gera í borginni heldur er til þess að gera tiltölulega stutt til ýmissa ann- arra staða. Vegalengdir eru miklar í Norður- Ameríku en ekki er nema um tveggja tíma akst- ur suður til Calgary og þaðan er ekki langt í Klettafjöllin og náttúrufegurðina í Banff, við Lo- uise-vatn og Jasper. Leiðin til Vancouver, Vic- toria og Seattle í Bandaríkjunum er vinsæl ferða- mannaleið. Fyrir Íslendinga er ekki síðra að aka um Íslendingabyggðir í Saskatchewan og Mani- toba. Flug á milli Edmonton og Winnipeg tekur um tvo tíma, en akstursleiðin er um 1.350 km. EDMONTON HÖFUÐBORG ALBERTA SÍÐAN 1905 Vestrið heillar ÞAÐ ER MARGT AÐ SJÁ OG GERA Í EDMONTON, HÖFUÐBORG ALBERTA Í KANADA, OG NAUTASTEIKURNAR ERU MEÐ ÞEIM BESTU Í NORÐUR-AMERÍKU. FRÁ EDMONTON ER LÍKA TILTÖLULEGA STUTT TIL ANNARRA VINSÆLLA FERÐAMANNASTAÐA OG MARGIR MÖGULEIKAR Í BOÐI. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Margir golfvellir eru í Edmonton og verðið hagstætt. Kanada Edmonton Winnipeg Calgary B A N D A R Í K I N K A N A D A K l e t t a f j ö l l i n Vancouver Victoria British Columbia Alberta Saskatchewan Manitoba Ontario Nunavut Northwest Territories Seattle 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014 Ferðalög og flakk Blaðamaður hefur nokkrum sinnum komið til Edmonton og alltaf upplifað eitthvað nýtt. Í boðsferð Icelandair að þessu sinni kynntist hann meðal annars stemningunni í þinghúsinu, fór í Kon- unglega Albertasafnið og strauk þar tar- antúlu. Hann fékk innsýn í líf skinnasala á 18. öld og sá götulíf eins og það var um aldamótin 1900 í virkisgarðinum Fort Ed- monton Park. Auk þess er vert að geta þess að útivistarsvæði eru víða og margir golfvellir, þar sem hægt er að fara 18 hol- ur fyrir 15 dollara, um 1.500 krónur. Tarantúla á safni og golf * Þótt frostiðgeti veriðmikið í Edmon- ton á veturna er borgin ein sú sólríkasta í Kanada með um 2.300 sólar- stundir á ári. Góð aðstaða er til útivistar í borginni. Riddaralögreglan er sýnileg á mikilvægum viðburðum. Fyrsta beina flug Icelandair til Edmonton var í liðinni viku og var klippt á borða á flugvellinum af því tilefni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.