Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 24
Það þarf ekki að vera flókið að breyta mataræði til hins betra. Margt smátt gerir eitt stórt á vel við um mataræði og því ágætt að taka eitt skref í einu þegar skipt er út fyrir hollari fæðu. Skiptu út venjulegri mjólk fyrir lífræna mjólk Skiptar skoðanir eru á því hvort ráðlagt sé að drekka mikið af mjólk. Allt er gott í hófi en það get- ur verið snjallt að skipta stundum út venjulegri mjólk fyrir lífræna mjólk, t.d. hrísmjólk, möndlu- mjólk eða haframjólk. Skiptu út banana fyrir bláber Þó að ber séu sæt á bragðið er mun minni ávaxtasykur í þeim en í bönunum og eru þau einnig stútfull af andoxunarefnum. Skiptu út kaffi fyrir te Koffín færir þér orku en þó aðeins í skamman tíma. Grænt te er betra fyrir líkamann en kaffi en það inniheldur fullt af andoxunarefnum og ýmsum næringarefnum. Auk þess er það vatnslosandi. Skiptu út „diet“ gosdrykkjum fyrir sódavatn „Diet“ gosdrykkir hafa minni kalorí- ur en venjulegir gosdrykkir en á móti er mikið af gervisykri í þeim sem gerir það að verkum að líkaminn sækir í sætuefni fljótlega eftir vænan sopann. Snjallt er að skipta út fyrir sóda- vatn og jafnvel kreista smá lime eða sí- trónu út í. Skiptu út hnetum fyrir fræ Hnetur tíðkast yfirleitt sem holl fita fyrir líkamann en margar hverjar eru vel saltaðar, sykraðar eða ristaðar. Þá er ráð að skipta yfir í fræ. Gott er að blanda þeim saman í ílát og borða milli mála. Sólblómafræ, sesamfræ og graskersfræ er sérlega góð blanda. Skiptu út fitusnauðu jógúrti fyrir venjulegt jógúrt Bragðbætt jógúrt inniheldur yfirleitt mikinn sykur jafnvel þó að á því standi að það sé fitusnautt eða létt. Betra er að borða bragðlaust, venjulegt jógúrt og bæta við ávöxt- um eftir smekk. Skiptu út mjólkursúkkulaði fyrir dökkt lífrænt súkkulaði Flest súkkulaðistykki innihalda mikið magn af sykri og gefa líkamanum mjög litla næringu, jafnvel enga. Hins vegar inniheldur dökkt, lífrænt súkkulaði lítinn sykur og getur það aukið blóðflæði upp í heila og hjarta, sem kemur starfsemi lík- amans betur af stað. Skiptu út ávaxta-bústi fyrir grænt búst Það er gott að halda ávaxtrasykri í lágmarki og borða meira grænmeti. Gott er að blanda grænu grænmeti saman við avókadó, engifer og ýmis fræ á borð við hampfræ sem eru rík af ómega- fitusýrum. SKIPTU ÚT FÆÐU FYRIR BETRI FÆÐU 8 heilsusamlegri hráefni 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014 Heilsa og hreyfing Það er mikilvægt að fá sér reglulega snarl á milli máltíða. Með því að borða litlar máltíðir eða snarl yfir daginn heldurðu meltingunni í gangi og brennir hitaeiningum jafnt og þétt. Þá minnk- ar einnig þörfin fyrir snögga orku, eins og t.d. sykur. Gott snarl er til dæmis próteinstöng, ávöxtur, hnetur og grænmeti. Snjallt er að hafa eitthvert smánesti með sér í vinnuna. Nart er gott Fyrir þá sem alltaf hafa alið með sér ballerínudrauma er engin ástæða til að gefa þá upp á bátinn, jafnvel þótt árin færist yfir. Netið geymir hafsjó af fróðleik, líka um ballett fyrir fullorðna. Á myndbandavefnum youtube er ein- falt að nota leitarstrengi eins og „bal- let for beginners“ og rekja sig áfram eftir lista af myndböndum sem þá birtast. Sem dæmi um ballettmyndbönd fyrir byrjendur á youtube má nefna að vefsíðan livestrong.com birtir myndband sem heitir „How to do beginners ballet“ en þar er því lýst á einfaldan hátt hvernig stíga má fyrstu skrefin í ballettnum. Ballettkennari að nafni Tiffany Rothe heldur úti vefsíðu og birtir myndbönd með æfingakerfum sínum á youtube. Myndband sem heitir „10 Minute Ballerina Beauty“ hefur að geyma fína og passlega stutta ballett- æfingu fyrir þá sem hafa ekki mikla reynslu af dansi. Ballettdraumurinn þarf ekki að vera úti þótt táskórnir séu kannski fjarlæg hugmynd. 10 MÍNÚTNA DANSÆFING Svanavatnið er ekki endilega fyrir byrjendur en það geta allir reynt einfaldar ballettæfingar heima í stofu. Ballett heima í stofu Fæst á iPhone 4, 4S, 5, 5S og Samsung Galaxy S4 • Verð kr. 5.400 • Ótal myndir í boði www. minja.is • facebook: minja • Skólavörðustíg 12 Börkur er samstarfsverkefni Ragnars og Siggu Soffíu og er vandað símahulstur úr eðalvið með útskornum myndum sem verja símann þinn fyrir hnjaski Í S L E N S K H Ö N N U N Ragnar Kristjánsson, hönnuður og teiknari: „Árangurslaus leit að vönduðu og fallegu hulstri á símann minn kveikti þessa hugmynd.” Sigga Soffía, söngkona og teiknari: “Ég er söngfugl sem elskar að teikna. Fyrir mér er myndlist hugleiðsluverkfæri.”
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.