Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 25
16.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Íþróttakempur leynast víða í samfélaginu og þær eru á ýmsum aldri. Þær koma í öllum stærðum og gerðum en eiga það það sameiginlegt að vera í góðu líkamlegu formi . Kempurnar eru sem betur fer til í að deila reynslu sinni með okkur og veita okkur góð ráð. Kempa dagsins er Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í knatt- spyrnu. Ari spilar með OB í Danmörku en hann skipti um lið fyrir þetta tíma- bil. Fór frá GIF Sundsvall í Svíþjóð og færði sig til Danmerkur. Ari er Valsari og sló í gegn 2006, aðeins 19 ára gam- all. Gælunafn: Svensken eða stundum Gollum. Íþróttagrein: Fótbolti. Hversu oft æfir þú á viku? Á undirbún- ingstímabilinu níu eða tíu sinnum í viku og þegar deildin er í gangi sjö sinnum í viku. Hvernig æfir þú? Það er mismun- andi en mikið þol, hlaupaæf- ingar og með bolta. Einu sinni í viku er lyft- ingaæfing saman en svo ráðum við því sjálfir hversu oft við lyftum – fer eftir ferskleika hjá einstaklingnum. Henta slíkar æfingar fyrir alla? Já, auð- vitað, fótbolti er fyrir alla, en æfingarnar okkar eru fyr- ir þá sem eru lengra komn- ir. Hvernig er best fyrir ný- liða að koma sér af stað? Bara fara út og sparka í bolta og hafa gam- an af því. Hver er lykillinn að góðum ár- angri? Lykillinn að árangri er æfing. Æfingin skapar meist- arann. Aldrei að gefast upp. Hvað er það lengsta sem þú hefur hlaupið? Í leik hef ég hlaup- ið mest 13 kílómetra. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Fara rólega af stað í hreyfingu sem hentar hverjum og einum og gera það að lífsstíl. Líður þér illa ef þú færð ekki reglulega útrás fyrir hreyfiþörfina? Já sérstaklega eftir tímabilið þegar eg er búinn að vera í vikufríi. Hvað er það lengsta sem hefur liðið á milli æfinga hjá þér? Tvær vikur ef ég man rétt. Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí? Við fáum alltaf prógramm með okkur í fríið, púlsklukkur, band og annað til að liðið geti séð hvort við æfðum. Ertu almennt meðvitaður um mataræðið? Allt er gott í hófi. Hvaða óhollustu ertu veikur fyrir? Ég elska íslenska sjoppuborgara og auðvitað KFC. Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Borða reglulega og hugsa út í holl- ustuna. Hvaða gildi hefur hreyf- ing og líkamsrækt fyrir þig? Allt. Þetta er vinnan mín og ég gæti ekki lif- að án þess. Hver eru erfiðistu meiðsl sem þú hefur orðið fyrir? Það á ekki að spyrja svona spurninga. Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar? Fara of geyst af stað og gefast upp. Hver er erfiðasti mótherjinn á ferlinum? Ég sjálfur. Hver er besti samherjinn? Ég hef haft marga góða samherja og það er erfitt að velja einn. Hver er fyrirmynd þín? Andrea Pirlo. Hver er besti íþróttamaður allra tíma? Michael Jordan. Skemmtileg saga/uppákoma frá ferl- inum? Ég er með margar sögur í poka- horninu en þær eru engan veginn prent- hæfar. Skilaboð að lokum? Hafa trú á sjálf- um sér og vera óhræddur við að elta draumana. KEMPA VIKUNNAR ARI FREYR SKÚLASON Með púlsklukku í fríið Morgunblaðið/Eggert … að fullorðinn einstaklingur hefur færri bein í líkamanum en smábarn? Við fæðumst inn í þennan heim með yfir 300 bein í líkamanum en vegna þess að beinin sameinast mörg hver er við stækkum endum við með 206 bein í líkamanum á fullorðinsaldri. Vissir þú …* Það eina sem við þurfum er ást,eins og bítillinn sagði. En örlítiðsúkkulaði hér og hvar sakar ekki. Charles M. Schulz KEMUR HEILSUNNI Í LAG EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Vísindamenn í Georgetown-há- skólanum í Washingtonríki hafa komist að því að hægt er að segja fyrir um alzheimer í einstaklingum með blóðprufu. Rannsóknin sýnir fram á 90% nákvæmni og getur sagt fyrir um hvort einstaklingur muni þróa með sé sjúkdóminn á næstu þremur árum frá greiningu. Þetta kemur fram í frétt BBC, en vís- indamennirnir birtu niðurstöður rannsókna sinna í tímaritinu Nature Medicine. Sérfræðingar segja að niðurstöð- urnar eigi eftir að staðfesta end- anlega með viðameiri klínískum rannsóknum. Fari svo að rannsókn- irnar staðfesti að hægt sé að segja fyrir um sjúkdóminn með blóðprufu yrði það stórt skref áfram í barátt- unni við alzheimer. Í rannsókninni, sem gerð var á fimm ára tímabili, var blóðsýni tekið úr 525 manns yfir sjötugt. Blóðsýni úr 53 einstaklingum sem þróuðu sjúkdóminn með sér eða svipuð einkenni elliglapa voru borin saman við 53 einstaklinga sem voru enn andlega hraustir. Munur fannst á tíu fitustigum í líkamanum milli hóp- anna. Umræddar fitur eiga að geta skorið úr um hvort einstaklingurinn þróar með sér sjúkdóminn á kom- andi árum. Alzheimer eða elliglöp er gríðar- lega algengur sjúkdómur og hrjáir JÁKVÆÐ ÞRÓUN Á SVIÐI RANNSÓKNA Alzheimer eða elliglöp er gríðarlega algengur sjúkdómur og hrjáir marga. Morgunblaðið/Ásdís Segja fyrir um alz- heimer með blóðprufu Spá um elliglöp á heimsvísu Heimild:Alzheimer Samtökin í Bretlandi Í dag Árið 2050 44 milljónir 135 milljónir um 44 milljónir manna. Talið er að sú tala eigi eftir að þrefaldast árið 2050. Sjúkdómurinn herjar hljóð- lega á heilann í meira en áratug áður en einhver einkenni láta á sér kræla. Læknar telja að lyfjameðferðir dugi ekki þar sem sjúklingar hefji þær of seint til að hafa einhver áhrif. Þess vegna er þessi uppgötvun á forspá um sjúkdóminn afar mikilvæg.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.