Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014
Söfn á Suðurnesjum taka nú um helgina í
sjötta sinn saman höndum og bjóða upp á
sameiginlega dagskrá, til að kynna fyrir lands-
mönnum hin fjölbreytilegu söfn og setur sem
eru á svæðinu. Dagskráin verður fjölbreyti-
leg, með þátttöku gallería, veitinga- og gisti-
staða.
Meðal forvitnilegra viðburða má nefna að
klukkan 14 á laugardag verður opnuð í Lista-
safni Reykjanesbæjar sýning á mannamynd-
um málaranna Stephens Lárusar Stephens og
Stefáns Boulters; í Rokkheimum Rúna Júl.
verður poppsagan rakin og þá verður sjó-
sókn og vinnsla sjávarafla kynnt í fjórum
söfnum í þremur bæjarfélögum. Dagskrána í
heild má skoða á vefnum safnahelgi.is.
OPIÐ HÚS Á SUÐURNESJUM
SAFNAHELGI
Vopnaðar kempur stilla sér upp fyrir framan
Víkingaheim, en þar eru þrjár nýjar sýningar.
Ljósmynd/Oddgeir Karlsson
Hluti af verki Sólveigar Aðalsteinsdóttur í
glugga Skúrsins sem verður á Seltjarnarnesi.
Sólveig Aðalsteinsdóttir myndlistarkona
opnar í dag, laugardag, klukkan 14 sýningu í
Menningarhúsinu Skúrnum, sem að þessu
sinni er á bílastæði framan við golfvöllinn á
Seltjarnarnesi.
Sólveig sýnir verk sem hún kallar Randir. Í
texta segir hún Skúrinn nú vera staðsettan
við hafið, „við upphaf göngustígs sem þræðir
sig eftir útlínum nessins, örlítið sunnar við
stíginn er annað hús, steinsteypt byrgi frá
stríðsárunum. Göngustígurinn meðfram
fjörunni, meðfram sjónarrönd hafsins, tengir
saman húsin tvö og myndar ásamt þeim línu-
verkið Randir.“ Verkið er til sýnis alla daga,
meðan dagsbirtu gætir, til 13. apríl.
SÝNIR VERKIÐ RANDIR
SÓLVEIG Í SKÚR
Danski bassaleikarinn
Richard Andersson, sem
hefur verið búsettur hér á
landi síðan í haust og verið
virkur í djasslífinu, hefur
nú stofnað tríó með þeim
Óskari Guðjónssyni saxó-
fónleikara og Matthíasi
Hemstock trommuleik-
ara. Tríóið kemur fram á
tónleikum í Hannesarholti
við Grundarstíg á sunnudag klukkan 14.
Í september kom Andersson á fót vikuleg-
um djasskvöldum á Hressó á sunnudags-
kvöldum þar sem rjóminn af íslenskum djass-
leikurum hefur spilað. Hann hefur annars
hljóðritað og leikið með þekktum tónlist-
armönnum, má þar nefna Jef (Tain) Wats,
George Garzone, Tony Malaby, Bill
McHenry, Bob Moses, Jerry Bergonzi, Kasp-
er Tranberg, Anders Mogensen, Dave
Liebman og Phil Markowitz.
TÓNLEIKAR Í HANNESARHOLTI
DJASSTRÍÓ LEIKUR
Richard
Andersson
Menning
L
íttu á, eftir tíu ára hlé er ég aftur
farinn að mála á striga,“ segir
Bernd Koberling og raðar við
endavegginn splunkunýjum og af-
ar kröftugum málverkum sem
hann hefur unnið að síðustu mánuði, þarna í
stórri og bjartri vinnustofu sinni í Berlín. Ko-
berling sýnir mér öll 27 verkin sem eru á sýn-
ingunni sem verður opnuð í galleríi hans í
Berlín nú um helgina; framúrskarandi verk
sem eru þegar farin að vekja forvitni gagn-
rýnenda enda listmálarinn í hópi þeirra
þekktustu í Þýskalandi.
Síðasta áratug hefur Koberling einbeitt sér
að því að mála abstrakt myndheima sína á
grunnaðar álplötur þarna í vinnustofunni, en
nú hefur hann ögrað sér til að hverfa aftur í
heim olíulita á striga, á þennan eftirtekt-
arverða hátt.
Þarna skapar Koberling á veturna og fram
á vor, vinnur iðulega langt fram á nótt og er
fullur starfsorku, segir hann, þótt hann sé
orðinn 75 ára gamall. En á sumrin hverfur
hann til Íslands að vinna, hefur gert það ár-
lega frá 1977, og Ísland er líka áberandi
þarna á vinnustofunni. Undir fargi eru staflar
vatnslitamynda sem hann hefur málað í Loð-
mundarfirði og Skagafirði, á einu borðinu má
sjá ljósmyndir úr Loðmundarfirði og myndir
af Koberling við veiðar á Íslandi með sonum
sínum, svo eru þar veglegar bækur sem
þýska forlagið Kleinheinrich hefur gefið út á
síðustu fimmtán árum, tvítyngd verk með
vatnslitamyndum sem Koberling hefur valið
sérstaklega með textunum. Sjötta bókin er
nýkomin út, með ljóðum eftir Stefán Hörð
Grímsson. Áður hafa komið út bækur með
myndum hans og ljóðum eftir Snorra Hjart-
arson, Baldur Óskarsson, Sjón og Lindu Vil-
hjálmsdóttur, og sögum eftir Gyrði Elíasson.
Þetta eru einstaklega glæsilegar bækur og
listamaðurinn segist mjög sáttur við útkom-
una. Sú nýja er í minna broti en hinar fyrri og
kom líka til á annan hátt; Kleinheinrich hafði
gefið út bók með ljóðunum í hefðbundinni út-
gáfu sem gekk afar vel og þá leitaði hann til
Koberlings um samstarf um nýja og aukna út-
gáfu, með myndum Koberlings og enn fleiri
ljóðum. Þýðingarnar gerði Wolfgang Schiffer í
samvinnu við Franz Gíslason og Jón Þór
Gíslason, og Gert Kreuzer.
„Ég skil ekki hvernig ljóð Stefáns Harðar
gátu farið fram hjá mér í öll þessi ár,“ segir
Koberling og hristir höfuðið. „Þegar Josef
Kleinheinrich hringdi og spurði hvort ég vildi
gera myndir við ljóðin hans þá svaraði ég
strax játandi en bætti svo við í einfeldni; hver
er hann?
Vitaskuld svaraði hann að Stefán Hörður
væri afar þekkt og virt skáld. Ég hafði lesið
yfirlitsritin með verkum íslenskra skálda og
þannig kynntist ég til að mynda verkum
Sjóns, sem hreyfðu verulega við mér. Og þótt
ég hafi ekki enn gert myndir við ljóð Þor-
steins frá Hamri þá hef ég oft hugsað mér að
gera það. En þetta var eins og amma mín
heitin sagði oft: því var ætlað að gerast.
Ég fékk ljóðin í hendurnar og réð mér ekki
fyrir hrifningu! Þetta var með besta skáldskap
sem ég hafði lesið, hann heyrir til hátindi ljóð-
listar og tengdist sálu minni beint,“ segir Ko-
berling og fer ekki dult með hrifningu sína.
Fyrir fyrri bækurnar vann hann myndir
sérstaklega á Íslandi en að þessu sinni fór
hann að skoða seríu um 200 verka sem hann
kallar „Translocations“ og hefur unnið að á
undanförnum árum, bæði á Íslandi og í Berl-
ín, og valdi að lokum tíu þeirra fyrir bókina.
„Ég nýt þess að gera þessar bækur,“ segir
Koberling og hampar þessari nýjustu, sem er
BERND KOBERLING HEFUR GERT MYNDIR Í BÓK MEÐ LJÓÐUM STEFÁNS HARÐAR GRÍMSSONAR
Ísland er framlenging
á vinnustofunni
ÞÝSKI MYNDLISTARMAÐURINN BERND KOBERLING OPNAR NÚ UM HELGINA SÝNINGU Í BERLÍN Á KRÖFTUGUM
MÁLVERKUM SEM SPRETTA AF VATNSLITAMYNDUM SEM HANN VANN Á ÍSLANDI. FRÁ ÁRINU 1977 HEFUR
KOBERLING UNNIÐ Á ÍSLANDI ÖLL SUMUR OG PRÝÐA VERK HANS ÚTGÁFUR ÍSLENSKRA SKÁLDA Í ÞÝSKALANDI.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Bækurnar með verkum íslenskra skálda og
myndum Bernds Koberlings eru nú sex talsins.
Málarinn vinnur að vatnslitamyndum í Loð-
mundarfirði. Myndin var tekin fyrir tíu árum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Brotabrot úr afrekasögu óeirðar: II. hluti, er heiti sýningarmyndlistarmannsins Unnars Arnar sem verður opnuð í Lista-safni ASÍ í dag, laugardag, klukkan 15.
Á sýningunni gerir Unnar Örn safnið að vettvangi óeirðar. Í því
felst að hann dregur fram vegsummerki um óhlýðni frá ólíkum tíma-
bilum og býður gestum að skoða í sjónrænu samhengi. Verkin á sýn-
ingunni eru unnin upp úr heimildum sem þjónað hafa ólíkum stofn-
unum; ljósmyndir frá tæknideild rannsóknarlögreglunnar, myndskeið
úr heimildasafni Ríkisútvarpsins og skjöl frá Þjóðskjalasafni Íslands
mynda sögusviðið.
Unnar Örn segir viðfangsefnið vera geymslu opinberra upplýsinga
sem tengjast viðspyrnu almennings við ríkjandi valdhafa hverju sinni.
Frásögnin af óeirð almennings er stöðugt afmáð úr sameiginlegu
minni þegnanna – skipt er um rúður, veggir eru málaðir og varnar-
girðingar fjarlægðar. Á sama tíma er sönnunargögnum stanslaust
safnað af valdstjórninni og þær heimildir mynda síðan samfellda frá-
sögnin sem varðveitt er í opinberum skjölum.
Á árinu kemur út bók þar sem viðfangsefni sýningarinnar eru tekin
fyrir og verður bókin lokahnykkurinn í vettvangsrannsókn Unnars
Arnar á afrekasögu óeirðar hér á landi.
Unnar Örn J. Auðarson stundaði nám við Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands og framhaldsnám við Listaakademíuna í Malmö.
Hann hefur á síðustu árum unnið með fundið efni – ljósmyndir,
kvikmyndir og texta – sem rammar inn þá frásögn sem hann vinnur
með hverju sinni.
UNNAR ÖRN Í LISTASAFNI ASÍ
Sýnir afreks-
sögu óeirðar
Á SÝNINGUNNI MÁ SJÁ HEIMILDIR UM HVERSKYNS
ÓEIRÐ ALMENNINGS, ANDÓF OG MÓTMÆLI, EN
VALDSTJÓRNIN SAFNAR SÖNNUNARGÖGNUM.
Unnar Örn við eitt verkanna á sýningu sinni í Listasafni ASÍ.
Morgunblaðið/Ómar