Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 64
SUNNUDAGUR 16. MARS 2014
Leiksýningin Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur snýr aftur
í Tjarnarbíó í lok mars vegna mikillar eftirspurnar. Síminn
stoppaði varla við Tjarnargötuna vegna þeirra sem misstu af
þessari leikhúsupplifun. Fjórum aukasýningum hefur því verið
bætt við, fjögur kvöld í röð, 20.-23. mars.
Tjarnarbíó er ekki með númeruð sæti heldur gildir reglan
fyrstur kemur fyrstur fær á sýningum. Mæti sýningargestir of
seint eru einfaldlega öll góðu sætin frátekin og þarf því að hafa
hraðann á. Sýningin var valin leiksýning haustsins hjá Djöfla-
eyjunni og fékk mjög góða umsögn gagnrýnenda. Meðal annars
sagði Sigurður G. Valgeirsson, leikhúsrýnir Morgunblaðsins:
„Það er sérlega gaman að fá þetta frumlega, fyndna og inni-
haldsríka verk. Hér er farið með áhorfandann utan alfaravega
og hann jafnvel knúinn til að hugsa!“
SÍMINN STOPPAÐI EKKI HJÁ TJARNARBÍÓI
Stóru börnin
skríða aftur
Þar sem kynferðislegur undirtónn er í verkinu
telst það ekki við hæfi barna.
Stóru börnin er líflegt
og skemmtilegt
sviðsverk sem hreyfir
við tilfinningunum
jafnt sem hugsuninni.
Ein stærsta upplýsinga- og tækni-
ráðstefna heims, CeBIT, sem hald-
in hefur verið árlega síðan 1986 í
Hannover í Þýskalandi, hófst í vik-
unni. Þar frumsýna margir tækni-
risar allt það nýjasta sem um er að
vera í tækni- og tölvuheiminum. Í
einum básnum voru til dæmis vél-
mennin Lexy og Tess sem dönsuðu
súludans undir taktfastri þýskri
teknótónlist.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, og David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, litu inn á sýn-
ingu Tobit-fyrirtækisins sem
hannaði og gerði þær Lexy og Tess.
Fannst þeim dans vélmennanna
glæsilegur og brostu í kampinn.
Rúmlega 850 þúsund gestir lögðu
leið sína á CeBit-sýninguna í fyrra
og gert er ráð fyrir svipuðum fjölda
í ár. Fjölmargir forstjórar stóru
tölvu- og tæknirisanna halda fyrir-
lestra á hverjum degi og fjörið er
mikið á sýningarbásunum. Þær
Lexy og Tess voru ekki einu vél-
mennin sem þarna voru frumsýnd
því vélmennið Roboy er ein helsta
stjarna sýningarinnar. Sá er með
vöðva og bein og vonast framleið-
endur til að Roboy geti nýst í
læknavísindunum.
FURÐUR VERALDAR
Vél-
menna
súludans
Lexy og Tess dansa undir tónlist frá Þýskalandi. Tobit Software gerði vél-
mennin en góður rómur var gerður að hæfileikum þeirra við súluna.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
John Mahoney leikari úr FrasierDr. Nefario úr Aulinn Ég Gunnar I. Birgisson
Upplifðu 4G með
iPhone 5c
Verð 5.527 kr. á mánuði*
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
* Samkvæmt 18 mánaða raðgreiðslusamningi.
Staðgreiðsluverð 89.990 kr.
Flottur fyrir
fermingarbarnið
Lipur og lit íkur 4G sími
Verð 5.590 kr. á mánuði*
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið