Morgunblaðið - 07.05.2014, Page 1

Morgunblaðið - 07.05.2014, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 7. M A Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  107. tölublað  102. árgangur  GÓÐ BYRJUN HJÁ JANNIS OG FÉLÖGUM FER ÚR EINU GÓÐU LIÐI Í ANNAÐ HVÍTUR TÍGUR SEM TALAR SJÖ TUNGUMÁL RUT Í RANDERS ÍÞRÓTTIR CAPOEIRA 10SPOT-HÁTÍÐIN 30 Heilsa ehf Bæjarflöt 1, 112 Rvk www.gulimidinn.is UM HEILSUNA FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM  Gefendur líf- sýna til Íslenskr- ar erfðagrein- ingar afsala sér ekki öllum rétti til þess við gjöf- ina. Hægt er að láta eyða sýninu eftir á og fá upp- lýsingar um niðurstöðurnar sem það gefur en sú upplýsingagjöf verður að fara í gegnum Persónuvernd. Íslensk erfðagreining kynnti í gær nýtt átak, í samstarfi við Landsbjörg, í söfnun lífsýna frá Íslendingum. »12 Afsala sér ekki öllum rétti til lífsýnisins Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hagfræðistofnun er að meta afkomu útgerð- arfyrirtækjanna á síðasta ári og horfur fyrir árið í ár. Skrifstofustjóri í atvinnuvega- ráðuneytinu segir að tilgangurinn sé að afla viðbótarupplýs- inga til þess að þingið geti betur metið áhrif frum- varps um veiði- gjöld sem nú er til meðferðar í at- vinnuveganefnd. Nýjustu opin- berar tölur um afkomu útgerðarinnar eru fyrir árið 2012 sem talið hefur verið besta rekstrarár út- gerðarfélaganna. Ákvarðanir um veiðigjöld eru því að hluta til grundvallaðar á gömlum upplýsingum. Jó- hann Guðmundsson, skrifstofustjóri í at- vinnuvegaráðuneytinu, segir að ráðuneytið hafi talið nauðsynlegt, vegna umfjöllunar um upphæð veiðigjalda, að Alþingi hefði sem nýjastar upplýsingar. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands tók að sér að meta afkomu fyrirtækjanna á síðasta ári og horfur fyrir árið 2014. Jóhann segir þetta gert í samvinnu við útgerðir og fisk- vinnslufyrirtæki sem séu einmitt að vinna í uppgjörum ársins um þessar mundir. Upp- lýsinga verður aflað hjá völdum fyrirtækjum en ekki gefið upp hver þau eru. Hagfræðistofnun var einnig beðin um að greina þróun verðvísitölu sjávarafurða og forsendur hennar. Jóhann segir stefnt að því að Hagfræðistofnun skili niðurstöðum sem allra fyrst enda sé málið til meðferðar í þing- nefndinni. Afla nýrri gagna  Hagfræðistofnun metur afkomu útgerða Veiðigjöld » Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum á næsta fiskveiðiári verði um 8 millj- arðar króna. » Frumvarp er nú til umfjöllunar í at- vinnuveganefnd. Fylgi flokka í bæjarstjórn Fjarðabyggðar Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 28. apríl - 4. maí 2014. Fjarðalistinn 39,7% Sjálfstæðisflokkurinn 30,7% Framsóknarflokkurinn 28,0% Aðrir 1,7% 39,7% 30,7% 28,0% 1,7% Fjarðalistinn nýtur stuðnings nær 40% kjósenda í Fjarðabyggð og fær fjóra bæjarfulltrúa kjörna í kosn- ingunum í vor samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Há- skólans fyrir Morgunblaðið á fylgi flokka í sveitarfélaginu. Í kosning- unum 2010 fékk Fjarðalistinn 31,1% atkvæða. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn heldur velli, en Sjálfstæðisflokkur- inn tapar miklu fylgi og missir einn bæjarfulltrúa. Fylgi flokksins mælist 30,7% en var 40,5% í kosn- ingunum fyrir fjórum árum. Hann fær þrjá fulltrúa í bæjarstjórn en hefur fjóra. Fylgi Framsóknarflokksins er nær óbreytt frá kosningunum árið 2010. Það er 28% en var 28,4% árið 2010. Flokkurinn fengi tvo bæjar- fulltrúa sem fyrr. Könnunin var gerð dagana 25. apríl til 4. maí. Haft var samband við 575 kjósendur símleiðis og með netkönnun. Svör fengust frá 370. Tæp 19% þátttakenda sögðust enn ekki hafa gert upp hug sinn til framboðanna. »14-15 Fjarðalistinn er orðinn stærstur  Ný könnun í Fjarðabyggð  Fylgistap Sjálfstæðisflokksins „Ég var búinn að afskrifa þetta algjörlega, en síðan var tilfinningin frábær,“ segir Guðni Finnsson, bassaleikari Pollapönks. Ísland var síðasta þjóðin sem lesin var upp þegar tilkynnt var hvaða lög hefðu komist upp úr undanriðlinum í lokakeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Er þetta í fjórða skipti sem Ísland er síðast upp úr hattinum. Guðni segir að nú muni Pollapönk halda áfram að breiða út boðskapinn, en úrslitakvöld keppninnar verður á laugardaginn. sgs@mbl.is »32 Síðastir inn samkvæmt venju Ljósmynd/Helgi Jóhannesson Pollapönk komst áfram í lokakeppni Eurovision  Sjúkraliðafélag Íslands og Reykjavíkurborg hafa gert kjara- samning til eins árs. Kristín Á. Guð- mundsdóttir, formaður sjúkraliða, segir að samningurinn sé í takti við samning sem borgin gerði við Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar. Samningarnir séu þó byggðir upp á ólíkan hátt og hafi verið gerðar breytingar á launa- töflu sem kalli á lagfæringar í næstu samningum. Ósamið er við ríkið. Fyrsta verk- fall sjúkraliða sem vinna hjá stofn- unum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu verður á mánu- dagsmorgun. Sjúkraliðar sömdu við Reykjavíkurborg  Skerða þarf þjónustu við hluta aldraðs fólk sem nýtur þjónustu frá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis vegna mikils fjölda aldr- aðra í hverfinu. Öldruð hjón, sem standa frammi fyrir því að fá minni aðstoð við heimilisþrif en þau hafa fengið hingað til, segja forsendur fyrir sjálfstæðri búsetu breytast við skerðinguna. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs borgar- innar, segist verulega ósátt við þró- un mála. Hún segir að engin póli- tísk ákvörðun hafi verið tekin um þjónustuskerðingu. »4 Forgangsraða öldrunarþjónustu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.