Morgunblaðið - 07.05.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vestmannaeyjabær fagnar niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem
ógilti samning um sölu á öllum hluta-
bréfum í útgerðarfélaginu Bergi-Hug-
in í Vestmannaeyjum til Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað. Í yfirlýsingu
Elliða Vignissonar kemur fram að
bærinn lítur á niðurstöðuna sem
áfangasigur í baráttu íbúa sjávarút-
vegssveitarfélaga fyrir auknu at-
vinnuöryggi.
Málið snerist um túlkun á ákvæðum
laga um fiskveiðistjórnun um for-
kaupsrétt sveitarfélaga að fiskiskip-
um sem seld eru til fyrirtækja í öðrum
sveitarfélögum.
Útgerðarfélagið Bergur-Huginn er
með starfsemi sína í Vestmannaeyjum
og hefur verið í eigu Magnúsar Krist-
inssonar útgerðarmanns og fjölskyldu
hans. Á árinu 2009 leysti gamli Lands-
bankinn til sín 45% hlut í félaginu en
2012 fékk Magnús full yfirráð yfir því
að nýju og þá í gegnum félagið Q44
ehf. Síldarvinnslan í Neskaupstað til-
kynnti í lok ágúst það ár að það hefði
keypt allt hlutafé í Bergi-Hugin ehf.
Vestmannaeyjabær krafðist þess
að fá boð um forkaupsrétt að kaup-
unum á grundvelli forkaupsréttar
sveitarfélaga að fiskiskipum en bæði
kaupandi og seljandi höfnuðu því.
Höfðaði bærinn þá mál til ógildingar
kaupunum.
Frá Eyjum eða Reykjavík?
Vestmannaeyjabær hélt því fram í
málinu að líta bæri svo á að ráðstöfun
hlutafjárins til Síldarvinnslunnar hf.
hefði í reynd falið í sér sölu á tveimur
fiskiskipum, Bergey VE-544 og Vest-
mannaey VE-444, til útgerðar sem
heimilisfesti hefur í öðru sveitarfélagi,
í skilningi ofangreinds lagaákvæðis.
Hefði stefndu því borið að bjóða stefn-
anda skriflega að neyta forkaupsrétt-
ar síns og tilgreina þar söluverð hlut-
anna og aðra skilmála sölunnar á
tæmandi hátt.
Síldarvinnslan og Q44 ehf. töldu í
vörn sinni að Vestmannaeyjabær ætti
ekki lögvarinna hagsmuna að gæta
þar sem Q44 ehf., seljandi hlutanna í
Bergi-Hugin ehf., væri með heimilis-
festi í Reykjavík. Eignarhaldið hafi
því verið að færast frá Reykjavík til
Neskaupstaðar, ekki frá Vestmanna-
eyjum til Neskaupstaðar. Hafi for-
kaupsréttur orðið virkur, hefði átt að
bjóða hann Reykjavíkurborg. Þá
bendir Síldarvinnslan á að forkaups-
réttur gildi einungis um sölu fiski-
skipa. Ákvæðið eigi ekki við um sölu á
hlutafé í útgerðarfélagi eða sölu á afla-
heimildum.
Héraðsdómarinn taldi ekki unnt,
vegna náinna tengsla fyrirtækjanna,
að líta svo á að eignarhald á Bergi-
Hugin hefði farið til útgerðar í öðru
sveitarfélagi þegar Q44 tók við eign-
arhlutunum. Finnur hann að því að
kaupsamningur aðila hafi ekki fengist
lagður fram og vafa um efni hans verði
að túlka stefnanda í vil.
Niðurstaðan var að ógilda samning-
inn og Síldarvinnslunni og Q44 ehf.
gert að greiða samtals 3 milljónir í
málskostnað.
Ekki fengust viðbrögð hjá Síldar-
vinnslunni við niðurstöðunni.
Bærinn fái forkaupsrétt
Ljósmynd/Ómar Garðarsson
Bæjarstjóri Elliði Vignisson fagnar
niðurstöðu héraðsdóms.
Héraðsdómur ógildir samning um sölu á hlutabréfum í Bergi-Hugin Bæjar-
stjórinn telur niðurstöðuna áfangasigur í baráttu fyrir auknu atvinnuöryggi
Um 300 manns hlýddu á fyrirlestur Jordans Belforts,
sem haldinn var í Háskólabíói í gær. Belfort, sem einn-
ig er þekktur sem „Úlfurinn á Wall Street“ eftir sam-
nefndri kvikmynd, fór yfir helstu atriðin í sölukerfi
sínu við hrifningu viðstaddra, en koma hans til landsins
hefur verið gagnrýnd. Upphaflega stóð til að hafa
fyrirlesturinn í stóra sal bíósins sem rúmar þúsund
manns en ákveðið var að færa hann í minni sal.
Morgunblaðið/Eggert
Úlfurinn sýnir klærnar
Fyrirlestur Jordans Belforts
„Þetta er liður í
þeirri viðleitni
okkar að auka
verðmæti okkar
framleiðslu,“
segir Brynjólfur
Eyjólfsson,
markaðsstjóri
HB Granda. Á
fyrsta degi sjáv-
arútvegssýning-
arinnar í Brussel
var gengið frá kaupum fyrirtæk-
isins á tækjabúnaði frá Marel, vél
sem mótar ferska blokk og marn-
ing í hvaða form sem er.
HB Grandi hefur verið með
tækjabúnað af þessari gerð, Revo-
Portioner, í prófun í fiskiðjuveri
sínu á Akranesi. Vélin hefur reynst
vel, að sögn Brynjólfs. Fiskbitar
sem hún mótar, hvort sem þeir eru í
líki nagga, borgara eða flaka, eru
betri en sambærilegar vörur á
markaðnum.
helgi@mbl.is
Mótar fisk
til aukinna
verðmæta
Vinnsla Nýja vélin
skapar möguleika.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Það er mín von að með þessu verði
tryggt aukið öryggi og meira val.
Hér erum við að búa til gott íslenskt
húsnæðiskerfi til framtíðar,“ segir
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, um nýjar tillög-
ur verkefnisstjórnar um framtíðar-
skipan húsnæðismála sem kynntar
voru í gær. Stefnt er að því að til-
lögur verkefnisstjórnarinnar verði
lagðar fyrir Alþingi í haust.
Á meðal þess sem lagt er til er að
hér verði tekið upp nýtt húsnæðis-
lánakerfi þar sem sérhæfð húsnæð-
islánafélög muni annast lánveiting-
ar. Alþjónustukvöð verður á þeim
félögum, þannig að þeim verður gert
að lána um allt land til þeirra sem
standast greiðslumat.
Þá verður Íbúðalánasjóði breytt
og núverandi verkefnum hans skipt
upp. Nýtt, opinbert húsnæðislána-
félag myndi þá taka við því hlutverki
að lána til íbúðarkaupa, en rekstur
þess félags yrði án ríkisábyrgðar.
Allir aðilar á markaði myndu því
fylgja sömu reglum. Jafnframt yrðu
mörg af núverandi verkefnum
Íbúðalánasjóðs færð til annarra
stofnana. Eygló segir hugsanlegt að
sérstakri húsnæðisstofnun yrði kom-
ið á fót til þess að taka við þeim verk-
efnum.
Eygló leggur áherslu á að þeir lán-
takar sem eru í núverandi kerfi
muni, eftir að breytingarnar taka
gildi, fá áfram þá þjónustu sem þeir
þurfi. Hins vegar verði ekki veitt ný
lán á grundvelli gamla kerfisins.
Í tillögunum er einnig gert ráð
fyrir að húsaleigulögum verði breytt
til þess að treysta umgjörð leigu-
markaðar, og að stjórnvöld styðji við
virkan leigumarkað.
Nýju húsnæðis-
lánakerfi komið á
Verkefnum Íbúðalánasjóðs skipt upp
Morgunblaðið/Kristinn
Húsnæði Eygló Harðardóttir kynn-
ir skýrslu verkefnisstjórnarinnar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Stjórn LH telur óábyrgt að þessi
búnaður sé í notkun. Samkvæmt
siðareglum okkar á hesturinn alltaf
að njóta vafans,“ segir Haraldur
Þórarinsson, formaður Lands-
sambands hestamannafélaga. LH
óskaði í gær formlega eftir því við
FEIF, alþjóðasamtök um íslenska
hestinn, að allar gerðir reiðbeisla
með tunguboga með vogarafli yrðu
settar á bannlista og ekki notaðar í
keppni og kynbótasýningum fyrr
en frekari rannsóknir hefðu verið
gerðar á áhrifum þeirra.
Áskorun stjórnar LH grundvall-
ast á niðurstöðum rannsóknar Sig-
ríðar Björnsdóttur, dýralæknis
hrossasjúkdóma, um áhrif þessa
búnaðar. Telur stjórnin það óvið-
unandi að mélin séu notuð á Íslandi
og í keppnum innan FEIF. Bent er
á að í reglum alþjóðasamtakanna
sé kveðið á um að hesturinn skuli
ávallt njóta vafans, þegar álitamál
komi upp um velferð hans. Har-
aldur nefnir til viðbótar að í siða-
reglum LH sé í nokkrum greinum
fjallað um að taka skuli velferð
hestsins fram yfir sjónarmið um
keppni og aðra þætti. „Við getum
ekki sett hagsmuni knapans og
hesteigandans fram fyrir hestinn
sem getur ekki varið sig á neinn
hátt,“ segir Haraldur.
Stjórn LH samþykkti þessa
stefnu fyrir nokkru og hefur unnið
að því að ná samstöðu með öðrum
samtökum hestamanna um sameig-
inlega áskorun til FEIF, ekki síst
samtökum hrossabænda og Félagi
tamningamanna. Sú samstaða náð-
ist ekki og stendur LH eitt að
beiðninni. Forsvarsmenn þeirra
hafa bent á aðrar leiðir, eins og að
herða á reglum um refsingar knapa
sem koma með meidd hross í
keppni. Haraldur segir að
heilbrigðisskoðun verði áfram
framkvæmd. Sú aðferð taki hins
vegar lengri tíma og sé annars eðl-
is.
Mél Ein tegund hinna umdeildu
stangaméla með tunguboga.
Tungubogi
» Niðurstöður rannsóknar
Sigríðar Björnsdóttur benda til
að sterk tengsl og mjög mark-
tæk séu á milli notkunar
stangaméla með tunguboga og
áverka á kjálkabeini.
» Sigurborg Daðadóttir yfir-
dýralæknir telur að notkun
mélanna stangist á við ný lög
um dýravelferð. Beinir hún því
til hestamanna að hætta notk-
un þeirra
Hesturinn á alltaf að njóta vafans
Stjórn Landssambands hestamannafélaga skorar á alþjóðasamtökin að banna nú þegar allar gerðir
beisla með tunguboga með vogarafli Telur óviðunandi að mélin séu notuð hér á landi og innan FEIF