Morgunblaðið - 07.05.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014
heimili sínu en vegna heilsufars hafa
þau ekki getað sinnt því sjálf. Að-
stoðin er veitt á vegum Þjónustumið-
stöðvar Laugardals og Háaleitis og
fellur hún undir reglur um félags-
lega heimaþjónustu, þar sem m.a.
segir að aðstoð við almenn heimilis-
þrif skuli alla jafna veitt aðra hverja
viku, eða um tvisvar í mánuði. Fram-
an af var aðstoðin í samræmi við það
en nýverið var þeim tjáð að á næstu
vikum yrði þrifum hjá þeim fækkað
niður í eitt skipti í mánuði og þau
segja það hvergi nærri nóg. „Mér
var sagt að við værum komin á mán-
aðarbasis,“ segir konan. „Þegar ég
spurði hvað væri átt við með því var
mér sagt að það væri einu sinni í
mánuði. Það finnst engri sæmilega
þrifinni manneskju nóg að ræsta gólf
og baðherbergi einu sinni í mánuði,“
segir hún.
Hjónin hafa bæði farið í stóra upp-
skurði, verið í víðtækri læknismeð-
ferð og hafa lítið þrek til að sinna
þrifum. Þau hafa þó reynt að halda
íbúðinni hreinni eftir föngum og
gera það sem þau geta, eins og t.d. að
þurrka af. „Ég veit svo sem ekki
hvað við getum lengi gert það,“ segir
konan. „Við höfum ekki sótt um
þjónustuíbúð eða neitt slíkt og þessi
hjálp við þrifin er eiginlega forsenda
þess að við búum hérna sjálfstætt.“
Engin pólitísk ákvörðun
„Fjármagn hefur ekki verið
minnkað, reglunum hefur ekki verið
breytt og það hefur ekki verið tekin
nein pólitísk ákvörðun um skerð-
ingu,“ segir Björk Vilhelmsdóttir,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og
formaður velferðarráðs Reykjavík-
urborgar. „Ég er verulega ósátt við
það sem hefur verið að gerast og ég
vil láta skoða hvort ekki er hægt að
færa fjármagn úr öðrum hverfum
þar sem er minni þörf.“
Björk segir að fjármagn til heima-
þjónustu hafi verið aukið, en það hafi
ekki dugað til. „Öldruðu fólki fjölgar
og það er alls ekki í samræmi við
vilja velferðarráðs að fólki sé mis-
munað um þjónustu eftir hverfum.“
Berglind Magnúsdóttir, skrif-
stofustjóri Þjónustu heim á velferð-
arsviði borgarinnar, segir ekki um
það að ræða að öldruðu fólki sé mis-
munað eftir búsetu, sömu reglur
gildi í öllum hverfum borgarinnar.
„Það er alltaf slæmt að minnka þjón-
ustu, en við erum að auka hana þeg-
ar á heildina er litið,“ segir Berglind.
Hún segir sérstöðu þessa hverfis
vera að þar séu 17% íbúa 67 ára og
eldri, sambærilegt hlutfall í öðrum
hverfum sé 11%.
Útskrifast fyrr af spítala
„Það fjölgar í þessum hópi og við
höfum lagt kapp á að mæta þessari
aukningu á þjónustu þannig að hún
sé örugg og áreiðanleg til þeirra sem
eru í mestri þörf. T.d. fær stór hluti
þeirra sem fá þjónustu á þessu svæði
bæði heimahjúkrun og félagslega
heimaþjónustu.“
Hún segir að stór þáttur í þessu sé
að aldrað fólk útskrifist sífellt fyrr af
Landspítalanum, tölur sýni að Reyk-
víkingar 80 ára og eldri hafi verið
fjórum dögum skemur á sjúkrahúsi
árið 2013 en árið 2008. „Þetta fólk
þarf oft talsvert mikla þjónustu og
við þurfum að setja það í forgang.“
Forgangsraðað vegna fjölda
Öldruð hjón fá minni heimaþjónustu
vegna fjölda aldraðra í hverfinu
Morgunblaðið/Golli
Heimilisþrif Hjónin eru heilsulaus
og þurfa á aðstoð við þrif að halda.
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Öldruð hjón í Reykjavík, sem nú
standa frammi fyrir skertri þjónustu
við aðstoð við heimilisþrif, eru ósátt
við breytinguna og segja forsendur
fyrir sjálfstæðri búsetu hafa breyst
við skerðinguna. Í hverfi þeirra er
meiri fjöldi aldraðs fólks en víða ann-
ars staðar og hefur því þurft að for-
gangsraða þjónustunni, samkvæmt
upplýsingum frá velferðarsviði borg-
arinnar. Formaður velferðarráðs
Reykjavíkurborgar segir enga póli-
tíska ákvörðun hafa verið tekna um
skerðingu.
Hjónin, 75 ára gömul kona og 82
ára gamall karl, hafa undanfarin
fimm ár fengið aðstoð við þrif á
Útlit er fyrir að Náttúrustofa Suð-
urlands í Vestmannaeyjum þurfi að
segja upp öðrum starfsmanni sínum
á þessu ári vegna fjárhags-
vandræða. Aðeins tveir starfsmenn
eru hjá stofunni og segir for-
stöðumaður hennar að það sé allt
eins gott að loka henni eins og að
vera aðeins með einn starfsmann.
Ríkið fjármagnar stöðu forstöðu-
manns Náttúrustofunnar og rekstur
með allt að jafnhárri upphæð sam-
kvæmt samningi við Vestmanna-
eyjabæ en sveitarfélagið greiðir
30% af framlagi ríkisins.
Að sögn Ingvars Atla Sigurðs-
sonar, forstöðumanns Náttúrustofu
Suðurlands, stóð stofnunin ágæt-
lega í kringum 2008. Vegna nið-
urskurðar ríkisins undanfarin ár er
hins nú svo komið að þessi föstu
framlög duga aðeins fyrir launum
hans sjálfs og grunnrekstri. Stofan
hefur verið rekin með halla und-
anfarin ár og tók bærinn húsnæði
hennar upp í skuld. Þá hefur
gúmmíbátur sem notaður er við
lundarannsóknir meðal annars verið
seldur.
„Stofan verður starfhæf en hún
verður aðeins svipur hjá sjón. Í
sjálfu sér finnst mér eins gott að
loka og að vera bara með einn
starfsmann. Það er mitt álit,“ segir
Ingvar sem gerir ráð fyrir að hall-
inn á þessu ári nemi 3-5 milljónum
króna. Hann yrði greiddur upp á
næsta ári með því fé sem sparast á
því að segja upp sérfræðingnum.
Stofan hefur fengið einhverja
rannsóknarstyrki en þá er ekki
hægt að nýta til grunnreksturs eða
launa starfsmanns. Eitt hlutverk
náttúrustofa er að selja þjónustu út
til fyrirtækja og sveitarfélaga en
það getur Náttúrustofa Suðurlands
ekki gert með aðeins einum starfs-
manni.
Til lítils að friðlýsa
Sérfræðingnum verður sagt upp á
þessu ári nema aukið fjármagn komi
til. Það þýðir að rannsóknir á lunda
sem hann hefur unnið að leggjast af
á næsta ári. „Það er áhugi hjá rík-
isstjórninni á að friðlýsa fugla-
björgin í Vestmannaeyjum og setja
fastar reglur um umgengnina. Það
er til lítils að friðlýsa fuglabjörgin ef
það er enginn til að vakta ástandið,“
segir Ingvar. kjartan@mbl.is
Jafngott að leggja
stofuna niður
Náttúrustofa Suðurlands í kröggum
Getur ekki greitt laun sérfræðings
Morgunblaðið/Eggert
Eyjar Líffræðingur Náttúrustof-
unnar hefur m.a. rannsakað lunda.
Þorkell Lindberg Þórarinsson, for-
maður Samtaka náttúrustofa, seg-
ir að niðurskurður ríkisins nemi nú
orðið tæplega einu stöðugildi á
hverja náttúrustofu og hann sé
farinn að bíta nokkuð mikið. Nátt-
úrustofurnar hafi verið hugsaðar
til að búa til störf og tækifæri fyrir
háskólamenntaða náttúrufræð-
inga út um land. „Uppbygging
þeirra hefur tekist vel og þar hefur
byggst upp mannauður og svæð-
isbundin þekking á náttúrufari
sem er mjög verðmæt. Það er mik-
ilvægt að halda í
þessa fjárfest-
ingu sem ríkið
hefur þegar lagt
í.“
Mannafli nátt-
úrustofanna sjö
er misjafn en
Þorkell segir
stöðuna í augna-
blikinu versta á
Suðurlandi. Niðurskurðurinn
snerti þó allar náttúrustofurnar og
sé alvarlegur.
Niðurskurðurinn farinn að bíta
FORMAÐUR SAMTAKA NÁTTÚRUSTOFA
Þorkell Lindberg
Þórarinsson
ráðherra og breiðfylkingar þing-
manna og niðurstaðan varð sú að
þrátt fyrir erfiðar aðstæður í þjóð-
arbúinu, þá var ákalli Landspítalans
um aukið fé svarað og við fengum
aukið fjármagn,“ sagði Páll.
Viðspyrna Landspítalans
Hann nefndi að þetta aukna fjár-
magn hefði helst farið í þrjá þætti. „Í
fyrsta lagi í að bæta tækjakost spít-
alans, í öðru lagi í að bæta starfsum-
hverfi og aðstöðu starfsfólks og í
þriðja lagi í að bæta þjónustu og
grípa inn í á stöðum þar sem krísur
höfðu myndast í þjónustunni.
Allt er þetta hluti af því sem við
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Páll Matthíasson, forstjóri Landspít-
alans, segir að síðasta ár hafi verið
erfitt ár í sögu spítalans. Fjárskort-
ur hafi sett mark sitt á starfsemi
hans og þá hafi traust skort á milli
stjórnenda og starfsmanna spítal-
ans. Spítalinn hafi verið kominn að
fótum fram fyrir um ári.
Í setningarræðu sinni á ársfundi
spítalans, sem haldinn var í gær,
sagði Páll að sem betur fer hefði
þessi erfiði niðurskurður verið stöðv-
aður.
„Við nutum stuðnings heilbrigðis-
köllum viðspyrnu, hlutum sem við
gerðum til að snúa við blaðinu, til að
efla spítalann þannig að hann verði
öruggari og betri staður fyrir sjúk-
linga og einnig meira aðlaðandi og
spennandi vinnustaðar fyrir allt okk-
ar öfluga starfsfólk,“ sagði hann.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigð-
isráðherra sagði í ræðu sinni tíma-
bært að Íslendingar ræddu það op-
inskátt hvort ekki væri skynsamlegt
að losa um eitthvað af þeim eignum
sem þeir hefðu bundið sem fjármuni
í fyrirtækjum og fasteignum til að
byggja nýjan spítala. Ríkið hefði
ekki bolmagn til að taka lán fyrir
framkvæmdunum.
Morgunblaðið/Eva Björk
Ársfundur Forstjórinn sagði að á síðasta ári hefði skort traust á milli stjórnenda og starfsmanna. F.v. Páll Matthías-
son, forstjóri, Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, og Guðbjartur Hannesson, fyrrverandi ráðherra.
Erfitt ár Landspítalans
en ákallinu var svarað
Forstjóri segir að spítalinn hafi verið kominn að fótum fram
„Ég sé ekki vísbendingar um annað
en að við séum í sæmilegu góðæri,“
sagði Guðni Guðbergsson fiskifræð-
ingur á ársfundi Veiðimálastofnunar
í gær, þegar hann var beðinn um að
spá í laxveiðihorfur í sumar. Hann
var þó varkár og benti á miklar og
óvæntar sveiflur í veiðinni síðustu
tvö sumur. Sumarið 2013 veiddust
um 69.000 laxar á stöng hér á landi.
Þegar dregnir hafa verið frá lax-
ar sem veiddust í hafbeitaránum, á
borð við Rangárnar, og tekið tillit
til þess að af löxum sem sleppt er
aftur veiðist tæplega þriðji hver aft-
ur, þá veiddust um 51.400 laxar í
ám með náttúrulegum stofnum.
Sumarið 2012 veiddust hinsvegar
aðeins um 22.000 laxar í sömu ám.
„Á samdráttarárinu 2012 var
vaxtarhraði laxa í sjó mjög lítill, en
þegar laxar eru litlir og vaxtarhrað-
inn lítill, þá er dánartalan há. Þetta
snerist við 2013. Það er ógnvekjandi
hversu hratt niðursveiflur geta
komið. En Guð láti gott á vita og
við skulum vona að þetta haldist
áfram á komandi veiðitíma,“ sagði
Guðni.
„Oft fylgjast góð og slæm ár að.
Eitt af því sem við getum gert er
að tryggja eins og hægt er að
Spá sæmilegu góðæri í veiði
Um 69 þúsund laxar á stöng í fyrra Bleikjan gefur eftir
hrygningarstofn ánna sé nægilega
stór og að seiðabúskapur sé góður.
Almennt er vísitala seiðanna há í
ánum, og þá sérstaklega á Vest-
urlandi.“
Bleikju fækkar
Guðni sagði bleikju hafa fækkað í
öllum landshlutum og að sums stað-
ar væri um svo mikla fækkun að
ræða að menn þurfi að fara að
hugsa sinn gang. Ekki sé víst að
bleikjustofnar þoli mikla veiði.
Urriða og sjóbirtingi fækkar á
Vesturlandi en aukning var í veiði á
Norður- og Austurlandi. efi@mbl.is