Morgunblaðið - 07.05.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.05.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014 Íslendingar hafa lagt töluvert uppúr því í gegnum tíðina að búa í eigin húsnæði. Hefur það fyrir- komulag verið útbreiddara hér en víða annars staðar þar sem leigu- húsnæði hefur verið algengt.    Þetta íslenska fyr-irkomulag hef- ur verið farsælt. Fólk hefur lagt nokkuð á sig til að koma þaki yfir höf- uðið og þegar það markmið hefur náðst hefur það gætt vel að þessari eign sinni og lagt sig fram um að halda henni við á sem hagkvæmastan hátt.    Í séreignarfyrirkomulaginu hefurfengist staðfest sú kenning að fólk fer að jafnaði betur með það sem það á en það sem aðrir eiga.    Þetta er ekki vegna þess að fólksé illa innrætt eða vilji spilla eigum annarra. Það er einfaldlega mikið í húfi þegar langstærsta eign- in er annars vegar og þá er fólk með hugann við að gæta hennar vel.    Í nýrri skýrslu verkefnisstjórnarum framtíðarskipan húsnæðis- mála er ekki að sjá mikinn skilning á þessum gamalreyndu sannindum. Þar er lögð mikil áhersla á upp- byggingu leigumarkaðar, meðal annars lagt til að ríkið niðurgreiði starfsemi leigufélaga „sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða“.    Hefur eitthvað gerst sem rekur áeftir því að dregið verði úr því farsæla fyrirkomulagi sem verið hefur í húsnæðismálum hér á landi hvað þetta varðar?    Er eitthvað sem bendir til að far-sælla verði að ríkið stundi um- fangsmikla niðurgreiðslu leigu- íbúða? Skrýtnar tillögur um leigumarkað STAKSTEINAR www.hi.is HAGFRÆÐIDEILD Í ljósi reynslunnar Ráðstefna í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 9. maí kl. 15:00-17:00. Í tilefni af níræðisafmæli Jóhannesar Nordals bjóða Hagfræðideild Háskóla Íslands og Seðlabanki Íslands til ráðstefnu honum til heiðurs. Jóhannes Nordal og peningamál á seinni hluta tuttugustu aldar Már Guðmundsson, seðlabankastjóri. Jóhannes Nordal – fjölhæfur forystumaður Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri. Aftur til fortíðar? Er stýring peningamagns með bindiskyldu framtíðin? Ásgeir Jónsson, lektor við Hagfræðideild HÍ. Hvernig stuðlum við að virku og stöðugu fjármálakerfi á Íslandi? Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Sjálfstæð peningastefna og fjármagnshöft Friðrik Már Baldursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík. Fundarstjóri er Sveinn Agnarsson. Allir velkomnir Léttar veitingar að ráðstefnu lokinni. Veður víða um heim 6.5., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 9 skýjað Akureyri 10 skýjað Nuuk 0 heiðskírt Þórshöfn 7 skúrir Ósló 5 skúrir Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Stokkhólmur 7 heiðskírt Helsinki 7 léttskýjað Lúxemborg 17 léttskýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 11 skúrir Glasgow 15 skýjað London 17 heiðskírt París 18 skýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 18 heiðskírt Berlín 20 heiðskírt Vín 20 skýjað Moskva 6 skýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 28 heiðskírt Barcelona 18 léttskýjað Mallorca 22 heiðskírt Róm 20 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg 7 alskýjað Montreal 8 skýjað New York 16 alskýjað Chicago 13 skýjað Orlando 28 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:39 22:11 ÍSAFJÖRÐUR 4:25 22:35 SIGLUFJÖRÐUR 4:07 22:19 DJÚPIVOGUR 4:04 21:45 Álfasala SÁÁ hefst í dag, miðvikudaginn 7. maí, og stendur fram til sunnudags- ins 11. maí. Álf- urinn verður boðinn til sölu um allt land. Álfurinn kostar 2.000 krónur, sem er sama verð og síðustu ár. Álfurinn 2014 er seldur til að efla enn frekar þjónustu SÁÁ við unga fólkið og rennur sölu- hagnaður til slíkra verkefna. SÁÁ hefur rekið sérstaka unglingadeild á Vogi frá árinu 2000 og hefur meðferð þar skilað miklum árangri. „Næsta skref í uppbygg- ingu þeirrar meðferðar er að styðja enn betur við bakið á ung- mennunum þegar meðferð lýkur og styrkja þau félagslega,“ segir í tilkynningu frá SÁÁ. SÁÁ selur álfinn til styrktar ungu fólki Álfur ársins 2014 Andri Karl andri@mbl.is „Á síðasta deginum er eins og ekkert hafi breyst. Þetta er eins og við fyrstu yfirheyrsluna 2009 þegar menn voru með kolvitlausar lána- reglur og ég var að reyna skýra þetta fyrir þeim,“ sagði Sigurjón Þ. Árna- son, fyrrverandi bankastjóri Lands- bankans, í ávarpi sínu við lok aðal- meðferðar í Imon-málinu svonefnda fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sigurjón sagði að ótrúlegt hefði verið að hlusta á málflutning ákæru- valdsins á mánudag, þrátt fyrir að alls kyns gagna hefði verið aflað, skýrslur teknar af fjölmörgum þá væri ákæruvaldið í sömu sporum og fyrir fimm árum. „Hvað sem maður segir og reynir að útskýra þá er mað- ur alltaf sekur. Og ef það eru einhver vafaatriði þá skulu þau alltaf falla manni í óhag. Það er aldrei farið eftir grundvallarprinsippinu um að menn skuli saklausir þar til sekt er sönnuð og að vafaatriði skuli falla sakborn- ingi í hag.“ Hann sagði sorglegt að sama hvað lagt hefði verið fram við rannsókn málsins til að reyna skýra það fyrir rannsakendum þá hefði það engu skipt. „Það er ekki hlustað. […] Og ekki er gætt hófsemi í einu né neinu. Gera menn sér grein fyrir því að búið er að fara yfir 520 þúsund tölvupósta, sjö þúsund símtöl. Það er búið að fara í gegnum allt. Og ekkert finnst því það er ekki neitt. Við vorum að vinna með hagsmuni bankans í fyrir- rúmi og ekkert annað. Það stenst ekki að maður hafi alltaf verið að reyna gera eitthvað óheiðarlegt. Það er ekki þannig.“ Hann sagði ákæruvaldið ekki hafa reynt að leggja fram nein gögn máli sínu til stuðnings heldur hefðu ein- göngu verið búnar til sögur og dylgj- að. „Þeir sem eru að taka þessar ákvarðanir eru ég og Elín [Sigfús- dóttir] alveg eins og við tókum sam- bærilegar ákvarðanir í hundruðum eða þúsundum annarra mála.“ Í máli Sigurðar G. Guðjónssonar, verjanda Sigurjóns, kom fram að á árunum 2007 og 2008 voru 1.964 lánamál samþykkt á 67 fundum lána- nefndar Landsbankans. Af þeim voru 1.301 lánamál samþykkt á milli funda lánanefndarinnar eða 66% og flest þeirra af Sigurjóni og Sigríði Elínu Sigfúsdóttur, eða 58%. Lánið til Imon ehf. sem samþykkt var 30. september 2008, ákært er fyrir í mál- inu og talið fela í sér umboðssvik af hálfu Sigurjóns og Sigríðar Elínar var einmitt samþykkt á þennan sama hátt. Lesa má ítarlega frásögn af mál- flutningsræðum verjenda þeirra Sig- urjóns, Sigríðar Elínar og Steinþórs Gunnarssonar, ákærðu í Imon-mál- inu, á mbl.is. Dóms í málinu er svo að vænta á næstu vikum. „Eins og ekkert hafi breyst“  Fyrrverandi bankastjóri Landsbankans gagnrýndi sérstakan saksóknara fyrir að virða að vettugi þær upplýsingar sem embættinu voru veittar við rannsóknina Morgunblaðið/Þórður Í dómsal Sigurjón Þ. Árnason við aðalmeðferð Imon-málsins í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.