Morgunblaðið - 07.05.2014, Page 14

Morgunblaðið - 07.05.2014, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014 Gnoðarvogi 44, 104 Rekjavík | sími: 588 8686 | hafberg@internet.is | hafberg.is GLÆNÝ LÚÐA aðeins 1.990 kr/kg Laxasteikur á grillið Stór humar Glæsilegt úval fiskrétta Heitur matur í hádeginu VIRKA DAGA 10.00 - 18.15 LAUGARDAGA 11.00 - 16.00 OPIÐ BAKSVIÐ Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Fjarðalistinn eykur fylgi sittverulega í komandisveitarstjórnarkosningumí Fjarðabyggð. Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið í síðustu viku fær hann 39,7% atkvæða og fjóra menn kjörna í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi en fylgi Framsóknar- flokksins stendur í stað. Meirihlutinn heldur velli Það eru Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sem nú mynda meirihluta í bæjarstjórn Fjarða- byggðar. Flokkarnir hafa sex af níu bæjarfulltrúum. Samkvæmt könn- uninni vinnur Fjarðalistinn einn mann, en það dugar ekki til að fella meirihlutann. Ekki er þó hægt að útiloka að slík úrslit myndu riðla nú- verandi bæjarstjórnarsamstarfi. Fylgi Fjarðalistans hefur aukist verulega frá kosningum árið 2010. Þá fékk listinn 31,1% atkvæða og þrjá menn kjörna. Það er Einar Már Sigurðsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, sem skipar fjórða sætið á listanum og sam- kvæmt könnuninni nær hann kjöri í bæjarstjórn. Í skoðanakönnun Fé- lagsvísindastofnunar í janúar naut Fjarðalistinn fylgis 23,7% kjósenda. Þá studdu tæplega 10% kjósenda Bjarta framtíð og um 4% framboð Pírtata, en hvorugur flokkurinn býð- ur fram í Fjarðabyggð. Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu fylgi frá kosningunum 2010. Fylgi hans mælist núna 30,7% sem gefur þrjá bæjarfulltrúa. Fyrir fjórum ár- um fékk hann 40,5% atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa. Fylgi Fram- sóknarflokksins er nær óbreytt frá kosningunum 2010 þegar flokkurinn fékk 28,4% atkvæða og tvo menn kjörna. Hann mælist nú með 28% fylgi sem gefur tvo menn. Rétt er að taka fram að vikmörk allra flokkanna eru há, 6,1% hjá Fjarðalistanum, 5,7% hjá Sjálfstæð- isflokknum og 5,6% hjá Framsókn- arflokknum. Það skapar nokkra óvissu. Um 19% eru óákveðin Tölurnar hér að framan eru mið- aðar við þá þátttakendur í könn- uninni sem afstöðu tóku. En 5,1% sagðist ekki ætla að kjósa í vor, 7,6% sögðust ætla að skila auðu atkvæði eða ógildu, 18,9% sögðust ekki hafa gert upp hug sinn og 1,7% vildu ekki svara. Könnunin var gerð dagana 28. apríl til 4. maí. Tvær leiðir voru not- aðar til að ná til kjósenda. Annars vegar var hringt í 395 manna tilvilj- unarúrtak úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum 18 ára og eldra. Hins vegar var send netkönnun til 180 manna úrtaks úr netpanel Félagsvísinda- stofnunar. Alls fengust 370 svör frá svarendum á aldrinum 18 ára til 90 ára og var svarhlutfall 67%. Vigtaður svarendafjöldi var sömuleiðis 370. Talsverður munur er á afstöðu kjósenda til flokkanna eftir kynferði. Fjarðalistinn nýtur stuðnings 51% kvenna en 32% karla. Þessu er öfugt farið hjá hinum flokknum þar sem karlar eru í meirihluta stuðnings- manna. Ætla 37% karla í Fjarða- byggð að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en 24% kvenna. Hjá Framsóknar- flokknum eru tölurnar 32% fyrir karla og 25% fyrir konur. Áberandi munur er einnig á afstöðu kjósenda eftir aldri. Ungir kjósendur, fólk á aldrinum 18 til 29 ára, eru fjölmenn- astir meðal stuðningsmanna Sjálf- stæðisflokksins. 43% þeirra ætla að kjósa flokkinn. Til samanburðar ætla aðeins 28% á þessum aldri að kjósa Fjarðalistann. Þegar skoðuð er af- staða kjósenda í elsta aldurshópnum, 60 ára og eldri, kemur á daginn að meirihluti þeirra styður Fjarðalist- ann, 51%. Aðeins 20% þessa aldurs- hóps ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn og 29% Framsóknarflokkinn. Menntun spilar inn í Afstaða til flokkanna þriggja er einnig mismunandi eftir menntun kjósenda. Háskólamenntað fólk er fjölmennast í stuðningsmannahópi Fjarðalistans, 53%. Minnstur er stuðningur þess við Framsóknar- flokkinn, 19%. Tekjur spila einnig inn í. Tekju- hæstu kjósendurnir, fólk með 600 þúsund krónur eða meira í mán- aðarlaun, styður frekar Framsókn- arflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn en Fjarðalistann. 39% hinna tekjuháu ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem er mun meira en meðalfylgi flokksins. Mestur stuðningur við Fjarðalistann er meðal fólks sem hefur 200 til 300 þúsund krónur í mánaðarlaun, 55%. Þegar kannað var hvað þátttak- endur hefðu kosið árið 2010 kom í ljós að um 15% þeirra sem ætla að kjósa Fjarðalistann í voru kusu Sjálf- stæðisflokkinn fyrir fjórum árum. Fylgisaukning Fjarðalistans  Ný könnun Félagsvísindastofnunar á fylgi flokka í Fjarðabyggð  Meirihlutinn heldur velli  Fjarðalistinn fær fjóra fulltrúa  Sjálfstæðisflokkurinn tapar manni  Fylgi Framsóknar óbreytt Ann an flok k eð a lis ta ? Fra ms ókn arfl . Sjá lfst æð isfl. Niðurstöður kosninga 2010 Fylgi skv. könnun 15.-23. jan. Fylgi skv. könnun 28. apr.-4. maí Fjöldi bæjarfulltrúa, væri gengið til kosninga nú.Fjöldi bæjarfulltrúa, eftir síðustu kosningar. Svör alls: 370 Svarhlutfall: 67% Nefndu einhvern flokk: 247 Veit ekki: 70 Skila auðu/ógildu: 28 Ætla ekki að kjósa: 19 Vilja ekki svara: 6 Fylgi stjórnmálaflokka samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 28. apríl - 4. maí 2014 vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014 Fja rða rlis tinn 39,7% 30,7% 28,0% 1,7% 31,1% 23,7% 40,5% 31,2% 28,4% 31,2% 14,0% 4 3 23 4 2 SKOÐANAKÖNNUN FJARÐABYGGÐ „Það væri okkur mikið ánægjuefni ef þetta yrðu úrslitin og við bættum við okkur manni í bæjarstjórn,“ sagði Elvar Jónsson, oddviti Fjarða- listans, þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á niðurstöðum könnunar Félagsvísindastofnunar á fylgi flokkanna í Fjarðabyggð. Elvar kvaðst telja að meginskýr- ingin á fylgisaukningu Fjarðalistans væri ánægja með störf fulltrúa hans í bæjarstjórn og afstaða þeirra í tveimur ágreiningsmálum. „Það hefur verið mikil og góð sam- staða í bæjarstjórninni um flest mál- efni á þessu kjörtímabili, til að mynda um að greiða niður skuldir sveitarfélagsins. En það komu upp tvö deilumál, gjaldskrá almennings- vagnanna og hvort færa skyldi til götu í Neskaupstað samtímis bygg- ingu leikskóla þar. Ef þetta verða úrslit kosninganna er það vísbend- ing um að fólk sé ekki ánægt með það hvernig meirihlutinn í bæj- arstjórn afgreiddi þessi tvö mál,“ sagði Elvar. Hann kvaðst telja að landsmálin gætu eitthvað spilað inn í afstöðu kjósenda, en þó væri deilan um við- ræðurnar við Evrópusambandið minna mál á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Vildu bæta við sig manni „Þessar tölur eru ákveðin von- brigði fyrir okkur framsóknarmenn. Við vonuðumst til að bæta við okkur manni frekar en að standa í stað,“ sagði Jón Björn Hákonarson, oddviti Framsóknarflokksins. „Það er mikið verk fyrir höndum á næstu vikum að kynna framboðslistann og stefnumál okkar og það sem við höfum gert á kjörtímabilinu.“ Jón Björn sagði að of snemmt væri að segja til um það hvort nið- urstaða í samræmi við könnunina hefði áhrif á meirihlutasamstarfið. „Við bíðum eftir því hver úrslitin verða í kosningunum sjálfum áður en við fáumst við það,“ sagði hann. Jón Björn kvaðst ekki hafa sér- staka skýringu á fylgissveiflunni til Fjarðalistans. Samstarf allra flokka í bæjarstjórn hefði verið gott og stór ágreiningsmál ekki fyrir hendi. Þó hefði verið deilt um gatnamál í Nes- kaupstað í tengslum við byggingu nýs leikskóla. Meirihlutinn hefði ekki talið fjárhagslegar forsendur fyrir því að fara samtímis í gatna- Ánægjulegt að vinna mann  Ólíkar niðurstöður í könnunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.