Morgunblaðið - 07.05.2014, Síða 15
Fylgi flokka eftir því hvað var kosið síðast (2010)
Fra
ms
ókn
arfl
.
Kýs nú:
Kaus þá:
Sjá
lfst
æð
isfl.
Ann
an
flok
k
eða
fram
b.
?
Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Listi fólksins
Flokkur ef kosið yrði á morgun til Alþingis
Myndi
kjósa í
sveitar-
stjórn:
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 28. apríl - 4. maí 2014.
Fra
ms
ókn
arfl
.
Myndi
kjósa á
Alþingi:
Sjá
lfst
æð
isfl.
Bjö
rt f
ram
tíð
Sam
fylk
ing
Vin
stri
-græ
n
Fja
rða
list
inn
80%
4%
16% 15%
10% 1% 4%
95%
75%
15%
76%
9%
3% 6% 4%
17%
17%
66%
8%
88%94%
13%
84%
16%
27%
58%
Fjarðabyggð Vinalegt umhverfi er í Neskaupstað sem er einn þeirra þéttbýlisstaða á Austfjörðum sem tilheyra
sveitarfélaginu Fjarðabyggð, þar sem íbúar eru samtals um 4.700.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014
Ármúli 32 | 108 Reykjavík | Sími 568 1888 | www.parketoggolf.is
Brooklyn Pine
Stærð: 8x243x2200mm
Ný könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands fyrir Morgunblaðið á fylgi flokka í
Fjarðabyggð sýnir að Fjarðalistinn hefur aukið fylgi sitt verulega frá kosningunum 2010. Fylgi hans mælist nú
39,7% sem gefur fjóra bæjarfulltrúa. Meirihlutinn í bæjarstjórn heldur velli, en Sjálfstæðisflokkurinn tapar
fylgi. Hann fengi 30,7% atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa en hefur núna fjóra. Fylgi Framsóknarflokksins er
óbreytt frá kosningunum fyrir fjórum árum. Flokkurinn mælist með 28% fylgi og fengi tvo menn í bæjarstjórn.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
framkvæmd og byggingu leikskól-
ans. Ef til vill hefði þetta mál áhrif.
Mismunandi niðurstöður
„Það hafa verið gerðar þrjár
kannanir á fylgi flokka í Fjarða-
byggð og þær hafa sýnt mismunandi
niðurstöður. Það bendir til þess að
mikil ferð sé á kjósendum og fylgið
að sveiflast til,“ sagði Jens Garðar
Helgason, oddviti Sjálfstæðisflokks-
ins. „Mánuður í pólitík er langur
tími,“ bætti hann við og sagði að
margt gæti gerst sem breytti þeim
tölum sem nýja könnunin sýnir. Enn
ættu til dæmis öll framboðin eftir að
birta stefnuskrá sína og kynna verk
sín á kjörtímabilinu.
„Við sjálfstæðismenn erum að
fara að kynna okkar stefnu. Ég trúi
því að þegar fólk sér stefnumál okk-
ar og það sem við höfum aðhafst á
kjörtímabilinu muni þessar tölur
breytast,“ sagði Jens Garðar.
Jens Garðar Helgason Jón Björn Hákonarson Elvar Jónsson
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Fjarðabyggð Bæjarstjóri og oddvitar flokkanna á bæjarstjórnarfundi.
Sveitarfélagið Fjarðabyggð varð
til sumarið 1998 við sameiningu
Neskaupstaðar, Eskifjarðarkaup-
staðar og Reyðarfjarðarhrepps.
Sumarið 2006 sameinuðust
Mjóafjarðarhreppur, Austurbyggð
og Fáskrúðsfjarðarhreppur einnig
sveitarfélaginu.
Íbúar í Fjarðabyggð voru 4.650 í
október 2013. Sveitarfélagið er um
það bil ellefu hundruð ferkílómetrar
að flatarmáli; nær frá Dalatanga
(Mjóifjörður) í norðri að Kambanesi
(Stöðvarfjörður) í suðri. Það er fjöl-
mennasta sveitarfélagið á Austur-
landi og það 10. í röðinni af 75
sveitarfélögum landsins hvað íbúa-
fjölda snertir.
Fimm bæjarkjarnar eru í Fjarða-
byggð; Neskaupstaður, Eskifjörður,
Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður og
Stöðvarfjörður. Hver kjarni býr yfir
eigin sögu og sérstöðu. Allir eiga
þeir þó sameiginlegt nábýli við
náttúru landsins, fjölbreytta mögu-
leika til gefandi útivistar og af-
þreyingar og fjölskylduvænt um-
hverfi að því er segir á vef
bæjarfélagsins.
Einn framhaldsskóli er í Fjarða-
byggð, Verkmenntaskóli Austur-
lands í Neskaupstað. Þar eru einn-
ig fimm grunnskólar og nokkrir
leikskólar. Þá eru þrír tónlistar-
skólar í sveitarfélaginu.
Ferðaþjónusta er í miklum blóma
í sveitarfélaginu. Á sumrin er þang-
að stöðugur straumur innlendra og
erlendra ferðamanna. Bæjarhátíðir
setja svip á mannlífið, rokkhátíðin
Eistnaflug og fjölskylduhátíðin
Neistaflug í Neskaupstað, Franskir
dagar á Fáskrúðsfirði, Hernáms-
dagurinn á Reyðarfirði og Maður er
manns gaman á Stöðvarfirði. Í nóv-
ember er ennfremur haldin menn-
ingarhátíðin Dagar myrkurs.
Fjarðabyggð er fjölmennasta
sveitarfélagið á Austfjörðum