Morgunblaðið - 07.05.2014, Page 18

Morgunblaðið - 07.05.2014, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Miklar um-ræðurfara nú fram um „Stóra lekamálið“ eins og það er kallað af þeim sem áður lofsungu „litla símamanninn“ og lagsbræður hans forðum tíð. Hvað hafa skylduáskrifendur að „RÚV“ oft heyrt „rannsókn- arblaðamenn“ Kastljóss segja stoltir, að upplýsingar þeirra séu úr opinberri greinargerð, minnisblaði eða samantekt „sem Kastljós hafi undir hönd- um“. Það ofuralgenga punt upp á rannsóknarfréttina er jafnan nefnt til merkis um áreið- anleika uppljóstrunarinnar og getu fréttamannsins. Þó hefur Kastljósið vafalítið aldrei feng- ið slíkar upplýsingar með ólög- mætum hætti, hvað svo sem kann að vera um þann sem færði kastljósmönnum upplýs- ingarnar í hendur. Hæstiréttur Íslands hefur dæmt að upplýsingar sem stolið var úr tölvupóstum ein- staklinga, sem gegndu ekki op- inberu starfi, mætti fjölmiðill birta sér að skaðlausu, vegna þess að almenningur hefði haft af því ríka hagsmuni að fá að vita hver hefði bent ein- staklingi, búsettum erlendis, á brúklegan lögfræðing hér heima! Sú skýring fjölmiðilsins, sem átti í hlut, að gögnin þau hefðu dottið, eins og af himnum ofan, niður á skrifborð á frétta- stjórninni var látin duga. Það hefur einkennt nokkuð málatilbúnað í kringum sumar umsóknir útlendinga um land- vist á Íslandi að málin eru rekin opinberlega af stuðnings- mönnum þeirra og jafnvel skip- uðum lögfræðingum og með útifundum, með tilheyrandi há- vaða, fyrir utan stofnunina eða ráðuneytið sem leysa ber úr slíkum álitamálum. Þessi að- ferð hlýtur að vera til þess fall- in að veikja kröfur sömu aðila um að allt sem standi gegn slík- um óskum skuli vera hulið leynd. En væri talið rétt að auka upplýsingaflæðið til almenn- ings við slíkar aðstæður, sem hlýtur að koma til álita, yrði að gera það í samræmi við rök- studdar reglur, sem lægju fyr- ir, en ekki með ógagnsæjum gjörðum. Atlaga yfirvalda að fjöl- miðlum sem sýna eðlilegan áhuga á málum sem þegar hafa verið gerð opinber að hluta er hins vegar algjörlega fráleit. Héraðsdómarinn, sem hafði slíkan málatilbúnað til með- ferðar, virtist gera sér grein fyrir því. Hann segir í aðdrag- anda niðurstöðu sinnar í máli sem beinist að fréttastjóra mbl.is: „Áður er vikið að því að brot opinbers starfsmanns á þagnarskyldu sem á honum hvílir getur varðað allt að eins árs fangelsi, en allt að tveggja ára fangelsi hafi brotið falið í sér misnotk- un á stöðu starfs- mannsins. Þegar tekið er mið af þessum viðurlögum verða sak- argiftir vart taldar alvarlegar í samanburði við ýmis önnur mál. Á hinn bóginn eru mikil- vægir verndarhagsmunir í húfi sem tengjast bæði friðhelgi einkalífs þeirra sem í hlut eiga og kröfum um málefnalega og vandaða stjórnsýslu. Í þessu ljósi er á það fallist að ríkir hagsmunir séu tengdir því að upplýsa hver beri ábyrgð á því að umrætt minnisblað komst í hendur óviðkomandi. Veigamikill þáttur í tjáning- arfrelsi fjölmiðla felst í því að geta tekið við og miðlað upplýs- ingum sem almenning varðar án íhlutunar stjórnvalda og annarra valdamikilla aðila í samfélaginu. Til þess að tryggja að fjölmiðlar geti sinnt þessu hlutverki er mikilvægt að fjölmiðlamenn geti heitið heim- ildarmönnum sínum trúnaði sem haldi þegar þrýst er á þá að upplýsa hvaðan þeir hafi fengið upplýsingarnar. Ella er hætt við að upplýsingar, sem geta haft þýðingu fyrir almenn- ing, komi síður upp á yfirborð- ið. Af þessum sökum er litið á trúnaðarskyldu fjölmiðlamanna gagnvart heimildarmönnum sem mikilvægan þátt í tjáning- arfrelsi fjölmiðla sem varið er af 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt framansögðu eru ríkir, almennir hagsmunir tengdir því að trúnaðarsam- bandi varnaraðila og heimildar- manns mbl.is verði ekki raskað á þann hátt sem sóknaraðili fer fram á. Þá er til þess að líta að við mat á því hvort aflétta eigi nafnleynd höfundar og heimild- armanns mbl.is hljóta að koma til skoðunar þau skilyrði sem 73. gr. stjórnarskrárinnar set- ur við því að reisa tjáning- arfrelsinu skorður. Í 3. mgr. ákvæðisins er meðal annars kveðið á um að skorður við tján- ingarfrelsinu verði að vera nauðsynlegar og samrýmast lýðræðishefðum.“ Þannig vill til að mbl.is var þriðji fjölmiðillinn sem fjallaði um framangreint mál og sagt er að hafi leitt til þeirrar reki- stefnu sem orðin er. Því er a.m.k. sérkennilegt að fram- angreindri aðför sé sérstaklega beint gegn honum. Um þessar mundir er að- þrengd og spillt ríkisstjórn í Tyrklandi að reyna að knýja í gegn lagaheimildir til að þvinga megi fjölmiðla til að svíkja heimildarmenn sína um þá vernd sem þeir jafnan heita þeim. Tyrkneskir dómstólar spyrna enn við fótum. Framganga yfirvalda vekur undrun}Offors gegn fjölmiðlum F yrra undankvöld Evróvisjón- söngkeppninnar var haldið í gærkvöldi, en þá kepptu sextán þjóðir, þar á meðal íslensku Pollapönkararnir, um sæti í úr- slitum næstkomandi laugardag. Tíu lönd kom- ust áfram fyrir tilstilli dómnefnda fagmanna og almennra áheyrenda og Ísland var eitt þeirra. Upphafsatriði keppninnar var að vanda flutningur á sigurlagi síðasta árs, að þessu sinni var það lagið Only Teardrops sem danska söngkonan Emmelie Charlotte- Victoria de Forest flutti með kór sem í var barnahópur á sviðinu og grúi aðdáenda henn- ar sem birtust á skjám og sungu með. Vel framkvæmd hugmynd og skemmtileg, ekki síst fyrir það hvernig andlitin óteljandi stungu í stúf við þann veruleika sem birtist í Evróvisjón þar sem allir eru að verða eins – Emmelie de Forest hefði getað verið frá hvaða landi sem er að syngja lag eftir hvern sem er. Fyrir mörgum árum átti ég samtal við einn fremsta spámann opins hugbúnaðar í heiminum, Bandaríkja- mann sem barðist, og berst enn, fyrir hugbúnaðarfrelsi. Samtalið fór um víðan völl og endaði á tónlist, þar sem viðkomandi ræddi það í löngu máli hve illa væri komið fyrir tónlistinni að allir vildu hljóma eins, í stað þess að ungmenni væru að herma eftir Michael Jackson, sem var þá í fjöri (kannski ekki fullu), ættu þau að halda sig við þjóðlegri háttu, leika og syngja tónlist for- feðranna (svo við Vesturlandabúar gætum notið þess, bætti ég við í huganum). Það er þáttur í menningarlegri nýlendu- hyggju að ætlast til þess að aðrar þjóðir varð- veiti meiningu sína á þann hátt sem hentar okkur, að ætlast til þess að við höfum aðgang að því sem okkur þykir framandlegt og for- vitnilegt þegar það hentar okkur að skoða, að enn sé spiluð rembetikó í Grikklandi, highlife í Gana, chicha í Perú og tân co í Víetnam. Fyrir vikið náum við, ferðamennirnir, að upp- lifa framandlega menningu – ég meina „al- vöru“ framandlega menningu – og gleymum því að chicha er innblásið af amerísku fönki, highlife af kúbverskri rúmbu, tân co af kántrýtónlist og rembetikó af tyrkneskum þjóðlögum. Málið er nefnilega það að það er eðli listamanna að gera það sem þá langar til að gera og að sækja sér hugmyndir og innblástur í allar áttir. Margir trega það að þjóðleg einkenni séu á undanhaldi í Evróvisjón og ekki bara það að sungið sé á ensku held- ur að lögin séu líka áþekk. Pollapönkararnir stigu á svið í smíðasal Burmeister & Wain og sungu um fordóma; bentu á það í textanum að inn við beinið erum við eins, „... cause everybody looks the same on the inside“ sungu þeir upp á ensku, líkt og flestallir þátttakendur Evró- visjón, enda eru þeir flestir eins – að utan, í það minnsta … og er það ekki hið besta mál? arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Allir verða eins STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon muni t.d. kostnaður við flutnings- kerfið aukast, sem og líkur á bil- unum. Neikvæð umhverfisáhrif Umhverfisskýrsla fylgir kerfis- áætluninni í fyrsta skipti og er það vegna úrskurðar umhverfis- og auð- lindaráðherra frá síðasta ári. Í þeirri skýrslu er lagt mat á umhverfisáhrif af þremur mismunandi flutnings- leiðum er nefnast hálendislína og Norðurland (leið A), byggðalína (leið B) og hálendislína og vesturvængur (leið C). Niðurstaða matsvinnu VSÓ Ráð- gjafar fyrir Landsnet er að allar flutningsleiðir munu valda neikvæð- um og verulega neikvæðum áhrifum á einhvern þeirra umhverfisþátta sem voru til skoðunar, óháð því hvort um sé að ræða loftlínu eða jarðstreng og óháð spennustigi. Óvissa er um áhrif á menning- arminjar, óveruleg áhrif verða á vatnafar en verulega jákvæð áhrif á samfélagið. Ýmsar framkvæmdir Þá kynnti Landsnet í gær þriggja ára framkvæmdaáætlun, sem ekki hefur verið gert áður. Þar eru talin upp verkefni sem ráðast á í til og með árinu 2016. Meðal framkvæmda á þessu ári er Selfosslína 3, á milli Selfoss og Þor- lákshafnar, þar sem leggja á jarð- streng á 66 kW rekstrarspennu. Þá verður ráðist í 220 kW loftlínu á Suð- urnesjum, eða Suðurnesjalínu 2. Í skýrslu Landsnets segir að þörf sé á annarri tengingu við meginflutn- ingskerfið, óháð sérstökum áform- um um atvinnuuppbyggingu. Einnig verður Sigöldulína 3 styrkt á þessu ári, milli Sigölduvirkjunar og Búr- fellsvirkjunar. Á næsta ári stendur til að auka spennu á streng til Eyja, reisa tengi- virki í Grundarfirði og á Hvolsvelli og leggja 220 kW línu á milli Þeista- reykja og Bakka við Húsavík. Árið 2016 er ætlunin að ráðast í gerð Kröflulínu 3 frá Kröflustöð að Fljótsdalsstöð, auk fleiri verkefna. Landsnet nefnir jafnframt nokkur verk sem eru í gangi, en sæta ekki umfjöllun vegna umhverfismats. Meðal þeirra eru uppsetning vara- afls og nýs tengivirkis í Bolungarvík, nýtt tengivirki á Ísafirði og styrking Tálknafjarðarlínu 1. Ljósmynd/Landsnet Kynning Fundur Landsnets var sæmilega sóttur í gær, þegar kerfisáætlun var kynnt til næstu tíu ára, auk nýrrar umhverfisskýrslu. Styrkja þarf allt flutningskerfið Kerfisáætlun » Þetta er í fyrsta sinn sem kerfisáætlun Landsnets fer í umhverfismat. » Um 60 manns sóttu kynn- ingarfund Landsnets í gær en hann fór einnig fram í beinni útsendingu á vef fyrirtækisins. » Kerfisáætlun, umhverfis- skýrslu og kynningar á fund- inum er hægt að nálgast á landsnet.is. SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Landsnet kynnti í gær kerf-isáætlun fyrir tímabilið2014-2023 og drög að um-hverfisskýrslu fyrir sömu áætlun, en henni er ætlað að spá um nauðsynlega uppbyggingu flutnings- kerfis raforku hér á landi. Helsta niðurstaða kerfisáætl- uninnar er að styrkja þarf flutnings- kerfið í öllum tilvikum, sér í lagi á landsbyggðinni. Þörf er á mun sterkari tengingum milli stærstu orkuvinnslusvæðanna. Styrkingar á 132 kW spennustigi eru taldar óraunhæfar og framtíð meg- influtningskerfisins er sögð liggja í 220 kW spennustigi eða hærra. Sveigjanleiki til aukningar flutnings- getu er að mati Landsnets til staðar í 220 kW kerfinu á Suðvesturlandi. Í skýrslu Landsnets er varpað fram þremur sviðsmyndum til næstu tíu ára. Sviðsmynd 1 gerir eingöngu ráð fyrir þróun almenns álags í sam- ræmi við raforkuspá. Sviðsmyndir 2 og 3 gera ráð fyrir nýtingu virkj- anakosta úr orkunýtingarflokki Rammaáætlunar og mismunandi umfangi, þ.e. 50% og 100% uppsetts afls virkjanakosta. Flutningsgeta ekki næg Niðurstaða kerfisrannsókna sýna að víða er flutningsgeta ekki næg í flutningskerfinu, sérstaklega á landsbyggðinni sem fyrr segir. Þær tengingar milli landshluta sem oftast reyndust takmarkandi og þarfnast styrkingar eru á milli Suðurlands og Norðausturlands, milli höfuðborg- arsvæðis og Suðurnesja, milli Norð- austurlands og Austurlands, milli Norðurlands og Norðausturlands og á milli höfuðborgarsvæðis og Vest- urlands. Tenging á milli Suðurlands og norðausturhluta landsins er að mati Landsnets nauðsynleg í öllum þrem- ur sviðsmyndunum. Í kerfisáætluninni er einnig sam- anburður á loftlínum og jarð- strengjum, sem mikið hefur verið í umræðunni vegna fyrirhugaðrar lagningar nýrrar Blöndulínu. Fram kemur að kostnaður við jarðstrengi er mun meiri en við loftlínur, bæði líftímakostnaður og stofnkostnaður, jafnvel þó að tekið sé tillit til ýmissa óvissuþátta. Með jarðstrengjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.