Morgunblaðið - 07.05.2014, Side 19

Morgunblaðið - 07.05.2014, Side 19
Útsvars- prósenta Útsvars- prósenta Útsvars- prósenta Útsvars- prósenta Útsvars- prósenta Útsvars- prósenta Byrðar íbúanna eru misþungar Sveitarfélög sem leggja á hámarksútsvar Sveitarfélög sem gæta hófs Útsvars- prósenta Útsvars- prósenta Akrahreppur 14,52% Akraneskaupstaður 14,52% Akureyrarkaupstaður 14,52% Árneshreppur 14,52% Bláskógabyggð 14,52% Blönduósbær 14,52% Bolungarvíkurkaupstaður 14,52% Borgarbyggð 14,52% Borgarfjarðarhreppur 14,52% Breiðdalshreppur 14,52% Dalabyggð 14,52% Dalvíkurbyggð 14,52% Djúpavogshreppur 14,52% Eyjafjarðarsveit 14,52% Fjarðabyggð 14,52% Fljótsdalshérað 14,52% Flóahreppur 14,52% Grundarfjarðarbær 14,52% Hafnarfjarðarkaupstaður 14,52% Helgafellssveit 14,52% Hrunamannahreppur 14,52% Húnavatnshreppur 14,52% Húnaþing Vestra 14,52% Hveragerðisbær 14,52% Hörgársveit 14,52% Ísafjarðarbær 14,52% Kaldrananeshreppur 14,52% Langanesbyggð 14,52% Mosfellsbær 14,52% Mýrdalshreppur 14,52% Norðurþing 14,52% Rangárþing eystra 14,52% Rangárþing ytra 14,52% Reykhólahreppur 14,52% Reykjanesbær 14,52% Reykjavíkurborg 14,52% Sandgerðisbær 14,52% Seyðisfjarðarkaupstaður 14,52% Skaftárhreppur 14,52% Skagabyggð 14,52% Skútustaðahreppur 14,52% Snæfellsbær 14,52% Strandabyggð 14,52% Stykkishólmsbær 14,52% Súðavíkurhreppur 14,52% Svalbarðshreppur 14,52% Svalbarðsstrandarhr. 14,52% Sveitarfélagið Árborg 14,52% Sveitarfélagið Garður 14,52% Sveitarfélagið Hornafjörður 14,52% Sveitarfélagið Skagafjörður 14,52% Sveitarfélagið Skagaströnd 14,52% Sveitarfélagið Vogar 14,52% Sveitarfélagið Ölfus 14,52% Tálknafjarðarhreppur 14,52% Vesturbyggð 14,52% Vopnafjarðarhreppur 14,52% Þingeyjarsveit 14,52% Sveitarfélög sem leggja á lægsta löglega útsvarið Sveitarfélög undir vegnu meðaltali Sveitarfélög undir hámarki Skorradalshreppur 12,44% Grímsnes- og Grafningshr. 12,44% Ásahreppur 12,48% Kjósarhreppur 13,73% Fljótsdalshreppur 13,20% Seltjarnarneskaupstaður 13,70% Garðabær 13,70% Tjörneshreppur 14,09% Grindavíkurbær 13,99% Vestmannaeyjabær 13,98% Hvalfjarðarsveit 13,64% Eyja- og Miklaholtshreppur 14,48% Kópavogsbær 14,48% Fjallabyggð 14,48% Skeiða- og Gnúpverjahreppur 14,48% Grýtubakkahreppur 14,48% Fátt kæmi launa- fólki betur en lækkun útsvars og þá ekki síst þeim sem eru með lægstu launin. Mikill meirihluti skattgreið- enda þarf að greiða há- marksútsvar og verður að sætta sig við lægri ráðstöfunartekjur en íbúar sveitarfélaga þar sem meiri hófsemdar er gætt. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inga er merkilegt hvernig frambjóð- endur til borgar- og sveitarstjórna koma sér fimlega hjá því að ræða stefnu sína er varðar álögur á íbúana. Samkvæmt lögum getur útsvar orðið hæst 14,52% en lægst 12,44% af tekjum. Í Reykjavík er útsvars- prósentan í hámarki líkt og í 57 öðrum sveitarfélögum. Aðeins tvö sveitarfélög lofa íbúum sínum að njóta lágmarksútsv- ars – Skorradalshreppur og Gríms- nes- og Grafningshreppur. Níu sveitarfélög eru undir vegnu með- altali (12,44%) og fimm sveitarfélög eru fyrir ofan meðaltalið en undir hámarkinu, eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu. Vikulaun gerð upptæk Það skiptir venjulegan launamann verulegu máli hvar hann ákveður að halda heimili sitt. Sá sem kemur sér fyrir í sveitarfélagi þar sem lág- marksútsvar er innheimt greiðir sem jafngildir vikulaunum lægra en félagi hans sem er búsettur í Reykjavík, svo dæmi sé tekið. Það er hægt að orða þetta með öðrum hætti: Skattgreiðendur í Reykjavík og öðrum háskattasveitarfélögum eru viku lengur að vinna fyrir útsvarinu en þeir sem minnst greiða. Það er með öllu óskiljanlegt að forystumenn verkalýðshreyfing- arinnar skuli sjaldan beina sjónum sínum að útsvari og annarri skatt- og gjaldheimtu sveitarfélaga. Enn merkilegra er hvað íbúar há- skattasveitarfélaga virðast kæra sig koll- ótta, jafnvel þó að álög- ur hækki og skuldir sveitarfélagsins einnig. Jafnvel óánægja með veitta þjónustu kveikja illa upp efasemdir um hátt útsvar. Þó virðist vera samhengi á milli góðrar þjónustu og hóf- semdar í álagningu op- inberra gjalda. Þannig leiddi könnun Capa- cent Gallup á viðhorfi íbúa sextán sveitarfé- laga í ljós að Reykvík- ingar eru almennt ekki ánægðir. Höfuðborgin er í þriðja neðsta sæti þegar spurt er um þjónustuna í heild. Íbú- ar Garðabæjar og Sel- tjarnarness eru hins vegar ánægðir. Vegur þyngra en tekjuskattur Fyrir launamanninn hefur útsvarið mun meiri áhrif á ráðstöf- unartekjur en tekju- skattur ríkissjóðs. Launamaður sem er með 300 þús- und krónur í mánaðarlaun greiðir helmingi meira í útsvar en í tekju- skatt. Í heild greiða Íslendingar mun meira í útsvar en tekjuskatt. Sam- kvæmt svari fjármálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi, námu útsvars- tekjur sveitarfélaganna um 134 milljörðum króna árið 2012. Sama ár innheimti ríkissjóður tæplega 101 milljarð í tekjuskatt. Útsvar var þriðjungi hærra í heild en tekju- skattur. Ef tekið er mið af umræðu um op- inber gjöld hefði mátt ætla að tekju- skattur ríkisins væri margfaldur á við útsvar sveitarfélaganna. Þessu er þveröfugt farið og undirstrikar nauðsyn þess að auka aðhald að sveitarfélögunum þegar kemur að álagningu gjalda. Það dugar ekki að lagfæra tekju- skattskerfi ríkisins og draga úr jað- arskattheimtu þegar launamann- inum er síðan refsað af sveitarfélaginu. Það verður að koma böndum á innheimtugleði sveit- arstjórna, fyrst útsvarið og svo fast- eignagjöldin. Viðhorf til fyrirmyndar Miðað við skoðanakannanir geta Reykvíkingar ekki gert sér vonir um að útsvar verði lækkað á komandi kjörtímabili. Þeir verða að reikna með óbreyttri stefnu borgarstjórnar – útsvar skal vera í hámarki. Eina vonin liggur í því að Alþingi hækki ekki hámarksprósentuna. Viðhorf meirihluta borgarstjórnar er annað en bæjarstjórnar Vest- mannaeyja sem samþykkti í nóv- ember á liðnu ári að lækka útsvar: „Það er skoðun stjórnenda Vest- mannaeyjabæjar að nú þegar rekst- ur Vestmannaeyjabæjar þolir að lægra hlutfall sé tekið af launum bæjarbúa þá eigi þeir að njóta þess með auknum ráðstöfunartekjum frekar en að rekstur sveitarfélagsins sé þaninn út. Fólk er enda sjálft best til þess fallið að meta hvernig það ver sínum eigin fjármunum.“ Sjónarmið meirihluta bæj- arstjórnar í Vestmannaeyjum er skýrt og til fyrirmyndar. Kjósendur í öðrum sveitarfélögum þurfa einnig skýra kosti þegar þeir ganga að kjörborði í lok mánaðarins. Í 58 sveitarfélögum eru tækifæri fyrir stjórnmálamenn sem vilja draga hramma hins opinbera úr vös- um einstaklinga og auka ráðstöf- unarfé þeirra. Það er ekki vondur málstaður að berjast fyrir því að bæta hag almennra launamanna með lækkun opinberra gjalda. En til að ná árangri verður að tala hátt og skýrt. Eftir Óla Björn Kárason » Það dugar ekki að lag- færa tekju- skattskerfi rík- isins og draga úr jaðarskatt- heimtu þegar launamanninum er síðan refsað af sveitarfé- laginu. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Af hverju er ekki rætt um útsvarið? Landsmenn greiða meira í útsvar en tekjuskatt m.v. árið 2012 - tölur í milljörðum króna Heimild: Fjármálaráðuneytið Tekjuskattur ríkissjóðs Útsvar sveitarfélaga 100,7 134,5 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014 Litaskrúð Sólsetrið yfir Snæfellsjökli var einstaklega fallegt í fyrrakvöld. Myndin var tekin í Grafarvogi en margir voru einnig við Gróttu og á fleiri stöðum og urðu agndofa yfir litadýrðinni. Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.