Morgunblaðið - 07.05.2014, Blaðsíða 19
Útsvars-
prósenta
Útsvars-
prósenta
Útsvars-
prósenta
Útsvars-
prósenta
Útsvars-
prósenta
Útsvars-
prósenta
Byrðar íbúanna eru misþungar
Sveitarfélög sem leggja á hámarksútsvar
Sveitarfélög sem gæta hófs
Útsvars-
prósenta
Útsvars-
prósenta
Akrahreppur 14,52%
Akraneskaupstaður 14,52%
Akureyrarkaupstaður 14,52%
Árneshreppur 14,52%
Bláskógabyggð 14,52%
Blönduósbær 14,52%
Bolungarvíkurkaupstaður 14,52%
Borgarbyggð 14,52%
Borgarfjarðarhreppur 14,52%
Breiðdalshreppur 14,52%
Dalabyggð 14,52%
Dalvíkurbyggð 14,52%
Djúpavogshreppur 14,52%
Eyjafjarðarsveit 14,52%
Fjarðabyggð 14,52%
Fljótsdalshérað 14,52%
Flóahreppur 14,52%
Grundarfjarðarbær 14,52%
Hafnarfjarðarkaupstaður 14,52%
Helgafellssveit 14,52%
Hrunamannahreppur 14,52%
Húnavatnshreppur 14,52%
Húnaþing Vestra 14,52%
Hveragerðisbær 14,52%
Hörgársveit 14,52%
Ísafjarðarbær 14,52%
Kaldrananeshreppur 14,52%
Langanesbyggð 14,52%
Mosfellsbær 14,52%
Mýrdalshreppur 14,52%
Norðurþing 14,52%
Rangárþing eystra 14,52%
Rangárþing ytra 14,52%
Reykhólahreppur 14,52%
Reykjanesbær 14,52%
Reykjavíkurborg 14,52%
Sandgerðisbær 14,52%
Seyðisfjarðarkaupstaður 14,52%
Skaftárhreppur 14,52%
Skagabyggð 14,52%
Skútustaðahreppur 14,52%
Snæfellsbær 14,52%
Strandabyggð 14,52%
Stykkishólmsbær 14,52%
Súðavíkurhreppur 14,52%
Svalbarðshreppur 14,52%
Svalbarðsstrandarhr. 14,52%
Sveitarfélagið Árborg 14,52%
Sveitarfélagið Garður 14,52%
Sveitarfélagið Hornafjörður 14,52%
Sveitarfélagið Skagafjörður 14,52%
Sveitarfélagið Skagaströnd 14,52%
Sveitarfélagið Vogar 14,52%
Sveitarfélagið Ölfus 14,52%
Tálknafjarðarhreppur 14,52%
Vesturbyggð 14,52%
Vopnafjarðarhreppur 14,52%
Þingeyjarsveit 14,52%
Sveitarfélög sem leggja á lægsta löglega útsvarið
Sveitarfélög undir vegnu meðaltali
Sveitarfélög undir hámarki
Skorradalshreppur 12,44% Grímsnes- og Grafningshr. 12,44%
Ásahreppur 12,48%
Kjósarhreppur 13,73%
Fljótsdalshreppur 13,20%
Seltjarnarneskaupstaður 13,70%
Garðabær 13,70%
Tjörneshreppur 14,09%
Grindavíkurbær 13,99%
Vestmannaeyjabær 13,98%
Hvalfjarðarsveit 13,64%
Eyja- og Miklaholtshreppur 14,48%
Kópavogsbær 14,48%
Fjallabyggð 14,48%
Skeiða- og Gnúpverjahreppur 14,48%
Grýtubakkahreppur 14,48%
Fátt kæmi launa-
fólki betur en lækkun
útsvars og þá ekki síst
þeim sem eru með
lægstu launin. Mikill
meirihluti skattgreið-
enda þarf að greiða há-
marksútsvar og verður
að sætta sig við lægri
ráðstöfunartekjur en
íbúar sveitarfélaga þar
sem meiri hófsemdar
er gætt. Í aðdraganda
sveitarstjórnarkosn-
inga er merkilegt
hvernig frambjóð-
endur til borgar- og
sveitarstjórna koma
sér fimlega hjá því að
ræða stefnu sína er
varðar álögur á íbúana.
Samkvæmt lögum
getur útsvar orðið
hæst 14,52% en lægst
12,44% af tekjum. Í
Reykjavík er útsvars-
prósentan í hámarki
líkt og í 57 öðrum
sveitarfélögum. Aðeins
tvö sveitarfélög lofa
íbúum sínum að njóta lágmarksútsv-
ars – Skorradalshreppur og Gríms-
nes- og Grafningshreppur. Níu
sveitarfélög eru undir vegnu með-
altali (12,44%) og fimm sveitarfélög
eru fyrir ofan meðaltalið en undir
hámarkinu, eins og fram kemur í
meðfylgjandi töflu.
Vikulaun gerð upptæk
Það skiptir venjulegan launamann
verulegu máli hvar hann ákveður að
halda heimili sitt. Sá sem kemur sér
fyrir í sveitarfélagi þar sem lág-
marksútsvar er innheimt greiðir
sem jafngildir vikulaunum lægra en
félagi hans sem er búsettur í
Reykjavík, svo dæmi sé tekið.
Það er hægt að orða þetta með
öðrum hætti:
Skattgreiðendur í Reykjavík og
öðrum háskattasveitarfélögum eru
viku lengur að vinna fyrir útsvarinu
en þeir sem minnst greiða.
Það er með öllu óskiljanlegt að
forystumenn verkalýðshreyfing-
arinnar skuli sjaldan beina sjónum
sínum að útsvari og annarri skatt-
og gjaldheimtu sveitarfélaga. Enn
merkilegra er hvað íbúar há-
skattasveitarfélaga
virðast kæra sig koll-
ótta, jafnvel þó að álög-
ur hækki og skuldir
sveitarfélagsins einnig.
Jafnvel óánægja með
veitta þjónustu kveikja
illa upp efasemdir um
hátt útsvar. Þó virðist
vera samhengi á milli
góðrar þjónustu og hóf-
semdar í álagningu op-
inberra gjalda. Þannig
leiddi könnun Capa-
cent Gallup á viðhorfi
íbúa sextán sveitarfé-
laga í ljós að Reykvík-
ingar eru almennt ekki
ánægðir. Höfuðborgin
er í þriðja neðsta sæti
þegar spurt er um
þjónustuna í heild. Íbú-
ar Garðabæjar og Sel-
tjarnarness eru hins
vegar ánægðir.
Vegur þyngra en
tekjuskattur
Fyrir launamanninn
hefur útsvarið mun
meiri áhrif á ráðstöf-
unartekjur en tekju-
skattur ríkissjóðs.
Launamaður sem er með 300 þús-
und krónur í mánaðarlaun greiðir
helmingi meira í útsvar en í tekju-
skatt.
Í heild greiða Íslendingar mun
meira í útsvar en tekjuskatt. Sam-
kvæmt svari fjármálaráðherra við
fyrirspurn á Alþingi, námu útsvars-
tekjur sveitarfélaganna um 134
milljörðum króna árið 2012. Sama ár
innheimti ríkissjóður tæplega 101
milljarð í tekjuskatt. Útsvar var
þriðjungi hærra í heild en tekju-
skattur.
Ef tekið er mið af umræðu um op-
inber gjöld hefði mátt ætla að tekju-
skattur ríkisins væri margfaldur á
við útsvar sveitarfélaganna. Þessu
er þveröfugt farið og undirstrikar
nauðsyn þess að auka aðhald að
sveitarfélögunum þegar kemur að
álagningu gjalda.
Það dugar ekki að lagfæra tekju-
skattskerfi ríkisins og draga úr jað-
arskattheimtu þegar launamann-
inum er síðan refsað af
sveitarfélaginu. Það verður að koma
böndum á innheimtugleði sveit-
arstjórna, fyrst útsvarið og svo fast-
eignagjöldin.
Viðhorf til fyrirmyndar
Miðað við skoðanakannanir geta
Reykvíkingar ekki gert sér vonir um
að útsvar verði lækkað á komandi
kjörtímabili. Þeir verða að reikna
með óbreyttri stefnu borgarstjórnar
– útsvar skal vera í hámarki. Eina
vonin liggur í því að Alþingi hækki
ekki hámarksprósentuna.
Viðhorf meirihluta borgarstjórnar
er annað en bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja sem samþykkti í nóv-
ember á liðnu ári að lækka útsvar:
„Það er skoðun stjórnenda Vest-
mannaeyjabæjar að nú þegar rekst-
ur Vestmannaeyjabæjar þolir að
lægra hlutfall sé tekið af launum
bæjarbúa þá eigi þeir að njóta þess
með auknum ráðstöfunartekjum
frekar en að rekstur sveitarfélagsins
sé þaninn út. Fólk er enda sjálft best
til þess fallið að meta hvernig það
ver sínum eigin fjármunum.“
Sjónarmið meirihluta bæj-
arstjórnar í Vestmannaeyjum er
skýrt og til fyrirmyndar. Kjósendur
í öðrum sveitarfélögum þurfa einnig
skýra kosti þegar þeir ganga að
kjörborði í lok mánaðarins.
Í 58 sveitarfélögum eru tækifæri
fyrir stjórnmálamenn sem vilja
draga hramma hins opinbera úr vös-
um einstaklinga og auka ráðstöf-
unarfé þeirra. Það er ekki vondur
málstaður að berjast fyrir því að
bæta hag almennra launamanna
með lækkun opinberra gjalda.
En til að ná árangri verður að tala
hátt og skýrt.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Það dugar
ekki að lag-
færa tekju-
skattskerfi rík-
isins og draga
úr jaðarskatt-
heimtu þegar
launamanninum
er síðan refsað
af sveitarfé-
laginu.
Óli Björn
Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Af hverju er ekki rætt um útsvarið?
Landsmenn greiða meira í
útsvar en tekjuskatt
m.v. árið 2012 - tölur í milljörðum króna
Heimild: Fjármálaráðuneytið
Tekjuskattur
ríkissjóðs
Útsvar
sveitarfélaga
100,7
134,5
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014
Litaskrúð Sólsetrið yfir Snæfellsjökli var einstaklega fallegt í fyrrakvöld. Myndin var tekin í Grafarvogi en margir voru einnig við Gróttu og á fleiri stöðum og urðu agndofa yfir litadýrðinni.
Kristinn