Morgunblaðið - 07.05.2014, Side 21

Morgunblaðið - 07.05.2014, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014 Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Fataskápur Hæð 2100 mm Breidd 800 mm Dýpt 600 mm Tegund: Strúktúr eik TIL Á LAGER S KÁPATI LB OÐ Verð58.900,-m. vsk. Tökum að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og stubbatætingu. Vandvirk og snögg þjónusta. Sími 571 2000 www.hreinirgardar.is Eldri borgarar Stangarhyl Mánudaginn 5. maí var spilaður tvímenningur hjá bridsdeild Félags eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykja- vík. Spilað var á 13 borðum. Meðalskor 312. Efstu pör í N/S: Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 379 Jón Hákon Jónss. – Sigtryggur Jónss. 357 Björn Árnason – Auðunn Guðmss. 355 A/V Bergur Ingimundars. – Axel Lárusson 430 Ægir Ferdinandss. – Höskuldur Jónss. 400 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 375 Fjórtán borð í Gullsmára Spilað var á 14 borðum í Gull- smára mánudaginn 5. maí. Úrslit í N/S: Gunnar Sigurbjss. – Sigurður Gunnlss. 309 Hermann Guðmss. – Halldór Jónsson 302 Þórður Jörundss. – Jörundur Þórðarson 296 Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 281 A/V Sigurður Njálss. – Pétur Jónsson 350 Birgir Ísleifss. – Jóhann Ólafsson 328 Samúel Guðmss. – Jón Hannesson 325 Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 305 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Nú eru rúmlega fimm ár frá því að ís- lensku bankarnir hrundu, rúmlega fimm ár frá því ríkisstjórn Ís- lands áréttaði í frétta- tilkynningu að inn- stæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibú- um þeirra hér á landi yrðu tryggðar að fullu og rúmlega fimm ár frá því að þáverandi ríkisstjórn ákvað að bjarga bankakerfinu. Nú fimm árum seinna skuldar rík- issjóður, sem stuttu fyrir hrun var því sem næst skuldlaus, svo mikið að hætta stafar af. Til að gera sér grein fyrir því hversu mikil byrði sú skuld er á landsmönnum greiðir ríkissjóður tugi milljarða árlega í vaxtagreiðslur en þær eru nú einn stærsti einstaki útgjaldaliður ríkissjóðs. Það að bjarga bönkunum var sann- arlega dýrkeypt og því er ekki furða að menn með einhvern vott af sið- ferðisvitund stígi fram og krefjist þess að í framtíðinni verði banka- og peningakerfinu breytt. Einn slíkur, formaður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis, steig fram í fjöl- miðlum fyrir ekki svo löngu og talaði fyrir því að bönkum, öðrum en Seðla- banka Íslands, yrði bannað að búa til innstæður. Reyndar hefur nefnd- arformaðurinn, sem er rekstrarhag- fræðingur að mennt, lengi vel staðið fyrir fræðslu á peningakerfinu í fjöl- miðlum og talað fyrir umbótum sem myndu hugsanlega rétta af skulda- stöðu ríkissjóðs og minnka verð- bólgu. Kom nefndarformaðurinn í fyrrgreindu viðtali inn á mikilvægan orsakaþátt í hruni íslenska banka- kerfisins, það er að segja leyfi banka til að búa til innstæður. Til þess að fara stuttlega yfir okkar peningakerfi stýrir Seðlabanki Ís- lands því seðla- og myntmagni sem er í umferð á hverjum tíma. Það er að segja að til þess að koma í veg fyrir óhóflega peningaprentun er engum öðrum en Seðlabanka Íslands heimilt að prenta eða slá okkar gjaldmiðil. Seðla- og myntmagn er þó aðeins lítill hluti þess heildarpeningamagns sem er í umferð á hverjum tíma þar sem bankar hafa það vald að geta búið til innstæður. Eru innstæður í raun ígildi peninga þar sem fyrir utan að þær eru gjaldgengar í viðskiptum má greiða skatta með þeim. Þessi fram- leiðsla á innstæðum er hluti þess ferl- is sem fer af stað við það að ein- staklingur tekur lán hjá banka. Þetta leyfi til að búa til innstæður var misnotað með svo miklum ofsa á góðærisárunum að sjálfur þjóðar- gjaldmiðillinn, eftir há- vaxtastefnu sem or- sakaði mikið innstreymi gjaldeyris sem sópaði verðbólg- unni tímabundið undir teppið, lenti í miklum háskadansi með áhrif- um sem sendu þjóðina í einkar óvelkomna spennitreyju gjaldeyr- ishafta. Þetta vald banka til að búa til innstæður er stór galli í núverandi banka- og pen- ingakerfi, galli sem lýsir sér í því að bankar á góðæristímum þenja út peningakerfið eins mikið og þeir geta allt þar til þeir standa á brauð- fótunum einum. Svo þegar allt hryn- ur er skattgreiðandinn látinn borga brúsann. Í okkar samfélagi eru peninga- seðlar ekki notaðir í viðskiptum nema að litlu leyti. Flestöll viðskipti fara fram rafrænt í formi korta- viðskipta eða millifærslu á rafrænum innstæðum. Í góðæri þegar mikið traust er til banka halda slík við- skipti áfram án sjáanlegra vand- kvæða en þegar kreppir að snýst dæmið við, vantraust skapast og menn vilja í auknum mæli sjá reiðufé eða jafnvel flytja fé sitt til annarra landa þar sem ávöxtun er betri. Við munum öll eftir því hvað gerð- ist við fall íslensku bankanna. Þá hvarf traustið og allir vildu taka út reiðufé sitt þótt augljóslega gæti að- eins lítill hluti fengið sitt kærkomna reiðufé þar sem reiðufé á hvern fjár- ráða landsmann er ekki nema örlítill hluti af lausu bankainnstæðunum. Í raun má segja að jafnvel þótt viljinn væri fyrir hendi gæti sitjandi ríkisstjórn, með einhvern vott af skynsemi, ekki gert neitt annað en að skerast í leikinn og bjarga bönk- unum með einum eða öðrum hætti sé bankakreppa í uppsiglingu. Slík björgun er þó ekki án vandkvæða heldur er hún í formi margra ára skuldsetningar með tilfallandi lífs- kjaraskerðingu. Það gengur ekki miklu lengur að bankar geti búið til ígildi peninga í formi innstæðna, lánað innstæð- urnar út verðtryggðar á himinháum vöxtum, þanið út kerfið, stuðlað að efnahagslegum óstöðugleika, þrýst á magnþrungnar eignatilfærslur sem enda allar á því að bankinn verður ríkari og valdameiri á meðan flestir þeir sem taka lán frá bankanum verða skuldsettari og efnaminni. Mörg teikn eru á lofti um að bank- arnir séu að hefja annað skeið taum- lausrar framleiðslu á innstæðum og ef ekkert verður gert mun það hafa afdrifaríkar afleiðingar. Við skulum vona svona stuttu eftir hrun að ráða- menn þjóðarinnar sofi ekki á vakt- inni. Raunhæf lausn er í boði eins og formaður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis kom inn á og í henni felst að banna bönkum, öðrum en Seðlabanka Íslands, að búa til inn- stæður. Með því er enginn að tala fyr- ir því að bönkum verði bannað að lána, aðeins að þeir þurfi að eiga fyrir láninu sem þeir ætla sér að lána eða með öðrum orðum að það sé raun- veruleg innstæða fyrir innstæðunni. Að bjarga bönkum Eftir Viðar Guðjohnsen »Raunhæf lausn er í boði og í henni felst að banna bönkum, öðr- um en Seðlabanka Ís- lands, að búa til inn- stæður. Viðar H. Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.