Morgunblaðið - 07.05.2014, Síða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.
Tökum að okkur trjáklippingar,
trjáfellingar og stubbatætingu.
Vandvirk og snögg þjónusta.
Sími 571 2000
www.hreinirgardar.is
Eldri borgarar Stangarhyl
Mánudaginn 5. maí var spilaður
tvímenningur hjá bridsdeild Félags
eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykja-
vík.
Spilað var á 13 borðum. Meðalskor
312.
Efstu pör í N/S:
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 379
Jón Hákon Jónss. – Sigtryggur Jónss. 357
Björn Árnason – Auðunn Guðmss. 355
A/V
Bergur Ingimundars. – Axel Lárusson 430
Ægir Ferdinandss. – Höskuldur Jónss. 400
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 375
Fjórtán borð í Gullsmára
Spilað var á 14 borðum í Gull-
smára mánudaginn 5. maí.
Úrslit í N/S:
Gunnar Sigurbjss. – Sigurður Gunnlss. 309
Hermann Guðmss. – Halldór Jónsson 302
Þórður Jörundss. – Jörundur Þórðarson 296
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 281
A/V
Sigurður Njálss. – Pétur Jónsson 350
Birgir Ísleifss. – Jóhann Ólafsson 328
Samúel Guðmss. – Jón Hannesson 325
Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 305
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Nú eru rúmlega
fimm ár frá því að ís-
lensku bankarnir
hrundu, rúmlega fimm
ár frá því ríkisstjórn Ís-
lands áréttaði í frétta-
tilkynningu að inn-
stæður í innlendum
viðskiptabönkum og
sparisjóðum og útibú-
um þeirra hér á landi
yrðu tryggðar að fullu
og rúmlega fimm ár frá
því að þáverandi ríkisstjórn ákvað að
bjarga bankakerfinu.
Nú fimm árum seinna skuldar rík-
issjóður, sem stuttu fyrir hrun var
því sem næst skuldlaus, svo mikið að
hætta stafar af. Til að gera sér grein
fyrir því hversu mikil byrði sú skuld
er á landsmönnum greiðir ríkissjóður
tugi milljarða árlega í vaxtagreiðslur
en þær eru nú einn stærsti einstaki
útgjaldaliður ríkissjóðs.
Það að bjarga bönkunum var sann-
arlega dýrkeypt og því er ekki furða
að menn með einhvern vott af sið-
ferðisvitund stígi fram og krefjist
þess að í framtíðinni verði banka- og
peningakerfinu breytt. Einn slíkur,
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis, steig fram í fjöl-
miðlum fyrir ekki svo löngu og talaði
fyrir því að bönkum, öðrum en Seðla-
banka Íslands, yrði bannað að búa til
innstæður. Reyndar hefur nefnd-
arformaðurinn, sem er rekstrarhag-
fræðingur að mennt, lengi vel staðið
fyrir fræðslu á peningakerfinu í fjöl-
miðlum og talað fyrir umbótum sem
myndu hugsanlega rétta af skulda-
stöðu ríkissjóðs og minnka verð-
bólgu. Kom nefndarformaðurinn í
fyrrgreindu viðtali inn á mikilvægan
orsakaþátt í hruni íslenska banka-
kerfisins, það er að segja leyfi banka
til að búa til innstæður.
Til þess að fara stuttlega yfir okkar
peningakerfi stýrir Seðlabanki Ís-
lands því seðla- og myntmagni sem er
í umferð á hverjum tíma. Það er að
segja að til þess að koma í veg fyrir
óhóflega peningaprentun er engum
öðrum en Seðlabanka Íslands heimilt
að prenta eða slá okkar gjaldmiðil.
Seðla- og myntmagn er þó aðeins lítill
hluti þess heildarpeningamagns sem
er í umferð á hverjum tíma þar sem
bankar hafa það vald að geta búið til
innstæður. Eru innstæður í raun
ígildi peninga þar sem fyrir utan að
þær eru gjaldgengar í viðskiptum má
greiða skatta með þeim. Þessi fram-
leiðsla á innstæðum er hluti þess ferl-
is sem fer af stað við það að ein-
staklingur tekur lán hjá banka.
Þetta leyfi til að búa til innstæður
var misnotað með svo miklum ofsa á
góðærisárunum að sjálfur þjóðar-
gjaldmiðillinn, eftir há-
vaxtastefnu sem or-
sakaði mikið
innstreymi gjaldeyris
sem sópaði verðbólg-
unni tímabundið undir
teppið, lenti í miklum
háskadansi með áhrif-
um sem sendu þjóðina
í einkar óvelkomna
spennitreyju gjaldeyr-
ishafta.
Þetta vald banka til
að búa til innstæður er
stór galli í núverandi
banka- og pen-
ingakerfi, galli sem lýsir sér í því að
bankar á góðæristímum þenja út
peningakerfið eins mikið og þeir
geta allt þar til þeir standa á brauð-
fótunum einum. Svo þegar allt hryn-
ur er skattgreiðandinn látinn borga
brúsann.
Í okkar samfélagi eru peninga-
seðlar ekki notaðir í viðskiptum
nema að litlu leyti. Flestöll viðskipti
fara fram rafrænt í formi korta-
viðskipta eða millifærslu á rafrænum
innstæðum. Í góðæri þegar mikið
traust er til banka halda slík við-
skipti áfram án sjáanlegra vand-
kvæða en þegar kreppir að snýst
dæmið við, vantraust skapast og
menn vilja í auknum mæli sjá reiðufé
eða jafnvel flytja fé sitt til annarra
landa þar sem ávöxtun er betri.
Við munum öll eftir því hvað gerð-
ist við fall íslensku bankanna. Þá
hvarf traustið og allir vildu taka út
reiðufé sitt þótt augljóslega gæti að-
eins lítill hluti fengið sitt kærkomna
reiðufé þar sem reiðufé á hvern fjár-
ráða landsmann er ekki nema örlítill
hluti af lausu bankainnstæðunum.
Í raun má segja að jafnvel þótt
viljinn væri fyrir hendi gæti sitjandi
ríkisstjórn, með einhvern vott af
skynsemi, ekki gert neitt annað en
að skerast í leikinn og bjarga bönk-
unum með einum eða öðrum hætti sé
bankakreppa í uppsiglingu. Slík
björgun er þó ekki án vandkvæða
heldur er hún í formi margra ára
skuldsetningar með tilfallandi lífs-
kjaraskerðingu.
Það gengur ekki miklu lengur að
bankar geti búið til ígildi peninga í
formi innstæðna, lánað innstæð-
urnar út verðtryggðar á himinháum
vöxtum, þanið út kerfið, stuðlað að
efnahagslegum óstöðugleika, þrýst á
magnþrungnar eignatilfærslur sem
enda allar á því að bankinn verður
ríkari og valdameiri á meðan flestir
þeir sem taka lán frá bankanum
verða skuldsettari og efnaminni.
Mörg teikn eru á lofti um að bank-
arnir séu að hefja annað skeið taum-
lausrar framleiðslu á innstæðum og
ef ekkert verður gert mun það hafa
afdrifaríkar afleiðingar. Við skulum
vona svona stuttu eftir hrun að ráða-
menn þjóðarinnar sofi ekki á vakt-
inni.
Raunhæf lausn er í boði eins og
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis kom inn á og í henni
felst að banna bönkum, öðrum en
Seðlabanka Íslands, að búa til inn-
stæður. Með því er enginn að tala fyr-
ir því að bönkum verði bannað að
lána, aðeins að þeir þurfi að eiga fyrir
láninu sem þeir ætla sér að lána eða
með öðrum orðum að það sé raun-
veruleg innstæða fyrir innstæðunni.
Að bjarga bönkum
Eftir Viðar
Guðjohnsen
»Raunhæf lausn er í
boði og í henni felst
að banna bönkum, öðr-
um en Seðlabanka Ís-
lands, að búa til inn-
stæður.
Viðar H.
Guðjohnsen
Höfundur er lyfjafræðingur
og sjálfstæðismaður.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Aukablað alla
þriðjudaga