Morgunblaðið - 07.05.2014, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014
Vagnhöfða 11, 110 Reykjavík | S. 577-5177 | linuborun@linuborun.is | www.linuborun.is
Af hverju grafa þegar hægt er að bora?
Reynsla - þekking - við komum og metum
Við notum stýranlegan jarðbor
sem borar undir götur, hús, ár
og vötn.
Umhverfisvænt - ekkert jarðrask•
Meira öryggi á svæðinu•
Sparar bæði tíma og peninga.•
Borum fyrir nýjum síma-, vatns-, rafmagns-
og ljósleiðaralögnum.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú skalt tala skýrt við alla í fjölskyld-
unni í dag. Vertu viss um að skemmtunin sé
ótrúlega skemmtileg svo það sé þess virði að
rugga bátnum.
20. apríl - 20. maí
Naut Peningar sem náinn vinur hefur lofað
þér gætu látið á sér standa. Mundu að mennt
er máttur. Haltu bara þínu striki, því öll él
styttir upp um síðir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú hafir skipulagt daginn vand-
lega geta alltaf komið upp atvik sem þú þarft
að sinna fyrirvaralaust. Við þér blasa nú ýms-
ir möguleikar og það skiptir sköpum hvernig
þú heldur á málum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Félagslífið ætti að blómstra við það
að þú hittir alla sem þú hefur ætlað þér að
hitta. Og dugi það ekki máttu ekki hika við að
leita þér aðstoðar hvar sem er.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er frábær dagur til mennta, fjöl-
miðlunar, útgáfu, auglýsinga, ferðalaga eða
samskipta við erlend ríki. Ef þú heyrir af fleiri
möguleikum hefurðu um meira að velja.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt andleg uppljómun sé heila málið
er allt eins víst að maður nái henni ekki nema
þurfa að kljást við umhverfið. Búðu þig undir
að þurfa að grípa gæsina ef hún gefst.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert í heimspekilegum hugleiðingum
og getur nú gefið þér tíma til að skoða málin
af fullri alvöru. Nú er lag að standa undir
væntingum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Létt/ur í lundu svífur þú í gegn-
um daginn í átt að draumkenndum plönum.
Viðræður við fólk eru tilfinningaríkar, ástríkar
og hlýjar því þú þráir hvatningu þess og sam-
þykki.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert allra vinur þessa stundina
og ættir að láta þér vel líka í flestum tilvikum.
Fólk virðist bæði geðstirt og óútreiknanlegt
núna og erfitt að sjá í hvorn fótinn á að stíga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekkert samband er fullkomið.
Haltu skaðanum í lágmarki og verðu þá sem
verið er að hallmæla, leyfðu þeim að njóta
vafans.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ferðalög og ný námstækifæri
auka lífsfyllinguna. Taktu djarfar ákvarðanir
til að nýta þér þessa heppni þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu eindreginn stuðningsmaður vel-
gengnisfólks. Liggur eitthvað á? Flýtir eykur
bara líkurnar á mistökum.
Á„alþjóðlega hlátursdeginum“setti Davíð Hjálmar Haralds-
son þessa limru á Leirinn:
Er flissaði Hlédís og hló,
hún hlandblaut og magnþrota spjó
og það varð svo gaman
að grænblá í framan
hún gubbaði þar til hún dó.
– „Og svo segja menn að al-
þjóðlegi hlátursdagurinn sé bara
hégómi,“ bætir Davíð Hjálmar við.
Þá lét Davíð Hjálmar þess getið,
að 2. maí hefði hann komið í fugla-
safn Sigurgeirs við Mývatn. –
„Var þar á ferð með bróður mín-
um og mági sem báðir eru nokkrum
árum yngri en ég. Það kann að segja
eitthvað um útlit mitt og atgervi að
við innganginn var ég rukkaður um
fullan aðgangseyri en þeir tveir áttu
að borga eldrimannagjald. Ég leið-
rétti auðvitað þetta misrétti enda
eru þeir ekki komnir á aldur. Orti
vísu fyrir gestabókina, man hana
ekki en hún gæti hafa verið eitthvað
á þessa leið:
Hrossagaukar, hrafnaþing,
hrímtittlingar, endur, lundar:
Ætíð gleðja Eyfirðing
uppstoppaðir vængjahundar.“
Jón Arnljótsson veltir vöngum yf-
ir næturfrosti og hefur langt „a“ í
ma-í:
„Ég las það í Morgunblaðinu, sem
ég vissi ekki, að ég hefði haft
áhyggjur vegna þess að sumar og
vetur frusu ekki saman. Það var,
hins vegar, frost í nótt og ætli það
sé ekki nokk sama hver nóttin er.
Bölvað er, sé blíðan stabíl.
Býður upp á hefndarplott,
1. maí fraus við apríl.
Fjandi sem að það var gott.
Ég hafði „Undir haustfjöllum“
eftir Helga Hálfdánarson með mér í
rúmið í gærkvöldi og rakst þar á
þessa vísu, „Ánamaðkur á malbiki“
eftir Piet Hein, en þegar slíkt ber
við er það vissulega merki um vor-
komuna:
Æ heyrðu litli ánamaðkur,
hvað ég skil þig vel!
oft hef ég tal af fólki
sem er bara grjóthörð skel;
ég leita um allt að smugu,
já ég leita en finn þó eigi,
og mér líður eins og ánamaðki
á malbikuðum vegi.
Og þar var þessi staka eftir sama:
Spyrji þitt hjarta
vorið til vegar
verðurðu skáld
ef þú ert það þegar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á hlátursdaginn, vængjahundar
og ánamaðkur á malbiki
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MÁ ÞETTA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að láta gott af
sér leiða.
HÚFULAUS
VINSAMLEGAST
GEFIÐ
BLÓÐBANKIN
N
VÍÍÍÍÍ! VÍÍÍÍÍ! SAGÐIÞAÐ!
ÉG HELD SAMT
AÐ ÞAÐ SÉ EKKI
GAMAN AÐ BÓNA
GÓLF.
ÉG HEF HEYRT AÐ HUNDAR
EIGI SÍN UPPÁHALDSTRÉ, EN
ÞETTA ER FÁRÁNLEGT!
Kannast lesendur við próteiniðGDF11? Ekki það? Það gerði
Víkverji reyndar ekki heldur fyrr en
hann rakst á frásögn af tilraun sem
leiddi í ljós að þegar gömlum músum
er gefið blóð úr ungum músum fara
gömlu mýsnar að hlaupa hraðar og
muna betur. Vísindamenn við Kali-
forníuháskóla í San Francisco gáfu
músum, sem hefðu verið sextugar í
mannárum, blóð úr músum, sem
hefðu verið tvítugar í mannárum, og
urðu þær mun sprækari en þegar
músum, sem hefðu verið sextugar í
mannárum, var gefið blóð úr jafn
öldruðum músum. Þegar þessar nið-
urstöður voru ljósar báru vís-
indamennirnir saman blóðið úr ungu
músunum og gömlu músunum og
sáu að magn próteinsins GDF11 var
mun meira í blóðinu úr ungu mús-
unum, en í blóðinu úr gömlu mús-
unum. Og viti menn: GDF11 er einn-
ig í mannablóði og þar á meira að
segja það sama við, magnið minnkar
eftir því sem maðurinn eldist. Vís-
indamenn ætla að halda áfram rann-
sóknum og vonast jafnvel til þess að
finna leið til að auka virkni manns-
heilans og vinna gegn minnis-
glöpum.
x x x
Víkverji fór um helgina ásamtbetri helmingnum með hjólið
sitt á bensínstöð til að dæla lofti í
dekkin. Ákváðu þau síðan að fara í
hjólreiðatúr í veðurblíðunni og vissu
ekki af sér fyrr en þau voru komin
að Elliðaám úr Vesturbænum eftir
að hafa hjólað í gegnum Nauthóls-
víkina og Fossvoginn. Leiðin til baka
lá í gegnum Sundahöfnina. Þar fer
minna fyrir hjólreiðastígum, en þar
sem engin umferð var í iðn-
aðarhverfinu var þrautalaust að
hjóla þar um. Loks fannst þó stígur
og þegar nær dró miðborginni jókst
umferðin á honum. Án þess að það
hafi verið til vandræða verður brag-
arbót þegar kominn verður sér-
stakur stígur fyrir hjólreiðamenn
meðfram strandlengjunni. Víkverji
var þokkalega haldinn eftir þetta
fyrsta hjólreiðaferðalag sitt í mörg
ár, en hann hugsaði með sér þegar
hann las fréttina um mýsnar að ekki
hefði verið amalegt að vera með
aukaskammt af próteininu GDF11 í
túrnum. víkverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni vegu þína og treyst
honum, hann mun vel fyrir sjá.
(Sálmarnir 37:5)