Morgunblaðið - 10.05.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 10.05.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2014 Kaupum alla bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Í slippnum í Reykjavík er þessa dagana unnið við að botnhreinsa og mála Hval 8, annað tveggja skipa sem Hvalur hf. gerir út. Góður gangur er í þessu verkefni, en bæði skip og vinnslustöðin í Hvalfirði þurfa að vera klár þegar vertíðin hefst í júní. Er því í mörg horn að líta við undirbúning. Kvóti þessa sumars er 154 lang- reyðar og munu veiðar og vinnsla á þeim sumarlangt kalla á mikla vinnu, bæði til sjós og lands. sbs@mbl.is Hvalbáturinn gerður klár í slippnum Morgunblaðið/Ómar Leyft að veiða 154 langreyðar á hvalvertíðinni sem hefst í júní Viðar Guðjónsson Jón Pétur Jónsson Sérstakur saksóknari telur að fyrr- verandi stjórnendur Kaupþings, þeir Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmunds- son, hafi með háttsemi sinni valdið bankanum „gríðarlegu og fáheyrðu fjártjóni“ er þeir fóru út fyrir heim- ildir til lánveitinga skömmu fyrir bankahrun sem varð til þess að 67 milljarðar króna glötuðust. Þetta kemur fram í ákæru emb- ættisins á hendur þremenningunum sem birt var fjölmiðlum í gær. Hreiðari Má, sem er fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Sigurði, sem er fyrrverandi stjórnarformaður bank- ans, og Magnúsi, sem er fyrrverandi yfirmaður bankans í Lúxemborg, var birt ákæran sl. þriðjudag. Þetta er í þriðja sinn sem þeir eru ákærðir í tengslum við viðskipti bankans fyr- ir efnahagshrunið. Í ákærunni kemur m.a. fram að lánin hafi verið veitt á viðsjárverðum tímum í starfsemi íslenskra banka og í miðri alþjóðlegri lánsfjárkrísu. Þá hafi lánin öll verið veitt í evrum þótt staða bankans í erlendri mynt væri orðin erfið og undir lokin svo erfið að bankinn fékk 500 milljóna evra neyðarlán frá Seðlabanka Ís- lands. Hluta af því var varið til að fjármagna síðustu lánveitingarnar sem ákært er fyrir. Í ákærunni segir að Hreiðar Már og Sigurður séu ákærðir fyrir um- boðssvik með því að hafa 29. ágúst 2008 í sameiningu misnotað aðstöðu sína og farið út fyrir heimildir til lán- veitinga og látið bankann veita þremur félögum með takmarkaðri ábyrgð, sem skráð voru á Bresku Jómfrú- eyjum, peninga- markaðslán án trygginga. Þá hafi þetta verið gert án þess að lánshæfi félag- anna væri metið og án þess að fyr- ir lægi samþykki lánanefndar bank- ans. Lánin framlengd tvívegis Upphæð lánanna nam 130 milljón- um evra og voru þau veitt svo félögin Charbon Capital, Holly Beach og Trenvis gætu gert upp lán sem þau höfðu fengið 7. ágúst 2008 frá Kaup- thing Bank Luxembourg. Þau lán höfðu verið notuð sem eiginfjárfram- lög félaganna í félaginu Chesterfield United, sem lagði umrædda fjár- muni inn á reikning hjá Deutsche Bank í Lundúnum. Hafði 125 millj- ónum evra af þeim fjármunum verið varið til að greiða fyrir svonefnt Cre- dit Linked Notes, eða lánshæfis- tengt skuldabréf, sem tengt var skuldatryggingaálagi Kaupþings banka og 5 milljónum evra verið var- ið í þóknun til Deutsche Bank. Þá segir, að lán Kaupþings til Charbon Capital, Holly Beach og Trenvis 29. ágúst 2008 hafi verið framlengd tvisvar, fyrst 19. septem- ber til 30. september 2008 og síðan 30. september til 13. október 2008. Tekið er fram að þau lán hafi ekki verið greidd til baka og verði láns- féð að teljast bankanum glatað. Magnús er ákærður fyrir hlut- deild í umboðssvikum Hreiðars Más og Sigurðar með því að hafa ásamt þeim lagt á ráðin um umræddar lán- veitingar Kaupþings og hvatt til að lánin yrðu veitt af hálfu bankans til að greiða upp lán Kaupthing Bank Luxembourg til félaganna þótt hon- um hlyti að vera ljóst að Hreiðar og Sigurð brast heimild til lánveiting- anna og að lánin hefðu verið veitt án nokkurra trygginga. 67 milljarðar glötuðust  Kaupþingsmenn ákærðir fyrir að veita lán framhjá lánanefnd bankans og án trygginga  Neyðarlán Seðlabanka notað til lánveitinga í miðri lánsfjárkrísu Sigurður Einarsson Hreiðar Már Sigurðsson Magnús Guðmundsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Atkvæðagreiðsla stendur yfir meðal félagsmanna í Flugfreyjufélagi Ís- lands um boðun verkfallsaðgerða flugfreyja og flugþjóna hjá Iceland- air. Kosningin hófst 7. maí og lýkur henni í dag. Ekki fást upplýsingar hjá félaginu um það hvers konar aðgerðir sé um að ræða eða hvenær þær kæmu til framkvæmda fyrr en úrslit atkvæða- greiðslunnar liggja fyrir. „Við erum þessa dag- ana að kjósa um aðgerðir og það kemur í ljós um helgina hver nið- urstaðan verð- ur,“ segir Sturla Bragason, sem á sæti í samninga- nefnd Flugfreyjufélagsins. Næsti fundur hjá Ríkissáttasemj- ara er boðaður 15. maí. Sturla segir litla hreyfingu hafa orðið á viðræð- unum en seinasti sáttafundur var haldinn 7. maí. Flugfreyjufélagið, sem á beina að- ild að ASÍ, skrifaði ekki undir kjara- samninga ASÍ-félaga og SA í desem- ber og í lok janúar vísaði félagið yfirstandandi kjaradeilu við Ice- landair og Samtök atvinnulífsins til sáttasemjara. 8. apríl vísaði félagið svo kjaradeilu sinni við Flugfélag Ís- lands og SA til sáttasemjara. Flugfreyjur kjósa um aðgerðir  Lítil hreyfing í viðræðum við Icelandair  Deilan til sátta- meðferðar í rúma þrjá mánuði  Næsti sáttafundur 15. maí Flugfreyjur á leið í verkfall? Greiðlega gekk í gærkvöldi að koma áætl- unarflugi Ice- landair aftur af stað, en það lá niðri allan daginn vegna vinnu- stöðvunar flug- manna, sem stóð frá kl. 06 til kl. 18 síðdegis. Á átt- unda tímanum í gærkvöldi fóru vélar til Kaupmannahafnar, Oslóar og átta áfangastaða vestanhafs. Flug til Seattle var blásið af. Farþegar utan voru alls um 1.700, ámóta margir voru væntanlegir með þessum vél- um heim í nótt og nú í morgunsárið. Aðgerðir flugmanna gegn Ice- landair bar á góma á ríkisstjórn- arfundi í gær, þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra reifaði málið. Engin ákvörðun um inngrip ríkisvaldsins hefur verið tek- in, enda er vika í næstu boðuðu vinnustöðvun. Næsti samninga- fundur í deilu þessari er boðaður á mánudag. Margir bera kvíðboga fyrir hugs- anlegum áhrifum vinnustöðvunar hjá Icelandair. „Hver dagur veldur stórtjóni,“ segir í pistli sem Samtök atvinnulífsins sendu frá sér í gær. Þar segir að þá níu daga sem vinnu- stöðvanir flugmanna nái til taki þær til 600 flugferða og 100 þúsund far- þega. Ætla megi að tjónið af völdum vinnustöðvunarinnar dag hvern sé um einn milljarður króna. Stærsta ferðasumar sögunnar sé í hættu. Við þetta er svo því að bæta að Félag ís- lenskra atvinnuflugmanna hefur boðað ótímabundið yfirvinnubann hjá Air Atlanta frá 17. maí. Áhrifa þeirra aðgerða mun lítið gæta hér á landi enda eru verkefni Atlanta að stærstum hluta leiguflug erlendis. 1.700 fóru utan í gærkvöldi Icelandair flýgur í dag  Flugmenn til um- ræðu í ríkisstjórn Hugsanlegt er að frekari jarð- skjálftar geti orðið á Suðurlandi á næstunni. Þetta er mat vísinda- manna á jarðskjálftunum á Suður- landi, sem riðu yfir seint í fyrra- kvöld. Sá stærri var 4,0 stig á Richter og átti upptök við Þjórsá. Hinn var 2,3 og voru rætur hans við Hveragerði. Skjálftarnir í fyrra- kvöld eru þeir stærstu á Suðurlandi frá 2008. Á Veðurstofunni er talið hugsanlegt að hræringarnar séu eft- irleikur skjálfta 17. júní 2000, því ekki hafi losnað um alla spennu á svæðinu þá. sbs@mbl.is Fleiri skjálft- ar líklegir „Það er komið samkomulag um það að við ætlum að klára okkar verk núna á þess- ari viku sem er framundan. Við- ræður hafa átt sér stað og menn eru nokkuð á sömu línum um að ljúka þessu 16. maí,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsókn- arflokksins, við mbl.is í gær. Í forgangi er að ljúka frumvarpi til laga um breytingar á veiðigjöld- um, um skuldaleiðréttingar og skattaafslátt vegna séreignarlífeyr- issparnaðar, auk margra annarra mála sem komin eru lengst í þing- legri meðferð. Evrópumálin verða sett til hliðar í bili og afgreiðast ekki fyrir þinglok. Náist stóru málin ekki fram er sá möguleiki fyrir hendi að boða sum- arþing en Sigrún segir stefnt að því að svo verði ekki. Ljúka eigi þingi á tilsettum tíma. una@mbl.is Samið um lok þing- starfa  Tillaga um ESB- viðræðuslit til hliðar Sigrún Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.