Morgunblaðið - 10.05.2014, Side 18

Morgunblaðið - 10.05.2014, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2014 INNTÖKUPRÓF í allar deildir skólans fara fram í síðari hluta maímánaðar INNRITUN fyrir veturinn 2014-2015 stendur yfir Fjölbreytt SÖNGNÁM fyrir nemendur á öllum aldri Unglingadeildir yngri og eldri • 11 - 15 ára Almennar söngdeildir Grunnnám /Miðnám / Framhaldsnám Háskóladeildir Einsöngsnám / Söngkennaranám • Þjóðlagatónlist • Ljóðasöngur • Óperusöngur • Söngleikir • • Einsöngur • Samsöngur • Kórsöngur • • Söngtúlkun • Sviðsframkoma • Hreyfingar við tónlist • Leikræn tjáning • • Tónleikar • Óperuuppfærslur • • Tónfræði • Hljómfræði • Tónheyrn • Nótnalestur • Tónlistarsaga • Saga sönglistar Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga www.songskolinn.is • • • Sérstök tiltektarhelgi verður í Reykjavík um helgina. Hvetur Reykjavíkurborg fólk og fyr- irtæki til að taka til í sínu nánasta umhverfi. Fram kemur í tilkynningu að í til- tektarhelginni felist að hreinsa burt rusl sem finna má í runnum, í garðinum heima, á leikvöllum eða opnum svæðum og gangstéttum. Hægt er fá poka undir ruslið á næstu Olísstöð. Starfsfólk hverfa- stöðva Reykjavíkurborgar mun sækja pokana strax eftir helgi þar sem þeim hefur verið komið fyrir á áberandi stöðum í götum. Ekki verður tekið við garðaúrgangi. Tiltekt Starfsmenn Reykjavíkurborgar sýndu gott fordæmi og tíndu rusl í vikunni. Tiltektarhelgi í Reykjavík Akureyrarmessa verður haldin í Bústaðakirkju sunnu- daginn 11. maí kl. 14.00. Fjölmargir Akureyringar koma fram í messunni. Ræðumaður verður sr. Hjörtur Páls- son. Meðal söngfólks í messunni eru Kristján Jóhannsson óperusöngvari, Una Dóra Þorbjörnsdóttir, Magnús Ing- ólfsson, Ingólfur Magnússon, Helga Maggý Magnús- dóttir og Vigdís Ásgeirsdóttir ásamt félögum úr Kór Bú- staðakirkju. Bænir, ritningarlestrar og prestsþjónusta eru í höndum Akureyringa og akureyskra presta. „Eftir messu er norðlenski fílingurinn í botni þegar boðið er upp á Bragakaffi, Kristjánspunga og kleinur, Lindukon- fekt og hið landsfræga Mix,“ segir í tilkynningu. Kristinn G. Jóhannsson myndlistarmaður hefur á hverju ári fært messu- gestum eitt af sínum málverkum sem prýða messuskrána. Akureyrarmessa í Bústaðakirkju Verk Kristins G. Valskórinn held- ur vortónleika í Háteigskirkju í Reykjavík á mánudagskvöld klukkan 20. Fram kemur í tilkynningu að söngskráin sé blönduð íslensk- um og erlendum lögum sem flestir þekki. Stjórnandi kórsins er Bára Grímsdóttir og Jón- as Þórir leikur undir á píanó. Mar- grét Eir syngur með kórnum. Valskórinn fagnaði 20 ára afmæli í fyrra. Hann hélt af því tilefni til Belfast á Írlandi og hélt sameig- inlega tónleika með Glentoran- knattspyrnufélaginu. Valskórinn heldur vortónleika Margrét Eir. Boðið verður upp á náttúrugöngu um Grafarvoginn í dag þar sem náttúran og fuglalífið verða skoð- uð. Lagt verður upp frá Foldasafni klukkan 10.30 og er boðið upp á hressingu í safninu eftir göngu sem tekur um klukkutíma. Náttúruganga um Grafarvog svæði. Ef veður reynist ekki hag- stætt til veiða er boðið í ökuferðir um svarta sandana milli Þjórsár og Ytri-Rangár. Þetta er skemmtileg nýjung í ferðamennsku og fer von- andi vel af stað í sumar.    Arion banki hefur nú á þriðja ár rekið hluta af sínu þjónustuveri á landsvísu í útibúinu á Hellu. Þar hafa verið fjögur stöðugildi við þjónustuverið til þessa en nú hefur fjórum starfsmönnum verið sagt upp og hafa þeir hætt störfum nú þegar. Þetta er um það bil einn þriðji af starfsmönnum bankans á Hellu. Sagt er að verið sé að hag- ræða og sameina starfsfólk þjón- ustuversins undir einu þaki í Reykjavík.    Uppsagnirnar eru mikil blóð- taka fyrir þetta litla samfélag á Hellu, þar sem svona störf eru ekki á hverju strái. Til viðbótar er verið að fækka starfsmönnum við póst- húsið á Hellu og líklegt að dregið verði úr þjónustu og opnunartími skertur.    Landsmót hestamanna 2014 fer fram á Gaddstaðaflötum við Hellu í lok júní og byrjun júlí. Síð- ast var haldið landsmót á Hellu árið 2008 og var það fjölmennasta mótið til þessa með um 14 þúsund gesti og þátttakendur. Úrtökumót fyrir landsmótið fara fljótlega í gang, en reiknað er með um það bil 700-800 hestum til keppni alls, bæði í gæð- inga- og kynbótakeppnum.    Rangárbakkar ehf. eru eigandi svæðisins á Gaddstaðaflötum. Tals- maður þeirra, Kristinn Guðnason, segir að nú eftir helgina verði ráð- ist í talsverðar framkvæmdir og endurbætur á svæðinu, völlum og aðkomu. Lausleg áætlun gerir ráð fyrir kostnaði við þær endurbætur upp á 15-20 milljónir króna, sem fer eftir því hve margir sjálf- boðaliðar fást.    Fréttaritari sat við að skrifa uppkast að þessum pistlum í fyrra- kvöld þegar jarðskjálfti reið yfir upp úr kl. 23. Fyrst kom hvinur og nokkur titringur, fréttaritari stóð upp úr stólnum og ætlaði að fara að hafa orð á því að nú væri að koma jarðskjálfti, en þá virtist koma bylmingshögg á húsið. Þetta rifjaði óneitanlega upp ónotalegar minningar frá árinu 2000, þegar Suðurlandsskjálftarnir gerðu fólki lífið leitt. Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Framkvæmdir Hótel Stracta er í byggingu rétt við Gaddstaðaflatir. Er stefnt að því að taka það í notkun fyrir landsmót hestamanna 2014, sem haldið verður á Hellu eftir rúmar 6 vikur. Ný afþreying í ferðamennsku á Hellu ÚR BÆJARLÍFINU Óli Már Aronsson Hellu Kynslóðabrúin er skemmtilegt tónlistarverkefni sem Ómar Dið- riksson og hljómsveit hans, Sveita- synir, komu á fót fyrir skemmstu hér í Rangárþingi. Þeir héldu þrenna tónleika með hljómsveitinni og þrem kórum, skipuðum fólki á öllum mögulegum aldri. Fyrst má nefna kór eldri borgara í Rang- árvallasýslu, sem nefnist Hringur. Þá skal telja kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkju og síðast en ekki síst kórinn Hekluraddir sem er ungmennakór af svæðinu.    Lögin sem flutt voru á tón- leikunum voru öll eftir Ómar Dið- riksson í útsetningu Guðmundar Eiríkssonar og kemur þessi sam- vinna með kórunum vel út, stjórn- andi kóranna er Kristín Sigfúsdótt- ir. Tónleikarnir fóru fram í Hveragerðiskirkju, Ásólfsskála- kirkju og Menningarsalnum á Hellu, en þar hafa þessir kórar og fleiri aðstöðu til æfinga.    MudShark er nýtt fyrirtæki í afþreyingu fyrir ferðamenn, stað- sett á Hellu. Þar er boðið upp á ný- stárlegar veiðiferðir á ströndina í Þykkvabæjarfjöru, sem gengur að- allega út á að veiða háf á stöng. Á heima- og Facebook-síðu Mud- Shark má sjá afla úr ferðum sem hafa verið farnar undanfarið. Við þessar veiðar eru notaðar sérstakar stangir og hjól, en stranglega er bannað að vaða út í öldurnar, sem geta verið varasamar á þessu Nýtt hrefnuveiðitímabil er hafið og þegar hafa veiðst tvær hrefnur í Faxaflóa. Gunnar Bergmann Jónsson, tals- maður IP útgerðar, sem gerir út hrefnuveiðibátana Hafstein SK og Hrafnreyði KÓ, segir að ekki hafi gengið nógu vel í fyrra, en þá veiddust 38 dýr. „Stefnan er að ná 50 núna,“ segir hann. Fyrirtækið er með eigin vinnslu og vinnur allt hráefnið til sölu á veitingastöðum og í verslunum. Tæplega 20 manns vinna við veiðar og vinnslu í sumar hjá fyrirtækinu. Fyrstu hrefnurnar veiddar Hrefnuveiðiskipið Hrafnreyður. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið til afnota nýja fær- anlega rauðljósa- og hraðamynda- vél Eftirlitsmyndavélin verður fyrst sett upp á Sæbraut í Reykjavík þar sem eru stór ljósastýrð gatnamót. Verður vélin gangsett á þriðjudag. Reykjavíkurborg og Vegagerðin keyptu myndavélina. Færanleg um- ferðarmyndavél

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.