Morgunblaðið - 30.05.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vegfarendur sem nýverið áttu leið um Borg-
artún í Reykjavík ráku vafalaust margir hverjir
upp stór augu þegar þeir sáu stórvirka vinnuvél
tæta í sig þann gróður sem skreytti hringtorgið í
götunni. Samkvæmt upplýsingum frá starfs-
mönnum Reykjavíkurborgar var verið að vinna
eftir ábendingum frá almenningi sem taldi slysa-
hættu stafa af þeim mikla gróðri sem prýddi
torgið. Var talið að gróðurinn gæti byrgt öku-
mönnum sýn og þar með aukið hættuna fyrir
gangandi vegfarendur í grennd við hringtorgið.
Gróðurunnendur þurfa þó ekki að hafa miklar
áhyggjur því til stendur að planta þar nýjum og
lágvaxnari gróðri á næstunni. Er þetta liður í
þeim miklu breytingum sem átt hafa sér stað í
Borgartúni að undanförnu. Í sumar má svo búast
við að götumyndin breytist enn frekar þegar bú-
ið verður að koma fyrir litlum umferðareyjum á
milli akbrauta á völdum stöðum í götunni en
þeim er ætlað að auðvelda gangandi vegfar-
endum að komast leiðar sinnar. khj@mbl.is
Enn breytist ásýnd Borgartúns í Reykjavík
Morgunblaðið/Golli
Stórvirk vinnuvél tætti í sig og mokaði burt gróðrinum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þarna eru tillögur til úrbóta. Nú
þarf að koma þeim í framkvæmd og
það er sannarlega ætlun okkar að
gera það,“ segir Ragnheiður Elín
Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, um skýrslu Ferðamálastofu
um einföldum starfsumhverfis og
regluverks í ferðaþjónustu.
Ragnhildur Elín segir að skýrslan
sé vel unnin og skýr. Hún rími vel við
upplýsingar sem fram komi í nýlegri
skýrslu Rannsóknastofnunar at-
vinnulífsins á Bifröst um umfang
skattsvika í ferðaþjónustu og leiðir
til úrbóta.
Í skýrslunni eru tillögur um ein-
földun regluverks
og starfsum-
hverfis ferðaþjón-
ustunnar í þeim
anda að draga úr
tálmunum við því
að starfsemi hefj-
ist, svo sem vegna
leyfisveitinga,
vottorða og um-
sagna stjórn-
valda. Atvinnulíf-
inu verði í grunninn sýnt traust til að
reka sína starfsemi samkvæmt lög-
um og reglum. Hins vegar verði lög-
bundnar öryggisreglur sem fyrir-
tækjunum verði skylt að uppfylla og
beitt viðurlögum í stað kæru til lög-
reglu ef útaf verði brugðið. Ragn-
heiður Elín segir að áfram verði unn-
ið að undirbúningi málsins og
frumvörp þar um lögð fyrir Alþingi í
haust.
Lagt er til að ein rafræn gátt verði
sett upp fyrir formleg samskipti
ferðaþjónustufyrirtækja við stjórn-
völd. Í því felist mikil tækifæri til
einföldunar. Skýrsluhöfundar vekja
athygli á því að verkefnið sé tækni-
lega einfalt þar sem þekking á verk-
lagi sé til hjá ríkisskattstjóra og isl-
and.is. Vandinn felist í því að
samhæfa stofnanir, verklag þeirra,
mismunandi kerfi og menningu.
Hafin vinna í stjórnarráðinu
Ráðherra styður tillöguna og vill
hrinda henni í framkvæmd. Vekur
athygli á því að á vettvangi ríkis-
stjórnarinnar sé hafin vinna við að
samræma vefi stjórnarráðsins og
undirstofnana. „Það er spurning
hvort þetta verður gert samhliða eða
hvort við getum tekið þetta verkefni
út úr og keyrt áfram,“ segir hún.
Vill einfalda regluverkið
Lagt til að sett verði upp ein rafræn gátt fyrir ferðaþjónustuna og regluverkið
einfaldað Ráðherra mun vinna að því að hrinda tillögunum í framkvæmd
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Morgunblaðið/Ómar
Ferðalag Skoðunarferð skipulögð.
Mikil og skemmtileg keppni er á Ís-
landsmótinu í skák. Skákmennirnir
skiptast daglega á um forystu á
mótinu.
Guðmundur Kjartansson, alþjóð-
legur meistari, er efstur með 4,5
vinninga eftir sex umferðir. Hann
gerði jafntefli við Einar Hjalta Jens-
son sem er í 10. sæti. Aftur á móti
tapaði Henrik Danielsen fyrir Héðni
Steingrímssyni og er í öðru sæti.
Héðinn er í 3.-5. sæti ásamt Braga
Þorfinnssyni og Hannesi Hlífari
Stefánssyni með 3,5 vinninga.
Sviptingarnar geta haldið áfram
því í dag teflir Guðmundur við Braga
og Henrik við Þröst Þórhallsson.
Magnús Teitsson er efstur í
áskorendaflokki eftir að hafa unnið
Lenku Ptácníková en þau voru efst
og jöfn fyrir umferðina. Lenka er
efst á Íslandsmóti kvenna sem er
hluti af áskorendaflokki og Jóhanna
Björg Jóhannsdóttir er í öðru sæti.
Sviptingar á Íslandsmótinu
Guðmundur
Kjartansson efstur
Ljósmynd/Gunnar Björnsson
Barátta Guðmundur Kjartansson og Einar Hjalti Jensson gerðu jafntefli.
Lax sem veiddur
var á sil-
ungasvæði
Vatnsdalsár síð-
astliðið sunnu-
dagskvöld er tal-
inn fyrsti lax
sumarsins. Haf-
liði Sigtryggur
Magnússon
veiddi laxinn í
Flóðinu er hann
var að veiðum á silungasvæði
Vatnsdalsár.
Hafliði sagði við vefinn Vötn og
veiði að hann hefði fengið laxinn á
rauðan Nobbler, mjög nærri útfalli
Vatnsdalsár. Laxinn hefði verið ný-
genginn. Áætlað er að laxinn hafi
verið um 10 pund en honum var
sleppt án þess að hann væri veginn
eða mældur. Fréttir hafa borist af
því að lax sé genginn í nokkrar af
helstu laxveiðiám landsins.
Fyrsti lax sumarsins
veiddist í Flóðinu
í Vatnsdal
Lax Fiðringur er í
veiðimönnum.
Spáð er nokkuð mildu veðri á kjör-
dag og sjómannadaginn. Þó getur
meirihluti landsmanna átt von á að
lenda í rigningu við kjörstaði og á
sjómannadagshátíðum. Veð-
urstofan spáir rigningu um allt
land nema norðaustantil á laug-
ardag og norðaustan- og austantil á
sunnudag. Hiti verður 8-16 stig,
hlýjast á Norðausturlandi.
Rignir á sjómenn og
meirihluta kjósenda
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Helgin Vissara að hafa regnhlíf meðferðis.
Um klukkan 20 í gærkvöld höfðu
alls 15.354 manns kosið utan kjör-
fundar í sveitarstjórnarkosning-
unum á landinu öllu samkvæmt töl-
um frá Laugardalshöll. Þar af hafði
7.461 greitt atkvæði hjá sýslumann-
inum í Reykjavík í Laugardalshöll.
Opið verður fyrir atkvæða-
greiðslu utan kjörfundar í Laug-
ardalshöll alla daga frá 10 til 22 en
greiða má atkvæði utan kjörfundar
á skrifstofum og í útibúum allra
sýslumanna og í sendiráðum. Kosn-
ingarnar sjálfar fara svo fram
næstkomandi laugardag.
Yfir 15.000 manns
hafa þegar kosið
Hátt í fjörutíu starfsmenn rækju-
verksmiðjunnar Kampa ehf. á Ísa-
firði verða án atvinnu í fimm vikur í
sumar. Fyrirtækið tilkynnti starfs-
fólki lokun vegna hráefnisskorts á
fundi síðdegis í fyrradag, að því er
fram kemur á vef Verkalýðsfélags
Vestfirðinga. Lokað verður frá 11.
júlí til 18. ágúst.
Fram kemur í tilkynningu Kampa
til Verk Vest og Vinnumálastofnunar
að útlit á hráefnismörkuðum sé ekki
gott í sumar. Þar vegi þyngst að
væntanlega verði ráðgjöf Hafró um
5000 tonna hámarksafla af úthafs-
rækju náð í sumar sem þýði bann við
veiðum allan ágúst og væntanlega
stóran hluti júlímánaðar. Þegar hafi
verið sett veiðibann á rækjuveiðar
við Snæfellsnes. Þá sé útlit fyrir að
erfiðara verði með hráefnisöflun frá
útlöndum og Kampi sé ekki með
neitt fast í hendi sem hægt væri að
byggja á í sumar.
Verk Vest minnir á að félagið hafi
ítrekað varað við þeirri stöðu sem nú
er komin upp vegna breytinga á út-
hlutun veiðiheimilda í rækju og bent
á ábyrgð stjórnvalda á henni. Stjórn-
völd eða þingmenn kjördæmisins
hafi ekki brugðist við með hagsmuni
starfsfólks að leiðarljósi. Tekið er
fram að ekki hafi fengist staðfest að
vinnslustöðvun verði hjá Hólma-
drangi á Hólmavík vegna hráefnis-
skorts þetta sumarið. helgi@mbl.is
40 án vinnu í sumar
vegna hráefnisskorts
Kampi lokar rækjuverksmiðjunni