Morgunblaðið - 30.05.2014, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 150. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Margir gefast upp á hárgreiðslunni
2. Með ólíkindum hvað menn leggjast lágt
3. Beið í 90 mínútur eftir pítsunni
4. Lögreglan stóð aðgerðalaus hjá
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hilmir Snær Guðnason og hljóm-
sveitirnar Hundur í óskilum og Broth-
er Grass leiða saman hesta sína í
kvöld kl. 19.30 í tónrænu sagna-
leiksýningunni Hestaati í Þjóðleik-
húskjallaranum. Í henni er íslenski
hesturinn skoðaður frá öllum hliðum
og rifjuð upp þúsund ára sambúð
hans við ótamin náttúruöfl og brokk-
genga þjóð, eins og því er lýst í til-
kynningu. Hestaat var flutt í Norður-
ljósasal Hörpu í tilefni Hestadaga í
Reykjavík í byrjun apríl og tók Hjör-
leifur Hjartarson, aðalsöngvari
Hunds í óskilum, saman dagskrána
með sögum, lögum og ljóðum um ís-
lenska hestinn. Hilmir Snær Guðna-
son leikari segir sögurnar og hljóm-
sveitin Brother Grass leikur á milli
þekkt sem óþekkt íslensk hestalög
með öðrum hætti en fólk á að venj-
ast, skv. tilkynningu. Stúlkurnar í
Brother Grass leika auk þess á bala,
þvottabretti og fleiri ásláttar-
hljóðfæri og Hilmir tekur lagið með
hljómsveitinni. Hundur í óskilum mun
svo leika lausum hala á sviðinu og að-
stoða Hilmi og Brother Grass við
flutninginn.
Hestaat í Þjóðleik-
húskjallaranum
Drengjakór Reykjavíkur heldur vor-
tónleika í Hallgrímskirkju á morgun
kl. 15. Stjórnandi er Friðrik S. Krist-
insson og píanó- og orgelleikari er
Lenka Mátéová.
Kórinn er eini
starfandi drengja-
kór landsins og
hefur ferðast og
sungið víða, er-
lendis sem innan-
lands. Í kórnum
eru 26 drengir á
aldrinum 8-15 ára.
Himneskur söngur
ungra herramanna
SPÁ KL. 12.00 Í DAG 8-13 m/s syðra og vestra og fer að
rigna seinni partinn. Hægari vindur og bjartviðri nyrðra og
eystra. Hiti yfirleitt 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil.
VEÐUR
Brasilíumenn eru af flestum
taldir sigurstranglegasta
þjóðin á heimsmeist-
aramótinu í knattspyrnu í
ár, enda eru þeir á heima-
velli. Króatíska liðið er
firnasterkt, í kringum Mexí-
kóa eru eintóm spurning-
armerki en Kamerúnar eru
ekki taldir líklegir til afreka.
Útlit er fyrir harða baráttu
um annað sæti A-riðilsins á
HM og Morgunblaðið skoðar
liðin í riðlinum. »4
Hörð barátta um
annað sætið?
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í
handknattleik og Þýskalandsmeistari
með Kiel, er væntanlega á förum frá
Þýskalandi í sumar. Tvö af bestu fé-
lagsliðum Evrópu, Veszprém og
Barcelona, vilja fá hann í sínar raðir.
Ljóst er að hvor kost-
urinn sem verður fyrir
valinu, þá mun Aron
spila með mörgum af
bestu handknatt-
leiksmönnum
heims á næsta
tímabili. »1
Aron á förum til
Ungverjalands?
Þriggja ára ævintýri handknatt-
leiksmannsins Þóris Ólafssonar
hjá pólska liðinu Kielce er lokið og
hann veit ekki ennþá hvar hann
spilar á næsta keppnistímabili.
Framboðið af leikmönnum er mikið
í Evrópu um þessar mundir og
launakjörin sem í boði eru duga
ekki til framfærslu fjölskyldu, seg-
ir Þórir í viðtali í blaðinu í dag. »3
Launin duga ekki til
framfærslu fjölskyldu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
„Sýningin var mjög vel sótt þrátt
fyrir hálfleiðinlegt veður,“ segir
Matthías Sveinbjörnsson, forseti
Flugmálafélags Íslands, en félagið
stóð að hinni árlegu flugsýningu á
Reykjavíkurflugvelli í gær.
Þeim sem sóttu flugvöllinn heim
gafst meðal annars kostur á að sjá
Boeing 757 þotu Icelandair, Þrist-
inn Pál Sveinsson DC-3 og mód-
elflugvélar af ýmsum gerðum auk
þess sem þyrlusveit Landhelg-
isgæslu Íslands lék listir sínar við
góðar undirtektir áhorfenda.
Þá lét einnig sjá sig á sýningunni
C-130 Hercules björgunarflugvél
úr flugsveit bandaríska flughersins
sem stödd er hér á landi við loft-
rýmisgæslu. „Hún flaug yfir með
hjólabúnaðinn niðri og þegar vélin
kom að áhorfendum var allt gefið
inn,“ segir Matthías. khj@mbl.is
Reykjavíkurflugvöllur trekkti að
Hátt í 8.000 borgarbúar mættu í Vatnsmýrina til þess að halda upp á dag flugsins
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Leynigestur Björgunarflugvél bandaríska flughersins lét sig ekki vanta og flaug hún tignarlega fram hjá áhorfendum sem sýndu vélinni mikinn áhuga.
Bandaríski
flugherinn og
Gæslan heilluðu
Einbeittur Þessi ungi flugáhugamaður tók sig vel út í flugstjórnarklefanum og virtist kunna öll handtökin.
Á laugardag Suðaustan og austan 5-10 m/s, en 10-15 við suður-
ströndina í fyrstu. Víða rigning, en úrkomulítið um landið norð-
austanvert. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.