Morgunblaðið - 30.05.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2014
Þá sem eru á ferð um höfuðborg-ina rekur í rogastans þessa
dagana. Þeir verða hvað eftir annað
varir við að grassláttur og ýmis önn-
ur umhirða borgarlandsins er hafin
og þó er aðeins maí.
Menn líta furðu lostnir á nýslegintúnin og svo á dagatalið og
klípa sig loks í handlegginn til ör-
yggis.
Svo halda þeir áfram ferð sinni ogverða þá varir við gatnafram-
kvæmdir og götur sem nýlokið er
við að endurbæta og átta sig meira
að segja á að þessar gatnafram-
kvæmdir fela ekki endilega í sér að
verið sé að koma fyrir fuglahúsum á
umferðargötum eða að mála reiðhjól
á götuspotta fyrir milljónir króna.
Allt er þetta slík nýlunda að þeirsem ferðast um borgina þessa
dagana vita ekki sitt rjúkandi ráð.
Þar sem áður var óslegið tún fram í
ágúst með tilheyrandi sóðaskap og
heymæði standa nú önnum kafnir
sláttumenn borgarinnar eins og
tíðkaðist á árum áður.
En svo rennur upp fyrir ferða-löngunum hvernig í pottinn er
búið.
Það eru kosningar á morgun.
Borgaryfirvöldum hefur sem sagtá síðustu dögum og vikum tek-
ist það sem þeim tókst aldrei á fyrstu
árum kjörtímabilsins.
Næstu þrjú ár er hins vegar ekkivon á góðu. Bara að það væri
kosið á hverju ári.
Kjósum á hverju ári
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.5., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 15 skýjað
Nuuk 1 snjóél
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 16 heiðskírt
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 10 súld
Lúxemborg 18 léttskýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 17 léttskýjað
París 17 skýjað
Amsterdam 11 skýjað
Hamborg 13 léttskýjað
Berlín 11 skýjað
Vín 13 skúrir
Moskva 16 alskýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 22 skýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Aþena 21 skýjað
Winnipeg 22 alskýjað
Montreal 17 léttskýjað
New York 15 heiðskírt
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:28 23:24
ÍSAFJÖRÐUR 2:49 24:12
SIGLUFJÖRÐUR 2:30 23:57
DJÚPIVOGUR 2:48 23:03
Fallegir toppar
peysur, bolir, buxur,
leggings og pils fyrir
konur á öllum aldri
Vinsælu kvartbuxurnar
í 5 litum
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Ný sending
Verið velkomin
Einnig eigum við alltaf
vinsælu velúrgallana í
stærðum S-XXXXL
Stjórn Félags hrossabænda beinir því
til stjórnar FEIF, alþjóðasamtaka
um íslenska hestinn, að setja nú þeg-
ar bráðabirgðabann á notkun ákveð-
inna méla með tunguboga. Jafnframt
verði skipaður þverfaglegur starfs-
hópur til að skoða aðrar tegundir
beislisbúnaðar á grundvelli gagna
sem þegar liggja fyrir og verður safn-
að í sumar. Starfshópurinn komi með
tillögur að áframhaldandi aðgerðum.
Í ályktun stjórnar hrossabænda
kemur fram að þetta er lagt til í ljósi
niðurstöðu rannsóknar Sigríðar
Björnsdóttur, dýralæknis hrossa-
sjúkdóma, um tengsl áverka í munni
og áhættuþátta. Þar komi fram
sterk fylgni á milli ákveðinnar gerð-
ar méla og áverka í munni. „Félag
hrossabænda vill leggja áherslu á
mikilvægi þess að velferð hestsins sé
höfð í fyrirrúmi og að unnið sé að
þeim markmiðum með samstöðu inn-
an greinarinnar að leiðarljósi. FHB
telur því farsælast að unnið sé að
málinu á vettvangi FEIF.“
Þau mél sem stjórn Félags hrossa-
bænda vill banna til bráðabirgða eru
einjárnungur og einbrotin mél með
tunguboga, vogarafli og keðju.
Stjórn Landssambands hestamanna-
félaga ákvað fyrir skömmu að banna
öll mél með tunguboga og stöngum
og/eða keðju. Það bann gildir í
íþróttakeppni og gæðingakeppni hér
á landi en ekki á kynbótasýningum.
helgi@mbl.is
FEIF banni tvær gerðir tungubogaméla
Hrossabændur vilja að aðrar gerðir
beislisbúnaðar verði athugaðar nánar
Morgunblaðið/Ómar
Hestar Útrreiðartúr í Elliðaárdal.
Margrét Ein-
arsdóttir, mann-
fræðingur, mun
þann 5. júní verja
doktorsritgerð
sína í Hátíðarsal
Háskóla Íslands.
Athöfnin er öll-
um opin en rit-
gerðin ber heitið
Launavinna
barna og ung-
linga á Íslandi: Þátttaka og vernd.
Ritgerðin fjallar um launaða vinnu
13-17 ára ungmenna á Íslandi og
byggðist bæði á spurningakönnun
og hópviðtölum. Komist er að þeirri
niðurstöðu að ákveðin togstreita
ríki á milli efnahagslegrar og lík-
amlegrar velferðar ungmennanna
þegar kemur að atvinnuþátttöku
þeirra. „Ungmennin leggja áherslu
á að þau vilji vinna sér inn pening
og mínar niðurstöður benda til þess
að fjárhagslegar ástæður séu helsti
hvatinn fyrir vinnunni. Vinnan ógn-
ar stundum líkamlegri velferð
þeirra og þau sem vinna mikið og
reglulega með skóla eru t.d. í meiri
hættu á að finna fyrir stoðkerf-
isverkjum. Það er því ýmislegt sem
mætti bæta,“ segir Margrét.
pfe@mbl.is
Ógnar líkamlegri
velferð ungmenna
Margrét
Einarsdóttir
mbl.is
alltaf - allstaðar