Morgunblaðið - 30.05.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.05.2014, Blaðsíða 11
Spennandi Heyra mátti saumnál detta þegar Viktoría heillaði grænlensku börnin upp úr skónum. Athyglin var öll á þessari ljóshærðu töfrastelpu sem börnin dáðust að. Saman töfruðu þau Einar Míkael fyrir börn í Nuuk. Grænland gaf tóninn Saman fóru þau til Nuuk á Grænlandi fyrir skemmstu og hittu munaðarlaus börn sem þau skemmtu með töfrabrögðum. Áður hafði Viktoría sýnt í Salnum í Kópa- vogi ásamt Töfrahetjunum. Það má því með sanni segja að hún hafi hlot- ið eldskírnina á Grænlandi. „Þetta var svakaleg ferð. Börnin voru af- skaplega hrifin og þá sérstaklega af hárinu mínu!“ segir Viktoría sem er með sítt ljóst hár og það vildu græn- lensku börnin gjarnan fá að snerta. „Mér finnst rosalega gaman að koma fram og skemmta öðrum og það var einstakt að fá að kynnast börnunum á Grænlandi,“ segir hún. „Vorum umkringd allan tímann en það sem stóð uppúr var sýningin sem við héldum á heimilinu fyir munaðarlaus börn. Við héldum að þetta væri bara til í bíómyndum,“ bætir töframaðurinn Einar Míkael inn í. Dans og góð málefni Þeir sem þekkja til Einars Míkaels hafa sennilega ekki séð hann taka dansspor en það mun hann gera í þessum þáttum ásamt Viktoríu og krökkunum. Sérstakur danskennari mun sjá um dans- kennsluna. „Þættirnir eru troðfullir af ótrúlegum töfrabrögðum og mögn- uðum sjónhverfingum. Við verðum líka með töfradýr sem geta gert ótal fyndnar og skemmtilegar brellur. Við fáum líka að fylgjast með ævintýri tveggja ungra töfrahetja og leiðinni þeirra að taka þátt í sýningu aldarinnar með okkur Viktoríu,“ segir Einar Míkael. Töfrahetjurnar munu einbeita sér að góðum málefnum og heim- sækja börn sem glíma við veikindi og þau sem dvelja á barnaspítala Hringsins, svo dæmi séu tekin. „Við munum verða dugleg að taka þátt í alls konar góðgerða- tengdum málefnum og viljum hvetja ungt fólk til að gefa af sér með þess- um hætti,“ segir töfrastelpan Vikt- oría sem er spennt fyrir sumrinu sem verður án efa viðburðaríkt og gefandi. Nánari upplýsingar um áheyrn- arprufur og tímasetningar er að finna á vefsíðunni „Við vorum umkringd allan tímann en það sem stóð uppúr var sýningin sem við héldum á heim- ilinu fyir munaðarlaus börn. Við héldum að þetta væri bara til í bíómyndum.“ Ánægð Það jafnast fátt á við það að gleðja börn. Það tókst á Grænlandi. www.tofrabrogd.is. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2014 Keramik getur verið allskonar, og á morgun laugardag kl. 14 hefst fyrsta sýning sumarsins í Leir 7 í Stykkis- hólmi en hún fjallar einmitt um ker- amik, nýtt og gamalt, fínt og gróft, dökkt og ljóst, heitt og kalt. Sýning- arnar verða þrjár og standa frá júní fram í september. Á fyrstu sýningunni mun Anna Eyj- ólfsdóttir myndlistamaður sýna verk úr safni sínu en auk þess að stunda eigin myndlist hefur Anna mikinn áhuga á söfnun íslenskra leirmuna og er þessi sýning úr hluta safns sem hún á. Vonar hún að einn dag verði sett á stofn Leirmuna- og smáskúlp- túrasafn, ætlað íslenskum munum unnum úr keramiki eða skyldum efn- um. Hér setur Anna fram nytjahluti og skoðar þá í nýju samhengi. Önnur sýningin hefst 12. júlí og verður þá rakubrennsla framkvæmd fyrir utan Leir 7, sem er skemmtilegt sjónarspil, japanskt að uppruna. Að- ferðin gefur keramikinu sérstakan blæ með björtum og sindrandi gler- ungum. Sjö leirlistamenn munu brenna verk sín þessa helgi og setja þau svo upp til sýningar sem stendur fram í miðjan ágúst. Þriðja sýningin hefst um miðjan ágúst og stendur fram í miðjan sept- ember. Þar verða sýndir hlutir þar sem keramik sem unnið með hefð- bundnum aðferðum aldanna, rennslu og brennslu er teflt fram með ker- amiki nýrri aðferða svo sem steypu og nýjum glerungum. Nýtt og gamalt, fínt og gróft, dökkt og ljóst, heitt og kalt Nytjahlutir skoðaðir í nýju samhengi Nú þegar sjómannadagshelgin geng- ur í garð verður margt um að vera víða um land. Í tilefni af 40 ára kaup- staðarafmæli Grindavíkurbæjar verð- ur sérstaklega mikið lagt í dagskrá Sjóarans síkáta þetta árið, bæjar- hátíðar Grindvíkinga. Hátíðin hófst á miðvikudag og verður alla helgina. Margir af bestu skemmtikröftum landsins mæta á svæðið, t.d. Jóhann Helgason og Magnús Þór. Dagskráin er metnaðarfull og fyrir alla aldurs- hópa. Hægt er að kynna sér dag- skrána nánar á sjoarinnsikati.is. Fjörug bæjarhátíð Morgunblaðið/Ómar Litahverfi Bláa liðið árið 2011. Sjóarinn síkáti verður alla helgina í Grindavík Að vera foreldri getur verið ógeðs- lega erfitt, pirrandi og stundum geta börnin manns gert mann grá- hærðan. Ég er reyndar ekki með neitt hár því ég missti það þegar ég var 18, takk fyrir. Þess vegna er ég með álpappír á höfðinu á myndinni. Ég átti eftir að raka á mér hausinn og vildi ekki líta út eins og Tom Cruise í Tropic Thunder á mynd í Morgunblaðinu. Ólíkt þvottavélinni sem ég keypti fyrir skömmu kemur enginn leiðar- vísir með börnum á 17 tungumálum. Maður þarf svolítið að læra af öðr- um foreldrum hvernig á að halda á barninu, hvernig á að svæfa það, hvernig á að græja og gera. Ég kunni ekki neitt þegar Matthildur mín fæddist. Það er lítið hugsað um feður þegar barn kemur í heiminn. Allt í einu er eitthvert barn komið í hend- urnar á þér og vinirnir fara að spyrja; Vá, er þetta ekki gaman og geggj- að? Og svarið verður að vera jú – þetta er besta tilfinning í heimi. En hún er það ekkert. Flest ný- fædd börn eru nefnilega frekar leiðinleg í byrjun. Þau sofa 18 tíma, vakna á nóttinni og og vilja brjóst. Pabbinn gerir lítið annað en að að- stoða. Það er lítið sem við getum gert. Ekki mjólkum við. Eftir barnsburð verður maður líka pínu fyrir. Mömmuhjartað er sterkt og ég held að flestar konur opni augun á sama tíma og af- kvæmið. Ekki gengum við með barnið í maganum í níu mánuði og tengdumst því órjúfanlegum bönd- um. Flestir feður sem ég þekki sofa bara fyrsta og annan grát á nóttinni. Nú er eldri dóttir mín átta ára og sú yngri fjögurra. Þá eru börn orðin skemmtileg. Skilja brandara, nenna að gera eitthvað með pabba sínum og uppátækin þeirra eru flest fyndin. En stundum er þetta bara ógeðslega erf- itt og tekur á allar taugar líkamans. Meira að segja núna, þegar þessi pist- ill er ritaður þá er ég gjörsamlega búinn á því og ástæðan er: Jú, sú stutta fékk martröð og vildi fá mömmu sína. Sparkaði mér út úr rúm- inu. »Svarið verður að verajú – þetta er besta til- finning í heimi. En hún er það ekkert. Heimur Benedikts Benedikt Bóas Ármúli 32 | 108 Reykjavík | Sími 568 1888 | www.parketoggolf.is Brooklyn Pine Stærð: 8x243x2200mm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.