Morgunblaðið - 30.05.2014, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2014
Heimir Ólafur Hjartarson er þrítugur í dag. Hann er búsetturá Akureyri ásamt unnustu sinni, Elínu Heiðu Ólafsdóttur,og tveggja ára syni þeirra, Róberti Elís.
Heimir er rafvirki og starfar sem tæknimaður á tæknisviði Nor-
tek á Akureyri. Auk þess hefur hann spilað á bassa fyrir hljómsveit-
ina Sign síðan 2007 en Sign gaf út plötuna Hermd í desember síðast-
liðnum og hélt í kjölfarið útgáfutónleika í Austurbæ nú í febrúar þar
sem platan var spiluð í heild sinni.
Þar að auki er Heimir aðalsöngvari sveitarinnar Nevolution sem
hann stofnaði ásamt þremur öðrum árið 2004, en aðeins ári síðar
hitaði sveitin upp fyrir Iron Maiden á tónleikum þeirra í Egilshöll
árið 2005. Heimir segir þá félaga í Nevolution vera ennþá virka en
sveitin tók upp tvö ný lög í síðustu viku og hefur annað þeirra nú
þegar verið gefið út til hlustunar á Spotify.
Aðspurður segist Heimir vera við vinnu í dag og ætlar sér ekki að
halda sérstaklega upp á afmælið en hann segir þó líklegt að hann fái
sér eitthvað gott að borða með fjölskyldunni.
Þá stefnir hann á að njóta sumarfrísins í júlí, en þá liggur leiðin
meðal annars til Neskaupstaðar þar sem hann spilar á hátíðinni
Eistnaflugi með bæði Sign og Nevolution. sh@mbl.is
Heimir Ólafur Hjartarson er þrítugur í dag
Á góðri stund Heimir hefur lengi verið á kafi í tónlistinni og mun
leika á als oddi á Eistnaflugi í sumar.
Með tvær sveitir
á Eistnaflugi
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
K
atrín Hall fæddist 30.5.
1964 og ólst upp á Sel-
tjarnarnesi frá sex ára
aldri. Hún átti heima á
Nesinu þar til hún
flutti úr foreldrahúsum. Hún gekk í
Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla og
fór svo í Menntaskólann í Reykjavík
þaðan sem hún útskrifaðist árið 1984.
Ferillinn hófst snemma
Katrín byrjaði ung að dansa hjá Ís-
lenska dansflokknum. Hún var t.a.m.
utan skóla síðasta árið sitt í MR því
hún var komin á samning hjá Ís-
lenska dansflokknum. „Fyrsta alvöru
þátttakan mín var í dansverkinu
„Blindisleikur“ í uppsetningu Joc-
hens Ulrich sem Jón Ásgeirsson
samdi tónlist við.“
Katrín starfaði hjá Íslenska dans-
flokknum til 1988 en á þeim tíma
dansaði hún mörg burðarhlutverk og
vann með fjölmörgum danshöf-
undum, erlendum sem innlendum.
Hún tók einnig þátt í fjölmörgum
söngleikjum, óperu og leiksýningum.
Frá 1988-1996 starfaði Katrín í
Þýskalandi. Hún var sólódansari við
Tanzforum, dansflokk óperuhússins í
Köln, og ferðaðist víða um heim með
hópnum. „Fyrrnefndur Jochen, sem
hefur verið mikill örlagavaldur í mínu
lífi, skapaði sýninguna „Ég dansa við
þig“ árið 1987 sem var vinsælasta
sýning Dansflokksins frá upphafi.
Eftir þá sýningu bauð Jochen mér að
dansa í verki fyrir flokk hans, Tanz-
forum sem ég þáði, en vissi ekki að
um aðalhlutverkið væri að ræða. Í
kjölfarið var mér boðinn samningur
og ílengdist ég með Tanzforum í átta
ár.“
Árin 1996 til 2012 starfaði Katrín
sem listrænn stjórnandi Íslenska
Katrín Hall, danshöf. og fv. listrænn stjórnandi Ísl. dansfl. – 50 ára
Í Hljómskálagarðinum Katrín, Frank Fannar, Gío, Nala, heimilishundurinn, og Matthea Lára sumarið 2011.
Þrífst á áskorunum
Með Íslenska dansflokknum Í kveðjuhófi Katrínu til heiðurs sumarið 2012
þegar hún hætti sem listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins eftir 16 ár.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
25ÁRA
1988-2013
Sjónvarpsrásir fyrir hótel,
gistiheimili og skip
Bjóddu þínum gestum
upp á úrval
sjónvarpsstöðva
Þar sem gervihnattabúnaðurinn fæst
TDX IP-Pool