Morgunblaðið - 07.07.2014, Page 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu
ogfáðuAltatilprufu ívikutíma
Sími5686880
PrófaðuALTAfráOticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góðheyrnerokkuröllummikilvæg.ALTAeruný
hágæðaheyrnartæki fráOticonsemgeraþér kleift
aðheyra skýrt ogáreynslulaust í öllumaðstæðum.
ALTAheyrnartækinerualvegsjálfvirkoghægter
að fáþau ímörgumútfærslum.
ekki lengi að afklæðast. Það stóð þó
stutt því á meðan síðustu úrslitin í
B-flokki fóru fram tók að rigna.
Sigurður Sigurðarson vann B-
flokk gæðinga á Loka frá Selfossi
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Það er ánægjulegt hversu margir
komu þrátt fyrir veðrið en um tíu
þúsund manns mættu á Gaddstaða-
flatir,“ sagði Axel Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri landsmóts, en því lauk
um miðjan dag í gær. Um fjögur
þúsund erlendir gestir voru á
mótinu. „Það sást best hversu marg-
ir útlendingar voru í brekkunni þeg-
ar þulirnir báðu áhorfendur að
klappa hrossunum lof í lófa. Þegar
þeir töluðu ensku heyrðust mun há-
værari fagnaðarlæti í brekkunni.“
Axel benti á að markaðssetning er-
lendis hefði skilað sér vel samanber
fjölda erlendra gesta. Um sex þús-
und Íslendingar mættu á Hellu og
fjölgaði gestunum mest yfir helgina.
„Við keppum við marga viðburði
sem eru á sama tíma eins og heims-
meistaramótið í fótbolta og fleiri við-
burði. Það er umhugsunarefni,“
sagði Axel.
Óvenjugóðir vellir
„Mótssvæðið stóðst vatnsveðrið
með ólíkindum vel. Mælanlega vel
því það voru sett met í skeið-
greinum, hæstu einkunnir í A-flokki
sáust og met voru slegin í kynbóta-
dómum þrátt fyrir veðrið,“ sagði
Sigurður Ævarsson, mótsstjóri
landsmóts. Han sagði vellina hafa
komið mörgum á óvart; að þeir
skyldu ekki verða hreinlega ófærir í
vatnsveðrinu.
Sigurður var ánægður í mótslok
enda hestakosturinn með eindæm-
um góður.
Fyrsti dagur mótsins á sunnudag-
inn var sá eini þar sem rigndi ekki.
Sólin skein fyrripartinn á síðasta
degi mótsins og voru mótsgestir
með 9,39 í einkunn. Sigurður vann
B-flokinn á landsmóti í þriðja sinn
og gerði það af öryggi en hann vann
einnig A-flokkinn á síðasta lands-
móti. Þórdís Inga Pálsdóttir var best
unglinga, á hestinum sínum Kjarval
frá Blönduósi. Þá sigraði Vigdís
Matthíasdóttir í 100 metra skeiði og
skaut Sigurbirni Bárðarsyni ref fyr-
ir rass.
Margir erlendir gestir mættu
Skin og skúrir á landsmóti Ein-
staklega góðir vellir í óvenjulega miklu
vatnsveðri Fyrsti dagurinn var þurr
Morgunblaðið/Eva Björk
Stemning Um tíu þúsund manns mættu á landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum og voru flestir yfir helgina.
„Betri hest get ég ekki hugsað mér,“
sagði Þórarinn Ragnarsson eftir að
hafa unnið A-flokk gæðinga á lands-
móti á hestinum Spuna frá Vest-
urkoti með einkunnina 9,3. Trymbill
frá Stóra-Ási og Gísli Gíslason veittu
þeim harða keppni. A-flokkurinn var
mjög sterkur að þessu sinni, til að
mynda klikkaði enginn skeið-
sprettur.
Einkunn Spuna í A-flokknum er
nokkuð nálægt hæfileikadómnum
sem hann hlaut á landsmótinu árið
2011 á Vindheimamelum. Spuni fékk
9,25 fyrir hæfileika þá fimm vetra
gamall og aðaleinkunnin var 8,92
sem er heimsmet sem stendur.
Stóðhesturinn Arion frá Eystra-
Fróðholti jafnaði þó hæfileikadóm
Spuna. Arion var hæst dæmdi sjö
vetra og eldri stóðhestur á mótinu
og jafnframt með hæsta hæfi-
leikadóminn og hlaut að launum far-
andgrip FEIF. Arion hlaut einnig
sömu verðlaun á síðasta landsmóti.
thorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Eva Björk
A-flokkur Spuni frá Vesturkoti og Þórarinn Ragnarsson í sveiflu.
„Betri hest get ég
ekki hugsað mér“
Sterkur A-flokkur Spuni bestur
„Geggjað, alveg geggjað. Ég hef
stefnt á þetta lengi og hef verið með
hestinn í þriggja ára prógrammi.
Þetta er meiriháttar skepna,“ sagði
Árni Björn Pálsson eftir að hafa
sigrað í tölti á landsmóti hestamanna
á hestinum Stormi frá Herríðarhóli.
Þeir hlutu 9,39 í einkunn. Þeir leiddu
eftir hæga töltið og hlutu tíu fyrir
tölt hjá einum dómaranna.
Töltið var firnasterkt og hver
gæðingurinn var á fætur öðrum. Í
öðru sæti varð Sigurbjörn Bárðar-
son, tengdafaðir Árna Björns, á
hestinum Jarli frá Mið-Fossum með
einkunnina 8,59.
Árni Björn Pálsson hlaut reið-
mennskuverðlaun Félags tamninga-
manna fyrir sýninguna á Stormi frá
Herríðarhóli. Í umsögn FT er hún
sögð „ein besta töltsýning allra
tíma“. Hann sýndi glæsilegan árang-
ur á mótinu, bæði í kynbótadómi og
gæðingakeppni. Einnig voru Gústaf
Ásgeir Hinriksson, Þórarinn Ragn-
arsson og Teitur Árnason heiðraðir
fyrir góða reiðmennsku.
thorunn@mbl.is
Frábær töltsýning
Árna á Stormi
Reiðmennsku-
verðlaun FT
Morgunblaðið/Eva Björk
Tölt Árni Björn Pálsson og Stormur
frá Herríðarhóli.
Landsmót hestamanna 2014