Morgunblaðið - 07.07.2014, Síða 15

Morgunblaðið - 07.07.2014, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Verið velkomin í heimsókn! Opið virka daga kl.10-18 30% Í ÖLLUM STÆRÐUM SÓFAR Verð áður 333.900 kr. frá233.730kr. Dallas AFSLÁTTUR af öllum sófum / sófasettum *Í VÖLDUM ÁKLÆÐUM Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Basel Verð áður 284.900 kr. frá199.430kr.Verð áður 181.00 kr. frá127.330kr. Tungusófar 2+tunga Hornsófar 2H2 Sófasett 3+1+1 frá 180.530kr. verð áður 257.900 frá 233.730kr. verð áður 333.900 frá 260.330kr. verð áður 371.900 Verðdæmi: Torino 3ja sæta Sófasett 3+1+1 frá 144.130kr. verð áður 205.900 frá 300.230kr. verð áður 528.066 Verðdæmi: Texas HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 SÍMI 5 200 200 · GAP.IS ÞÚ FÆRÐ ALVÖRU HJÓL OG FYLGIHLUTI HJÁ OKKUR! GREIÐSLUDREIFING Í ALLT AÐ 36 MÁNUÐI. ÓTRÚLEGT VERÐ! 69.900,- 39.900,- 26" MONGOOSE SWITCHBACK SPORT 114.900,- 79.900,- 26" MONGOOSE TYAX COMP 49.900,- 39.900,- 24" MONGOOSE ROCKADILE FYRIR KRAKKA FRÁ 8 ÁRA ATH AÐEINS TIL Í STELLSTÆRð:22"(XL) 20-45% AFSLÁTTUR Gjaldmiðilsstjórnvald Hong Kong, HKMA, sem fer með hlutverk seðla- banka í sjálfstjórnarhéraðinu, þurfti í síðustu viku að grípa til stórfelldra kaupa á Bandaríkjadal til að stemma stigu við styrkingu Hong Kong-dals- ins. Hong Kong-dalurinn er tengdur við Bandaríkjadal á genginu 7,8 og er leyft að sveiflast á bilinu 7,75 til 7,85. Ber HKMA skylda til að grípa inn í ef gengið færist út fyrir leyfileg mörk. Á föstudag gékk Hong Kong- dalurinn kaupum og sölum á gjald- eyrismarkaði fyrir 7,7503 gagnvart Bandaríkjadal. Inngripin fólust í kaupum á 2,1 milljarði Bandríkjadala og dreifðust yfir tvo daga. Fréttastofa CNBC fjallar um mál- ið og segir fjármálasérfræðinga eiga von á frekari inngripum á næstu vik- um vegna bjartsýni á hluta- og skuldabréfamarkaði á kínverska meginlandinu og í Hong Kong. Þessi bjartsýni laði að fjármagn sem auki eftirspurn eftir Hong Kong-dollur- um og þrýsti um leið upp gengi gjaldmiðilsins. ai@mbl.is Inngrip á gjaldeyris- markaði í Hong Kong  Seðlabanki Hong Kong bregst við styrkingu gjaldmiðilsins AFP Lúxusvandi Hong Kong-dalurinn er nú ögn sterkri en hann má vera gagnvart Bandaríkjadal. Styrkingin stafar af bjartsýni á hlutabréfamarkaði bæði í Hong Kong og á meginlandinu og innstreymi fjármagns. Evrópusambandið hóf í síðasta mánuði rannsókn á skattafríðindum sem sum ESB-ríki bjóða fyrir- tækjum. Í júní var upplýst að verið væri að rýna í skattamál Írlands og Belgíu en nú hefur fréttastofa Blo- omberg eftir heimildarmönnum að Lúxemborg hafi bæst við rannsókn- ina. Beinist rannsóknin m.a. að því hagkvæma skattaumhverfi sem al- þjóðleg risafyrirtæki á borð við Apple, Amazon, Starbucks, Mc- Donald’s, Microsoft og Fiat njóta með því að skattleggja hluta af tekjum sínum í löndunum þremur. Er m.a. verið að skoða svokallaða milliverðlagningu (e. transfer pric- ing), sem alþjóðleg fyrirtæki geta notað til að færa hagnað og tap á milli svæða með misjafnlega hag- kvæma skattalöggjöf. Hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagst munu víkka rannsókn sína enn frekar og afla nánari upplýsinga frá Bret- landi, Belgíu, Kýpur og Möltu. Er einnig verið að skoða hvernig tekjur af einkaleyfum eru skatt- lagðar og einnig svokölluð „einka- leyfa-box“ (e. patent box), sem eru úrræði sem lækkar þessa skatta. Nær sá hluti rannsóknarinnar til Bretlands, Kýpur og Möltu. ai@mbl.is Evrópusambandið skoðar skattamál stórfyrirtækja  Rýnir í þægilegt skattaumhverfið í Lúxemborg, m.a. með Microsoft í sigtinu AFP Tekjur ESB skoðar nú hvernig Microsoft og fleiri fyrirtæki hafa getað lágmarkað skattbyrði sína.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.