Morgunblaðið - 07.07.2014, Side 22

Morgunblaðið - 07.07.2014, Side 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 Ég hef aldrei verið fyrir tilstand eða veisluhöld og því ætlarfjölskyldan í óvissuferð í tilefni afmælisins,“ segir EinarPáll Bjarnason sem er sjötugur í dag. Hann er Súðvíking- urinn sem varð Sunnlendingur. Hélt 16 ára suður á bóginn og fór í Héraðsskólann á Laugarvatni. Þar með var teningunum kastað. „Eftir Laugarvatnsárin fór ég ekki vestur aftur nema sem gest- ur,“ segir Einar Páll sem í um 30 ár var fjármála- og útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Stokkseyrar. „Þetta voru góðir tímar og alltaf gam- an að sjá bátana koma drekkhlaðna að landi. Svo breyttust aðstæður og árið 1998 réðum við hjónin okkur til starfa hér á Sólheimum. Þetta er dásamlegur og gróandi staður, ég hefði bara viljað koma hingað fyrr en raunin var. Fyrstu árin sinnti ég þjónustu við íbúa. Tók svo við bókhaldi og fjármálum og er svo heppinn að yfirmenn hér hvetja mig til að vera áfram þótt eftirlaunaaldri sé náð.“ Áhugamálin segir afmælisbarn dagsins að séu fyrst og síðast fjöl- skyldan og velferð hennar. „Við hjónin reynum alltaf að komast til Tenerife á Spáni á haustin. Það er orðinn ómissandi hluti tilver- unnar,“ segir Einar Páll sem er kvæntur Hólmfríði Steinþórsdóttur og eignuðust þau fjögur börn. Eitt þeirra er látið, en hin þrjú eru fulltíða fólk og hafa plumað sig vel í lífinu. sbs@mbl.is Einar Páll Bjarnason er 70 í dag Ljósmynd/Erlendur Pálsson Sjötugur „Þetta voru góðir tímar og alltaf gaman að sjá bátana koma drekkhlaðna að landi,“ segir Einar Páll Bjarnason á Sólheimum. Súðvíkingur varð Sunnlendingur Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. S igrún Inga Sigurgeirs- dóttir er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Hún byrjaði 11 ára gömul að vinna í humri og seinna í fiski hjá Ísfélagi Vestmannaeyja og vann þar öll sumur til 1972. Hún gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja og Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja og tók svo stúdentspróf frá MR 1973 af eðlisfræðideild. Vann við forritun árið 1973 Sigrún Inga hóf störf hjá IBM við forritun nítján ára gömul. „Eina tölv- an sem var til á Íslandi var hjá IBM fyrir utan tölvu sem var í háskólanum og sú var notuð í kennslu. Allt sem var unnið á tölvu á landinu var unnið hjá okkur og við unnum fyrir öll stærstu fyrirtækin á þeim tíma. Það var unnið á vöktum og það var mjög skemmtilegt að vinna við eitthvað sem var alveg nýtt og mér fannst tölvurnar mjög heillandi á þessum tíma. Ég hafði lært forritun á RPG- námskeiði og sótti síðan um starfið hjá IBM, eina konan sem það gerði, en deildarstjórinn vildi ekki ráða mig því ég væri kvenmaður. Honum fannst tölvur ekki vera fyrir konu, en hann virðist hafa litið svo á að við værum ekki með heila fyrir þetta. Svo tók ég hæfnispróf og skoraði hæst allra á því og kennari minn á námskeiðinu mælti líka með mér svo að deildarstjórinn varð að ráða mig. Ég hætti síðan hjá IBM þegar ég fór að eiga börn og buru og var heima- vinnandi í átta ár.“ Þegar börnin stækkuðu fór Sigrún aftur á vinnu- markaðinn og vann ýmis skrifstofu- störf hjá Coca Cola og Plastos og var í innflutningi og birgðabókhaldi hjá Lýsi. Virk í félagsmálum Sigrún Inga og eiginmaður hennar, Gunnar, fluttu til Vestmannaeyja 1995. Sigrún Inga vann hjá Pósti og síma og síðar Íslandspósti til ársins 2012, þar af sem stöðvarstjóri í u.þ.b. fjórtán ár. Í dag starfar Sigrún Inga sem bókavörður hjá Bókasafni Vest- mannaeyja. „Ég er í frábæru starfi í dag innan um alla menninguna, því bókasafnið er líka safnahús þar sem eru alls konar uppákomur og sýn- ingar og ég næ því að sameina áhuga- mál mín og vinnuna.“ Nú er í gangi sýning vegna 40 ára afmælis stað- arblaðsins og í haust verður málþing um ljósmyndasafn föður hennar sem Vestmannaeyjabær á í dag. Sigrún Inga hefur ávallt tekið mik- inn þátt í félagsstörfum og starfaði í JC (Junior Chamber) frá árunum 1981 til 1994. Hún var m.a. lands- Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir bókavörður – 60 ára Fjölskyldan Talið frá vinstri: Hilmar Þórlindsson, Inga Lilý Gunnarsdóttir, Gunnar Geir Gunnarsson, Fríða Björk Arnardóttir, Sigrún Inga, Gunnar, Atli Þór Þórsson og María Kristín Gunnarsdóttir. Nýtur þess að upplifa menninguna í vinnunni Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Örvar vöðva, styrkir þá og lyftir. Meðferðin tekur 30-45 mínútur. HYDRADERMIE LIFT Andlitslyfting án skurðaðgerðar! Snyrtistofur sem bjóða Hydradermie Lift meðferð og Guinot vörur: Snyrtistofan Gyðjan – s. 553 5044 Snyrtistofan Ágústa – s. 552 9070 Snyrtistofan Hrund – s. 554 4025 Snyrtistofan Ársól – s. 553 1262 Snyrtistofa Marínu – s. 896 0791 GK snyrtistofa – s. 534 3424 Snyrtistofan Garðatorgi – s. 565 9120 Dekurstofan – s. 568 0909 Guinot-MC stofan – s. 568 9916 Snyrtistofan Þema – s. 555 2215 Snyrtistúdíó Önnu Maríu – s. 577 3132 SG snyrtistofa – s. 891 6529 Landið: Snyrtistofa Ólafar, Selfossi – s. 482 1616 Snyrtistofan Abaco, Akureyri – s. 462 3200 Snyrtistofan Lind, Akureyri – s. 462 1700 Snyrtistofa Guðrúnar, Akranesi – s. 845 2867 Snyrtistofan Sif, Sauðárkrókur – s. 453 6366 www.guinot.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.