Morgunblaðið - 07.07.2014, Side 16

Morgunblaðið - 07.07.2014, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Hart hefurverið sóttað Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, síðustu misserin. Hann hef- ur þó staðið af sér bæði fjölmenn götumótmæli og ásakanir um fjárdrátt, og flokkur hans hélt velli í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar voru síðasta haust. Ljóst hefur verið lengi að eftir um tólf ára setu á stóli forsætis- ráðherra hefði Erdogan hug á því að verða forseti landsins, þó að það embætti sé nokkuð valda- minna. Er það ekki síst af því að skipulagsreglur flokks hans meina honum að bjóða sig fram á ný sem forsætisráðherra. Það kom því vart neinum á óvart þeg- ar Erdogan tilkynnti í upphafi þessa mánaðar, við mikinn fögn- uð um 4.000 stuðningsmanna sinna, að hann hygðist bjóða sig fram í kosningunum sem haldnar verða 10. ágúst næstkomandi. Ljóst er að Erdogan hefur ekki í hyggju að gefa völd sín eft- ir með því að færa sig um set. Stjórnarskrá Tyrklands gefur honum ýmsa kosti á að víkka út valdsvið forsetaembættisins og færa í raun þungamiðju valdsins frá tyrkneska þinginu yfir til for- setaembættisins. Gagnrýnendur Erdogans hafa þegar bent á hættuna á því að til verði í raun nýr soldán, þar sem eftirmenn Erdogans í stóli forsætisráð- herrans muni ekki þora að fara gegn honum, sigri hann í kosningunum. Erdogan sjálfur er séður að þessu leyti, og hafa dóm- stólar til að mynda nú aft- urkallað fangelsisdóma yfir ýmsum foringjum í tyrkneska hernum, sem lengi hefur látið fullmikið til sín taka í stjórn- málum Tyrklands. Hefur verið litið á þá aðgerð sem tilraun Er- dogans til þess að friðmælast við herinn, en spillingarmálin voru á sínum tíma hentug leið fyrir hann til þess að koma sínum mönnum betur fyrir innan hers- ins, þó að þau hafi skilið marga eftir í sárum. Eftir átök síðustu ára, þar sem Erdogan hefur brugðist hart við allri mótstöðu, er ekki nema von að ýmsir séu uggandi yfir því hvað gerist fari svo að forsætisráðherrann færi sig í stól forsetans, hvað þá ef að hann tekur nokkuð af völdum sínum með sér í farteskinu. Tyrknesk stjórnvöld hafa verið dugleg í því síðustu mánuðina að sækja að ýmsum lýðréttindum fólks, eins og tjáningarfrelsi og frelsi fréttamanna, og fátt bend- ir til þess að snúið verði af þeirri óheillabraut. Reyni Erdogan ekki að sitja á meiri friðarstóli sem forseti gæti þróun lýðræðis í Tyrklandi orðið enn óheilla- vænni. Verst geymda leyndarmál Tyrk- lands hefur verið staðfest} Nýr soldán á sjónarsviðið? Sjálfstæðis-flokkurinn kom illa laskaður út úr síðustu borgar- stjórnarkosn- ingum, eftir að hafa verið í pólitísku or- lofi í borginni um árabil. Kjósendum var ekki skemmt, ekki einu sinni þeim sem af tryggð kusu flokkinn samt. Ekki er augljóst hvernig hann getur náð sér upp úr þeirri ömurlegu stöðu. Hann þarf auð- vitað fyrst og síðast að sýna að hann viti í hverra umboði hann starfar og hætta að dingla í bandi meirihlutans eins og áhrifalaus hjálparkokkur. Flokkurinn þarf að vera gagnrýninn og ábyrgur í senn. Borgin hefur verið að drabbast niður. Umgengni fer aftur og hirðusemi borgaryfirvaldanna sjálfra hefur aldrei verið mátt- lausari. Sá sem þáði borgarstjóralaunin síðasta kjör- tímabil taldi sig ekkert hafa með slík mál að gera. Og það sem verra var, þeir sem raunverulega fóru með borgarstjóravaldið voru jafn áhugalausir og duglitlir. Á síðasta kjörtímabili var einkar illa haldið á málefnum eldri borgaranna. Þar má mikið bæta. Skipu- lagsmálin eru einnig tilvalið verkefni til að láta sjást til sín. Gestur Ólafsson arkitekt benti á það í grein sinni hér í blaðinu í liðinni viku „hversu afleiðingar af vondu skipulagi geta verið afdrifaríkar og til langs tíma“. Gestur segir einnig réttilega: „Í Reykjavík er það þannig með ólíkindum ef ný- ir borgarfulltrúar vilja t.d. ekki endurskoða aðalskipulag borg- arinnar, þótt ekki væri nema við- víkjandi framtíð flugvallarins, byggingu mosku, jarðgöngum í gegnum Öskjuhlíðina, sem eng- inn veit hvernig eiga að enda og einu stærsta verslanahverfi Ís- lands á Örfirisey, sem sam- kvæmt síðasta aðalskipulagi á að breyta í hafnir, svo eitthvað sé nefnt.“ Þarna eru nefnd fáein dæmi um draumórakennd vinnubrögð meirihlutans á síðasta kjör- tímabili, sem þýðingarmikið er að fara yfir, fella niður eða gjör- breyta. Minnihlutann í Reykjavík skortir ekki verkefni og vonandi ekki heldur vilja} Verk að vinna Þ að hefur verið gaman á yf- irstandandi heimsmeistaramóti í knattspyrnu að fylgjast með því hvernig stuðningsmenn hinna ólíku landa haga sér. Þeir hafa, ekki síður en knattspyrnumennirnir sjálfir, gefið þessu móti mikinn lit og smellið að átta sig á því að það voru ekki aðeins mörk- in og dramatíkin og átvaglið Suarez sem maður beið eftir í þessi fjögur ár heldur var það loksins að fá að sjá og heyra í stoltum velunnurum landa sinna. Líkt og með liðin sjálf er ekki laust við að maður eigi orðið eftirlætisstuðningsmenn. Ekki grét ég til dæmis þegar franska stúk- an var send heim því einhverra hluta vegna var hún alls ekki nógu hress. Ekki beint leiðinleg en alls ekki spræk og stundum varla að það heyrðist í þeim. Það er ekki það að Frakkar séu ekki ástríðufullir stuðningsmenn, þeir eru það virkilega, en eitthvað hamlaði þeim í stúkunni. Trúlega má þó virða það við þá að öskra ekki þjóðsönginn – Frakkar hafa verið þekktir fyrir að vilja sýna ólíkum þjóðarbrotum sem Frakkland byggja tillitssemi. Leyfa fólki að lifa í friði. Þetta er kannski þróaðasta stúkumenningin eftir allt. Ef maður kann vel við takt og samtaka hróp, en síður hipsumhaps-regluna, hafa þýsku stuðnings- mennirnir eflaust átt upp á pallborðið. Stuðningshóp- urinn er agaður og allt gengur út á klapp. En maður þarf klárlega að kunna að meta klapp, mik- ið klapp, til að vera eins innanbrjósts og mér. Svo eru það lið eins og Argentínumenn sem hrópa ekki heldur syngja nánast allan leikinn. Þeir eru ekkert ólíkir ensku stuðn- ingsmönnunum, sem syngja líka mjög mik- ið, nema Argentínumenn tóna leikinn með löngum melódíum sem eiga ekkert skylt við fylleríspolka Englendinganna. Þá hafa Argentínumenn það fram yfir Englendinga að þeir dansa líka meðan þeir sýna á sér ljóðrænar hliðar. Það hefði verið gaman að sjá fleiri leiki með stuðningsmönnum Asíuþjóðanna því þar sá maður spennu sem braust mikið til út í ópum – tilfinningaþrungnum hrópum þegar spennan bar fólk ofurliði – mun dramatískari en grátur og gnístran tanna hjá mörgum öðrum blóðheitum þjóðum. Knattspyrnuveislan var ekki svona síðast, fyrir fjórum árum í Suður-Afríku, en þá yfirgnæfði hið öm- urlega tól vuvuzela alla þessa flóru frábærra áhang- enda. Sem betur fer var sá lúður bannaður á þessu móti og skiljanlegt að fyrst núna sé hægt að spá og spekúlera aðeins í áheyrendum. Ég get ekki lýst því hvað það er ólíkt meiri skemmtun að horfa á mótið núna og sú fullyrðing að þetta sé besta heimsmeist- aramót í knattspyrnu fyrr og síðar á rétt á sér – því það er loksins vinnufriður fyrir áhorfendur. Júlía Margrét Alexanders- dóttir Pistill Mergjaðir stuðningsmenn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Mismunandi er á millisveitarfélaga hvortleikskólum er lokað ísumar. Í Kópavogi, Reykjavík, Hafnarfirði, Reykja- nesbæ og á Akureyri er leikskólum lokað í 20 daga yfir sumartímann. Í Garðabæ og Mosfellsbæ er leik- skólum ekki lokað og ráða foreldrar í þeim sveitarfélögum hvenær börn- in þeirra fara í 20 daga sumarfrí, innan ákveðins orlofstíma. Að sögn Sigrúnar Björnsdóttur, upplýsingafulltrúa á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, er gert ráð fyrir því í reglum um leikskólaþjónustu að leikskólabörn séu í leyfi í fjórar vikur frá leikskól- anum og er því gert ráð fyrir að starfsár leikskólanna sé 11 mánuðir. „Það er alltaf eitthvað um að fólk hagræði í kringum leyfin. Eins og kemur fram í reglum um leik- skólaþjónustu taka öll leikskólabörn sumarleyfi í minnst fjórar vikur. Þurfi foreldrar að nýta sér þjónustu leikskóla sem opnir eru á öðrum tímum en þeir taka sumarleyfi er reynt að koma til móts við þá eins og kostur er,“ segir Sigrún en tekur fram að slíkar beiðnir séu fátíðar. Þurfa frí eins og allir aðrir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, segir að börn þurfi að sjálfsögðu að fá frí frá skipulögðu skólastarfi eins og allir aðrir í samfélaginu. „Vinnuvikan hjá þeim getur verið ansi strembin og vinnudagar langir hjá flestum börnum sem eiga úti- vinnandi foreldra. Mikilvægt er að brjóta upp rútínuna og eiga góðar samverustundir með fjölskyldunni í sumarfríinu,“ segir Margrét. Hún segir að samkvæmt 31. gr. barnasáttmálans eigi börn rétt á hvíld, leik, menningu og frístundum. „Í sumarfríi geta þau fengið tæki- færi til að upplifa þessa hluti á ann- an hátt en hversdags. Vissulega þarf einnig að horfa til þess að sumar- lokanir í fjórar eða fimm vikur geta komið sér sérstaklega illa fyrir for- eldra sem eru einstæðir og eiga ekki kost á aðstoð fjölskyldu eða vina þegar orlofsdagar þeirra eru færri en þeir dagar sem leikskólinn er lok- aður. Þá væri gott að hafa einhvern sveigjanleika til að haga málum í samræmi við það sem er börnum fyrir bestu, t.d. með því að loka leik- skólum skemur og leyfa foreldrum að velja viðbótarfrí fyrir eða eftir sumarlokun,“ segir Margrét. Hún telur að í einstökum tilvikum gæti það verið betra fyrir barn að vera í styttra fríi frá leikskóla en að mismunandi aðilar séu að passa það og „redda“ þannig málum. „Heilt yfir mælir umboðsmaður barna að sjálfsögðu með því að börn fái sam- fellt sumarfrí,“ segir Margrét. Þarfir barna í fyrsta sæti Ingibjörg Kristleifsdóttir, for- maður Félags stjórnenda leikskóla, segir nánast undantekningarlaust að ákvarðanir um lokanir leikskóla séu pólitískar ákvarðanir. „Aðalatriðið er að börnin þurfa samfellt gott frí með fjölskyldunni. Leikskólastjórnendur skipuleggja lokun leikskóla í samráði við rekstraraðila og það getur verið mismunandi hverjar þarfirnar eru eftir sveitarfélögum og jafnvel hverfum. Auðvitað viljum við að at- vinnulífið lagi sig að þörfum barna og fjölskyldna en hingað til hefur það gjarnan verið öfugt,“ segir Ingi- björg. Hún segir að samræma þurfi þarfir allra, foreldra og atvinnulífs, en að þarfir barna komi alltaf í fyrsta sæti. Misjafnt hvort leikskól- um er lokað í sumar Morgunblaðið/Styrmir Kári Sumarfrí Umboðsmaður barna segir að í sumarfríi geti börn fengið tæki- færi til að upplifa hluti á annan hátt en hversdags og frí sé því mikilvægt. Sumarlokanir leikskóla » Í Garðabæ og Mosfellsbæ ráða foreldrar hvenær börn þeirra fara í frí frá leikskóla. Þar þurfa börn þó að fara í frí, samtals í 20 daga. » Í Kópavogi, Reykjavík, Hafn- arfirði, Reykjanesbæ og á Ak- ureyri er leikskólum lokað yfir ákveðið tímabil. Flestum leik- skólum er lokað í fjórar vikur en nokkrum aðeins skemur. Morgunblaðið/Styrmir Kári Sumarlokanir Í Garðabæ og Mos- fellsbæ er leikskólum ekki lokað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.