Morgunblaðið - 07.07.2014, Side 24

Morgunblaðið - 07.07.2014, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Allt sem þú segir í dag er svo jákvætt og uppbyggilegt að aðrir láta sannfærast. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur látið ýmsa hluti reka á reið- anum en nú er komið að skuldadögum. Svo, það er þú! Prófaðu að hrista þær af þér í dag. Leyfðu öðrum að njóta velgengni þinnar með þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Náið samband étur þig upp eins og villidýr og þú ræður ekkert við það. Aðrir eru forvitnir og reyna að finna veikan blett á þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Áhrifamiklir félagar birtast í öllum stærðum og gerðum. Er hún rétt núna? Hún er tækifæri til að láta dýrmætustu draumana rætast. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þráir réttlæti fyrir alla. Kysstu minn- ingar og dansaðu með öldunum. Einnig væri gott að ræða við maka um orlof og skapandi verkefni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Reyndu að finna einhvern sem kann að deila með þér reynslu þinni. Fólk er svo sannarlega til í að hlusta á þig um þessar mundir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú mátt eiga von á ýmsum breytingum á dagskránni. Farðu líka fram á að fólk skili hlutum sem þú hefur lánað því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Enginn er alvitur og þú eins og aðrir verður að viðurkenna að stundum hefur þú á röngu að standa. Eyddu ekki tíma í undanbrögð, heldur gakktu hreint til verks og kipptu öllu í liðinn aftur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Skilningur bogmannsins á orsök og afleiðingu nær ekki utan um atburði dags- ins. Beittu því eðlilegri gagnrýni áður en þú tekur undir málstaðinn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert að velta því fyrir þér hvort þú eigir að sýna meiri hörku í viðkvæmu máli. Veittu honum aðstoð, ef þú vilt, og þú munt bara hafa gaman af tiltækinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fólk kemur með lausnir fyrir þig – fólk sem veit nánast ekkert um vandamálið. Einhver uppljóstrar að hann er skotinn í þér. Ef þú lætur aðra halda að þeir stjórni stjórnar þú þeim. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver þér nákominn á bágt með að skilja framkomu þína. Fæst okkar sjá sig í sama ljósi og fólkið í kringum okkur. Seinna geturðu dæmt um hvort kynni dagsins séu æði eða alveg hryllingur. Ragna Guðvarðardóttir las„skagfirskt grobb“ í Vísna- horninu og varð að orði: Drottni þótti dauft á jörð hann dreymdi um eitthvað meira svo skapaði hann Skagafjörð þá skorti hann ekkert fleira. Gunnar J. Straumland bætir við: Margt er það sem miður fer meðal Íslendinga en hæst af öllu í heimi ber hógværð Skagfirðinga. Hallmundur Guðmundsson tek- ur einnig til máls og segir Skaffó gælunafn Skagfirðinga á kjörbúð þeirri á Sauðárkróki er KS státar þar af: Hér gasalegt allt er og “glæsó“ geggjað og dæmalaust “hressó“. Verðlag er vænt, víðáttugrænt. Já allt er hreint æði í Skaffó. Ólína Þorvarðardóttir hittir naglann á höfuðið er hún kastar fram: Ýmsum veðrið er um megn, enginn af blíðu gumar. Þetta rok og þetta regn það er íslenskt sumar. Þá Jón Arnljótsson af sama tilefni: Hér er ekkert veðravíti, viðmjúk blíða dag og nótt. Oft þó lognið ögn sér flýti, ekki þarf að segja ljótt. Þó að rigni, þrumur drynji, þorni aldrei heilan dag, ei er vænst að heimur hrynji, heldur komist brátt í lag. Tinna Gígja kvaddi sér hljóðs á fésbók með brag „í orðastað ofnæm- ispésa“. Orðið lóra er vitaskuld skammstöfun á lyfinu lóretíni, sem vinnur gegn frjónæmi, og er hún sótt í smiðju hins orðvísa Bjarka Karlssonar: Frjónæmi mun fólkið hrjá uns finnur sumar vetur kroppnum mínum lóru ljá læknað bólgur getur. Reyndar getur regnblautt loft reddað þessum málum, en það bælir einnig oft alla gleði’ í sálum. Ef það kemur aftur vor eða sumrið bjarta undan þessu aukahor- i aldrei skal ég kvarta. Pétur Blöndal p.blondal@gmail.com Vísnahorn Af Skagfirðingum, veðri og frjókornaofnæmi Í klípu „ÉG ER HRÆDDUR VIÐ BÖRN!“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVERNIG Á ÉG AÐ NÁ 90 KM MEÐALHRAÐA EF ÉG KEYRI EKKI STUNDUM HRAÐAR EN ÞAÐ?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eilífu. Á MORGUN ER SVO SPÁÐ RIGNINGU OG 7 STIGA HITA ... ÆI, SVO SNJÓAR KANNSKI BARA ... HVAÐ VEIT MAÐUR? ... HVERJUM ER EKKI SAMA! ÞETTA HEFUR EKKI VERIÐ GOTT SUMAR. SEGJUM SEM SVO AÐ ÞÚ VEIÐIR HVAL ... HVAÐ SVO? Eitt af því skemmtilegasta sem Vík-verji gerir er að keyra um landið á sumarkvöldum. Birtan og kyrrðin sem hvílir þá yfir öllu er vel til þess fallin að njóta landsins á sérlega rómantískan hátt. Um helgina sóttu Víkverji og betri helmingurinn veislu í um tveggja tíma fjarlægð frá heimili þeirra. Á heimleiðinni lá leiðin í gegnum Hval- fjarðargöng, laust fyrir miðnætti. Þeg- ar upp úr göngunum kom jók Víkverji hraðann í takt við merkingar um há- markshraða en brá nokkuð þegar sportjeppi með risastórt hjólhýsi í eftirdragi tók fram úr honum. x x x Í fyrsta lagi hefur Víkverji aldrei skil-ið fólk sem flýtir sér í og úr útilegu. Er hægt að verða of seinn í útilegu? Hverju missir maður þá af? Fær mað- ur „seint“ í kladdann? Í öðru lagi er fullkomlega skýrt, í umferðarlögum þessa lands, að bílar með kerrur eða vagna í eftirdragi megi ekki fara hraðar en sem nemur 80 km á klukkustund. Þegar sportjeppinn með skulda- halann fór fram úr Víkverja var hann á þvílíkum hraða að Víkverji tautaði sem svo að bílstjóri hans hefði líklega misst af eins og einum tíma í ökunáminu, þar sem fjallað var um hámarkshraða. x x x Líklega hafa mjög margir misst afþeim tíma, eftir umferðarhraða útileguþyrstra Íslendinga að dæma. Reyndar er líka í lögunum kveðið á um hámarkshraða vörubíla, og þar með talið allra stóru amerísku pallbílanna sem fólk notar til að komast í ræktina. Hámarkshraði þeirra er ekki 90 km á klukkustund, hvað þá 110. Þeir mega hraðast keyra á 80 km hraða. Kannski féll umrædur ökunámstími bara ítrekað niður? x x x Víkverji skilur rökin fyrir því aðskynsamlegast sé að öll umferðin fari jafn hratt yfir (hefur reyndar aldr- ei skilið af hverju hægist alltaf á um- ferð á þjóðvegunum eftir því sem fleiri eru á ferðinni). Sú hugsun breytir þó engu um það að ákveðin umferðarlög gilda í landinu og að við eigum öll að fara eftir þeim. Líka þeir sem þurfa að flýta sér í útilegu, svo þeir geti slappað hraðar af. víkverji@mbl.is Víkverji Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum sem leita hælis hjá honum. (Sálmarnir 18:31)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.