Morgunblaðið - 07.07.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.07.2014, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 188. DAGUR ÁRSINS 2014  Páll Palomares leikur einleik með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins í Langholtskirkju í kvöld kl. 20. Hann leikur Spænska sinfóníu, eða Symphonie espagnole, eftir franska tónskáldið Edouard Lalo. Auk þess leikur hljómsveitin svítu nr. 2 eftir Bizet um Stúlkuna frá Arles og Ís- lenska rímnadansa eftir Jón Leifs. Stjórnandi á tónleikunum er annar ungur tónlistarmaður, Bjarni Frímann Bjarnason. Páll Palomares vann nýlega til verðlauna í keppni ungra einleikara í Danmörku. Hann stundaði nám við Tónlistarskólann í Kópavogi, Lista- háskóla Íslands og tónlistarháskóla Hanns Eisler í Berlín og starfar nú með Kammersveitinni í Randers í Danmörku. Hann hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit- inni á Alicante á Spáni. Bjarni Frímann Bjarnason stundaði nám á fiðlu, víólu og píanó við Tón- listarskólann í Reykjavík og Lista- háskóla Íslands og í hljómsveitar- stjórn við Hanns Eisler-tónlistar- háskólann í Berlín. Hann er stjórnandi strengjasveitarinnar Skarks. Árið 2011 vann hann til verð- launa í Berlín sem meðleikari söngv- ara. Í kjölfarið hefur hann notið mik- illa vinsælda sem meðleikari söngvara í fremstu röð og haldið með þeim tónleika víða um Evrópu. Páll með Sinfón- íuhljómsveit unga fólksins KR og Keflavík eru komin í undanúrslitin í bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir nokkuð örugga útisigra í gærkvöld. KR sigraði Breiðablik 2:0 á Kópavogs- velli og Keflavík vann bikar- meistara síðasta árs, Fram- ara, 3:1, á Laugardals- vellinum. Það ræðst síðan í kvöld hver hin tvö liðin í undanúrslitunum verða. »2, 4 KR og Keflavík í undanúrslitin Petra Kvitova frá Tékklandi og Novak Djokovic frá Serbíu urðu Wimbledon- meistarar í tennis um helgina. Kvit- ova vann auðveldan sigur á Eugenie Bouchard frá Kanada í kvennaflokki en Djokovic lagði hinn gamalreynda Roger Federer frá Sviss í hnífjöfnum úrslitaleik í karlaflokki. »6 Kvitova og Djokovic unnu Wimbledon Undanúrslitin á heimsmeistara- mótinu verða án Neymars. Þau verða án James Rodríguez og þau verða án Ronaldos, Balotellis, Vidals, Pogba og Rooneys. Svona væri hægt að halda lengi áfram. Lionel Messi og Arjen Robben eru í raun einu stór- stjörnurnar sem eru eftir; aðrar ofur- stjörnur eru búnar að pakka saman og komnar í frí. »8 Flestar stjörnurnar þegar úr leik á HM Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Bátasmíðin er kannski hálfgert fikt og elliglöp. Og þó, ég hef ánægju af því að sníða til spýtur og lemja með hamrinum. Á einhverju þarf maður víst að skeyta skapi sínu,“ segir Hólmberg Arason á Ísafirði. Á göngu um Eyrina þar vestra vakti athygli að sjá bát í smíðum við Tangagötuna. Bílskúrsdyr stóðu opnar upp á gátt og smiðurinn var að dútla sér með verkfæri í hendi. „Þetta er 36. báturinn sem ég vinn í. Þennan smíða ég alveg frá kili og vonast til að hann verði tilbúinn ein- hvern tíma á næsta ári. Fer mér hægt við þetta eða eins og heilsan leyfir,“ segir Hólmberg, sem verður 82 ára í vikunni. Hann er Súðvík- ingur að uppruna og fór fyrst til sjós vikuna sem hann fermdist. Var um dagana í skiprúmi hjá mörgum kapp- sömum körlum. Vildi svo verða sjálfs sín herra og með góðra manna hjálp smíðaði hann bátinn Ágústu ÍS 65, sem hleypt var af stokkunum árið 1964. Báturinn var fimm tonn og reyndist vel. „Bátasmíðin er svolítil kúnst og því fylgir svolítil stærðfræði að reikna út öll hlutföll í teikningunum. Þá er varla sú fjöl í bátnum að hún sé ekki beygð eða sniðin til á einhvern hátt. En þetta lærðist með tímanum. Ágústa var alveg einstakur bátur sem ég átti í fjögur ár. Þegar harðn- aði á dalnum varð ég að gera það upp við mig hvort ég léti bátinn eða húsið, sem var í bakveði, og það val var ekki erfitt. En þarna var ég kominn upp á lagið með bátasmíði og er enn að,“ segir Hólmberg. Lagði kjörvið í kjöl Fyrir nokkrum misserum áskotn- uðust Hólmberg ágætir bátahnoð- saumsnaglar frá norsku önglaverk- smiðjunni Musstad sem systurdóttir hans gaf honum. „Eitthvað varð að gera við naglana,“ segir Hólmberg og brosir. Hann lagði kjörvið í kjöl og hóf svo smíðina. Og nú er kominn heildstæður svipur á; vatnsheldur birkikrossviður er í súðum og sterkur nælonstrengur lagður í böndin. Nettri tuttugu hestafla vél frá Buck hefur verið komið fyrir í bátnum og fyrir helgina mátaði smiðurinn stýrishúsið við bátinn, sem er tæpir sex metrar á lengd og fær nafnið Fákur. Er með líku lagi og síð- asti bátur sem Hólmberg smíðaði; Von, sem Guðjón Ólafsson tengda- sonur hans á. Signt yfir seinni part viku Starf bátasmiðsins er fjölbreytt og að mörgu að hyggja við handverkið. Mörg eru verkfærin í smiðju Hólm- bergs og hverju þeirra er beitt með sínu lagi. Verkþekkingin er dýrmæt en ekki síður trúin. „Ég legg aldrei kjöl að bát nema signa yfir hann og byrja alltaf seinni part viku eða á laugardegi. Og hver veit nema það hafi ráðið einhverju um að allir mínir bátar hafa komist heilir í höfn og aldrei orðið miski á mannskap. Er hægt að biðja um meira?“ segir bátasmiðurinn á Eyrinni. Kúnst að smíða bátinn frá kili  Hólmberg smið- ur á Ísafirði vinn- ur í sínum 36. bát Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ern Hólmberg Arason gefur ekkert eftir í bátasmíðinni og vonast til þess að Fákur verði orðinn sjóklár á næsta ári. Útgerðarmenn á Suðureyri tóku við Ágústu ÍS þegar Hólmberg þurfti að láta bátinn frá sér. „Þetta var happafley. Einu sinni var ég suður í Dýrafirði og fylgdist með körlunum koma að landi með sex tonn af steinbít á bátnum, sem er fimm tonn. Það var eftirminni- legt,“ segir Hólmberg um Ágústu, sem seinna var seld til Patreks- fjarðar og loks Suðureyrar. Þar var ætlunin að brenna bátinn kvóta- lausan en þá gekk Lilja Rafney Magnúsdóttir, þá oddviti Súgfirð- inga og nú þingmaður VG, í málið. Var bátnum bjargað. Er hann eftir- læti á leikvellinum í þorpinu – þar sem allt hverfist um sjósókn og leikir barnanna taka eðlilega mið af því. Happafleyið nú á leikvelli ÁGÚSTA ÍS ER BÁTUR SEM Á MIKLA SÖGU Leikfang Aflabáturinn fékk nýtt hlutverk. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Stórbruni í Skeifunni 2. Fjöldi fyrirtækja í hættu 3. Fólk haldi sig fjarri 4. Flugmaður læstur úti eftir rifrildi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Á þriðjudag Suðvestlæg og síðar suðlæg átt, víða 5-10 m/s og skúrir, en vestan 8-13 og rigning norðantil fyrir hádegi. Hiti 8 til 16 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-10 m/s. Þurrt að mestu norð- vestantil en annars víða skúrir, einkum síðdegis, og fer að rigna fyrir austan eftir hádegi. Hiti 7 til 16 stig, mildast sunnanlands. VEÐURÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á VEÐUR » 8 www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.