Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 12
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Persónuvernd áréttar í svari sínu til innanríkisráðuneytisins að við birt- ingu úrskurða í útlendingamálum verði að gæta þess að friðhelgi einkalífs sé virt. Gæta beri með- alhófs við birtingu persónuupplýs- inga svo og þess að nöfn, kennitölur og eftir atvikum önnur auðkenni, sem geta persónugreint ein- staklinga, birtist ekki. Innanríkisráðuneytið sendi Per- sónuvernd bréf í mars sl. en ráðu- neytið hafði þá hafið birtingu úr- skurða í málefnum útlendinga, t.d. vegna umsókna um hæli, á vefnum urskurdir.is. Fram kom í bréfinu að úrskurðir yrðu áður hreinsaðir af nöfnum og öðrum persónu- auðkennum og viðkvæmum upplýs- ingum. Meðfylgjandi til Persónu- verndar voru drög að úrskurði í máli útlendings sem óskað hafði eftir hæli á Íslandi. Taldi ráðuneytið nauðsyn- legt að fram kæmi land það sem við- komandi einstaklingur kæmi frá, þar sem niðurstaða ráðuneytisins byggðist á mati á ástandi mála og stöðu viðkomandi í því landi. Óskaði ráðuneytið eftir áliti Persónuvernd- ar á því hvort það gengi gegn per- sónuverndarsjónarmiðum að birta þessar upplýsingar í úrskurðinum. Í upphafi svar síns telur Persónu- vernd það ekki hlutverk sitt að taka bindandi afstöðu fyrirfram til lög- mætis birtingar einstakra úrskurða stjórnvalda. Þau verði sjálf að meta þau sjónarmið sem á geti reynt en Persónuvernd ákvað að veita ráðu- neytinu almenna leiðsögn. Í svari Persónuverndar er bent á að ekki hafi hvílt lagaskylda á ráðu- neytinu til að birta úrskurði sína á sviði útlendingamála. Hinn 1. janúar 2015 mun sérstök kærunefnd taka við úrskurðarhlutverki ráðuneytis- ins á því málefnasviði. Segir Persónuvernd ennfremur að í íslenskum lögum sé hvergi að finna heimild ráðuneytis til að birta við- kvæmar persónulýsingar í úrskurð- um í útlendingamálum. Slík heimild sé heldur ekki til staðar hjá fyrr- nefndri kærunefnd. Af svari Persónuverndar má ráða að birting upplýsinga um heimaland umsækjenda falli undir persónu- auðkenni og geti persónugreint ein- staklinga. Slíkar upplýsingar þurfi að afmá í úrskurðum. Bendir Per- sónuvernd á að stjórnvöld hafi al- mennt við birtingu á úrskurðum sín- um afmáð persónuauðkenni einstaklinga. Í samræmi við þessa stjórnsýsluvenju sé sérstaklega mælt fyrir um að nýja kærunefndin skuli birta úrskurði sína án nafna, kennitalna eða annarra persónu- greinanlegra auðkenna. Til skoðunar í ráðuneytinu Jóhannes Tómasson, upplýsinga- fulltrúi í innanríkisráðuneytinu, seg- ir ráðuneytið ekki hafa tekið afstöðu til bréfs Persónuverndar og þá hvort upprunaland umsækjenda verði af- máð úr úrskurðum. Hann segir að ekki hafi unnist tími til að setja fleiri úrskurði á úrskurðarvefinn.  Persónuvernd svarar innanríkisráðuneytinu um birtingu úrskurða í málum hælisleitenda  Gætt sé meðalhófs við birtingu persónuupplýsinga  Upplýsingar um t.d. heimaland séu afmáðar í úrskurðum Friðhelgi einkalífs verði virt Morgunblaðið/RAX Hæli Frá mótmælum í ráðuneytinu við brottvísun hælisleitanda 2009. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014 Snorri Þorsteinsson, fyrrverandi fræðslu- stjóri Vesturlands, lést á Heilbrigðisstofnun- inni á Akranesi 9. júlí sl., 83 ára gamall. Snorri fæddist 31. júlí 1930 á Hvassafelli í Norðurárdal og ólst þar upp. Foreldrar hans hétu Þorsteinn Snorrason og Sigur- laug Gísladóttir. Snorri lauk stúdents- prófi frá MR 1952 og nam við Háskóla Ís- lands og The City of London College. Hann kenndi lengi við Samvinnuskólann á Bifröst og var síðasti farkennarinn í Mýra- sýslu. Snorri var fræðslustjóri Vestur- lands 1975-1996 og for- stöðumaður Skóla- skrifstofu Vesturlands, utan Akraness, 1996- 2000. Snorri var félagi í Rótarýklúbbi Borgar- ness, umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi 1999- 2000 og var verðandi forseti klúbbsins 2014- 2015. Hann skrifaði mörg rit og greinar um ýmis söguleg efni. Snorri var kvæntur Eygló Guðmundsdóttur, sem lést 2012. Dóttir Eyglóar er Margrét Guðjónsdóttir og á hún þrjú börn. Andlát Snorri Þorsteinsson, fyrrverandi fræðslustjóri Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Það sem af er ári hefur Útlendinga- stofnun fengið 71 umsókn um hæli hér á landi. Það er nokkru minna en á sama tíma í fyrra, þegar 111 um- sóknir höfðu borist, en skýring á fækkuninni er einkum sú mikill fjöldi hælisumsókna kom á fyrri hluta síð- asta árs frá Króatíu og Albaníu, eða 40 frá Króatíu og 22 frá Albaníu. Samkvæmt upplýsingum frá Út- lendingastofnun hafa engar umsókn- ir borist frá króatískum ríkisborg- urum það sem af er þessu ári og fáar umsóknir frá albönskum ríkisborg- urum. Helmingi fleiri ríki Eins og sést á meðfylgjandi súlu- riti hefur hælisumsóknum fjölgað verulega á síðustu árum, eða úr 51 umsókn allt árið 2010 í 172 umsóknir á síðasta ári. Aukningin á þessum fjórum árum er 237%. Á síðasta ári varð 45% fjölgun umsókna á milli ára og skýrist sem fyrr segir að mestu leyti vegna umsókna frá Króatíu og Albaníu. Á þessu ári hefur það gerst að fjölbreytileiki eftir ríkisfangi hæl- isleitenda er sá mesti sem stofnunin hefur fengið og því ekki borið á stórum hópum frá einstökum ríkjum líkt og á síðasta ári. Koma umsækj- endur frá helmingi fleiri ríkjum en á síðasta ári. Þetta hefur í för með sér að þótt umsóknirnar séu færri en á sama tíma þá tekur úrvinnsla þeirra meiri tíma þar sem þær koma frá fleiri ríkjum. Upplýsingar fengust ekki að svo stöddu hjá Útlendinga- stofnun um hvaða afgreiðslu hælis- umsóknir þessa árs hefðu fengið, og hve margir hefðu fengið dvalarleyfi. Í umfjöllun Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins í mars sl. um mál- efni hælisleitenda kom m.a. fram að þrefalt fleiri einstaklingar áttu hæl- ismál til meðferðar í lok árs 2012 en í lok 2008. Haft var eftir upplýsinga- fulltrúa Rauða krossins, Sólveigu Ólafsdóttur, að langur biðtími eftir úrlausn mála hefði slæm áhrif á and- lega og líkamlega heilsu hælisleit- enda. Færri umsóknir en frá fleiri ríkjum  Útlendingastofnun fengið 71 umsókn um hæli frá áramótum Fjöldi hælisumsókna miðað við 15. júlí hvers árs 120 100 80 60 40 20 0 2010 2011 20132012 2014 19 35 42 111 71 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. júlí 2014, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 7. júlí 2014 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí 2014, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. júlí 2014 Tollstjóri Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.