Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014 ✝ GuðmundurSnorri Garðarsson fæddist í Reykjavík 30. september 1946. Hann lést á heimili sínu 4. júlí 2014. Foreldrar hans voru Garðar Hann- es Guðmundsson, f. 13.8. 1917, d. 28.7. 1971, og Berta Guðbjörg Hannes- dóttir, f. 6.6. 1919, d. 10.10. 2002. Systkini hans: Jónína, f. 10.10. 1939, Edda Gerður, f. 20.8. 1943, Hannes, f. 26.12. 1950, Guðrún Elsa, f. 11.6. 1954, og Erla Gígja, f. 1.4. 1960. Sambýliskona Guðmundar Snorra er Björg Kristjáns- dóttir, f. 16.1. 1959. Fyrrver- andi eiginkona Pálína Ágústs- dóttir, f. 14.3. 1945. Börn þeirra eru: 1) Berta Gerður, f. 7.6. 1966, maki Guðmundur Stein- þórsson, f. 30.10. 1964. Börn Bertu eru: Sigrún Þ. Mathiesen, f. 17.2. 1996, og Einar Páll Mat- hiesen, f. 13.3. 1998. 2) Garðar Snorri, f. 4.9. 1967, kvæntur Fanneyju Petru Ómarsdóttur, f. 9.10. 1970. Börn þeirra eru 1971. Börn þeirra: Eyjólfur Júl- íus, f. 3.3. 1998, Ægir Örn, f. 27.11. 1999, Ari Steinn, f. 21.3. 2001, Kjartan Páll, f. 18.5. 2009, og Kári, f. 11.10. 2010. Sonur Kristjáns er Alexander Örn, f. 31.10. 1993. Fyrir átti Guð- mundur Snorri Örnu Rún, f. 3.8. 1964, kvænt Sigmundi Guð- mundssyni, f. 27.2. 1964. Börn þeirra eru Hlynur Örn, f. 3.12. 1989, Hrafn Logi, f. 15.5. 1993, Sigrún Hekla, 19.9. 2002, og Úlfur Hugi, f. 22.7. 2004. Sonur Pálínu er Ágúst Þór Sigurðs- son, f. 25.7. 1963. Guðmundur Snorri og Pálína fluttust til Njarðvíkur 1977 og ólust börn þeirra þar upp. Þau bjuggu þar saman í Njarðvík til ársins 1991 er þau skildu. Guðmundur Snorri var fædd- ur og uppalinn í Reykjavík. Hann lauk gagnfræðiprófi í Reykjavík og vann ýmis verka- mannastörf. Hann lauk grunn- námskeiði í flugumferðarstjórn í Keflavík fyrri hluta árs 1965 og hóf verklegt nám í Reykja- vík vorið 1966. Guðmundur Snorri hlaut turnréttindi í Reykjavík 1970 og aðflugsrétt- indi í Reykjavík 1972. Guð- mundur Snorri vann sem flug- umferðarstjóri þar til hann fór á eftirlaun. Útför Guðmundar Snorra fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 16. júlí 2014, og hefst athöfnin kl. 13. Edda Gerður, f. 3.9. 1998, og Ómar Snorri, f. 23.6. 2002. 3) Kjartan Páll, f. 7.8. 1969, kvæntur Maríu Ólöfu Sigurðar- dóttur, f. 17.9. 1977. Dóttir þeirra er Sólveig María, f. 6.4. 2009. Dætur Kjartans eru: Vikt- oría Hrund, f. 16.4. 1991, Sóldís Nína, f. 7.1. 1998, og Anna Pálína, f. 12.7. 2000. Dóttir Maríu er Joules Sölva, f. 27.2. 2003. 4) Harpa Rós, f. 20.5. 1973, gift Sigurbergi Theodórssyni, f. 5.12. 1970. Börn þeirra eru Helga Lind, f. 9.12. 1988, maki Ívar Rafn Þór- arinsson, f. 25.5. 1987, dóttir þeirra er Harpa Rós, f. 23.4. 2011, Theodór, f. 7.4. 1997, og Snorri Páll, f. 11.6. 2010. 5) Snædís, f. 17.7. 1974, maki Sig- urður Karlsson, f. 24.4. 1980. Börn þeirra eru Sólveig, f. 3.10. 2003, og Baltasar Logi, f. 20.10. 2013. Dóttir Snædísar er Eva Líf, f. 16.12. 1993. 6) Sólveig Lilja, f. 30.12. 1976, gift Krist- jáni Berg Ásgeirssyni, f. 30.3. Elsku pabbi minn, mikið var það erfitt að fá fréttir um andlát þitt. Það er svo margt sem við átt- um eftir að gera með þér í þessu lífi. Mikil sorgarstund var á mínu heimili, kveiktum við á kerti og hughreystum hvort annað og börnin okkar eins og hægt var. Lífið er hverfult eru orð að sönnu. Þegar við systkinin vorum að alast upp lögðuð þú og mamma alltaf áherslu á að standa sig vel, námið og stundvísi, hvöttuð okkur áfram í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Aldrei að gefast upp, þetta hefur reynst okkur öllum dýrmætt veganesti í lífinu og kom- ið okkur á þann stað sem við erum á í dag. Hægt var að ræða við þig um alla hluti og skiptast á skoðunum en alltaf hafðir þú mikinn áhuga á öllu sem við kom sjávarútvegi, miklar umræður voru oft teknar í fjölskylduboðum, menn tjáðu sig með eða á móti kerfinu, skemmti- legar og fjörugar samræður voru þar á ferð sem þú hafðir mjög gaman af. Fiskmeti var í miklu uppáhaldi hjá þér, enda lærði maður ungur að meta hákarl og skötu sem herramannsmat. Þú átt heiðurinn af því að öll lærðum við snemma að tefla, skákborðið var alltaf klárt. Mikið afrek hefur ver- ið að ala stóran systkinahóp upp, árangurinn er samheldin systkini og góðir vinir. Margs góðs er að minnast en það sem stendur upp úr nú í seinni tíð er ferðin í Þverdal í Aðalvík í júlí 2010. Þangað fórum við systk- inin, makar og börn með þér og nutum sveitarinnar okkar. Þar tók Aðalvíkin á móti okkur eins og hún gerir best, fengum dýrlegt veður, sól og logn alla dagana. Þarna varst þú á heimavelli, hægt var að spyrja þig um ættina og söguna eins og að fletta orðabók. Fórum í fallegu kirkjuna á Stað, veiddum í vatninu, gengum upp á Darra, fórum í strandbolta og kveiktum varðeld í fjörunni og margt fleira. Þarna áttum við öll virkilega góða og skemmtilega tíma með þér. Þverdalur í Aðalvík er og verð- ur alltaf sveitin okkar og mun ég gera allt til að varðveita húsið og sögu þess og halda virðingu og vegsemd þess á lofti. Ég er mjög stoltur að fá að bera nafnið Garðar Snorri, í höfuðið á þér, Garðari afa og Snorra lang- afa. Mér hlotnaðist sá heiður að fá einkanúmerið Snorri, sem er á fjölskyldubíl mínum og ég man hvað þú varst stoltur að sjá það. Það er í minningu um þig og tákn Þverdals í Aðalvík þar sem hjónin Snorri og Jónína héldu bú í hart- nær þrjátíu ár. Kæru vinir og vandamenn, hér kveðjum við góðan mann sem vildi öllum vel, alltaf tilbúinn að hjálpa og styðja. Pabbi, ég sakna þín mikið, takk fyrir allt sem þú gafst mér, góðu minningarnar og skemmtilegu stundirnar. Jesús er Guð þinn, því aldrei skalt gleyma. Hann gengur við hlið þér og leiða þig vill. Þú eilífa lífið, átt honum að þakka, hann sigraði dauðann og lífið gaf þér. Guðs son á himni nú vakir þér yfir. Hann gleymir ei bæn þinni hver sem hún er. Líf mitt sé falið þér, eilífi faðir. Faðminum þínum ég hvíla vil í. (Sigurbjörn Þorkelsson) Guð blessi þig og verndi, pabbi, við elskum þig. Garðar Snorri, Fanney Petra, Edda Gerður og Ómar Snorri. Komið er að kveðjustund. Núna þegar þú er fallinn frá koma upp í hugann margar góðar minningar sem tengjast þér. Þegar fyrsta barnabarnið þitt, hún Helga Lind, fæddist, varstu alltaf boðinn og búinn að létta undir með okkur Hörpu. Helga Lind var strax mjög hænd að þér og sá ekki sólina fyrir Snorra afa. Þetta skipti okkur, unga parið, miklu máli. Nokkrar fjölskylduferðir voru farnar í Að- alvík á Hornströndum en engum duldist að þér þótti vænt um að sýna börnum og barnabörnum þínum Þverdalinn, þar sem ræt- urnar liggja. Við Harpa og Teddi vorum svo heppin að dvelja með þér í íbúðinni þinni á Spáni og er sá tími okkur ógleymanlegur. Snorri Páll, nafni þinn, var alltaf svo spenntur þegar þú komst í heimsókn og þurfti hann að segja afa frá hinu og þessu, þú hafðir svo gaman af því. Sárt er að þurfa að kveðja þig svona snemma og er ég þakklátur fyrir allar minningar sem núna eru svo dýrmætar. Sigurbergur Theodórsson. Hann var góður bróðir, hann Snorri bróðir okkar. Þegar við rifjum upp minningar frá barn- æsku okkar skellum við oft upp úr. Ýmislegt var brallað eins og geng- ur í stórum systkinahópi og aldrei nein lognmolla. Við minnumst æskuheimilis okkar með gleði, for- eldrar okkar bjuggu okkur heimili þar sem við ólumst upp við öryggi og kærleika. Snorri, eins og hann var ævin- lega kallaður, en hann bar nafn föðurafa síns, var einstaklega ró- legur og umtalsgóður maður. Það var gaman að vera í návist hans því hann var minnugur á menn og málefni, fræðandi, orðheppinn, orðvar og hafði skemmtilegan frá- sagnarstíl. Oft blandaðist þar kímni og látbragð sem kom okkur til að hlæja innilega. Snorri var mjög hugmyndaríkur maður. Hann fékk margar góðar hugmyndir. Hann var fyrstur manna hér á landi, að því er við best vitum, til að byrja með flett- iskilti sem notað var í auglýsingar. Þetta skilti var niðri í miðbæ, rétt hjá Lækjartorgi. Fleiri hugmyndir þróaði hann í tengslum við fisk, sem hann hafði mikinn áhuga fyrir. Snorri starfaði sem flugum- ferðarstjóri og var það hans ævi- starf. Það er mjög ábyrgðarfullt og vandasamt starf þar sem hans persónueiginleikar nutu sín vel. Gimsteinar hans í lífinu voru börnin hans, barnabörn og lang- afabarn. Hann var stoltur af fólk- inu sínu. Við systkini hans fundum einnig væntumþykju hans og hlýju gagnvart okkur og börnum okkar. Hann var alltaf til staðar og fylgdist með okkur öllum. Við kveðjum bróður okkar með söknuði. Minningin um góðan dreng mun lifa í hjörtum okkar um ókomin ár. Angrið sækir okkur tíðum heim sem erum fávís börn í þessum heim við skynjum fátt, en skilja viljum þó að skaparinn oss eilíft líf til bjó, að upprisan er öllum sálum vís og endurfundir vina í paradís. (Guðrún Jóhannsdóttir). Við vottum öllum ástvinum hans innilega samúð og biðjum þeim Guðs blessunar. Edda, Hannes, Guðrún, Erla Gígja og fjölskyldur. Þegar ég hugsa um afa Snorra er það yndisleg nærvera hans sem kemur fyrst upp í hugann. Faðm- lagið hans var svo hlýtt og á eftir fylgdi rembingskoss á kinn. Ég var fyrsta barnabarn afa og mér er sagt að frá því ég fæddist hafi ég alla tíð verið ákaflega hænd honum. Foreldrar mínir leituðu mikið til hans þegar það þurfti að láta gæta eftir mér því við afi nut- um bæði félagsskaparins. Það er ein saga af afa Snorra sem lýsir honum svo vel, en þegar afi var að passa mig eitt sinn og setti mig út í vagn að sofa hófu herþotur hjá bandaríska hernum æfingar yfir Njarðvíkunum. Afi gerði sér lítið fyrir og hringdi í vinnufélaga sína í flugturninum og bað þá um að breyta flugleiðinni því afastelpan hans væri nýfarin út í vagn að sofa. Það er skemmst frá því að segja að flugleiðinni hjá stórveld- inu var breytt svo ég fengi fegurðarblundinn minn. Þetta fannst afa eðlilegasti hlutur í heimi enda vildi hann alltaf allt fyrir mann gera. Afi vann vaktavinnu sem flug- umferðarstjóri og var þess vegna stundum í fríi á virkum dögum, þá daga gaf hann mér oft frí í leik- skólanum og við gerðum eitthvað skemmtilegt saman. Það var alltaf svo skemmtilegt í kringum hann, hlátur og gleði. Hann var algjör húmoristi og hafði einhvern veg- inn áhuga á öllu, það skipti engu máli hverju ég sagði honum frá, honum fannst allt svo spennandi. Afi hafði mikinn áhuga á því hvað við barnabörnin hans vorum að gera og var mjög umhugað um að öllum liði vel og væru ánægðir. Hann var líka afskaplega forvitinn og spurði mann iðulega spjörun- um úr. Þegar afi frétti af fæðingu dóttur minnar, fyrsta og eina langafabarnsins síns, var hann kominn upp á spítala nokkrum mínútum síðar. Afi Snorri og Björg eyddu nokkrum jólum með okkur fjöl- skyldunni heima á Kjarrmóanum en það var notalegt og hátíðlegt að hafa þau hjá okkur og í dag dýr- mætar minningar. Ég var svo heppin að fá að fara með afa Snorra í Aðalvík, uppá- haldsstað afa. Þar hittum við lang- ömmu Bertu og fleiri fjölskyldu- meðlimi. Mér fannst svo spennandi að fá að fara ein í ferða- lag með afa, fara í flugvél, gista á hóteli, fara í bátsferð og enda svo í Aðalvík. Þessi minning er mér af- ar kær, við spiluðum mikið og hlógum. Afi talaði oft um að ég minnti hann á langömmu Bertu, en honum þótti afskaplega vænt um hana og var örugglega mikill mömmustrákur. Nú eru þau von- andi sameinuð á ný. Elsku afi, það er sárt að þurfa að kveðja þig svo snögglega. Hvíldu í friði. Þín afastelpa, Helga Lind Sigurbergsdóttir. Elsku afi Snorri. Nú ertu farinn frá þessari jörðu. Við, eins og svo margir aðrir, héldum að við fengj- um miklu lengri tíma með þér. En mikið erum við þakklát fyrir þann tíma sem við fengum og allar minningarnar. Það var greinilega eitthvert mikilvægt hlutverk sem beið þín þarna uppi, þar sem þú varst tekinn frá okkur alltof skyndilega. Þú varst svo stoltur af öllum börnunum þínum og barnabörn- um og alltaf tilbúinn að gera allt fyrir okkur öll. Það var gott að tala við þig og þú varst góður hlust- andi. Við vonum að þér líði vel þar sem þú ert núna. Þú ert engillinn okkar og við munum alltaf elska þig. Við kveðjum þig með miklum söknuði. Þín barnabörn, Eva Líf, Sólveig og Baltasar Logi. Kveðja frá flugleiðsögusviði Isavia Guðmundur Snorri lauk grunn- námskeiði í flugumferðarstjórn í Keflavík fyrri hluta árs 1965 og hóf verklegt nám í Reykjavík vor- ið 1966. Guðmundur Snorri hlaut starfsréttindi flugumferðarstjóra í flugturninum á Reykjavíkurflug- velli 1970 og aðflugsréttindi á sama stað 1972. Þá öðlaðist hann starfsréttindi í úthafsdeild flug- stjórnarmiðstöðvar 1973 og rétt- indi í innanlandsdeild og ratsjár- réttindi 1989. Guðmundur Snorri lét af störfum af heilsufarsástæð- um árið 2004. Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd starfsmanna flugleiðsögusviðs Isavia þakka Guðmundi Snorra samfylgdina og farsæl störf við flugumferðarstjórn. Fjölskyldu og vinum vottum við samúð okkar. Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri. Guðmundur Snorri Garðarsson ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞORBJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Skaftahlíð 8, Reykjavík. Ólafur Jóhannsson, Álfheiður Ólafsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, INGIBJÖRG BERGÞÓRSDÓTTIR frá Fljótstungu, lést laugardaginn 12. júlí. Jarðsungið verður frá Reykholti laugardaginn 19. júlí kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Guðmundar Böðvarssonar, kt. 680379-0259, banki 0326-13-301487. Hjörtur B. Hjartarson, Helga Brynjólfsdóttir, Jónína M. Árnadóttir, Guðbjörn Sigvaldason, Þorsteinn Árnason, Pia Hesselvig, barnabörn, barnabarnabörn og systkini. ✝ ÓLAFUR ÞORSTEINSSON, eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, lést á heimili sínu sunnudaginn 13. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Esther Bjartmarsdóttir, Matthea G. Ólafsdóttir, Sólveig Ólafsdóttir, Gunnar Már Sigurgeirsson, Sigríður Ólafsdóttir, Guðmann Magnússon, Ólafur Örn Ólafsson, Þórunn Margrét Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkæri ektakarlinn minn, SIGURÐUR HELGI HALLVARÐSSON Þróttari, lést fimmtudaginn 10. júlí. Jarðarförin fer fram í Hallgrímskirkju föstudaginn 18. júlí kl. 13.15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja styðja yngstu drengina hans er bent á reikn. 324-13-888, kt. 2008614349. Fyrir hönd ástvina, Inga María Friðriksdóttir. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, VILHJÁLMUR HJÁLMARSSON, bóndi og fv. ráðherra, lést að heimili sínu á Brekku í Mjóafirði mánudaginn 14. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Kolbrún Sigurðardóttir, Páll Vilhjálmssson, Kristín Gissurardóttir, Sigfús Mar Vilhjámsson, Jóhanna Lárusdóttir, Stefán Vilhjálmsson, Helga Frímannsdóttir, Anna Vilhjálmsdóttir, Garðar Eiríksson og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VALUR ERLING ÁSMUNDSSON, fyrrverandi bæjargjaldkeri í Hafnarfirði, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum mánudaginn 14. júlí. Útförin fer fam frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 22. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Ólöf Valdimarsdóttir, Ása Kristín Valsdóttir, Stefnir Svan Guðnason, Jón Örn Valsson, Elísabet A. Cochran, Erling Þór Valsson, Sirra Sigrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.