Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014 Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is Íslenskar hjólagrindur fyrir íslenska veðráttu Margar stærðir og gerðir L 16 16 12 12 ★ ★ ★ ★ ★ ÍSL. TAL „Besta íslenska kvikmynd sögunnar!” Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið MUNTU LIFA NÓTTINA A ?F "Besta stórmyndin í sumar. Þú verður gersamlega agndofa“. - P. H., Movieline Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 14 "Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!" -T.V., Biovefurinn.is "Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!" -Guardian PLANET OF THE APES 3D Sýnd kl. 5 - 8 - 10:15 (P) THE PURGE: ANARCHY Sýnd kl. 8 -10:40 VONARSTRÆTI Sýnd kl. 5 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 5 22 JUMP STREET Sýnd kl. 8 MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 10:20 POWERSÝNINGKL. 10:15 -New York Daily News ★ ★ ★ ★ ★ Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Smekkleysa gaf út fyrir skömmu býsna merkilegan hljómdisk, Gott bít með hljómsveitinni Fan Houtens kókó. Hljómsveitin hélt fjölda tón- leika á árunum 1981-2 og á diskinum má finna safn bestu verka hennar, valið efni af snældum sem hún gaf út, lög af safnkassettunni Rúllustig- anum og áður óútgefið efni. Fan Houtens kókó var hluti af út- gerð Medúsu- hópsins, sem var „upprenn- andi og at- kvæðamikill í ljóðagerð á þessum tíma“, eins og segir í texta Trausta Júlíussonar í bæklingi disksins, og undir yfirlýstum áhrif- um frá súrrealistahreyfingu André Breton og félaga. Hljómsveitina skipuðu þeir Matthías Magnússon, Einar Melax, Þór Eldon og Ólafur J. Engilbertsson og kom rithöfundur- inn Sjón einnig við sögu. Búið að standa lengi til Smekkleysa gefur diskinn út og segir Ólafur að það hafi staðið til frá stofnun hennar að gefa út disk með Fan Houtens kókó, enda hafi nokkr- ir af stofnendum útgáfunnar verið í hljómsveitinni, hann þeirra á meðal. „Þetta er búið að standa til lengi en það hafa verið ýmis ljón á veginum, bæði að finna segulböndin og svo hreinsa þau. Það hefur tekið sinn tíma, upptökur hafa týnst og svona,“ segir Ólafur. „Við erum nokkuð ánægðir með útkomuna, það hefur tekist vel að hreinsa þessar upp- tökur og ég held að þær geti lifað eitthvað áfram þó að við eldumst,“ bætir hann við. Fan Houtens kókó kom fyrst fram á tónleikum í Undirheimum Fjöl- brautaskólans í Breiðholti 17. og 18. febrúar 1981 og í bæklingi lýsir Trausti því skemmtilega þegar hann sá hljómsveitina fyrst, á pönk- tónleikum í Kópavogsbíói 21. febr- úar sama ár. Þar tróðu einnig upp Jói á hakanum, Taugadeildin, Fræbbblarnir og Utangarðsmenn. „Það var rólegur og hægfara stíll yf- ir þessum drengjum,“ segir Trausti m.a. um Fan Houtens kókó. Hrópað á Fræbbblana „Við þóttum vera dálítið rólegir í tíðinni og það var mikið hrópað á Fræbbblana meðan við vorum að spila, lögin voru löng og eintóna og það var ekki mikill pönkbragur á okkur miðað við marga aðra sem komu fram,“ segir Ólafur um þá tón- leika. Hljómsveitin hafi flutt óhefð- bundna tilraunatónlist. „Það var svo mikið að gerjast í tónlistinni á þessum tíma og við vor- um náttúrlega að hlusta á pönk eins og allt annað sem var spennandi í tónlist á þeim tíma og tókum lög með hljómsveitum eins og Siouxsie and the Banshees, Cure og fleirum sem voru vinsælar, vorum ekki bara að spila eigin lög,“ rifjar Ólafur upp. Fan Houtens kókó hafi gert ýmsar tilraunir með hljóðgervla á þessum tíma og hlustað á hljómsveitir sem voru að gera slíkar tilraunir, m.a. Cabaret Voltaire. Ólafur segir að textagerðin hafi skipt hljómsveitina miklu máli og að tónlistin hafi veitt stuðning við ljóða- flutning. „Við vorum allir að skrifa ljóð á þessum tíma og gefa út ljóða- bækur og þessi hljómsveit var eigin- lega fyrst eins og framhald á ljóða- flutningi, tónskreyttur ljóðaflutningur,“ segir Ólafur. Dauðadæmdur auglýsti kakó Hljómsveitin var nefnd eftir hol- lenskri kakótegund, Van Houtens Cocoa, en nafnið vísar einnig í ljóð eftir Vladímír Majakovskí, Ský í buxum. Ólafur segir það fjalla öðr- um þræði um rússnesku byltinguna. „Þar kemur fram að dauðadæmdum fanga hafi verið lofað frelsi ef hann auglýsti Van Houtens kókó á aftöku- pallinum. Síðan hafi það ekki verið efnt. Þannig að það er dæmisaga á bak við nafnið, að vera ekki ginningarfífl eða taka ekki öllu sem gefnu,“ segir Ólafur. Spurður að því hvort ekki sé held- ur ólíklegt að Fan Houtens kókó komi saman á næstunni segir Ólafur að ekkert sé útilokað. „Við sjáum bara til hvort það tekur önnur 30 ár að ákveða það en það er alveg til í dæminu að það gerist,“ segir Ólafur. Þóttu rólegir í tíðinni  Smekkleysa hefur gefið út disk með bestu verkum Fan Houtens kókó Ljósmynd/Helgi Örn Helgason Tilraunagjarnir Fan Houtens kókó á tónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum í október 1981. Nadine Gordimer, suðurafrískur Nóbelsverðlaunahafi í bók- menntum, lést í Jóhannesarborg síðastliðinn sunnudag. Gordimer var fædd 20. nóvember 1923 og stóð því á níræðu. Auk þess að vera mikils metinn rithöfundur var Gordimer mikill baráttumaður og barðist hún meðal annars ötullega gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður- Afríku, jafnt í ræðu sem riti. Pólitískar skoðanir hennar mót- uðust þegar í æsku, en faðir henn- ar var innflytjandi og báðir for- eldrar hennar voru af gyðinga- ættum. Mörg verka hennar bera þessa skýr merki og voru sum þeirra jafnvel bönnuð í heimalandi hennar. Gordimer tók einnig virkan þátt í forvarna- og fræðslustarfi í sam- bandi við HIV-veiruna og alnæmi. Gordimer var afkastamikill rithöf- undur, gaf út skáldsögur, fjölmörg smásagnasöfn, ritgerðir og eitt leikrit. Síðasta skáldsaga hennar sem útgefin var á meðan hún lifði kom út árið 2012. Gordimer skrif- aði um „venjulegt fólk“ í Suður- Afríku og í skrifum hennar eru ást og pólitík algeng þemu. Stundum stillti hún jafnvel ástinni beinlínis upp andspænis pólitíkinni. Má þar nefna skáldsöguna Occasion for Loving, útgefna árið 1963, en þar ber gift, hvít kona tilfinningar til þeldökks manns. Sambönd milli kynþátta voru glæpsamlegt athæfi í Suður-Afríku þegar bókin kom út. Gordimer hlaut Nóbels- verðlaunin í bókmenntum árið 1991. gith@mbl.is AFP Nóbelsverðlaunahafinn Nadine Gordimer er látin Rithöfundur Gordimer barðist fyrir mannréttindum með skrifum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.