Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014 JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Hljóðlát og endingargóð jeppadekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er. fi p y j g p C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa mauki Bruchetta eykmeð tvír ðlahangikjöti, bal- samrau og piparrótarsósu hetBruc ta með hráskinku, balsam nmgrill uðu Miðjarðar- hafsgræ K r a b b a - salat f ðboskum kryddjurtum í brau B r u c h e t t a Mimeð jarðarhafs-tapende aR i s rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn ónmeð japönsku maj sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax alioá bruchettu með grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is MöndluMix og KasjúKurl er ekki bara hollt snakk. Líka gott á salatið. Hollt oggott frá Yndisauka. Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum, Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni, Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna Akureyri. Talsverðar gróðurskemmdir urðu við Bleiksárgljúfur í Fljótshlíð í júní síðastliðnum, þegar leitin að Ástu Stefánsdóttur stóð þar yfir í tvær vikur. Þurfti að koma björgunar- búnaði upp nokkuð brattar brekkur ásamt því að mikið var gengið um svæðið við gljúfrið við leitina. Gróð- urinn lét á sjá vegna þess fjölda sem kom að aðgerðunum. Að beiðni björgunarsveitarinnar Dagrenningar hefur Landgræðslan því ákveðið að freista þess að laga gróðurskemmdirnar, að því er seg- ir í frétt á veg Landgræðslunnar. Gróður er styrktur með áburðar- gjöf og sveifgrösum stráð í jarð- vegssár. Þá þarf að ráðast í frekari vinnu næsta vor til að ásýnd svæðis- ins verði ámóta og nærliggjandi gróðurlendis. Er unnið að verkefn- inu í samráði við landeigendur svæðisins, sveitarstjórn Rangár- þings eystra og lögregluna á Hvols- velli. Gera við gróður- skemmdir eftir leit í Bleiksárgljúfri Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is „Við verðum með fjórar frumsýn- ingar öll virk kvöld,“ segir Jón E. Árnason, framkvæmdastjóri sjón- varpsstöðvarinnar iSTV sem fer í loftið annað kvöld. Sjónvarpsstöðin verður aðgengileg sjónvarpsunn- endum í gegnum myndlykla Símans og Vodafone til að byrja með og fljótlega á netinu að sögn Jóns. Hann segir hugmyndina að sjón- varpsstöðinni hafa kviknað fyrir um það bil hálfu ári og nú sé þetta orðið að veruleika. Sjónvarpsefni sé klárt fram til 1. september. Hann segir sjónvarpsstöðina vera ópólitíska og að hluthafar stöðvarinnar séu nokkrir. Dagskrárstjóri iSTV er Guð- mundur Týr Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Mótorsmiðj- unni, og markaðsstjóri sjónvarps- stöðvarinnar er Björn T. Hauksson, betur þekktur sem Bonni ljósmynd- ari. „Við vorum fengnir til að búa til sjónvarp og niðurstaðan varð sú að það væri pláss á markaðnum fyrir íslenska sjónvarpsstöð. Ís- lenskt efni um Íslendinga,“ segir Mummi en tekur fram að ekki sé um afsprengi þjóðernishyggju að ræða. Þeir Bonni og Mummi segja að iSTV sé sjónvarpsstöð úr grasrót- inni og að stúdíó sjónvarpsstöðvar- innar sé íslenskt mannlíf og að ákveðið hafi verið að byggja sjón- varpsstöðina upp frá grunni frekar en að ráða þekktar fjölmiðlastjörn- ur. Þannig hafi þeim tekist að fá til sín mikið af hæfileikaríku fólki og tala þeir félagar um að heilu út- skriftarárgangarnir úr Kvikmynda- skólanum komi að dagskrárgerð stöðvarinnar. „Við hrífum með okkur dagskrár- gerðarfólk sem er núna um 20 manns. Þetta er skemmtilegt fólk með mikið hugmyndaflug. Allir vinna fyrir lítið en sanngjarnt með von um betri daga ef allt gengur vel,“ segir Mummi og bætir við að það skipti hann meira máli að fara flautandi í vinnuna en að launatékk- inn sé feitur. Nenni ekki að elda í IKEA Mummi segir markmið stöðvar- innar að gera samfélagið skemmti- legra og dagskránni sé háttað í samræmi við það. Sjónvarpsstöðin ætli að taka á ýmsu sem ekki hafi verið í sjónvarpi. Meðal þeirra sjónvarpsþátta sem sýndir verða á iSTV er þátturinn Nenni ekki að elda en hann er fyrsti þáttur stöðvarinnar í sjónvarpi og er hann á dagskrá annað kvöld kl. 20. Mummi og Bonni eru sammála um að þátturinn sé lýsandi fyrir sjónvarpsstöðina en tökur á þætt- inum fara fram í eldhúsi í IKEA. Þá er fjöldi annarra þátta á dag- skrá stöðvarinnar. Meðal þeirra þátta sem sýndir verða á stöðinni eru þættir um jaðaríþróttir, þættir um dýr, listaþættirnir Lyst á list, Hið opinbera og þáttur um samkyn- hneigð. „Allt frá skyggnilýsingu til jaðarmenningar,“ segir Mummi. Íslenskt sjónvarp um Íslendinga Morgunblaðið/Árni Sæberg Teymið Þau Mummi, Jóna María Hafsteinsdóttir, Kolbrún Ingibergsdóttir, Haraldur Sigurjónsson, Sigurjón Haraldsson, Jón E. Árnason, Aðalheiður Sigrúnardóttir og Bonni eru teymið að baki sjónvarpsstöðinni iSTV.  Grasrótarsjónvarpsstöðin iSTV fer í loftið annað kvöld  „Allt frá skyggnilýsingu til jaðarmenningar“ Í kjölfar vaxandi fjölda ferðamanna hefur umferð hópferðabíla aukist mjög á vegum landsins. Í júní var metumferð á hringveginum, eða 6,8% meiri en á sama tíma í fyrra, og er það mesta aukning milli júnímán- aða síðan mælingar hófust árið 2005. Óskar Jens Stefánsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, seg- ir að rútubílstjórum verði tíðrætt um ástand vega, en áhyggjur hafi svo sem ekki aukist vegna þessa. „Þetta er svona hist og her, ég var til dæmis að tala við einn í gær sem var að koma firðina að austan, hann kvart- aði mikið yfir því hvað vegirnir væru mjóir og að hættulegt fyrir stóra bíla að mætast þar,“ segir Óskar. „Sums staðar finnst mönnum veg- irnir varla tilbúnir að taka við svona mikilli umferð eins og þetta er orðið núna, þetta eru stórir bílar og fullir af fólki, það vilja náttúrlega allir koma því heilu frá sér.“ Fá ekki nauðsynlegt fjármagn Gunnar Gunnarsson aðstoðar- vegamálastjóri segir að Vegagerðin telji sig fá um 60% þess fjármagns sem þurfi í nauðsynleg verkefni til að viðhalda vegakerfinu. Hann segir að Vegagerðin myndi gjarnan vilja gera betur. „Að sjálfsögðu, ef við fengjum féð til þess. Við höfum bent á það að víða er skortur á viðhaldi og að það vantar sárlega fé til að styrkja og breikka vegi.“ Rúta lenti utan vegar við Hauka- dalsvatn á sunnudaginn og er hún mikið skemmd eftir slysið. Þá varð annað óhapp sama dag á veginum um Vatnsvik á Þingvöllum. Þar missti rútubílstjóri afturhjól út fyrir vegkantinn þegar hann hugðist snúa rútunni. Vegir ekki tilbúnir fyrir aukna umferð  Tvær rútur utan vegar á sunnudag Morgunblaðið/Golli Vó salt Erfitt getur reynst að snúa langferðabíl á þröngum þjóðvegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.