Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
og öll þau myrku öfl sem þar búa. Á
leiðinni til höfuðborgarinnar var
það einróma skoðun manna að há-
tíðin hefði heppnast vel og sér-
staklega ánægjulegt var hversu fá-
ar biðraðir mynduðust, mögulega
vegna fjölda erlendra gesta, en Ís-
lendingar eru alræmdir raðarúst-
arar. Að sama skapi var það un-
aðsbót hversu jafnir allir
tónleikagestir virtust vera. Lítið
eða ekkert var af forréttindamiðum
og jöfnuðurinn var til fyrirmyndar.
Rúturnar komu tímanlega í bæinn
og þreyttir tónleikagestir sváfu
margir á leiðinni og létu sig dreyma
um hátíðina að ári.
Ljósmynd/Magnús Elvar Jónsson
Glens Tónlistarmaðurinn Devendra Banhart sagði brandara á milli laga sinna.
Stemning Tónleikagestir voru hverjir öðrum kynþokkafyllri.
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Ljósmynd/Magnús Elvar Jónsson
Íslenska raftónlistarforlagið Möller
Records þekkja margir af góðu
einu, en forlagið var stofnað árið
2011 af tónlistarmönnunum Árna
Grétari og Jóhanni Ómarssyni.
Þeim innan handar við útgáfuna eru
Frosti Jónsson og Stefán Ólafsson.
Útgáfufyrirtækið einbeitir sér að út-
gáfu íslenskrar raftónlistar og hefur
þegar gefið út 24 plötur, þar af átta
breiðskífur, þrjár safnplötur, tvær
stuttskífur og ellefu smáskífur. Tón-
listarmenn sem útgáfufyrirtækið
hefur gefið út hafa víða komið fram,
m.a. á Secret Solstice-tónlistarhátíð-
inni, en auk þess hefur fyrirtækið
sjálft staðið fyrir mánaðarlegum
tónlistarviðburðum. Forlagið rær
nú á ný mið, því það hefur skipulagt
tónleikaferðalag í sumar. Ævintýrið
hefst í dag, miðvikudaginn 16. júlí,
með opnunartónleikum á Þingvöll-
um. Stefnt er á tónleikahald víðs
vegar um landið, meðal annars í
Pakkhúsinu á Höfn, Sláturhúsinu á
Egilsstöðum, Ísafirði, Akureyri,
Drangsnesi, Tálknafirði, Hafnar-
firði og Reykjavík, en ferðalaginu
lýkur með útitónleikum í Höfnum
hinn 3. ágúst næstkomandi. Þrír til
fjórir raftónlistarmenn koma fram á
hverjum tónleikum og má þar nefna
tónlistarmennina Futuregrapher,
Skurken, Bistro Boy, Steve
Sampling, Subminimal, Einar Indra,
Tanya Pollock, Snooze Infinity, Ja-
fet Melge, Orang Volante og Modes-
art. Frekari upplýsingar um tón-
leikaferðalagið er að finna á
heimasíðu Möller Records,
www.mollerrecords.com, en ljóst er
að unnendur íslenskrar raftónlistar
hafa ekki ástæðu til að láta sér leið-
ast í sumar. gith@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsbyggðin Tanya Pollock er meðal þeirra sem fram koma á Tálknafirði.
Íslenskir raftónlistarmenn á
ferðalagi um landið í sumar