Morgunblaðið - 29.08.2014, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 9. Á G Ú S T 2 0 1 4
Stofnað 1913 201. tölublað 102. árgangur
„ALLIR ERU
SKRÍTNIR Á
EINHVERN HÁTT“
LANDSLAG
AF TILFINN-
INGUM
ÚTLEGÐIN FOR-
SENDA EN ÞJÓFN-
AÐURINN AFLEIÐING
MÖRK KONUNNAR OG HRYSSUNNAR 38 ÆVI FJALLA-EYVINDAR OG HÖLLU 10PATRICK Á AKRANES 16
AFP
Obama Forseti Bandaríkjanna seg-
ir rússneskar hersveitir í Úkraínu.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Talið er að minnst þúsund rússnesk-
ir hermenn séu fyrir innan landa-
mæri Úkraínu og taki þátt í bardög-
um þar við hlið uppreisnarmanna
hliðhollra Rússum. Þetta kom fram á
neyðarfundi í Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna í gær. Stjórnvöld í
Washington segja að Rússar verði að
hætta að ljúga til um þátttöku sína í
átökunum. „Gríman er að falla,“
sagði Samantha Power, sendiherra
Bandaríkjanna hjá SÞ. Barack
Obama, forseti Bandaríkjanna, segir
að heimsbyggðin sjái nú skýrt að
rússneskar hersveitir séu að berjast
í Úkraínu. NATO birti í gær gervi-
hnattarmyndir sem sýna rússneska
hermenn í landinu berjast við hlið
aðskilnaðarsinna.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari og Obama ræddust við í síma í
gærkvöldi þar sem þau sammæltust
um að grípa þyrfti til aðgerða gegn
Rússum vegna þátttöku þeirra í
átökunum. Obama sagði á frétta-
mannafundi að þau Merkel væru
sammála um að enginn vafi léki á
þátttöku Rússa. Aðskilnaðarsinnar
væru studdir af Rússum, þjálfaðir af
Rússum, fengju vopn af Rússum og
væru fjármagnaðir af Rússum. »20
Bandaríkjastjórn segir grímuna að falla
Gögn sýni Rússa
berjast í Úkraínu
Hlýtt og stillt veður var víða um land í gær.
Góðviðrisdögum er líklega að ljúka því heldur
þykknar upp, samkvæmt veðurspá fyrir næstu
daga. Í dag verður rigning á Suðurlandi. Á
sunnudag munu leifar fellibylsins Cristobal
skella á landinu með talsverðri rigningu.
Þessir hressu krakkar ætluðu ekki að láta
blíðviðrið framhjá sér fara og nutu þess að að
leika sér léttklæddir í gær.
Léku sér léttklædd í blíðviðrinu
Morgunblaðið/Golli
Blíða víða um land í gær en fer að rigna um helgina
Bændur eru
bjartsýnir á að
fá væna dilka
úr réttum í
haust enda vor-
ið og sumarið
með eindæmum
gróðursælt um
allt land. Réttað
verður í Ruglu-
dalsrétt í
Blöndudal á
morgun.
Ágætlega lítur út með sölu á kjöti
á erlenda markaði, að sögn forstjóra
Sláturfélags Suðurlands, en innan-
landsmarkaður er þyngri vegna
birgða frá síðustu sláturtíð. »14
Fyrstu fjárréttir
verða um helgina
Fé Dilkarnir verða
eflaust vænir.
Vegna fjölgunar
ferðamanna á
hálendi Íslands
þarf að tæma
rotþrær við
skála Ferða-
félags Íslands
mun oftar en áð-
ur var auk þess
sem klósett-
pappírskostn-
aður hefur
hækkað mikið. Í skálana á Lauga-
veginum er keyptur klósettpappír
fyrir tvær milljónir í sumar, mest
fer af pappír í Landmannalaugum.
Rotþrærnar við Hrafntinnusker
voru tæmdar í gær en það þarf nú
að gera árlega m.v. á tveggja ára
fresti áður fyrr. »4
Ferðamenn fylla
rotþrærnar hratt
Ferðamenn.
Stór stúka Stúkan sást síðast á Ólympíu-
leikunum í London og var notuð á strand-
blaksvellinum við Horse Guards Parade.
Fimleikasamband Íslands hefur
brugðið á það ráð að leigja áhorf-
endastúku sem notuð var á
Ólympíuleikunum í London árið
2010 fyrir Evrópumeistaramótið í
hópfimleikum 2014 sem haldið
verður í frjálsíþróttahöllinni í
Laugardal dagana 15.-18. október
næstkomandi. Stúkan tekur 4.200
manns í sæti.
Mótið er stærsti innanhúss
íþróttaviðburður sem haldinn hefur
verið á Íslandi en 42 lið frá 14 þjóð-
löndum eru skráð til leiks og býst
sambandið við rúmlega 800 kepp-
endum og fylgdarmönnum.
„Við erum að leigja þessa stúku
en óskastaðan er auðvitað að hún sé
keypt – bara fyrir alla. Ekki bara til
að nota við íþróttir heldur líka fyrir
menningu og listir,“ segir Sólveig
Jónsdóttir hjá Fimleikasambandi
Íslands. »6
Ólympíustúka mun
rísa í Laugardal
Gunnar Dofri Ólafsson
Vilhjálmur A. Kjartansson
Íbúafundur sem fram fór í Ljósvetn-
ingabúð í gærkvöldi fór vel fram að
sögn Víðis Reynissonar, deildar-
stjóra Almannavarna, en farið var
yfir atburði síðustu daga og viðbún-
að lögreglu og annarra viðbragðs-
aðila. „Lögreglan er meira á ferðinni
og það er töluverður viðbúnaður. Við
þurfum að vera tilbúin að halda þess-
um viðbúnaði lengi.“
Víðir útilokar ekki að þeir atburðir
sem sem eru að gerast núna gætu
staðið í langan tíma. „Fleiri og fleiri
segja að þetta líkist Kröflueldum,
sem stóðu yfir í níu ár. Þar voru tutt-
ugu innskotsatburðir, þar af níu sem
enduðu með eldgosi. Við gætum því
þurft að endurskoða mönnun og
undirbúning Almannavarna á land-
inu öllu. Við gætum verið að fara inn
í mjög eldvirkt tímabil þar sem eld-
gosum mun fjölga.“
Magnús Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur telur líklegast að lítið
gos hafi orðið undir Vatnajökli á síð-
ustu dögum þar sem sigkatlar hafa
myndast. Sprunga hefur sést austur
af Holuhrauni, norðan jökulsins, en
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur
segir hana eiga sér eðlilegar skýr-
ingar. „Við áttum von á þessu þar
sem sprungur sem þessar myndast
ofan við bergganginn. Þetta er sam-
bærilegt við það sem finna má á gos-
beltum yfirleitt.“ »4
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Sprungur Eftirlitsmynd í gær sýnir
sprungu austur af Holuhrauni.
Mögulega á leið í langt tímabil eldvirkni
Viðbúnað gæti
þurft í mörg ár