Morgunblaðið - 29.08.2014, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2014
DONESK
NO
T
MA
20 km
DONETSK
Átakasvæðin í Úkraínu
Lúhansk
NATO segir að minnst 1.000 rússneskir hermenn berjist núna í Úkraínu
MOSKVA
KÆNU-
GARÐUR
Vígi uppreisnarmanna
Bæir sem sagðir eru
á valdi Rússa og
uppreisnarmanna
Svæði á valdi
uppreisnarmanna
Átök milli uppreisnar-
manna og hermanna
Mioussi
UKRAÍNA
RÚSSLAND
Donetsk
Telmanove
Starobesheve
Rozdolne
Ilovaysk
Amvrosiivka
Pobeda
Novoazovsk
AZOV-HAF
Maríupol
Fjölmiðlar í Rússlandi eru farnir að
birta fréttir um að rússneskir her-
menn taki þátt í átökunum í suð-
austanverðri Úkraínu þótt stjórn-
völd í Kreml hafi vísað þeim á bug.
Dagblöð og fréttavefir hafa
einkum skírskotað til ásakana
Úkraínumanna og stjórnvalda á
Vesturlöndum um að rússneskir
hermenn berjist með uppreisnar-
mönnum í Úkraínu. Nokkrir fjöl-
miðlanna eru þó einnig farnir að
spyrja hvort Rússar séu núna þátt-
takendur í stríði í Úkraínu, að sögn
fréttavefjar breska ríkisútvarps-
ins.
„Þetta er stríð“
„Erum við í stríði?“ spurði við-
skiptadagblaðið Vedomosti.
„Fjöldi ósvaraðra spurninga um
rússneska hermenn, sem hafa fall-
ið eða verið teknir til fanga í Úkra-
ínu, er orðinn hættulega mikill,“
sagði blaðið í forystugrein. „Er
Rússland í stríði í Úkraínu og, ef
svo er, á hvaða forsendum? Ef
ekki, hverjir eru þá í nýju gröf-
unum og hverjir eru það sem leyni-
þjónusta Úkraínu er að yfirheyra?“
„Þetta er stríð,“ sagði Andrei Mal-
gin, þekktur bloggari. „Gríman
hefur verið tekin niður. Það voru
aldrei neinir uppreisnarherir eða
aðskilnaðarsinnar í Úkraínu.“
„Erum við í stríði í Úkraínu?“
FJÖLMIÐLAR Í RÚSSLANDI FJALLA UM ÁSAKANIRNAR
AFP
Mótmæli Mæður og konur rússneskra
hermanna, sem voru teknir til fanga í
Úkraínu, mótmæla nálægt Moskvu.
Knapi fellur af hestbaki í keppni, sem nefnist Buzkashi, í Bishkek, höfuð-
borg Kirgistans. Buzkashi þýðir „að grípa geit“ og keppnin felst í því að
tvö lið á hestum reyna að koma hauslausu dýrshræi í mark. Yfirleitt er not-
að hræ af geit, kind eða kálfi. Líffærin eru fjarlægð og hræið fyllt af sandi
til að gera það þyngra. Það er síðan látið liggja í vatni til að gera það harð-
ara. Tíu knapar eru í hverju liði en aðeins fjórir mega vera inná í einu. Þeg-
ar flautað er til leiks keppast leikmennirnir við að ná taki á hræinu og ríða
með það yfir marklínu á leikvellinum sem er 200 metra langur og 80 metra
breiður. Þessi íþrótt er iðkuð víða í Mið-Asíu.
AFP
Keppni í að koma hræi í mark
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO)
varaði í gær við því að ebólu-
tilfellum kynni að fjölga í allt að
20.000 áður en hægt yrði að stöðva
útbreiðslu sjúkdómsins í Vestur-
Afríku.
Heilbrigðisstofnunin sagði að alls
hefðu 1.552 dáið af völdum ebólu og
3.062 smitast í Síerrra Leóne, Líb-
eríu, Gíneu og Nígeríu. Hún sagði
að það myndi taka sex til níu mán-
uði að stöðva útbreiðslu sjúkdóms-
ins og gera þyrfti ráð fyrir því að
smittilfellin gætu orðið allt að
20.000 ef allt færi á versta veg.
Embættis-
menn í Nígeríu
sögðu í fyrradag
að tekist hefði að
stöðva útbreiðslu
ebólu þar í landi
og hindra að
veiran bærist út
fyrir Lagos,
stærstu borg
landsins. Skýrt
var þó frá því í
gær að læknir hefði dáið úr ebólu í
borginni Port Harcourt. Þar með
hafa sex menn dáið af völdum sjúk-
dómsins í Nígeríu. Eiginkona
læknisins er í sóttkví á sjúkrahúsi
og fylgst er með 70 manns til við-
bótar í Port Harcourt.
Heilbrigðisráðherrar aðildar-
ríkja ECOWAS, efnahagsbandalags
Vestur-Afríkuríkja, komu saman í
Accra, höfuðborg Gana, í gær til að
ræða hvernig bregðast ætti við far-
aldrinum. Sjúkdómurinn hefur
skaðað efnahag landanna, meðal
annars orðið til þess að mörg flug-
félög hafa stöðvað áætlunarflug til
Síerra Leóne og Líberíu.
bogi@mbl.is
20.000 gætu smitast af ebólu
Ebólusjúklingur
færður í sóttkví.
Umboðsmenn um land allt. Kaupfélag Borgfirðinga, Veiðiflugan á Reyðarfirði, SR Byggingavörur á Siglufirði.
15-20% AFSLÁTT
AF VEIÐISTÖNGUM OG VEIÐIHJÓLUM