Morgunblaðið - 29.08.2014, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.08.2014, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2014 ✝ Arnór Bene-diktsson fædd- ist í Barnafelli í Ljósavatnshreppi 26. mars 1920. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 21. ágúst 2014. Foreldrar hans voru Benedikt Sig- urðsson, bóndi í Barnafelli og síðar í Landamótsseli í Ljósavatns- hreppi, f. í Tjörneshreppi 27. ágúst 1881, d. 17. apríl 1950 og kona hans Kristín Krist- insdóttir, f. í Öxnadal 25. júlí 1888, d. 27. janúar 1979. Bræð- ur Arnórs voru: Sigurður, f. 1911, d. 1970; Ingimar, f. 1913, d. 1914; Kristján Ingimar, f. 1915, d. 1979; Bragi, f. 1917, d. 1983 og Þórhallur, f. 1922, d. 1942. Eftirlifandi systur Arnórs eru: Árnína Sigríður, f. 1928, og 15. júní 1987, verkfræðinemi í Svíþjóð. Unnusta hans er Lilja Ákadóttir, f. 1. september 1988. 2) Þórhallur, f. 29. nóvember 1955, framkvæmdastjóri á Ak- ureyri, kvæntur Jónu Jóns- dóttur, f. 3. júlí 1976, starfs- mannastjóra. Börn þeirra eru: a) Arney Líf, f. 6. apríl 1998, menntaskólanemi. b) Katrín Sól, f. 31. júlí 2006. c) Arnór Rökkvi, f. 16. október 2010. 3) Haukur, f. 27. desember 1958, d. 29. mars 2006, hár- greiðslumeistari og kennari við Iðnskólann í Reykjavík. Ókvæntur og barnlaus. Arnór byggði nýbýlið Borg- artún úr landi Landamótssels og hófu þau María búskap þar 1953. Með bústörfum stundaði hann alla tíð vörubílaakstur og annaðist akstur skólakrakka í Stórutjarnaskóla um árabil. Arnór bjó í Borgartúni fram á haustdaga 2010 en flutti þá á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þar sem hann dvaldi síðustu ár- in við góða umönnun starfs- fólksins á Skógarbrekku. Útför Arnórs fer fram frá Þorgeirskirkju í dag, 29. ágúst 2014, og hefst athöfnin kl. 14. Guðbjörg, f. 1934. 31. desember 1954 kvæntist Arn- ór Maríu Indr- iðadóttur frá Skóg- um í Fnjóskadal, f. 23. mars 1922, d. 12. nóvember 2000. Synir þeirra eru: 1) Indriði, f. 21. ágúst 1951, verkfræð- ingur og kennari við Verkmennta- skólann á Akureyri, kvæntur Birnu Kristjánsdóttur, f. 10. nóvember 1959, sjúkraliða. Börn þeirra eru: a) María, f. 9. febrúar 1982, háskólanemi í Svíþjóð. Dóttir hennar er At- hena Lindeberg, f. 4. nóvember 2010. b) Páll, f. 25. febrúar 1984, verkfræðingur í Dan- mörku, kvæntur Signýu Pálu Sigmarsdóttur, f. 12. júlí 1985. Dóttir þeirra er Júlía Rós, f. 7. nóvember 2011. c) Jón Pétur, f. Í dag kveðjum við Arnór afa- bróður minn eftir langa dvöl í þessum heimi. Það eru ekki allir sem bera gæfu til þess að verða 94 ára og halda sínu minni, sinni hugsun og sínu næma skyn- bragði á menn og málefni allan þann tíma. Þá gæfu hlaut Nóri frændi minn og veit ég að hann var þakklátur fyrir það þótt líkam- inn væri farinn að gefa eftir langa starfsævi. Það eru heldur ekki allir jafn- heppnir og ég að fá að alast upp í faðmi eldri kynslóða. Ég hafði ömmu á neðri hæðinni og Nóra og Mæju konu hans á næsta bæ. Fólk sem alltaf hafði tíma fyrir hin ólíklegustu erindi, hvort sem það voru barnslegar get- gátur um lífið og tilveruna, raunir unglingsáranna eða til- raunir til þess að leysa lífsgát- una á fullorðinsaldri. Oft lá leiðin niður í Borg- artún, merkilega oft á kaffitíma, þar sem ég vissi að biðu mín allra handa kræsingar. Ég get enn séð fyrir mér kaffiborðið og talið upp allar sortirnar og hvar á borðinu þær áttu sinn sama- stað. En það voru ekki bara veitingarnar sem freistuðu, það var ekki síður félagsskapurinn. Mæju og Nóra leið vel í návist hvort annars sem gerði það að verkum að öllum sem þangað komu leið líka vel í návist þeirra. Ekki skemmdi fyrir allt spjallið, sögurnar og upprifjanir á alls kyns skemmtilegum uppá- komum. Það var eiginlega alveg sama um hvað var rætt, hvort sem það var á gamansömum nótum eða um alvarlegri mál sem þörfnuðust ráðlegginga þá var alltaf hægt að leita til Nóra og Mæju, þau tóku mér alltaf vel og mér fannst alltaf hlustað á mig við eldhúsborðið í Borg- artúni. Eftir að Mæja dó gætti Nóri þess að allt væri áfram í föstum skorðum í Borgartúni. Sortirnar héldu sér og það var alltaf gott að koma til Nóra í spjall. Ég veit að honum þóttu stundirnar ansi einmanalegar án Mæju og honum féll illa að vera einn. Þá var gott að vita af pabba á næsta bæ sem leit til með Nóra en kannski ekki síður að vita að Nóri passaði upp á pabba. Nóri frændi minn var góður maður. Sennilega einn af þeim bestu. Hann var rólyndur, yfirveg- aður og hafði ótrúlegt næmi á fólk og aðstæður. Mér er efst í huga þakklæti fyrir samfylgd- ina og hlýjuna sem hann alltaf sýndi mér og mínum. Svo er ég ekki búin að gleyma samningn- um okkar sem við gerðum um árið. Hann er enn í fullu gildi. Hvíldu í friði Nóri minn, ég veit að það verður tekið vel á móti þér hinum megin. Anna María Þórhallsdóttir. Allt hefur sinn endi í lífinu. Líka samneyti og samskipti við kæran föðurbróður minn hann Nóra í Borgartúni, sem nú hef- ur kvatt þessa jarðvist í hárri elli og með þeirri reisn sem hann ávallt bar á langri lífsleið. Með þessum fátæklegu kveðjuorðum er ekki meiningin að rifja upp eftirminnilega at- burði í samskiptum við Nóra þó svo að af nógu sé að taka. Þær dýrmætu og góðu minningar mun ég geyma í hugskoti mínu svo lengi sem einhver glóra er í hausnum á mér eins og Nóri hefði efalaust orðað það. Frá því að ég fyrst man eftir mér hefur þú alltaf verið þarna. Traustur, athugull og umfram allt rólegur á hverju sem á gekk í lífi þínu. Eftir að heilsa þín leyfði ekki að þú byggir í Borgartúni, staðnum sem þér var afar kær og þú byggðir upp frá grunni, að mestu leyti með eigin hönd- um, verklagni og hyggjuviti, sem þér var ríkulega gefið af, urðu samskipti okkar mest með símtölum á kvöldin. Oftast bar þar veiðiskap á góma, en veiðar voru sameiginlegt áhugamál okkar. Einnig ræddum við um gamla tíma og rifjuðum upp liðna atburði. Það var aðdáun- arvert hversu vel þú hélst minni þínu fram að síðustu stundu og gast miðlað af þekkingu þinni og frætt mig um menn og mál- efni. Sterkar skoðanir hafðir þú jafnan á málefnum líðandi stundar og ráðamönnum á hverjum tíma. Fylgdist vel með öllu sem gerðist í sveitinni okk- ar og sagðir mér fréttir af sveit- ungunum. Það var undarleg tilviljun að einmitt þegar ég ætlaði að hringja í þig að kvöldi 21. ágúst sl. og segja þér að við Sigtrygg- ur á Hriflu hefðum veitt sinn laxinn hvor í Hrúteyjarhvísl, en spurði af einhverri rælni þá sem svaraði í símann hvort hún héldi að Arnór Ben. væri sofnaður. Því var svarað játandi, sem mér þótti þó undarlegt þar sem klukkan var ekki orðin tíu að kvöldi, en það var ákveðin tíma- viðmiðun á símhringingum til Nóra að hringja ekki eftir kl. 10. Ekki varð af lýsingum á veiðiskap okkar Sigtryggs að þessu sinni og einhverjum mín- útum síðar fékk ég símhring- ingu þess efnis að þú værir lát- inn og því sofnaður svefninum langa þrátt fyrir að klukkan væri ekki orðin tíu. Nóri frændi – Þú ert kært kvaddur. Kvöldhringingar til þín verða ekki fleiri. Það var dýrmætt að alast upp í nágrenni við þig, eiga þig sem vin þegar árin liðu og halda traustu sam- bandi við þig til hinstu stundar. Ég mun minnast þín í óförnum veiðiferðum, hvort heldur sem verður á sjó, í Skjálfandafljóti eða við rjúpnaveiðar. Við Rósa sendum öllum ástvinum þínum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þinn Brói í Seli. Valdimar Bragason. Mig langar í nokkrum orðum til þess að minnast vinar míns, hans Nóra, sem nú er fallinn frá. Við Nóri kynntust fyrir mörgum árum þegar ég var að moka á bíla hjá Vegagerðinni og hann var vörubílstjóri. Leiðir okkar lágu saman sumar eftir sumar í vegavinnu allt fram á níunda áratug síðustu aldar en í starfi mínu sem vegavinnuverk- stjóri reyndist Nóri mér afar vel. Hann var mjög vakandi í vinnunni og vildi að allt gengi sem allra best. Hann var sér- lega naskur á að sjá hvað betur mætti fara og benda á það á föðurlegan hátt og án nokkurs ofsa. Nóra var treystandi til þess að skila verkefnunum vel af sér og þess vegna fékk ég hann iðulega til þess að bæta í dældir sem vildu koma í burð- arlagið en hann var ótrúlega flinkur að reikna nákvæmlega út hvar hlassið átti að fara. Ná- kvæmni Nóra var ótrúleg. Hann var t.d. alltaf með fjölda ferða hjá öllum hinum vörubílunum á hreinu, jafnvel þótt það væru 15 bílar að aka. Á kvöldin þegar verið var að ræða daginn inni í skúr og yfirfara kílómetrafjölda leiðrétti Nóri menn gjarnan og sagði: „Nei þetta er ekki rétt, hann fór einni ferð meira (eða minna).“ Hann vildi alltaf að rétt væri rétt. Nóri var með góðan húmor og var svo sann- arlega vinur vina sinna. Gerði maður honum einhvern greiða og ætlaðist ekki til neins á móti átti hann það til að marglauna viðvikið. Ég aðstoðaði hann t.d. eitthvað við bílaviðgerðir og í mörg ár færði hann mér alltaf hangikjötslæri fyrir jólin að launum. Mér eru sjóferðir okk- ar minnisstæðar en Nóri var mikill veiðimaður. Þótt ekkert aflaðist var ómögulegt að ná honum í land fyrr en fullreynt var að ekkert væri að hafa. Eins eru mér heimsóknirnar í Borg- artún minnisstæðar en það var alltaf gott að koma til þeirra Nóra og Maríu og vel tekið á móti mér jafnt á nóttu sem degi. Um leið og ég kveð ljúfan dreng votta ég aðstandendum samúð mína. Takk fyrir samfylgdina vinur. Ingi Ragnar Sigurbjörnsson. Þar sem ég sit á veröndinni í Landamótsseli í blíðunni sem er þessa dagana og hugsa til Nóra, Arnórs Benediktssonar, fer margt í gegnum hugann. Hann sem hafði haft þetta útsýni fyrir augum sér frá því að hann var 14 ára drengur flutti með fjöl- skyldu sinni í Landamótssel úr Barnafelli austan í Kinnarfell- inu, sem var frekar afskekkt býli. Hann kenndi mér að meta þetta útsýni. Hvað Fljótsheiðin væri sérkennilega slétt að ofan, nærri bein lína alla leiðina sem sést, hve fjöllin að baki hennar væru falleg, hvernig glampaði á Skjálfandafljótið suður Bárðar- dalinn og hvernig gufaði upp af Goðafossinum í kyrrðinni á kvöldin. Nóri unni sveitinni sinni enda hafði hann lifað þar og starfað nær alla sína ævi. Þar reisti hann býlið sitt, Borg- artún, úr hluta af Landamóts- seli. Hann var með búskap en stundaði aðra vinnu líka. Nóri var mjólkurbílstjóri í mörg ár, síðar skólabílstjóri meðan hann mátti og stundaði vörubílaakst- ur, lengst af í vegagerð. Síðustu árin þegar Nóri var orðinn einn heima í Borgartúni stytti hann sér iðulega stund- irnar með því að sitja við eld- húsgluggann eða úti á tröppum og horfa yfir sveitina. Fylgjast með umferðinni, búskapnum í nágrenninu, hvort lömbin í Seli tylldu á sléttunni fyrir neðan veg á haustin, hvenær Tolli kæmi heim úr skólanum og áður fylgdist hann og Mæja hans líka með „stelpunum“ í Seli þegar þær voru að koma eða fara í skóla og vinnu. Þeim stelpun- um, dætrum mínum, fannst gott að koma við í Borgartúni alla tíð. Þegar tíminn leið og „stelp- urnar“ eignuðust börn fylgdist hann líka með þeim. Til dæmis hvernig Erlingi gengi á skelli- nöðrunni þegar hann fékk sér sprett niður á veg þegar stund var frá sauðburði. Elli kom við hjá Nóra í hverri ferð og þeir ræddu hvernig sauðburðurinn gengi og ekki síður ræddu þeir um veiði, sem var áhugamál þeirra beggja. Nóri fylgdist líka með mér fara um heimreiðina. Ef ég slysaðist til að festa mig eða jafnvel lenda út af í svellum var hann fljótur að koma og hjálpa mér – best að drífa í því strax svo ekki yrði vesen vegna óhappsins. Nóri var okkur í Landamóts- seli afar traustur og góður vinur og frændi. Það má segja að hann hafi gengið stelpunum okkar í afastað eftir að Bragi afi þeirra í Landamótsseli lést og við Þórhallur og stelpurnar fluttum í Landamótssel, nú eru liðin 30 ár. Það var alla tíð gott og náið samband með þeim frændum Nóra og Þórhalli og við söknuðum Nóra þegar hann fór á Sjúkrahúsið á Húsavík fyrir u.þ.b. fjórum árum. Þá var líkaminn farinn að gefa sig en andlegri heilsu og góðu minni hélt Nóri allt til enda. Nóri undi hag sínum vel á Sjúkrahúsinu og ræddi oft um hvað allir væru sér góðir þar. Hann og Arngrímur Konráðs- son héldu hvor öðrum fé- lagsskap sem stytti þeim stund- ir og var Nóra afar mikils virði. Sveitungarnir voru duglegir að heimsækja hann og mat hann það mikils sem og heimsóknir fólksins síns. Snemma í sumar veiktist Nóri og leit illa út um tíma að hann kæmist aftur til heilsu. Þegar Þórhallur frændi hans heimsótti hann í þessum veik- indum sagði Nóri að hann myndi nú hafa þetta af en hann væri ekki viss um að hann myndi lifa næsta sumar. Jafn- fram sagði hann að það væri gott að deyja á haustin. Nóri varð bráðkvaddur á afmæli Indriða, elsta sonar síns. Ég trúi því að hann hafi kvatt á þann hátt sem hann vildi sjálf- ur. Ég kveð Arnór Benediktsson með þakklæti fyrir allt það sem hann var mér og mínum. Helga A. Erlingsdóttir. Það er stundum sagt að aug- un séu spegill sálarinnar. Brúnu augun hans Nóra voru full af glettni en þau voru líka full af mildi. Nóri var einn þessara manna sem auðga mannlífið og gefa því lit. Hann var enginn flathyggju- maður heldur kom hann til dyr- anna eins og hann var klæddur og sagði skoðanir sínar á mönn- um og málefnum möglunarlaust. Hann tjáði sig með þeim hætti að því gleymdi enginn sem á hlýddi. Tungutak hans var ein- stakt, litbrigði málsins engu lík og allt var það sett í spaugilegt en jafnframt góðlátlegt sam- hengi. Allir fengu sinn skerf, enginn undanskilinn, allir jafnir fyrir dómstóli Nóra. Árum saman hafði Nóri það fyrir sið að koma í sturtu í Stórutjarnaskóla. Þar er vítt til veggja og ágæt aðstaða til böð- unar. Á síðari árum kom það í hlut skólastjórans að sjá til þess að Nóri kæmist í sitt vikulega bað eftir hádegi hvern laugar- dag yfir vetrarmánuðina. Það varð einhvern veginn svo sjálf- sagt, Nóri var þannig persóna. Mann langaði til að gera honum greiða, mann langaði til að gefa honum kaffisopa og mann lang- aði til að hlusta á hann segja sögur úr sveitinni. Frásagnir Nóra voru nefnilega hljómkviða, tónlist og myndasýning. Hug- myndaflugið, orðin, nýyrðin, hljómur raddar og orða, glettn- in í augunum, allt gerði það stundirnar með Nóra að upp- lifun. Upplifun sem auðgaði til- veruna. Nú síðustu árin dvöldu þeir samtímis á Skógarbrekku, öldr- unardeild heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, faðir minn og Nóri. Þeir höfðu ekki þekkst mikið fram að þeim tíma. Þó má segja að það hafi verið Nóri sem réði því að faðir minn var vistaður á þessari deild en ekki á elliheim- ilinu Hvammi. Nóri hafði þá fyrir nokkru gerst vistmaður á öldrunardeildinni og sagði okk- ur að þarna væri alveg einstak- lega gott að vera og svo vantaði hann tilfinnanlega einhvern til að tala við, því þarna væru „flestir alveg út úr heiminum, lítt‘á“, eins og hann orðaði það. Og það varð úr, faðir minn fékk herbergi á öldrunardeildinni og þar kviknaði milli þessara tveggja gömlu manna einhver sú sannasta vinátta sem ég hef orðið vitni að hjá eldra fólki. Alla daga mætti faðir minn í herbergi Nóra og sat þar í sín- um hægindastól daglangt. Þarna ræddu þeir ekki síst gamlar sögur úr Kinninni og ekki spillti fyrir þegar Aðalgeir frá Finnstöðum bættist í hópinn og fyllti í eyður. Litríkar frá- sagnir, meinlegar athugasemd- ir. Þetta voru sannkallaðar gæðastundir. Þeir félagar urðu einskonar teymi á öldrunar- deildinni. Þeir höfðu stuðning hvor af öðrum og það var eins og hvorugur mætti af hinum sjá. Þeir voru samtaka í að grín- ast við starfsfólkið og „halda uppi fjörinu“ og mættu undan- tekningarlaust hlýju og um- hyggju allra. Fyrir það er sann- arlega ástæða til að þakka. Nú er annar horfinn á brautu, hinn saknar vinar í stað. Það fór svo mikið þegar Nóri fór. Samt svo ásættanlegt, 94 ára, hljóð brottför, fullkomlega skýr allt til loka. Arngrímur þakkar ómetan- legar samvistir á Skógarbrekku og Tolla, Óli og Þórarna þakka allar gæðastundirnar. Guð blessi minningu Nóra í Borg- artúni. Ólafur Arngrímsson. Arnór Benediktsson ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ÓLÖF KJARTANSDÓTTIR, Laufbrekku 20, Kópavogi, lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 24. ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 2. september kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á FAAS eða Hollvinasamtök Droplaugarstaða. Einar Guðmundsson, Elín Einarsdóttir, Guðmundur Einarsson, Anna Karlsdóttir, Kjartan Einarsson, Claudia Spagnol, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÚNAR JÓHANNESDÓTTUR sjúkraliða, og föður okkar, tengdaföður og afa, GEIRS RUNÓLFSSONAR bankastarfsmanns. Starfsfólk hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar og Landakotsspítala, deild L-4, fær bestu þakkir fyrir góða umönnun. F.h. fjölskyldna, Björg J. Snorradóttir, Arndís Snorradóttir, Sævar Þór Geirsson, Gylfi Sigurður Geirsson, Jóhanna Elka Geirsdóttir, Ingibjörg Guðrún Geirsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.