Morgunblaðið - 29.08.2014, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.08.2014, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2014 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég hef unnið við myndlist allt mitt líf, en þetta er fyrsta sýningin mín sem sýningarstjóri,“ segir Helga Þórsdóttir, sýningarstjóri haustsýn- ingar Hafnarborgar sem nefnist Rás og verður opnuð í kvöld kl. 20. Á sýn- ingunni eru ný verk eftir myndlist- armennina Daníel Magnússon, Guð- rúnu Hrönn Ragnarsdóttur, Ívar Brynjólfsson, Ívar Valgarðsson, Sól- veigu Aðalsteinsdóttur og Þóru Sig- urðardóttur. Rás er fjórða sýningin í haustsýn- ingaröð Hafnarborgar þar sem hug- mynd sýningarstjóra er valin úr inn- sendum tillögum. Samkvæmt upplýsingum frá safninu vilja stjórn- endur Hafnarborgar með haustsýn- ingaröðinni skapa farveg fyrir áhuga- verðar hugmyndir og vera vettvangur þar sem myndlist fær not- ið sín mótuð af fjölbreyttum við- horfum og viðfangsefnum. Í samtali við Morgunblaðið segir Helga að á sýningunni sé teflt saman verkum áhugaverðra listamanna sem þekktir eru fyrir að gera huglægri reynslu efnisleg skil á áhrifaríkan hátt. „Markmiðið með stefnumóti þessara listamanna er þó ekki síst að varpa ljósi á samtímalistsköpun sem afl umbreytinga og farveg fyrir nýjar hugsanir og hugmyndir. Á sýning- unni birtist sjónarhorn listamannana á innri og ytri veruleika um leið og verkin spegla samtímann í von um að hreyfa við áhorfandanum,“ segir Helga og bendir á að listamennirnir sem þátt taki í sýningunni hafi í gegn- um tíðina hvert og eitt þróað og mót- að persónulega fagurfræði sem er í senn auðþekkjanleg, fínleg og kraft- mikil. „Ég raða sýningunni upp þann- ig að verkin eru í sífelldu samtali sín á milli.“ Vildi koma að orðræðunni Eins og fyrr segir er Rás fyrsta sýning Helgu sem sýningarstjóra, en hún lauk meistaranámi í menning- arfræðum frá Háskóla Íslands og Há- skólanum á Bifröst árið 2012 og hafði áður lokið námi í innanhúss- arkitektúr og myndlist. Sem mynd- listarmaður hefur Helga haldið og tekið þátt í fjölda sýninga og einnig komið að textaskrifum um myndlist. „Ég fór í menningarfræði vegna þess að mig langaði til að fjalla um myndlist, ekki síst vegna þess að mér finnst ekki alltaf rétta fólkið eiga sviðið í orðræðunni um myndlist. Það var því djúp og einlæg þörf hjá mér að koma að orðræðunni með ein- hverjum hætti.“ Aðspurð segir Helga vinnuferlið við gerð Rásar hafa verið sér afar lærdómsríkt og að hún hafi lært mjög mikið af Ólöfu K. Sigurð- ardóttur, forstöðumanni Hafn- arborgar, hvað viðkemur allri skipu- lags- og undirbúningsvinnu. Þess má að lokum geta að á sýning- artímabilinu verður boðið upp á leið- sagnir með þátttöku listamannanna, þá fyrstu sunnudaginn 31. ágúst kl. 15 en þá mun Guðrún Hrönn Ragn- arsdóttir ræða við gesti um verk sín á sýningunni. Jafnframt verður efnt til málþings um fegurð laugardaginn 4. október, með þátttöku Aðalheiðar L. Guðmundsdóttur fagstjóra listfræði við Listaháskóla Íslands, og Gunnars Harðarsonar prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Morgunblaðið/Styrmir Kári Spegill „Verkin spegla samtímann í von um að hreyfa við áhorfandanum,“ segir Helga Þórsdóttir sýningarstjóri. „Samtímalistsköpun sem afl umbreytinga“  Haustsýning Hafnarborgar, Rás, verður opnuð í kvöld Morgunblaðið/Styrmir Kári Haustsýning Rás er fjórða sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr innsendum tillögum. ★★★★ – SGV, Mblamlet Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Róðarí (Aðalsalur) Þri 16/9 kl. 20:00 Sun 28/9 kl. 20:00 Mið 24/9 kl. 20:00 Lau 4/10 kl. 20:00 LÓKAL (Aðalsalur) Fös 29/8 kl. 19:00 Lau 30/8 kl. 19:00 Fös 29/8 kl. 21:00 Lau 30/8 kl. 21:00 Trúðleikur (Aðalsalur) Sun 7/9 kl. 14:00 Sun 21/9 kl. 14:00 Sun 14/9 kl. 14:00 Sun 28/9 kl. 14:00 Kameljón (Aðalsalur) Lau 6/9 kl. 20:00 Sun 21/9 kl. 20:00 Sun 5/10 kl. 20:00 Fös 12/9 kl. 20:00 Lau 27/9 kl. 20:00 Petra (Aðalsalur) Fös 29/8 kl. 19:00 Fös 5/9 kl. 20:00 Lau 30/8 kl. 19:00 Fim 11/9 kl. 20:00 –– Meira fyrir lesendur Börn & uppeldi Meðal efnis: uppeldi, tómstundir, fatnaður o.fl. Föstudaginn 5. september gefur Morgunblaðið út glæsilegt sérblað tileinkað börnum og uppeldi frá fæðingu til 12 ára PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 1. september NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 – kata@mbl.is S É R B LA Ð S É R B LA Ð S É R B LA Ð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.