Morgunblaðið - 29.08.2014, Qupperneq 35
ýmis námskeið fyrir sjálfboðaliða
og einnig almenn námskeið eins og
skyndihjálparnámskeið. Eitt verk-
efnið er rekstur á fatabúð. Nú er í
undirbúningi verkefnið Gengið til
góðs, sem verður laugardaginn 6.
september, og við erum byrjuð að
kynna það og auglýsa. Annað hvert
ár skorum við á landsmenn að
ganga til góðs í heimahús til að
safna áheitum og nú í fyrsta sinn
verður safnað fyrir innanlands-
verkefnum.“
Alltaf verið mikið í íþróttum
Hafsteinn lék fótbolta með
Leiftri Ólafsfirði og KA í efstu
deild. „Það var sterkur kjarni í okk-
ar árgangi, en okkur tókst að fara
úr fjórðu deild í þá efstu. Svo fór ég
í KA og spilaði með því 1990-1993.“
Hafsteinn spilaði einnig blak með
KA, varð Íslandsmeistari með fé-
laginu og spilaði Evrópuleiki með
félaginu bæði í blaki og fótbolta.
Hann keppti einnig á Smáþjóðaleik-
unum í blaki. „Mér finnst þó ekki
síður eftirminnilegir leikirnir í
fjórðu deild frammi í sveitum, þetta
var allt ævintýri út í gegn.
Ég keppti líka á skíðum alla
æsku til 16 ára aldurs. Íþróttir hafa
sem sagt allt frá bernsku skipað
stóran sess í mínu lífi. Í seinni tíð
hef ég verið mikið í golfi, en ég
dútlaði aðeins við það þegar ég var
yngri, og svo almenn heilsurækt, en
fjölskyldan er öll nokkuð dugleg við
að hreyfa sig. Í dag fær keppnis-
andinn helst að svífa laus af hliðar-
línunni þegar fylgst er með son-
unum í sínum íþróttum. Svo hef ég
einnig gaman af ljósmyndun og
ýmiss konar dundi.
Í tilefni af afmælinu höfum við
hjónin boðið vinum og vandamönn-
um að bregða á leik með okkur. Við
ætlum að halda smá teiti í kvöld og
svo verður hjólreiðatúr á morgun
og farið í leiki í Kjarnaskógi. Það
verður boð með fjölskyldunni annað
kvöld og svo verður golfmót á
sunnudag. Þetta er okkar stíll, að
leika okkur í íþróttum og útivist.
Svo verður heitt á könnunni í
vinnunni í dag.“
Fjölskylda
Eiginkona Hafsteins er Birgitta
Guðjónsdóttir, f. 3.10. 1964, íþrótta-
kennari í Lundarskóla. Foreldrar
hennar: Guðjón S. Öfjörð, f. 18.9.
1929, d. 29.3. 1994, rennismiður á
Eyrarbakka, og Fanney G.
Magnúsdóttir, f. 24.9. 1930, d. 10.3.
1996, húsmóðir á Eyrarbakka.
Börn Hafsteins og Birgittu eru
Jakob Hafsteinsson, f. 23.5. 1992,
nemi á Akureyri, Fannar Haf-
steinsson, f. 30.6. 1995, nemi á Ak-
ureyri, og Daníel Hafsteinsson, f.
12.11. 1999, nemi á Akureyri.
Systkini Hafsteins eru Sigur-
björn Jakobsson, f. 12.8. 1963, skrif-
stofumaður í Reykjavík, og Ruth
Jakobsdóttir, f. 28.10. 1972, hús-
móðir í Ólafsfirði.
Foreldrar Hafsteins: Jakob
Ágústsson, f. 12.11. 1926, d. 8.1.
2012, rafveitustjóri í Ólafsfirði, og
Álfheiður Jónasdóttir, f. 22.11.
1931, d. 5.12. 2011, húsfreyja í
Ólafsfirði. Blóðforeldrar Hafsteins:
Erlendur Björgvinsson, f. 4.7. 1924,
d. 27.12. 2010, bóndi, bílstjóri og
verkamaður í Fellsási í Breiðdal, S-
Múl., og Sigríður Matthíasdóttir, f.
22.3. 1942, bús. á Egilsstöðum.
Úr frændgarði Hafsteins S. Jakobssonar
Hafsteinn S.
Jakobsson
Sigríður Ásta Bachmann Sigurðardóttir
húsfreyja á Patreksfirði
Jón Markússon
símstöðvarstjóri á Patreksfirði
Ruth Jónsdóttir
húsfreyja á Patreksfirði
Jónas Magnússon
skólastjóri, síðar sparisjóðs-
stjóri á Patreksfirði
Álfheiður Jónasdóttir
húsmóðir í Ólafsfirði
Sigurður Jónasson
sparisjóðsstjóri á
Patreksfirði
Jónas Sigurðsson
lögregluvarðstjóri
á Patreksfirði
Svanhildur Jóhannsdóttir
húsfreyja í Tungu í Örlygshöfn
Magnús Árnason
bóndi á Hnjóti í Örlygshöfn
Arndís Pétursdóttir Eggerz
húsfreyja
Páll Ólafsson
þingmaður og prófastur á
Ströndum og í N-Ísafjarðarsýslu
Jakobína Pálsdóttir
húsfreyja á Bíldudal
Ágúst Sigurðsson
kaupmaður á Bíldudal
Jakob Ágústsson
rafveitustjóri í Ólafsfirði
Hjálmar Ágústsson
fiskmatsmaður á Bíldudal
Jakob Ágúst
Hjálmarsson
fv. dómkirkju-
prestur
Guðrún Sigfúsdóttir
húsfreyja á Desjarmýri í
Borgarfirði eystri
Sigurður Árnason
bóndi á Desjarmýri og Hjartarstöðum í Eiðaþinghá
Í Mósambík Hafsteinn með heima-
konum sem rækta kassavarót.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2014
90 ára
Guðmunda Árnadóttir
Þórunn Pálsdóttir
85 ára
Haukur Pálsson
Hildur Jónsdóttir
Ingi Kristinsson
80 ára
Bjarney Jóhanna
Kristjánsdóttir
Ingvi Ágústsson
Jóhanna Hallgrímsdóttir
75 ára
Auður Vésteinsdóttir
Hallgrímur Pálsson
Lea Þórarinsdóttir
Sigrún Baldursdóttir
70 ára
Ágúst Jónsson
Ásgeir Friðsteinsson
Baldur S. Baldursson
Guðmundur Kristinsson
Halldór Friðriksson
Snorri J. Ólafsson
60 ára
Brynhildur Bjarnadóttir
Jón Gústaf Pétursson
Kristín Jensdóttir
Snæbjörn Kristjánsson
Þórir Ísólfsson
50 ára
Ásgeir Vilhjálmsson
Bjarni Bjarnason
Bryndís Kristjánsdóttir
Inga Jóna Friðgeirsdóttir
Ingibjörg Ragnarsdóttir
June Beverley Scholtz
Þorgeir Magnússon
40 ára
Bjarni Þór Bjarnason
Daði Bjarnason
Elín Sigríður
Rafnsdóttir
Guðný Laxdal
Helgadóttir
Hjördís Vala Þórsdóttir
Hrafnhildur Elísabet Olsen
Jóhannes Gísli
Pálmason
Sesselja Woods
Kristinsdóttir
Sólrún Björk
Guðmundsdóttir
Þórunn Lilja Stefánsdóttir
30 ára
Andri Þór Andrésson
Hafrún Brynja Einarsdóttir
Jose Carlos Rus Fernandez
Marios Klaimper
Oddný Björg Jónsdóttir
Sara Hauksdóttir
Þuríður Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Kristín er Seltirn-
ingur og skurðhjúkr-
unarfræðingur á Land-
spítalanum við Hring-
braut.
Maki: Davíð Sverrisson, f.
1968, bílasali á Bíll.is.
Börn: Ragnheiður Fjóla, f.
1998, og Davíð Orri, f.
2002.
Foreldrar: Pétur Orri
Þórðarson, f. 1943, fv.
skólastjóri í Hvassaleitis-
skóla, og Kristín Bernhöft,
f. 1943, fv. flugfreyja.
Kristín Hlín
Pétursdóttir
30 ára Ægir er Keflvík-
ingur en býr í Garði. Hann
rekur ásamt konu sinni
verslunina Líkami og
boost í Keflavík og er
nemi í flugvirkjun.
Maki: Ágústa Guðný
Árnadóttir, f. 1987.
Börn: Arna María, f.
2002, og Ágúst, f. 2005.
Foreldrar: Lárus Árna-
son, f. 1951, d. 2011, rak
verkstæði, og Valborg
Níelsdóttir, f. 1952, hús-
freyja í Reykjanesbæ.
Ægir Þór
Lárusson
30 ára Sæmundur er frá
Gunnarsholti á Rangár-
völlum, en býr í Reykjavík
og er sérfræðingur í
byggkynbótum hjá LbhÍ.
Maki: Vigdís Finnboga-
dóttir, f. 1983, masters-
nemi í náms- og starfs-
ráðgjöf í HÍ.
Börn: Sigurður Ásgeir, f.
2010, og Ólafur Oddur, f.
2013.
Foreldrar: Sveinn Run-
ólfsson, f. 1946, og Oddný
Sæmundsdóttir, f. 1943.
Sæmundur
Sveinsson
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Rannveig Magnúsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í líffræði frá Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið:
Minkur (Neovison vison) á Íslandi:
Fæðuval eftir kyni, búsvæðum, árstíð-
um og árum í ljósi umhverfis- og
stofnstærðarbreytinga (e.American
mink Neovison vison in Iceland: Diet
by sex, habitat, season and years in
the light of changing environment and
population size).
Minkur (Neovison vison) er
tækifærissinnað rándýr, upprunnið í
Norður-Ameríku og á meðal ágeng-
ustu dýrategunda í Evrópu. Fyrsta
minkabúið á Íslandi var sett á lagg-
irnar árið 1931 en minkar sluppu fljót-
lega úr haldi og hafði tegundin numið
flest láglendissvæði á Íslandi árið
1975. Minkastofninn fór vaxandi þang-
að til um 2003 en eftir það minnkaði
stofninn hratt. Markmið þessarar
rannsóknar voru að kanna fæðuval
minks á Íslandi m.t.t. kyns, árstíða og
búsvæða og meta hvort breytingar
hefðu orðið á því á árunum 2001-
2009. Í því skyni var greint magainni-
hald og stöðugar samsætur í vöðva og
beinum minka. Að
auki voru breyt-
ingar á stærð
minkastofnsins og
fæðuvali settar í
samhengi við
loftslagsfyrirbrigði
og breytingar á
stærð refastofns-
ins.
Niðurstöður rannsóknarinnar gefa
sterkar vísbendingar um að breytingar
á loftslagi hafi haft óbein, neikvæð
áhrif á mink í gegnum fæðuframboð.
Sömuleiðis virðist vaxandi fjöldi refa
mögulega hafa haft neikvæð áhrif á
minkastofninn. Þessir þættir gætu í
sameiningu hafa stuðlað að fæðu-
skorti fyrir mink og fækkun í minka-
stofninum frá árinu 2004. Jafnvel
minkurinn, sem er ágengur, ósérhæfð-
ur og með mikla aðlögunarhæfni, virð-
ist við ákveðin skilyrði bregðast nei-
kvætt við afleiðingum loftslags-
breytinga. Þetta vekur ugg um framtíð
margra annarra rándýra sem eiga
undir högg að sækja og eru ekki eins
ósérhæfðar og minkurinn.
Rannveig Magnúsdóttir
Rannveig Magnúsdóttir er fædd árið 1977. Rannveig varð stúdent frá MH og lauk
meistaranámi í líffræði árið 2005 frá Háskóla Íslands í samstarfi við Deakin-
háskóla í Ástralíu. Hún lauk doktorsprófi frá líf og umhverfisvísindadeild HÍ 2013.
Einnig lauk hún kvikmyndagerðarnámi frá Kvikmyndaskóla Íslands árið 2007.
Rannveig starfar núna sem verkefnisstjóri hjá Landvernd og stýrir verkefnum
sem tengjast sjálfbærri ferðamennsku og náttúruvernd á háhitasvæðum, vist-
heimt, loftslagsbreytingum og matarsóun. Foreldrar Rannveigar eru Elín Guð-
mundsdóttir, semballeikari og kennari við Söngskólann í Reykjavík, og Magnús
Jóhannsson, læknir og prófessor emeritus í lyfjafræði við Háskóla Íslands.
Doktor
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Ób
rey
tt ve
rð síðan 2009