Morgunblaðið - 29.08.2014, Page 44

Morgunblaðið - 29.08.2014, Page 44
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 241. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Cristobal ber á Íslendingum 2. „Viðbjóðslegasta sem ég hef séð“ 3. Óróasvæðið breiðir úr sér 4. „Þetta er verra en ég óttaðist“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Ástralska gríntvíeykið Umbilical Brothers, skipað Shane Dundas og David Collins, verður með uppistand í Silfurbergi Hörpu 1. október nk. Um- bilical Brothers hefur notið hylli víða um heim fyrir grínsýningar sínar og eru félagarnir sagðir snúa hversdags- viðburðum og viðteknum leikreglum á hvolf þannig að áhorfendur engist um af hlátri. Sýningin í Hörpu nefnist Don’t Explain og eru tímaritið Time og dagblaðið New York Times meðal þeirra sem hafa lofsungið hana. Umbilical Brothers skemmtir í Hörpu  Raftónlistar- maðurinn Murya, réttu nafni Guð- mundur Ingi Guð- mundsson, gaf í vikunni út breið- skífuna Triplicity. Útgáfufyrirtækið Touched gefur plötuna út og er það sérstakt fyrir þær sakir að allur ágóði af útgáfum þess rennur til Macmillan-rannsóknarsetursins, sem sérhæfir sig í krabbameinsrann- sóknum. Styrkir krabbameins- rannsóknir með plötu  Auglýsing fyrir Al- þjóðlega kvik- myndahátíð í Reykjavík, RIFF, prýðir forsíðu nýj- asta tölublaðs kvik- myndaritsins Var- iety, sem er að þessu sinni helgað kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Aug- lýsing RIFF er í anda Hammer-hryll- ingsmyndanna sígildu og lundinn, tákn hátíðarinnar, heldur grimmi- legur á að líta. Á forsíðu Variety Á laugardag Suðaustlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Dálítil væta fyrir sunnanlands og vestanlands en þurrt að kalla fyrir norðan og austan. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast fyrir norðan. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 3-10 m/s og dálítil væta með köflum en þurrt norðanlands. Hiti 10 til 20 stig að deginum, hlýjast í inn- sveitum fyrir norðan. VEÐUR Stjörnumenn sáu aldrei til sólar þegar þeir mættu ítalska knattspyrnuliðinu Inter á San Siro-leikvang- inum í Mílanó í gærkvöld í síðari leik liðanna í 4. um- ferð Evrópudeildarinnar. Inter burstaði Garðbæinga 6:0 og vann einvígi liðanna þar með samanlagt 9:0 og kemst þar með örugglega áfram í riðlakeppni Evrópu- deildarinnar, en dregið er í riðla í keppninni í dag. »3 Stjarnan steinlá í Mílanó fyrir Inter Ronaldo og Kessler valin best í Evrópu Hannes Sigurbjörn Jónsson, for- maður Körfuknattleikssambands Ís- lands og stjórnarmaður í FIBA- Europe, er einn af 23 sem kjósa um það hinn 8. september hvar Evrópu– keppni karla í körfubolta í september á næsta ári verður haldin. Átta lönd sóttust eftir því að halda EM eftir að keppnin var tekin af Úkraínu vegna ástandsins þar í landi. »2 Hannes einn þeirra sem ákveða hvar EM verður ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Við vorum bara ánægðir með að fá að spila landsleik,“ segir Jón Ey- steinsson, sem var í fyrsta landslið- inu sem mætti Dönum í Kaup- mannahöfn 16. maí 1959 og starfaði lengi fyrir körfuboltahreyfinguna, bæði sem dómari og fararstjóri. Um 55 árum síðar hefur íslenska landsliðið tryggt sér sæti í loka- keppni Evrópumótsins í fyrsta sinn. Jón segir að landsliðsmenn á árum áður hafi aldrei hugsað svo langt. Gunnar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsmaður úr KR, sem lék með- al annars fyrsta landsleikinn í körfu- bolta sem fram fór á Íslandi, á móti Pólverjum í Laugardalshöll 1966, og er manna fróðastur um sögu ís- lensks körfuknattleiks, tekur í sama streng. „Við höfum í raun aldrei látið okkur dreyma um að komast í úr- slitakeppni,“ segir hann. „Við vorum yfirleitt í þriðja sæti á Norðurlanda- mótinu og vorum mjög ánægðir með það.“ Birgir Örn Birgis var yngsti leik- maðurinn í fyrsta landsliðinu, 16 ára eins og Þorsteinn Hallgrímsson. Birgir Örn var með stærri mönnum, rúmlega 190 cm, og lék með landslið- inu í um tvo áratugi, skoraði meðal annars fyrstu landsliðskörfu Íslands á heimavelli. „Mesta spennan var um hvort við ungu mennirnir yrðum valdir eða eldri og reyndari menn,“ segir miðherjinn fyrrverandi. „Það var töluvert skrifað um þetta í blöð- unum og maður fór gjarnan niður í Aðalstræti um miðnætti til að sjá hvað Mogginn skrifaði.“ Leikmenn borguðu kostnaðinn Leikmenn í fyrsta landsliðinu fengu bréf þess efnis að þeir hefðu verið valdir í liðið. Þeir þurftu að leggja fram 1.500 kr. hver upp í kostnað við ferðina en fengu á móti 150 happdrættismiða sem þeir gátu selt á 10 kr. stykkið. „Kostnaðurinn lenti því á okkur eða fjölskyldum okkar sem keyptu miðana,“ rifjar Jón Eysteinsson upp og bætir við að ákveðinn kjarni hafi mætt á leiki fé- lagsliðanna og fyrstu landsleikina. „Það er ekki hægt að líkja því við stemninguna núna. Ég hoppaði af gleði yfir árangrinum og þakkaði strákunum fyrir á fésbókinni.“ Gunnar Gunnarsson tekur undir með Jóni. „Ég átti ekki von á að ég ætti eftir að upplifa annað eins.“ Dreymdi ekki um úrslitamót  Fyrsti landsleikurinn í körfubolta fór fram í Danmörku fyrir 55 árum Fyrsta íslenska landsliðið í körfuknattleik karla Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Georgsson, formaður landsliðsnefndar, Kristinn V. Jóhannsson ÍS, Ingi Gunnarsson ÍKF, fyrirliði, Bogi Þorsteinsson fararstjóri, Ásgeir Guðmundsson þjálfari, Guðmundur Árnason KFR, Friðrik Bjarnason ÍKF og Ingólfur Örnólfsson flokksstjóri. Fremri röð frá vinstri: Þórir Arinbjarnarson ÍS, Ólafur Thorlacius KFR, Birgir Örn Birgis Ármanni, Ingi Þorsteinsson KFR, Guðni Ó. Guðnason ÍS, Þorsteinn Hallgrímsson ÍR og Lárus Lárusson Ármanni. Jón Eysteinsson úr ÍS var farinn af æfingunni þegar myndin var tekin. „Ég gleymi aldr- ei fyrsta leikn- um, hann var stórkostleg upplifun,“ segir Jón Eysteinsson um landsleikinn á móti Dönum 1959, sem tap- aðist 41:38. „Þetta var í fyrsta sinn sem við fórum eitthvert, en við vorum reynslulausir og eitthvað tauga- spenntir,“ bætir hann við. Stórkostleg upplifun JÓN EYSTEINSSON Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Real Madríd og þýska knattspyrnukonan Nadine Kessler, leikmaður Wolfsburg, voru í gær útnefnd besta knattspyrnufólk Evrópu tímabilið 2013-2014 af Sam- tökum evrópskra íþróttafjölmiðla í samvinnu við UEFA. »1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.