Morgunblaðið - 14.06.2014, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2014
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Illa lítur út með lundavarpið í ár í Vestmanna-
eyjum. Lundarnir verptu óvenjulega seint og
margir hafa líklega yfirgefið hreiðrin sín. Erpur
Snær Hansen, líffræðingur
hjá Náttúrustofu Suður-
lands, óttast að fáir ungar
komist á legg. „Lundinn hef-
ur ekki verið svona seinn í
varpi síðan Óskar í Stór-
höfða hóf að taka saman
komu lundans og varp árið
1952. Komutími lundans er
yfirleitt í kringum miðjan
apríl en í ár kom hann í byrj-
un maí og það hefur aldrei
gerst áður,“ segir Erpur
Snær, en það gefi merki um að hlutirnir séu
ekki eðlilegir.
Nýverið var skoðað í 108 lundaholur í Stór-
höfða og kom í ljós að aðeins var búið að verpa í
34% þeirra, sem er ansi dapurt að sögn Erps
Snæs, og enn verra er að lundinn liggur ekki á
nema í 38% af þeim. „Þetta lága hlutfall segir
okkur að lundinn sé líklega byrjaður að afrækja
eggin,“ segir Erpur Snær. „Sá möguleiki er fyr-
ir hendi að þeir séu ekki fullorpnir en það er lík-
legra, miðað við reynslu fyrri ára, að þeir séu
frekar hættir við varpið en að þeir eigi eftir að
bæta við það.“
Enginn grundvöllur fyrir ungaeldi
Fæðuskortur er líklegasta skýringin á lé-
legu lundavarpi. „Þetta er enn eitt árið þar sem
er algjör fæðuskortur við Eyjar. Það kom smá
skot í stofninn 2012 sem byggðist á rauðu sæ-
veslu en það virðist ekkert slíkt á sveimi hér nú
og þá er enginn grundvöllur fyrir ungaeldi.
Fullorðnu fuglarnir mega þakka fyrir að hafa
það af hérna. Það er algjör sílaskortur og ekk-
ert annað sem þeir komast í.“
Miklar makríltorfur eru nú við landið og er
því haldið fram að makríllinn éti upp ætið frá
fuglinum. Erpur Snær segir makrílinn valda
mikilli samkeppni um fæðuna en vísbendingar
hafi verið uppi um að sandsílið hafi verið byrjað
að gefa eftir áður en makríllinn kom í miklu
magni. „Sem er vísbending um að hann sé ekki
beinn sökudólgur þó að hann sé örugglega ekki
að hjálpa til,“ segir Erpur Snær. „Við ljós-
myndum sílabera, fullorðna fugla sem eru að
koma með fæðu í ungana, og greinum hvað þeir
eru með í gogginum. Út frá því hefur komið í
ljós að það er mjög lítið um sílabera sunnan- og
vestanlands en það var smá skot í fyrra í Papey
og á Ingólfshöfða sem byggðist á loðnu. Góð-
ærinu hjá lundanum norðanlands nú er haldið
uppi af sandsíli, sem er athyglisvert því að loðn-
an var meginfæða sjófugla þar fram til 1996.“
Tólf slæm ár í röð fyrir lundann
Erpur Snær veit ekki hvernig lundavarpið
stendur annars staðar á landinu en fer af stað í
næstu viku til að athuga það. „Okkur grunar að
lundavarpið sé heldur ekki í lagi í Faxaflóa og
Breiðafirði. Við ætlum að setja upp sjálfvirkar
myndavélar núna í öllum vörpunum svo við
sjáum hvað er á seyði á milli heimsókna okkar.“
Staða lundastofnsins hefur verið mjög
slæm síðustu ellefu ár og allt lítur út fyrir að
2014 verði tólfta árið þar sem fáir ungar komist
á legg. „Það vantar orðið allan ungfugl í stofn-
inn sunnan- og vestanlands. Það eru nánast að-
eins varpfuglar eftir og þeim fækkar um 10% á
ári,“ segir Erpur Snær. 75% af lundastofninum
hefur verpt sunnan- og vestanlands en Erpur
Snær spáir því að þungamiðjan í varpinu færist
norður fyrir land á næstu árum, þar sem sílið
lifir enn.
Óttast að fáir lundar komist á legg
Lundarnir verptu óvenjulega seint í ár í Eyjum Aðeins verpt í 34% lundahola af 108 í Stórhöfða
og legið á í 38% þeirra Lundinn hefur líklega yfirgefið hreiðrin Miklum fæðuskorti um að kenna
Morgunblaðið/Eggert
Lundar Fækkar hratt í stofninum við Eyjar.
Erpur Snær
Hansen