Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hvernig getumviðbættmenntunbarnanna okkar? Illugi Gunnarsson,mennta- ogmenningarmála- ráðherra stendur fyrir opnum fundumum umbætur í menntun og hvernig við getummeðal annars bætt læsi og námsframvindu. Mánudaginn 1. september í Landnámssetrinu í Borgarnesi kl. 17.00 og í VitakaffiáAkranesi klukkan 20.00 Fundirnir eru öllum opnir. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tæplega 40 útköll vegna vatns- tjóns í íbúðum í óveðrinu sem gekk yfir landið í gærmorgun og fyrra- nótt. Þá voru iðnaðarmenn víða kallaðir til aðstoðar. Flest voru út- köllin í Túnahverfi í Reykjavík og þurfti slökkviliðið meðal annars að sinna útköllum vegna vatnstjóns í Hátúni 1, 3, 5, 7, 9, og 11. Guðrún Gunnarsdóttir, eigandi að Hátúni 7, var vakin af leigjanda í fyrrinótt þegar vatnselgurinn í íbúð hennar var um 40 sm hár. „Kettirnir vöktu leigjandann sem óð í vatninu og vakti mig,“ segir Guðrún. Laufblöðin stífla Þá sinnti slökkviliðið m.a. útkalli í Breiðagerðisskóla í Gerðunum þar sem vatn hafði flætt um alla ganga. Hjá bilanavakt Orkuveitunnar fengust þær upplýsingar að flest niðurföllin væru stífluð af laufi. „Við höfum fengið svona hvell áður, en ég veit ekki hvort það varð svona mikill vatnselgur. Niðurföllin réðu ekki við þetta. Kerfið í heild sinni ræður ekki við það þegar svona mikið úrhelli er auk þess sem sjávarstaðan er há og stór- streymt,“ segir Þórður Bogason, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höf- uðborgarsvæðinu. Reykjavíkur- borg, Orkuveitan og slökkviliðið unnu sameiginlega að því að dæla upp vatni á höfuðborgarsvæðinu. Óviðunandi leki á Landspítalanum Dropar féllu á gólf á Landspít- alanum við Hringbraut. Vatnið lak inn á gang spítalans þar sem sjúkrabílar koma að. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum lak þak hússins. Þakið er steypt og er dúkurinn upprunalegur. Ingólfur Þórisson, yfirmaður fasteigna á Landspítalanum, segir dúkinn vera löngu farinn að gefa sig. Ítrekað hafi rigningarvatn lek- ið inn. Reynt hefur verið að þétta þakið á síðustu árum en illa gengið að koma í veg fyrir leka. Kostnaður við að skipta um dúk er um 40 milljónir króna. Ingólfur segir ástandið óviðun- andi þótt vatnslekinn hafi ekki áhrif á starfsemi spítalans með beinum hætti. Hvellurinn kerfinu ofviða  Slökkviliðið í á fjórða tug útkalla vegna vatnstjóns í óveðrinu  Leki vegna ónýts dúks á Landspítalanum  40 sentimetra vatnselgur í íbúð í Hátúni Morgunblaðið/Golli Hátún Guðrún Gunnarsdóttir, íbúi í Hátúni 7, var ein þeirra íbúa í Hátúni 1-11 sem aðstoða þurfti vegna vatnstjóns. Vatnshæðin á heimili Guðrúnar náði 40 sentimetrum áður en slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kom til aðstoðar. Breiðagerðisskóli Nokkurt vatnstjón varð í Breiðagerðisskóla í Reykjavík þegar vatn kom upp úr niðurföllum og flæddi um ganga skólans. Vatnselgur Niðurföll stífluðuðst víða og mikið vatn safnaðist fyrir á götum úti. Helst er það lauf sem stíflar niðurföll í fyrstu haustlægð ársins Siglingar ferj- unnar Baldurs, sem siglir milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey, falla nið- ur frá og með 6. september Keypt var ný og betri ferja fyrir stuttu frá Noregi til að leysa Baldur af hólmi en forsvarsmenn Sæferða, fyrirtækisins sem gerir ferjuna út, segja að ekki hafi enn fengist inn- flutningsleyfi fyrir nýja skipið. Í tilkynningu frá Sæferðum seg- ir að siglingayfirvöld beri fyrir sig óljósar hindranir á innflutningi skipsins. Óskað hafi verið eftir úr- skurði innanríkisráðuneytis í mál- inu en ljóst sé að þessi töf muni valda því að ekki takist að koma norsku ferjunni í áætlun á til- settum tíma. Vonir standi þó til að hún verði komin í áætlunarsigl- ingar á Breiðafirði um miðjan september. Baldur til Eyja Gamli Baldur hefur verið leigð- ur til að leysa Vestmannaeyjaferj- una Herjólf af í þrjár til fjórar vikur frá og með 6. september. Páll Kr. Pálsson, stjórnarformað- ur Sæferða, vildi ekki tjá sig um málið umfram það sem kemur fram í tilkynningunni en sagðist þó vonast til að málið leystist í næstu viku. Vegna óveðursins í gær komst Herjólfur ekki í Landeyjahöfn en sigldi þess í stað til Þorlákshafnar. stefania@mbl.is Ný ferja ekki komin með leyfi  Ferðir falla niður frá 6. september Páll Kr. Pálsson Björgunarsveitir Slysavarna- félagsins Landsbjargar sinntu útköllum víða á landsbyggðinni í fyrstu hressilegu haustlægð- inni. Fyrsta útkallið var í Grinda- vík klukkan fjögur í fyrrinótt en flest útköllin voru undir morg- un. Björgunarsveitir voru kall- aðar út í Reykjanesbæ, á Eyrar- bakka og í Eyjafirði. „Tjón var yfirleitt smávægilegt. Þetta voru laus trampólín, fiskikör og aðrir smáir hlutir. Það voru eng- in útköll eftir hádegið,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Lands- björg. Á facebooksíðu Neyðarlín- unnar kom fram að heildarfjöldi útkalla hefði verið 324 á dag- vaktinni. „Stór hluti af þessu eru óveðurs- og vatnstjónsmál sem slökkvilið og björgunar- sveitir hafa sinnt. Það hefur því verið nóg að gera hjá viðbragðs- aðilum í dag,“ segir í tilkynning- unni. Mikið um útköll HRESSILEG HAUSTLÆGÐ Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Í kvöld rennur út heimild sýslu- manna til að fresta nauðungarsölum að beiðni gerðarþola. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mun því leggja fram á fyrstu dögum þingsins frumvarp um breytingar á nauðungarsölulögum, þar sem gert er ráð fyrir að nauðungarsölum verði frestað áfram til 1. mars árið 2015 meðan vinnsla umsókna um höfuð- stólslækkun húsnæðislána stendur yfir. Vill tryggja að fólk hafi ráðrúm Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra segir að tryggja þurfi að fólk geti nýtt sér þá kosti sem í boði eru. „Okkur finnst mikilvægt að tryggja að þeir sem hafa staðið á erfiðum stað, eins og þeir sem hafa verið að horfa upp á hugsanlega nauðungarsölu, nái að fara vel og vandlega yfir sín mál og það sé tryggt að fólk geti nýtt sér þessa kosti sem boðið er upp á. Í upphafi þegar við ákváðum að fresta nauðungarsölum var það gert með þeim rökum að við teldum mik- ilvægt að fólk fengi ráðrúm og tíma til að sjá hvaða áhrif skuldaleiðrétt- ing ríkisstjórnarinnar hefði á mál þess. Núna hefur legið fyrir í nokkr- ar vikur að útreikningar á höfuðstóls- lækkuninni og úrvinnsla úr kærum eða óskum fólks eftir frekari útreikn- ingum er aðeins tímafrekari en við áttum von á, enda umsóknirnar mjög margar. Af þeirri ástæðu höfum við verið að skoða hvernig við getum best tryggt að fólk hafi það ráðrúm sem við vildum gefa því með þessum breytingum, en það er okkar skoðun að það verði ekki gert nema með því að framlengja frestinn,“ segir Hanna Birna en hún segir mjög marga hafa sótt um höfuðstólslækkun og úr- vinnslan muni taka nokkurn tíma. Vill að nauðungarsölum verði frestað til 1. mars árið 2015  Leggja á frumvarpið fram á fyrstu dögum haustþings Hanna Birna Kristjánsdóttir Karlmaður sem lést í umferðarslysi á Hafnarvegi, skammt norðan við Höfn í Hornafirði, fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn hét Halldór Guðmundsson. Halldór var 58 ára gamall, fædd- ur 29. nóvember 1955, til heimilis á Kópavogsbraut 93 í Kópavogi. Hann lætur eftir sig eiginkonu, fjögur uppkomin börn og eitt barnabarn. Lést í bílslysi við Höfn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.