Morgunblaðið - 01.09.2014, Page 13

Morgunblaðið - 01.09.2014, Page 13
FRÉTTIR 13Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014 Svo virðist sem óprúttnir tölvuhakk- arar hafi getað athafnað sig í tölvu- kerfum JP Morgan Chase í tvo mán- uði, þar til reglubundin skönnun á kerfum bankans leiddi í ljós að ekki var allt með felldu. Heimildarmenn Bloomberg sem kunnugir eru tölvuárásinni leiða lík- ur að því að hakkararnir hafi notið liðssinnis rússneskra stjórnvalda. Talsmaður Rússlandsforseta hefur vísað á bug öllum ásökunum um að þarlend stjórnvöld hafi átt þátt í árásinni. Glufa á heimasíðu Hakkararnir eiga að hafa fundið sér leið inn í kerfi bankans í gegnum veikleika á heimasíðu hans. Í fram- haldinu komu þeir fyrir sérsmíð- uðum forritum af ýmsum toga sem voru til þess gerð að komast djúpt ofan í kerfi bankans. Eiga hakk- ararnir að hafa komist yfir gígabæt af gögnum, þar á meðal reiknings- upplýsingar viðskiptavina. Árásin þykir ekki síst merkileg fyrir þær sakir að óvíða er meiri fjármunum varið í gagnaöryggismál en hjá bankanum. Skömmum áður en hakkararnir létu til skarar skríða hafði JPMorgan tilkynnt að hann myndi verja 250 milljónum dala ár- lega í netöryggismál, jafnvirði um 29 milljarða króna. Rannsókn málsins er nú í höndum bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. ai@mbl.is AFP Tjón Tölvuþrjótarnir virðast hafa stolið ógrynni gagna frá bankanum. Hakkarar komust í tölvukerfi JPMorgan  Rússnesk stjórnvöld bendluð við árásina Sælgætisrisinn Hershey‘s svipti hulunni af nýju vörumerki á föstudag. Hefur hið gamla merki fyrirtækisins verið stílfært, m.a. með því að sleppa eignarfalls-„s“-inu aftan af nafninu og útfæra á aðra vegu mynd af sæl- gætinu vinsæla Hershey‘s Kiss. Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal um breytinguna er nýja vörumerkinu ætlað að gefa þessu 120 ára gamla fyrirtæki nú- tímalegra yfirbragð. Hershey framleðir meðal annars Almond Joy, Kit Kat, Reese‘s hnetusmjörsbollana, Twizzlers lakkrísinn og York pipar- mintubuffin. Einnig annast fyrirtækið fram- leðslu súkkulaðistykkja Cadbury fyrir Bandarikjamarkað. Ekki leið á löngu þar til netverjar komust á snoðir um fréttirnar, og varð tilefni mikils galsaskapar. Þykir stílfærði Hershey-kossinn nefnilega minna mjög á rjúkandi dellu. Er þetta ekki fyrsta klaufalega hannaða vörumerkið sem lítur dagsins ljós á þessu ári og Market- Watch minnir á að nýtt merki leigumiðl- unarinnar Airbnb sem kynnt var í júli þótti minna helst til mikið á kynfæri kvenna. ai@mbl.is Nýtt merki Hershey kætir netverja Breytingar Gamla merkið (uppi) og það nýja (niðri). Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.