Morgunblaðið - 01.09.2014, Síða 18

Morgunblaðið - 01.09.2014, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014 ✝ Loftur J. Guð-bjartsson fæddist í Gilhaga á Bíldudal 5. júní 1923. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Eir 13. ágúst 2014. Foreldrar hans voru Guðbjartur Friðrik Marías Friðriksson, f. 14. júlí 1892 í Litla- Laugardal í Tálknafirði, d. 18. júlí 1941 á Akureyri, og Jensína Sigríður Loftsdóttir, f. 7. ágúst 1883 á Eysteinseyri í Tálkna- firði, d. 29. mars 1965 í Reykja- vík. Loftur fluttist til Akureyrar sex ára gamall með foreldrum sínum og bjuggu þau fyrst í Strandgötu en faðir hans byggði síðan hús við Eiðs- vallagötu 7 á Akureyri og bjó Loftur þar þangað til hann fluttist til Reykjavíkur. Systkini Lofts voru Unnur, f. 9. október 1916, d. 2. febrúar 2005, og Friðrik Laugdal, f. 26. nóv- ember 1919, d. 27. janúar 2006. Loftur kvæntist 12. desember 1953 Vigdísi Guðfinnsdóttur, f. 8. október 1927 í Reykjavík. Dætur Lofts og Vigdísar eru: 1) og fulltrúi á skrifstofu Véla- og raftækjaverslunarinnar hf. 1956-1958. Í ársbyrjun 1959 hóf Loftur aðalævistarf sitt er hann gekk í þjónustu Útvegsbanka Íslands, fyrst sem fulltrúi í bókhalds- deild aðalbankans til 1963, síð- an sem deildarstjóri í hag- fræðideild 1963-1971 og forstöðumaður hennar 1971- 1975, er hann var skipaður úti- bússtjóri bankans í Kópavogi og starfaði hann þar til 1987. Á ár- unum 1958 til 1975 lagði hann einnig fyrir sig stundakennslu í ensku við ýmsa skóla, þó lengst af við Menntaskólann í Reykja- vík og Hagaskóla. Loftur var í stjórn Byggingasamvinnufélags starfsmanna ríkisstofnana 1957- 1972, formaður 1965-1972, var í nefnd á vegum viðskiptaráð- herra um dreifingu og birgða- hald á olíuvörum 1968. Hann var stofnfélagi í Rótarýklúbbn- um Reykjavík-Breiðholt og um- dæmisstjóri Rotary Int- ernational á Íslandi 1991-1992. Þá var hann um skeið varafor- maður sóknarnefndar og safn- aðarfulltrúi í Fellasókn í Reykjavík. Loftur var mikill fjölskyldumaður og naut þess að vera með fjölskyldu sinni. Loftur fluttist á Hjúkr- unarheimilið Eir í júlí 2013 er heilsu hans fór að hraka.Útför Lofts fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 1. september 2014, og hefst athöfnin kl. 15. Marta, f. 19. mars 1955. Fyrrverandi maki: Sveinn Harð- arson, f. 8. desem- ber 1955. Synir þeirra eru Hörður, f. 1981, og Finnur, f. 1986. Þau skildu. Núverandi maki: Gunnar Jóhanns- son, f. 14. sept- ember 1955. Gunn- ar á tvö börn, Árna Beck, f. 1978, og Guðrúnu Björgu, f. 1980. Samtals eiga Marta og Gunnar sjö barna- börn. 2) Svava, f. 2. febrúar 1957. Maki: Ásmundur Krist- insson, f. 13. október 1956. Þau eiga tvo syni, Friðrik Heiðar, f. 1980, og Loft, f. 1984. Svava og Ásmundur eiga fjögur barna- börn. Loftur útskrifaðist sem stúd- ent frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1947. Hann lauk BA- prófi 1953 í spænsku og hag- fræði frá háskólanum í Leeds á Englandi. Eftir heimkomuna frá Leeds stundaði Loftur stjórnsýslu- og skrifstofustörf, var viðskiptalegur fram- kvæmdastjóri Offiseraklúbbsins á Keflavíkurflugvelli 1953-1956 Í dag kveð ég tengdaföður minn, Loft J. Guðbjartsson. Ég kynntist Lofti fyrir 17 árum er ég hóf sambúð með Mörtu dóttur hans. Loftur og Dísa tóku mér vel strax í upphafi og þeim var ávallt umhugað um mig, börnin mín og barnabörn. Loftur braust sjálfur til mennta, gekk í MA og síðan lá leiðin til Leeds þar sem hann stundaði nám í hagfræði og spænsku. Enskan var honum þó tömust og er mér til efs að margir jafnaldrar hans hafi haft jafn- mikla þekkingu og jafn góð tök á enskunni og hann enda var hann stundakennari í ensku í 17 ár lengst af í MR og Hagaskóla. Loftur var haldinn ólæknandi bíladellu öll sín fullorðinsár. Hann hugsaði vel um bílana sína og þreif og bónaði þá nánast alltaf á sunnudögum. Hann var áskrif- andi að bílablöðum og las þau upp til agna. Stjórnmálin hér heima voru honum einnig hugleikin sem og heimsmálin og efnahagsmál al- mennt. Þá vitnaði hann oft í grein- ar sem hann hafði lesið í Econom- ist. Það var gaman að ræða þessi mál við Loft og hann var oft með áhugaverða og annarskonar sýn á málin. Loftur og Dísa höfðu alla tíð mikinn áhuga á ferðalögum og ferðuðust víða og fóru oft á fram- andi slóðir. Þau heimsóttu allar heimsálfurnar nema Suður- skautslandið en það var bara vegna þess að það var of flókið að fara þangað. Á seinni árum voru það einkum orlofsferðir í sólina sem heilluðu. Ferðin til Ungverja- lands 2005 með okkur Mörtu, Svövu og Ása var ógleymanleg. Við áttum frábærar tvær vikur saman í fögru umhverfi Balaton- vatns og Búdapest og nutum sam- vista hvert við annað. Fyrir þremur árum veiktist Loftur á ferðalagi og þurfti að dveljast á sjúkrahúsi í Kaup- mannahöfn í nokkra daga. Árni Beck sonur minn og fjölskylda búa í Kaupmannahöfn og heim- sóttu þau Loft daglega. Við Marta flugum út til að vera Lofti til halds og trausts. Loftur átti afmæli meðan hann dvaldist á sjúkrahúsinu og við héldum upp á daginn í almenningsgarði við hlið- ina á spítalanum í frábæru veðri og gæddum okkur á heimabak- aðri afmælistertu og kaffi. Þetta þótti Lofti mjög gaman því af- mæli og aðrar fjölskyldusamkom- ur voru honum kærar. Árlegt jólaboð í Asparfellinu var hápunkturinn á veisluhöldum ársins. Þar safnaðist fjölskyldan saman og fagnaði aðventunni. Síðasta afmælisveislan hans var haldin heima hjá Svövu og Ása í Hljóðalindinni í sumar og þar var stórfjölskyldan nánast öll saman- komin og samgladdist með ætt- föðurnum á einum besta degi sumarsins. Síðastliðið ár bjó Loftur á Hjúkrunarheimilinu Eir. Þar naut hann umönnunar frábærs starfsfólks og þar leið honum vel. Hann tók þátt í ýmsu félagsstarfi heimilisfólks, en það sem veitti honum mesta ánægju var að fara í sunnudagsbíltúr innanbæjar eða stutt út fyrir bæinn. Þá var gjarn- an sest á huggulegt kaffihús til að gæða sér á góðum kaffibolla og tertusneið. Síðasta ferðin okkar með Lofti var austur að Ölfusár- ósi helgina áður en hann lést. Það var bjartur og fagur dagur og hafði Loftur á orði hvað veðrið væri yndislegt og fjöllin falleg. Elsku Dísa. Missir þinn er mik- ill og fjölskyldunnar allrar. Minn- ingin um góðan mann lifir áfram. Gunnar Jóhannsson. Mig langar að minnast í fáein- um orðum tengdaföður míns Lofts J. Guðbjartssonar sem verður jarðsunginn í dag. Ég tengdist fjölskyldunni fyrir hart nær 40 árum þegar við Svava fór- um að rugla saman reytum. Ég minnist manns sem allt frá fyrsta degi reyndist mér góður fé- lagi. Honum get ég m.a. þakkað að hluta til fyrir hvað ég starfa í dag því hann kom mér í samband við byggingameistara minn. Ég minnist mikils málamanns sem talaði ensku eins og breskur aðalsmaður. Loftur tók mig í enskukennslu rétt fyrir próf sem skilaði sér undravel. Ég minnist faðmlaganna þegar við heilsuðumst og kvöddumst. Það var einkennandi fyrir hann að faðma sína nánustu. Ég minnist jólanna þegar við gáfum hvor öðrum Alistair Mac- Lean spennubækurnar enda báð- ir miklir aðdáendur hans. Ég minnist reglustikanna, heftaranna og áherslupennanna. Loftur var mikill nákvæmnismað- ur. Eftir hann liggja margar dag- bækur frá ferðum hans vítt og breitt um heiminn. Gaman er að lesa nákvæmar lýsingar hans m.a. á innanstokksmunum hótelher- bergja. Ég minnist bílaáhuga hans. Allra bílanna sem hann keypti, bílablaðanna og bílasýninganna. Ég minnist utanlandsferða okkar saman, þó sérstaklega Hol- landsferðarinnar 1986. Loftur naut sín þar í afahlutverkinu í rússíbanaferðum með barnabörn- unum og í hjólreiðatúrum og hjól- koppaskoðunarferðum með nafna sínum. Ég minnist ferða hér innan- lands en þó sérstaklega ferðar- innar þegar við Svava fórum með Loft og Dísu á Vestfirði sumarið 2012. Loft langaði að sjá í hinsta sinn fæðingarstað sinn, bæinn Gil- haga á Bíldudal. Honum kom á óvart að húsið sem hann fæddist í og bjó í til 6 ára aldurs var enn uppistandandi, í góðu ásigkomu- lagi og að náfrænka hans bjó í húsinu. Grunar mig að honum hafi fundist þessi ferð síst síðri en allar utanlandsferðirnar til fjarlægra heimsálfa. Þessar minningar ásamt mörg- um fleirum munu fylgja mér. Blessuð sé minning tengdaföð- ur míns, Lofts J. Guðbjartssonar. Ásmundur Kristinsson. Elsku Loftur minn. Sagt er að ein mynd segi meira en þúsund orð og það gerir myndin sem við Loftur nafni þinn tókum af þér með barnabarnabörnunum síðast þegar við hittumst. Þú situr í stól, heldur á Hauki Leó og Emilía Dís situr í stólnum við hliðina á þér. Börnin horfa á þig full aðdáunar og þú horfir svo stoltur á þau. Þessi mynd lýsir umhyggjunni og gleðinni sem þú gafst okkur. Ég hugsa til baka og minnist margra góðra stunda á heimili ykkar Dísu. Þið komuð ávallt fram á gang og tókuð á móti okkur með brosi og faðmlagi. Þú varst alltaf svo glaður þegar fjölskyldan hitt- ist. Síðan þegar við fórum þá horfðuð þið á eftir okkur úr glugg- anum og veifuðuð. Loftur sagði mér að þið hefðuð gert það frá því að hann myndi eftir sér og honum þótti mjög vænt um það. Við horfðum alltaf upp í gluggann og veifuðum ykkur til baka. Það er svo margt sem mig lang- ar að segja en mér er ekki til lista lagt að semja jafngóðar ræður og þú gerðir. Því vil ég aðeins segja: Loftur minn, þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Ég mun um ókomna tíð minnast þín með hlýju og þakk- læti. Hvíl í friði, Bergdís Heiða. Nú er komið að kveðjustund, nafni minn og afi. Ég á eftir að sakna þín mjög en mun halda í minningarnar um hversu frábær afi og fyrirmynd þú varst. Ég man svo vel þegar þú bauðst mér með að skoða nýjustu bílana. Ég man hversu spenntur lítill pjakkur ég var þegar afi Loft- ur ætlaði að sækja mig og fara með mér á bílasýningar. Þökk sé þér þá þekkti ég flestar bílateg- undir út frá stuðurum, afturljós- um eða hjólkoppum. Þér fannst gaman að spila á spil og kepptum við oft saman í ólsen ólsen og rummikub. Keppnisskapið var mikið þótt mig gruni að í sumum tilfellum hafi mér verið gefinn sig- urinn. Þú varst mikill fjölskyldumað- ur og hafðir alltaf velferð fjöl- skyldunnar í fyrirrúmi. Ég minn- ist fallega brossins þegar við fjölskyldan komum í heimsókn og sérstaklega þegar þú hélst á barnabörnunum þínum. Hvíl í friði elsku afi. Loftur Ásmundsson. Elsku afi. Við kveðjum þig með söknuð í hjarta. Þú varst yndisleg- ur afi og reyndist okkur vel. Við munum ávallt varðveita stundirn- ar sem við áttum með þér og erum þakklátir fyrir allt það sem þú hef- ur kennt okkur. Minning þín mun lifa með okkur. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þínir afastrákar, Hörður og Finnur. Nú er lokið langri og ljúfri sam- fylgd við Loft Guðbjartsson. Ég man eftir honum frá því ég var pínulítil, þegar fjölskylda mín kom í heimsókn á Fornhaga. Í minningunni var hann brosmildur en ákveðinn. Þarna áttu þau Dísa frænka mín heima, og dætur tvær. Þær hétu Marta og Svava og voru á svipuðu reki og við Ás- laug, systir mín. Mér þóttu þetta skemmtilegar stelpur, en alveg fannst mér furðulegt í fyrstu, að Marta skyldi halda því fram, að þær ættu sömu ömmu á Víðimeln- um og við Áslaug. Þarna fékk ég eftirminnilega kennslustund í hagnýtri ættfræði. Heimsóknunum á Fornhaga fjölgaði eftir að foreldrar mínir fluttu aftur til Íslands, og alltaf var notalegt að líta inn til Lofts og Dísu. Svo fór ég í MR, og þar mætti ég Lofti stundum á göng- unum. Þá var hann í hlutverki ábúðarmikils enskukennara og bar með sér ótvíræða breska há- skólafágun. Enn síðar var Loftur útibússtjóri í bankanum okkar í Kópavoginum, og þar fóru saman þjónustulundin og festan. Oft komu Dísa og Loftur til foreldra minna á Þinghólsbraut á gamlárs- kvöld, og þá var spiluð vist. Loftur birti þá á sér nýja hlið, tók spilið föstum tökum, og oft var hlegið dátt. Þegar Loftur og Dísa tóku að reskjast bjuggu þau sér fallegt heimili í Asparfelli, þar sem útsýni er vítt til allra átta. Svo veiktist Loftur, og þau tvö síðustu skipti sem ég hitti hann var hann æðru- laus, sáttur við lífið og það sem framundan var. Við vottum Dísu samúð okkar, svo og Mörtu og Svövu, tengda- sonum og afkomendum. Ólöf Pétursdóttir. Robert Burns, hið endingar- góða höfuðskáld Skota, orti fag- urlega um vináttuna sem fólk stofnar til á ungum aldri og spurði: „Should auld acquaintance be forgot?“ „Hvort viltu slíta vina- bönd, svo verði týnd og gleymd.“ Þessi hugsun kemur mér í hug þegar ég minnist vináttu okkar Lofts Guðbjartssonar sem til varð við fyrstu kynni okkar í Mennta- skólanum á Akureyri fyrir meira en 70 árum. Fjarri fór því að við Loftur gengjum sömu götur gegnum lífið. Starfsvettvangur okkar var í raun býsna ólíkur, en hinar huglægu vináttuleiðir lágu alltaf saman. Þegar á leið ævina og umstang ævistarfanna var um flest að baki tókum við upp okkar fornu nánu kynni og urðum aftur daglegir samferðamenn og vinir eins og ekkert hefði ískorist á ár- unum milli ungdóms og elli. Loft- ur átti líka mikinn þátt í því að taka upp þráðinn sem batt okkur saman, stúdentshópinn frá MA 1947. Þar var hann virkur forustu- maður og félagi til hinstu stundar. Það sem lifir þessa hóps heiðrar af heilum hug minningu Lofts og þakkar liðna tíð. Loftur Guðbjartsson var gædd- ur miklum hæfileikum, prýðilegur námsmaður í skóla og gegndi hverju því starfi sem hann tókst á við af áhuga og trúmennsku. En hann var líka mannkostamaður, frábær að kurteisi og gerðar- þokka, já, „integer vitae“. Loftur var með sanni hamingjumaður í einkalífi. Þau Vigdís voru sem einn maður, eins og við fornvinir hans vissum og fundum svo vel. Henni og fjölskyldunni allri eru færðar samúðarkveðjur á útfarar- degi Lofts. Um það sammælast vinir og skólasystkin hans. Bless- uð sé minning Lofts Guðbjarts- sonar. Ingvar Gíslason. Loftur J. Guðbjartsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN G. HJÁLMARSSON frá Vestmannaeyjum, Kleppsvegi 62, lést á Hrafnistu, Reykjavík, sunnudaginn 31. ágúst. Soffía Guðrún Jóhannsdóttir, Jóhann Pétur Jónsson, Kristín S. Steingrímsdóttir, Einar Hjálmar Jónsson, Erla J. Erlingsdóttir, Hafdís Jónsdóttir, Georg Kulp, Kristrún Jónsdóttir, Ólafur Fannar Vigfússon, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ÓLÖF KJARTANSDÓTTIR, Laufbrekku 20, Kópavogi, lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 24. ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 2. september kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á FAAS eða Hollvinasamtök Droplaugarstaða. Einar Guðmundsson, Elín Einarsdóttir, Guðmundur Einarsson, Anna Karlsdóttir, Kjartan Einarsson, Claudia Spagnol, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, langalangamma og langalanga- langamma, SIGFRÍÐUR GEORGSDÓTTIR, Bústaðavegi 105, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 27. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. september kl. 13.00. Örn S. Jónsson, Friðbjörg Haraldsdóttir, Baldur Jónsson, Guðrún Halldórsdóttir, Pétur I. Jónsson, Edda G. Guðmundsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Eysteinn Nikulásson, Emilía G. Jónsdóttir, Einar Ólafsson, Ólafur Jónsson, Kristín Guðmundsdóttir, Ragnar Jónsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR JÓHANNA BERGSVEINSDÓTTIR, Sóltúni 2, Reykjavík, er látin. Ásgeir Reynisson, Hildur Anna Hilmarsdóttir, Nína María Reynisdóttir, Ingólfur Guðmundsson, Kristín Erna Reynisdóttir, Ragnhildur Sif Reynisdóttir, Gísli Sigurðsson, Sara Steina Reynisdóttir, Trausti K. Traustason, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.